Morgunblaðið - 22.07.1980, Page 5

Morgunblaðið - 22.07.1980, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ1980 5 Veiðipallar fyrir f atlaða við Helluvatn Á LAUGARDAGINN afhentu fé- lagar úr kiwanisklúbbnum Kötlu Veiðifélagi Elliðavatns þrjá palla sem ætlaðir eru fötluðum til að veiða af. Félagar úr Kötlu smíð- uðu þessa palla og komu þeim fyrir við Helluvatn, en það til- heyrir Elliðavatni. Lionsklúbbur- inn Þór og Veiðifélag Elliðavatns hafa styrkt þetta málefni og Veiðifélagið hefur veitt Sjálfs- björgu og íþróttafélagi fatlaðra leyfi til að fatlaðir geti veitt þarna endurgjaldslaust, fólk get- ur komið að vatninu og veitt þar án þess að kaupa veiðileyfi, skv. upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Jakob Hafstein fiskiræktar- fulltrúa Reykjavíkurborgar. „Það er frekar auðvelt að kom- ast að þessum pöllum, en á sínum tíma beitti veiði- og fiskiræktar- ráð sér fyrir því að sérstakar brautir voru gerðar til að auð- velda fólki í hjólastólum að kom- ast að vatninu. Meiningin er nú að fólkið geti keyrt svo til alla leið að pöllunum og verða fljót- lega sett upp skilti sem veita fötluðu fólki heimild til að leggja bílum sínum við þessa staði. Ég bæði vona það og trúi fastlega að eftir eigi að lagfæra veiðiaðstöðu og útivistaraðstöðu fyrir fatlaða í borginni enn frek- ar en nú er gert,“ sagði Jakob Hafstein. Athugasemd frá Sigurði Helgasyni MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Sig- urði Ilelgasyni. forstjóra Flugleiða: Vegna fréttar á baksíðu Morgun- blaðsins laugardaginn 19. júlí þar sem undirritaður er sagður „ekki kannast við neina fyrirhugaða sölu á vélum félagsins" bið ég Morgunblað- ið að birta eftirfarandi: Ég man ekki eftir að hafa tekið þannig til orða að ég kannaðist ekki við neina sölu, enda kemur fram síðar í tilvitnuninni að verið sé að reyna að selja eina flugvél en hafi ekki tekist. Þetta er rétt eftir haft og ennfremur það, að engin sala á flugvél hefur enn átt sér stað. Það er skoðun mín, að þegar um kaup og sölu er að ræða, sé fátt fréttnæmt fyrr en búið er .að skrifa undir samninga og greiða a.m.k. hluta kaupverðs. Það skal upplýst að hingað til lands hafa komið umhoðsmenn frá ýmsum löndum til þess að leita upplýsinga og skoða þá flugvél sem félagið setti á söluskrá s.l. haust. Slíkar heimsóknir eru að mínum dómi ekkert fréttaefni — þar til kaup eru gerð og gengið frá málum. Mótmæla ónákvæmum Að veiðum í Ilelluvatni. Þröstur Jónsson formaður kiwanisklúbbsins Kötlu afhendir Ólafi G.E. Sæmundssen framkvæmdastjóra Veiðifélags Elliðavatns veiðipalla fyrir fatlaða. Ljósm. Mbi. Ól.K.M. þ.e. að vísa henni til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár, en gerð hennar hefst eftir sumarleyfi borgarstjórnar, enda ætlar hljómsveitin ekki í fyrirhugaða för fyrr en að ári liðnu og er því nægur tími til stefnu. Upphlaupi og órök- studdum fullyrðingum Inga R. Helgasonar vísa ég á bug sem óþörfum með öllu og eru þær til þess eins fallnar að spilla fram- gangi málsins. fréttum Félag ísl. atvinnuflugmanna mót- mælir ónákvæmum fréttaflutningi blaðafulltrúa Flugleiða er fram kom í frétt í Mbl. sl. sunnudag þar sem sagt er aö engum flugmönnum hafi verið sagt upp. Hið rétta er að einum fastráðnum flugmanni hefur verið sagt upp og kemur uppsögnin til framkvæmda hinn 1. október n.k. F.h.FÍA, Árni Sigurðsson. Styrkbeiðnin fái sömu afgreiðslu og aðrar styrkbeiðnir, segir Sjöfn Sigur- björnsdóttir Á borgarráðsfundi s.l. föstudag var m.a. rætt um ósk Sinfóníu- hljómsveitar íslands um styrk að upphæð 2,6 milljónir til hljóm- leikaferðalags á n«‘sta ári. af- greiðslu þess máls í borgarráði og blaðaskrif í kjölfar hennar. Davíð Oddsson borgarfulltrúi. talsmaður sjálfstæðismanna opnaði umræðurnar með eftirfar- andi bókun og Sjöfn Sigurbjörns- dóttir borgarfulltrúi Alþýðu- flokksins óskaði eftir að gera bókun, sem einnig birtist hér á eftir. Bókun Daviðs Oddssonar var svohljóðandi: Fulltrúi borgarráðs í stjórn Sinfóníuhljómsveitar íslands, Ingi R. Helgason hrl., ritaði langa grein í Morgunblaðið 17. þ.m. Eitt atriði snertir borgarráð sérstak- lega. Ingi fullyrðir, að borgarráð hafi meinað honum aðgang að fundi borgarráðs, til þess að gera grein fyrir erindi sínu varðandi hljómsveitina. Vegna þessa er nauðsynlegt að taka eftirfarandi fram: Borgar- ráði var aldrei sagt frá slíkri ósk Inga R. Helgasonar og var aldrei um hana rætt á fundi þess. Það mun rétt, að borgarstjóri mun, að beiðni Inga, hafa brugðið sér fram í gang til þes að ræða við hann, en ekki vék borgarstjóri að því einu orði, hvað þeim fór á milli. Borgarráði var því ókunnugt um af hvaða ástæðum Ingi R. Helga- son var mættur á staðinn. Hafi Inga R. Helgasyni verið meinaður aðgangur að fundi borg- arráðs, þá hafa þeir, sem að því stóðu, ekki gert það í umboði þess. Bókun Sjafnar Sigurbjörnsdótt- ur er svohljóðandi: Að gefnu tilefni, þ.e. vegna blaðaskrifa Inga R. Helgasonar Ég tel að styrkbeiðni Sinfóníu- óska ég eftir að færa eftirfarandi hljómsveitarinnar eigi að fá sömu til bókar: afgreiðslu og aðrar styrkbeiðnir, UTSÖLUSTAÐIR Karnabær Laugavegi 66 - Karnabær Glæslbæ Eyjabær Vestmannaeyjum - Hornabær Hornafirði - Eplið Akranesi - Eplið Isafirði -Cesar Akureyri Component (ar Stereo ■ • kilometrum a undan >egar kemur að hljómgæðum hafa PIONEER bíltækin þá yfirburði, að við getum fullyrt að þau eru mörgum kflómetrum á undan öðrum bíltækjum þ\ tiiiiifiiimin w-m CöPIOMGEn I iim|HHirul I ar ntrmi t HLJÓMTÆKJADEILD KARNABÆR LAUGAVEG 66 SlMI 25999 Bókun Davíðs Qddssonar: Borgarráði ókunnugt um hvers vegna Ingi var mættur á staðinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.