Morgunblaðið - 22.07.1980, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 22.07.1980, Qupperneq 1
MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 48 SÍÐUR 162. tbl. 67. árg. ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Methiti í New York New York.21.júlí. AP. KÆFANDI hiti er enn víða í Bandarikjunum og virðist ekkert lát á hitabylgjunni, sem geisað hefur i landinu undanfarnar vik- ur. GífurloKa heitt er cnn í Suður- og Suðausturrikjum Bandarikj- anna og i dag mældist hæsti hiti sem mælst hefur i New York i háifa öld, tæplega 40° C. Talið er að 1167 manns hafi látið lífið með einum eða öðrum hætti af völdum hitans, sem verið hefur óbærilegur í húsakynnum, sem ekki eru loftkæld. Þjóðvarð- liðar hafa farið um nokkur ríki og dreift viftum í hús, þar sem ekki er loftkæling. Tuttugu og þrír létust af völdum hitans í Kansas City á sunnudag og hafa nú 111 látist af orsökum, sem rekja má til hitans undanfarnar fjórar vikur. Tillaga um hvalveiði- bann af- greidd í dag BrÍKhton, 21. júlí. AP. JAPANIR, Sovétmenn, Ísiend- ingar og fjórar aðrar hvaia- veiðiþjóðir bundust í dag óformlcgum samtökum á ráð- stefnu Alþjóðahvalveiðiráðsins í Brighton um að standa gegn „harðstjórn” þeirra þjóða, sem vilja koma á algeru hvalveiði- banni um allan heim. Bretar, Frakkar, Bandaríkja- menn og fleiri þjóðir hafa lagt til að hvalveiðar verði algerlega bannaðar til verndar hvala- stofnunum, sem þessir aðilar telja í hættu. Búizt er við mjög hörðum átökum á ráðstefnunni um þessi mál. Mörg hundruð mótmælendur voru saman komnir við hótelið, þar sem ráðstefnan er haldin, þegar hún hófst í morgun. Þurfti lögregla að bera burt fjölda manns, sem setzt hafði niður og neitaði að færa sig. Einn maður var handtekinn. Ákveðið var á ráðstefnunni í dag að fresta umræðum um hvalveiðibannið til morguns og ræða í þess stað, hvort heimila beri eskimóum, sem hafa hval- veiðar að lífsviðurværi, að halda þeim áfram. Bandaríkja- menn og Bretar hafa lýst sig fylgjandi því en þó aðeins í takmörkuðum mæli. Fremur ólíklegt þykir að til- lagan um algert hvalveiðibann nái samþykki á ráðstefnunni, þar sem til þess þurfa þrír fjórðu þátttakenda að greiða henni atkvæði. Ráðherra myrtur FYRRVERANDI forsætisráðherra Sameinaða Arabíska Lýðveldisins var skotinn tii bana í Paris i morgun. Salah Eddin al-Bitar var á leið til skrifstofu sinnar þegar óþekktur maður skaut hann i höf- uðið af stuttu færi. Árásarmaður- inn komst undan. Al-Bitar, sem var 68 ára Sýrlend- ingur, var ritstjóri blaðs um máiefni Araba, sem gefið er út í París. Hann stóð framarlega, í röðum Sýrlend- inga, þegar sambandsríki Sýrlands og Egyptalands var stofnað fyrir um tuttugu árum, en flúði land, þegar upp úr því siitnaði og hefur síðan búið í París. Framkvæmdir í fullum gangi Framkvæmdir við Hrauneyjafossvirkjun eru i fullum gangi. Bygging stöðvarhússins er hafin og gerð aðveituskurðarins og aðveitulagnarinnar. Fallha'ðin er 88 metrar og er töluvert hærri en i Sigöldu. Nú er unnið fyrir um 2 milljarða króna á mánuði en heildarkostnaður við gerð orkuversins er áætlaður 52 milljarðar króna. „I>eir búa í Afganistan og munu búa þar áfram“ Moskvu, 21. júli. AP. A.M.K. TVEIR iþróttamenn í ólympiuliði Afganistans hafa gefið sig á tal við vestræna fréttamenn og látið í ljós óskir um að fá hæli sem pólitiskir flóttamenn í vestrænum sendi- ráðum i Moskvu. Talsmaður handaríska sendiráðsins í borg- inni sagðist vita til þess að afganskir íþróttamenn hefðu lát- ið þessar óskir i ljósi, en sendi- ráðið gæti ekkert aðhafzt til að koma þeim til aðstoðar. Liðsstjóri afganska íþrótta- fólksins efndi í dag til blaða- mannafundar til að kveða niður Reyna afganskir íþróttamenn að flýja frá Moskvu? orðróm um að íþróttamennirnir vildu flýja. „Þessir menn eiga heima í Afganistan og munu halda áfram að búa þar,“ sagði liðsstjórinn, Gholam Hassani, á fréttamannafundinum. Nokkur hópur afganskra íþróttamanna flúði frá Kabul skömmu áður, en hópurinn átti að leggja af stað til Moskvu. I hópnum voru m.a. körfuknatt- leiksmenn og keppendur í fjöl- bragðaglímu. Er talið að þeir hafi flúið til Pakistans. ítalskur kynvillingur, sem hugðist mótmæla því á Rauða torginu í Moskvu í dag, að troðið væri á réttindum kynvillinga i Sovétríkjunum, var handtekinn áður en hann gat hlekkjað sig fastann á torginu. Nokkrir vest- rænir blaðamenn og myndatöku- menn, sem toru á Rauða torginu, þegar þetta gerðist og hugðust taka myndir af atvikinu, urðu fyrir áreitni sovézkra öryggis- varða, sem tóku af þeim mynda- vélarnar. Þrír blaðamannanna voru handteknir um hríð, en síðan látnir lausir. Yassir Arafat, leiðtogi PLO- samtakanna, spókaði sig í Ólympíuþorpinu um helgina í sér- stöku boði Sovétstjórnarinnar. Vladimir Popov, varaforseti Ólympíunefndarinnar í Moskvu, varði í dag heimsókn Arafats og sagði hann enga ábyrgð bera á atburðunum í Múnchen árið 1972, þegar Palestínuskæruliðar drápu 11 ísraelska íþróttamenn í Ólympíuþorpinu. Popov bætti þvi við að engin hætta væri á því að hryðjuverk yrðu framin á leikun- um í Mosk\ u, öryggisgæzlan væri þar til mikillar fyrirm.vndar. Ekkert lát á blóðugum átökum Tfhcran. London. 21. júli. AP. RÚSSNESKUR skriðdreki og herflutningabíll sprungu í loft upp í vesturhluta Afganistans í morgun eftir að þeir óku yfir jarðsprengju. Með þeim fórust 10 sovézkir hermenn. að því er iranska fréttastofan Pars skýrði frá í dag. Pars sagði einnig. að tveir afganskir uppreisnarmenn hefðu látið lifið í átökum við sovéska hermenn annars staðar i landinu i dag. Sovézkir skriðdrekar á ferð í Afganistan. Karmal forseti Afganistans hef- ur endurskipuiagt stjórn sína frá grunni, að því er franska blaðið Le Monde heldur fram í dag. Hefur Karmal tekið sér meiri völd en áður og endurskoðað ýmsa stjórnar- hætti, sem hann tók í arf frá fyrirrennurum sínum. Ungir Iranar réðust í dag inn í skrifstofur kommúnistaflokks ír- ans í Teheran og hrópuðu vígorð gegn Sovétríkjunum og innrás þeirra í Afganistan. Talið er að 200 ungmenni hafi tekið þátt í árásinni á aðalstöðvar flokksins, en hún kom í kjölfar harðorðra ummæla hins nýkjörna forseta íransþings í garð Sovétríkjanna og kommún- istaflokksins í íran, Tudeh, sem þykir handgenginn Rússum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.