Morgunblaðið - 28.06.1980, Blaðsíða 48
Síminn
á afgreiðslunni er
83033
JWerjjimblaíiib
Síminn á ritstjórn
og skrifstofu:
10100
Lítri af
benzíni
hækkar
um 51 kr.
Ríkið fær 23.50
kr. af hækkuninni
LÍTRI af benzíni hækkar í dax úr
430 krónum í 481 krónu eða um
51 krónu hver litra. Þá hækkar
lítri af tcasdlíti úr kr. 155.20 i kr.
190.40. Af bensínhækkuninni
koma 23.50 kr. í hlut ríkisins ok
má því j?era ráð fyrir að þessi
hækkun færi ríkissjóði um 2.4
mijljarða króna á ári.
Astæður benzínhækkunarinnar
eru hratt genKÍssig undanfarna
mánuði, aukinn dreifingarkostn-
aður og vegaskattur eða benzín-
gjald, sem nú bætist við. Verðlags-
ráð heimilaði hækkun benzíns upp
í 470 krónur en síðan ákvað
ríkisstjórnin að nýta heimiid í
lögum til að hækka benzíngjald í
samræmi við hækkun byggingar-
vísitölu, sem varð 1. apríl. Er
benzíngjaldinu hafði verið bætt
við varð verðið á Iítra 481 króna.
5 milljóna
vagn
í verðlaun
EINSTAKLEGA glæsileg
verðlaun verða í Toyota-
golfkeppninni, sem háð verður
á golfvelli Keilis á Hvaleyri í
Hafnarfirði 19. og 20. júlí
næstkomandi. Toyota-verk-
smiðjurnar hafa ákveðið að
gefa bifreið af gerðinni Toyota
Corola DeLuxe til keppninnar,
en söluverð slíkrar bifreiðar er
nú um 5.5 milljónir króna.
Reglur um verðlaunin hafa enn
ekki verið ákveðnar, en bifreið-
in skal ganga út án skilyrða.
Áður hefur verið hægt að
vinna nýjar bifreiðar í golf-
mótum fyrir að fara holu í
höggi.
Verðlaun þessi eru gefin af
aðalverksmiðjum Toyota í Jap-
an, en 10 ár eru liðin frá því að
Toyota-golfkeppnin var fyrst
haídin hér á landi og sömuleið-
is er Toyota-umboðið hér á
landi 10 ára um þessar mundir.
I tilefni þessa móts er væntan-
leg til landsins sendinefnd frá
aðalskrifstofu Toyota í Evrópu,
en hún er í Brússel.
Mikið tjón aí
eldi á Kirkju-
lundi í Keflavík
ELDUR kom upp í safnaðarheim-
ilinu í Keflavík, Kirkjulundi, í
gærkvöldi og urðu miklar
skemmdir á húsinu. Kirkjulundur
er gamalt járnklætt timburhús.
Tilkynning um eldsvoðann barst
lögreglunni í Keflavík klukkan
20.20.
LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ1980
Ólafur Jóhannesson á NATO-fundi:
Engin kjamorkuvopn
á KeflavíkiirflugveUi
Biskupinn
lætur af
embætti
á næsta ári
BISKUP íslands herra Sigur-
björn Einarsson, lætur af
störfum á næsta ári, en ná-
kvæmlega hvenær er ekki ljóst.
Hr. Sigurbjörn staðfesti þetta i
samtali við Morgunblaðið i
gær, en hann verður sjötugur
30. júní 1981. Séra Sigurbjörn
Einarsson hefur verið biskup
íslands i 21 ár.
Á prestastefnu sem haldin
var í Reykjavík í vikunni, var
rætt meðal presta um hvern
þeir teldu æskilegastan í emb-
ætti biskups. Munu þeir sr.
Ólafur Skúlason, dómprófastur
í Reykjavík og sr. Pétur Sigur-
geirsson, vígslubiskup á Akur-
eyri hafa verið nefndir m.a.
„VIÐ Muskie hittumst að
máli, en ég vil ekkert tíunda
úr okkar viðræðum,44 sagði
ólafur Jóhannesson, utanrik-
isráðherra, er Mbl. ræddi við
hann i London í gær á heim-
leið af utanríkisráðherra-
fundi NATO í Ankara. Mbl.
spurði ólaf, hvort umræður
um kjarnorkuvopn á Kefla-
víkurflugvelli hefði borið á
góma milli hans og Muskie.
„Það er ekki óliklegt að
ýmislegt hafi borið á góma í
okkar samtali," svaraði ólaf-
ur. „Og sjálfur gaf ég í ræðu
minni yfirlýsingu um, að
kjarnorkuvopn væru ekki á
Keflavíkurflugvelli. Við
leyfðum það ekki og ég teldi,
Flugmenn
boða vinnu-
stöðvun
FÉLAG islenzkra atvinnuflug-
manna og Félag Loftleiðaflug-
manna hafa boðað vinnustöðvun hjá
Flugleiðum laugardagana 5. og 12.
júli n.k.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Mbl. aflaði sér í gærkvöldi eru
vinnustöðvanir þessar boðaðar til að
knýja á um að íslenzkir flugmenn
hafi forgang að verkefnum, sem
Flugleiðir annast. Ákvörðun um
vinnustöðvunarboðunina var tekin af
trúnaðarmannaráði FÍA og á félags-
fundi hjá Félagi Loftleiðaflugmanna.
að engin íslenzk rikisstjórn
myndi samþykkja það.“
ólafur sagði, að hann hefði
einnig rætt sérstaklega við
Carrington lávarð utanríkis-
ráðherra Breta, sem hefði
viljað að þeir hittust, en þeir
höfðu ekki hitzt sem utanrík-
isráðherrar áður. Ekki vildi
ólafur skýra frá efni við-
ræðna þeirra.
Um ráðherrafundinn sagði
Ölafur, að hann hefði verið reglu-
legur fundur utanríkisráðherra
NATÓ-landanna og allir utanrík-
isráðherrarnir mætt, nema sá
portúgalski, en aðstoðarráðherra
hans hefði mætt í hans stað. „Það
ríkti góður andi á þessum fundi og
mér virtust menn sammála í
höfuðmálum, þótt alltaf megi
finna einhver blæbrigði á máli
manna,“ sagði utanríkisráðherra.
Ólafur Jóhannesson var vænt-
anlegur heim í nótt.
Kaupa 5 þús. t. af freðfiski til viðbótar:
„Þessi samningur
liðkar mjög fyrir“
— ÞESSI viðbótarsala til Sovét-
rikjanna hefur geysilega mikla
þýðingu fyrir hraðfrystiiðnað-
inn, sagði Árni Benediktsson,
framkvæmdarstjóri samtaka
frystihúsa Sambandsins, um sölu
á 5 þúsund tonnum af frystum
fiskflökum til Sovétrikjanna á
þessu ári.
I viðræðum um 5 ára viðskipta-
samning íslands og Sovétríkjanna
lýsti formaður sovésku nefndar-
innar því yfir að heimiluð yrðu
kaup á þessu magni til viðbótar
fyrri samningum í ár og gætu
samningar um þetta magn hafist
fljótlega. Fyrir nokkrum vikum
fóru íslenzku sölusamtökin þess á
leit við Sovétmenn, að þeir keyptu
7500 tonn til viðbótar af frystum
fiski héðan í ár, en því tilboði var
þá hafnað.
— Heildarframleiðslan á fryst-
um fiski hér á landi í ár gæti orðið
í kringum 140 þúsund tonn og
þessi 5 þúsund tonn eru því aðeins
lítill hluti heildarframleiðslunn-
ar, sagði Árni Benediktsson. —
Eigi að síður er þessi sala mjög
mikilvæg, en hún er einmitt á
þeim tegundura, sem mest veður
væntanlega veitt af á næstunni,
þ.e. karfa, en einnig grálúðu. Nú
þegar er að mestu búið að fram-
leiða upp í þessa sölu, en þessi
samningur liðkar mjög fyrir,
sagði Árni Benediktsson.
A miðopnu blaðsins er greint
frá helztu atriðum í 5 ára við-
skiptasamningi íslands og Sov-
étrkjanna, sem gengið var frá í
Reykjavík í gær. Þar kemur fram,
að næstu fimm árin verður ekki
um aukningu að ræða í útflutn-
ingi frystra sjávarafurða til Sov-
étríkjanna, en hins vegar veruleg
aukning í útflutningi á lagmeti,
saltsíld og ullarvörum.
Gunnar Júlíusson með kúna sina framan við gröfuna.
(LjúKm. KrlHtján).
„Maður fær aldrei að vera í friði“
1 GÆRMORGUN hófu starfsmenn
Reykjavíkurborgar skurðgröft á
túni Gunnars Júlíussonar bónda á
Laugarbóli i Laugardal án þess að
gera honum viðvart og þrátt fyrir,
að hann teldi sig hafa fengið
loforð um, að hann fengi að vera i
friði með tún sitt í sumar.
I samtali við Mbl. í gær, sagðist
Gunnar ekki alveg átta sig á því
hvað væri að gerast. „Starfsmenn
borgarinnar mættu hér í morgun
og byrjuðu þegjandi og hljóðalaust
að grafa skurð á túninu hjá mér.
Sigurður Tómasson bæjarfulltrúi
hafði gefið mér loforð fyrir því, að
ég fengi að vera í friði með túnið
mitt, svo ég átti því ekki von á
þessu. Þá hafa þeir einnig tekið upp
á því að aka mold inn á túnið hjá
mér upp við Laugarásveg. Mér
finnst að þeir hefðu að minnsta
kosti getað látið mig vita, svo ég
gæti slegið túnið áður en þeir
eyðileggja það,“ sagði Gunnar.
„Mér finnst einkennilegt ef borg-
inni leyfist að vaða inn á þinglesna
eign mína og róta þar og eyði-
leggja. Ég hafði samband við lög-
regluna og bað hana að fjarlægja
skurðgröfuna, en hún sagðist ekki
geta það. Ég þykist viss um, að ef
ég tæki upp á því að fara inn á lóð
hjá einhverjum og byrjaði að eyði-
leggja hana, yrði lögreglan fljót á
vettvang og teldi sér fært að
fjarlægja mig. En þetta er nú einu
sinni svona, maður fær aldrei að
vera í friði,“ sagði Gunnar Júlíus-
son að lokum.