Morgunblaðið - 22.07.1980, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ1980
Frá lundi þingmanna Rrykjavikur ok borKarlulltrúa. Ljósm. Rax.
Ekki ástæða til bjart-
sýni fyrir Hitaveituna
- segir Davíð Oddsson um fund þingmanna
og borgarfulltrúa um málefni Hitaveitunnar
Tilrauna-
vinnsla með
súpukraft úr
klóm humars
RANNSÓKNARSTOFNUN
fiskiðnaðarins hefur að und-
anförnu unnið að tilraunum
með humarkraft. þ.e. að vinna
súpukraft úr klóm og öðrum
úrgangi humars sem nú er
ekki nýttur til vinnslu.
Björn Dagbjartsson for-
stöðumaður Rannsóknarstofn-
unarinnar ságði að fyrir
nokkrum árum hefðu svipaðar
tilraunir verið í gangi og litið
vel út með sölu á nokkur
hundruð kílóum af slíkum
súpukrafti. Tæki hefði þó vant-
að til að hefja framleiðslu, en
nú væru þau fengin og hefst
tilraunaframleiðsla á næst-
unni. Er smám saman verið að
safna hráefni til vinnslunnar
og sagði Björn að gengi til-
raunavinnslan vel væri líkiegt
að einhverjir aðilar myndu
hafa áhuga á að hefja fram-
leiðslu. Kvaðst hann vita til að
slíkar afurðir væru framleidd-
ar í Bandaríkjunum og Evrópu.
Sáttafundur
ASI og VMSS
Sáttasemjari hefur boðað full-
trúa alþýðusambands tslands og
Vinnumálasamhands samvinnu-
félaganna til fundar i dag. Ilefst
hann klukkan 14.
— ÉG tel eðlilegt að ráðherra
veiti loðnuflotanum ákveðna
hlutdeild i sildveiðunum í haust.
en ég álít hins vegar ekki skyn-
samlegt að svo stöddu að veita
leyfi til siglinga. þótt til greina
kæmi að endurskoða það síðar.
sagði Matthías Bjarnason alþing-
ismaður er hann var spurður
álits á þeirri hugmynd að loðnu-
17 ölvaðir
SELFOSSLÖGREGLAN hafði um
helgina afskipti af 17 ökumönnum
er hún grunaði um ölvun, en sex
þeirra óku bílum sínum útaf og
veltu. Mikil umferð var um Suður-
landið og 11 gistu fangageymslur.
— ÉG tel að llitaveita Reykjavik-
ur eigi að reyna að fresta einhverj-
um framkvæmdum sínum. t.d. við
Nesjavelli og jafnvel taka lán til
þess að fjármagna framkvæmdir
við að leggja hitaveitu i ný hús,
enda er það siðferðileg skylda
hennar sem styðja má lagarökum.
sagði Gunnar Thoroddsen forsæt-
isráðherra I samtali við Mbl. í gær.
Gunnar Thoroddsen kvað umræð-
ur á fundi þingmanna og borgar-
fulltrúa hafa verið gagnlegar og
málin skýrð frá báðum hliðum.
Hann sagði mörg atriði mæla gegn
því að Hitaveitan fengi nú 60%
hækkun eins og hún hefði sótt um.
Færi svo hefði hún fengið um 111%
hækkun á árinu, sem hann taldi
ÞINGMENN Reykjavikur og
borgarfulltrúar komu í gær sam-
an til fundar i Höfða þar sem
rædd voru málefni Ilitaveitu
Reykjavikur. Fundinn sátu einn-
ig Valdimar Kr. Jónsson formað-
ur stjórnar veitustofnana. Jó-
hannes Zoega hitaveitustjóri.
Gunnlaugur Pétursson borgar-
skipum yrði leyft að veiða sild til
að sigla með á erlendan markað.
Matthías Bjarnason kvað þetta
ekki nýja hugmynd, hún hafi
komið upp er síldveiðar voru
leyfðar að nýju, en hann hafi
hafnað henni þegar hann var
sjávarútvegsráðherra. Sagði hann
að ekki veitti af þeirri atvinnu
sem hægt yrði að fá með síldar-
söltun og frystingu, búið væri að
fjárfesta víða til að geta unnið síld
hér heima og betur væri að koma
henni á markað saltaðri eða
frystri. Þá kvað hann það geta
skemmt fyrir ef vitað væri á
hinum erlendu mörkuðum að von
væri á ferskri síld þangað, þá
gætu fyrri kaupendur saltsíldar
beðið með kaup sín þar til hún
kæmi fersk og sjálfir látið salta
vera alltof mikinn útgjaldaauka
fyrir borgara og með því yrðu alltof
mikil áhrif á efnahagslíf landsins
með 5—6fnilljarða útgjaldaauka og
kvað hann það verða að vera
samkomulagsmál við launþega-
samtök ef taka ætti hitaveituna úr
vísitölunni.
— Mér finnst nú þetta tal um að
fresta framkvæmdum vera eins og
að heimta að kýr gefi fulla nyt, en
taka jafnframt frá henni heyið,
sagði Jóhannes Zoega hitaveitu-
stjóri í samtali við Mbl. í gær er
borin voru undir hann ummæli
Gunnars Thoroddsen. — Það virðist
helzt eiga að fresta öllum fram-
kvæmdum, en við erum of oft búnir
að fresta nauðsynlegum fram-
kvæmdum við Nesjavelli vegna
lögmaður og Egill Skúli Ingi-
bergsson borgarstjóri.
Davíð Oddsson bar fram ósk um
fund þennan í borgarráði fyrir
nokkru og sagði hann í samtali við
Mbl. að sér hefði fundizt rétt að
kalla hann saman til að kynna
stöðu Hitaveitunnar eins og hún
væri í dag. Var gerð grein fyrir
henni og hækkunarbeiðni sem nú
ytra. Kvaðst hann því af atvinnu-
og markaðsástæðum vera andvíg-
ur því að siglt yrði með ferska síld
á erlendan markað.
MUN minni mjólk heíur að und-
anförnu borizt mjólkursamlögun-
um á Akureyri og Selfossi og
lítur út fyrir 10—14% minna
innvegið mjólkurmagn i júli i ár
en á sama tima i fyrra. Rekja
mjólkurbússtjórar þessa minnk-
fjárskorts í mörg ár. Við erum ekki
að tala um nokkur hús í Hafnarfirði
heldur í Reykjavík einnig og okkur
vantar nú 800—900 milljónir króna
til að standa við þá verksamninga,
sem við höfum þegar gert, og til að
geta leyst út efni sem er á leið til
landsins og allt þetta verður að
gera áður en hægt verður að gera
nokkuð fyrir þau hús sem nú bíða
eftir úrlausn. Með því að tala um
ótímabærar hækkanir tel ég menn
vera að reyna vísitöluleikinn, en
staðreyndin er eigi að síður sú, að
Hitaveitan hefur frá því l.maí 1979
fengið rúma 30% hækkun og því
teljum við nauðsyn á 60% hækkun
nú ef okkur á að takast að halda í
við verðbolguna, en í raun ætti hún
að vera heldur meiri.
liggur fyrir og útskýrðar röksemd-
ir hennar. Davíð Oddsson kvaðst
ekki vera mjög bjartsýnn á fram-
vindu mála Hitaveitunnar eftir
þennan fund, sagði að fram hefði
komið ákveðin tortryggni í garð
Hitaveitunnar, einkum frá þeim
þingmönnum er aðild ættu að
ríkisstjórninni. Sagði hann að
allsnarpar umræður hefðu orðið
og skoðanaskipti og kvað hann
forsætisráðherra hafa bent á þá
lausn að Hitaveitan leitaði eftir
framkvæmdaláni hjá þeim hús-
byggjendum er sótt hefðu um
hitaveitu, en Davíð kvaðst ekki
hrifinn af þeirri hugmynd.
Niðurstöðu fundarins sagði
Davíð Oddsson hafa verið þá, að
sameiginleg fjárhagsnefnd
Reykjavíkur og Alþingis skyldi
fjalla um það strax eftir 24. júlí,
en í nefndinni eiga sæti Jóhanna
Sigurðardóttir, Gunnar Thor-
oddsen, Birgir ísleifur Gunnars-
son og Sigurjón Pétursson.
un m.a. til minni fóðurbætisgjaf-
ar vegna fóðurbætisskatts.
Vernharður Sveinsson mjólkur-
bússtjóri hjá KEA sagði 4,8%
minni mjólk hafa borizt í lok júní
miðað við sama tíma í fyrra, en í
júlí virtist enn stefna í sömu átt,
allt upp í 10—12%. Kvað hann um
að kenna lélegri beit í vor og lítilli
sprettu, en einnig mætti án efa
kenna fóðurbætisskattinum að
nokkru. Sagði hann mjólkurskort
hugsanlegan í haust í Reykjavík
og á Vestfjörðum, en líklega ekki á
sölusvæði KEA.
Grétar Símonarson fram-
kvæmdastjóri Mjólkurbús Flóa-
manna kvað um 14% minni mjólk
hafa borizt nú en á sama tíma í
fyrra. Sagði hann að strax fyrstu
vikuna eftir að fóðurbætisskattur
var settur á hefði minnkað inn-
vegið mjólkurmagn. Óttaðist hann
mjólkurskort í haust og vetur,
mjólkurbúið mætti ekki við því að
fá minni mjólk en verið hefði til
að anna eftirspurn. Kvað hann
minnkandi mjólk þýða minni
framleiðslu mjólkurvara, en hann
sagði að reynt yrði að láta ekki
vanta neyslumjólk.
Ólafur Stefánsson ráðunautur
kvað hugsanlegt að rekja minni
mjólk til mjólkurbúanna til lækk-
andi nytar vegna minni fóðurbæt-
isgjafar, en taldi þó aó þar spilaði
kvótakerfið einnig inn í. Taldi
Ólafur að fara yrði varlega að
minnka fóðurbætisskammtinn við
nytháar kýr, en kvað það að öðru
leyti skaðlaust ef beit væri góð.
Tel óskynsamlegt að
sigla með f erska síld
- segir Matthías Bjarnason
Eins og að heimta fulla
nyt en taka frá kúnum heyið
- segir hitaveitustjóri um þá hugmynd
forsætisráðherra að fresta framkvæmdum Hitaveitunnar
Minnkandi mjólkur-
f ramleiðsla vegna
fóðurbætisskatts
Brenni-
vargur í
gæzlu-
varðhald
vegna
íkveikju-
tilraunar
MAÐUR einn var um helgina
úrskurðaður í gæzluvarðhald í
sakadómi Reykjavíkur vegna
íkveikjutilraunar. Kveikti
maðurinn í rusli og tunnum við
húsið Laugaveg 32, og munaði
litlu að eldurinn læsti sig í
húsið, því eldtungurnar teygðu
sig upp eftir veggjum þess.
Maðurinn viðurkenndi brot sitt
en eigi að síður þótti nauðsyn-
legt í þágu rannsóknar málsins
að hneppa manninn í gæzlu-
varðhald á meðan rannsóknin
færi fram.
Falsari
í gæzlu-
varðhald
SAKADÓMUR Reykjavíkur
úrskurðaði á laugardag 17 ára
pilt í 39 daga gæzluvarðhald
eða til 27. ágúst fyrir ávísana-
fals. Leikur grunur á að hann
hafi falsað ávísanir fyrir millj-
ónir króna. Pilturinn var ný-
lega handtekinn fyrir sams
konar brot og úrskurðaður í
gæzluvarðhald og hafði hann
aðeins verið laus í tæpa viku er
hann var handtekinn á nýjan
leik.
Þjófur
í gæzlu-
varðhald
UM helgina var brotist inn í
hús við Laufásveg í Reykjavík,
en í húsi þessu er að finna
mörg verðmæt listaverk. Þjóf-
urinn vann þar nokkrar
skemmdir og hafði svo á brott
með sér verðmæta klukku.
Þjófurinn náðist og var hann
úrskurðaður í gæzluvarðhald í
eina viku á meðan rannsókn
fer fram á málinu. Klukkan er
enn ekki komin til skila.
Lagður á
gjörgæzlu-
deild ef tir
bílveltu
Það slys varð á Þingvallavegin-
um skammt frá Grafningsveg-
amótum um tíuleytið á sunnu-
dagskvöld að fólksbifreið valt
útaf veginum. Ökumaðurinn,
31 árs gamall, var einn í
bifreiðinni. Hann var fluttur
til Reykjavíkur í skyndi og
lagður inn á Borgarspítalann.
Reyndist hann hafa hlotið
alvarleg höfuðmeiðsli og var
hann lagður á gjörgæzludeild
spítalans að lokinni aðgerð.
Miklar annir voru hjá lög-
reglunni í Árnessýslu um helg-
ina enda mikil bílaumferð í
sýslunni. Ekki gekk umferðin
áfallalaust því alls urðu séx
bílveltur og útafkeyrslur í um-
dæminu um helgina en ekki
urðu slys nema í einu tilfelli,
því sem að framan er getið. 17
ökumenn voru handteknir
vegna gruns um ölvun við
akstur.