Morgunblaðið - 22.07.1980, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.07.1980, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ1980 Pétur Sigurðsson, alþm.: The Spike - Athyglisverð og spennandi skáldsaga Nafn þessarar bókar mun dregið af notkun þess í röðum blaðamanna í enskumælandi löndum og þýðir að frétt fáist ekki birt, vegna þess að rit- stjóra eða öðrum ráðamanni fjölmiðils líkar ekki þau póli- tísku sannindi eða viðhorf sem koma fram í henni. Það getur líka þýtt að hallað er til eða breytt efnislegri þýðingu fréttar með þvi að sleppa úr henni eða fellá niður og breyta þar með þýðingu hennar. Það þýðir að pólitískar skoðanir þeirra sem ráða fjöl- miðlinum, ráða einnig þeim fréttum sem birtast. I skáld- sögunni The Spike er einmitt fjallað um fjölmiðla og pólitík. Sagan spannar yfir tímabil- ið frá 1967 þegar mótmæli stúdenta í Bandaríkjunum gegn styrjöldinni í Viet Nam stoðu sem hæst og nokkuð fram yfir nútímann eða fram á stjórnartíð næsta (?) forseta Bandaríkjanna. í sögunni má hæglega sjá fyrir sér fyrir- myndir höfunda sem sóttar eru til manna sem við sögu hafa komið á siðustu árum svo og atburði sem voru að gerast allt fram á þetta ár. Efnisþráðurinn er í stórum dráttum á þessa leið: Robert Hockney, ungur frjálslyndur blaðamaður verður frægur í starfi sínu fyrir rannsóknar- fréttamennsku, er sem svipa á Nixon, stjórnarfar hans og þátt CIA í því. Hann verður elskhugi rót- tækrar leikkonu sem er kyn- tákn í Bandaríkjunum. Hann er hrakinn úr starfi við blað sitt þegar hann snýr sér að rannsókn á óvenjulegu efni, eða hvernig sumir fjölmiðlar halla til fréttum að undirlagi „Stjórnardeildar A“ innar K.G.B. í Moskvu, til að deyfí viðbúnað og aðgát vestrænna ríkja við heimsvaldastefnu Rússa. En í bókinni kemur það berlega fram að sú stefna er enn í hávegum höfð þótt nú sé að henni unnið með nútíma- legum aðferðum og þá notað m.a. það prent- og skoðana- frelsi sem íbúar hinna vest- rænu ríkja búa við. R.H. fylgir spori sem hann kemst á í Víet Nam, til stöðva hermdar- verkamanna í Hamborg og Róm, í samkvæmi hinna betur megandi í París þar sem kynsvall er megin skemmti- atriði — og til uppgötvunar á „moldvörpu" K.G.B. sem hefur grafið sig allt inn í Öryggisráð Bandaríkjanna í Washington. Sú hættulega leið sem R.H. fylgir og lýst er fyrir lesend- um segir þeim eitt og annað sem þeim er máski dulið í dag en öðrum er ljóst að á sér stað — jafnvel hér á íslandi. The Spike er vel skrifuð og spennandi skáldsaga, sem fjallar um skipulagða fréttamisnotkun, ef ekki föls- un. Hún fjallar um hvort Sovétrikin, sem breytt hafa yfir kenningu kommúnista um alheimsbyltingu, geti brotið niður og eyðilagt þjóðskipulag vestrænna ríkja innanfrá og náð því sem byltingarkenning- in stefnir að, völdum í þessum ríkjum innanfrá, án þess að hieypa af skoti. Slík spennu-skáldsaga er að sjálfsögðu jafnhliða frásögn af njósnum og njósnurum, moldvörpum, mútum, embætt- is- og stjórnmálamönnum sem tökum er náð á með sérhæfð- um (og æfðum) kynbombum af báðum kynjum. Sérstakir út- sendarar sjá um og setja á svið morð, fjárkúganir, sjálfsmorð og dularfull hvörf manna. Þessi skáldsaga segir frá því sem er að gerast á bakvið tjöldin í dag, hún fjallar um nýliðna atburði og afleiðingar þeirra, sem sumar eru þó enn ekki komnar í ljós. Hún er þannig skrifuð að erfitt er að gera sér grein fyrir því hvað er skáldskapur og hvað raunveruleiki. Víða hefur mátt lesa full- yrðingar um að afskipti Sov- étríkjanna af innanlands- málum Iran hafi verið meiri en upp hafi komist, einnig að stefna þeirra sé yfirtaka og yfirráð ýfir olíulindunum í Miðausturlöndum, sem yrði stærsta skrefið sem þau, sam- kvæmt kenningum kommún- ista, gætu stigið til heimsyfir- ráða. Um það sem þegar er skeð á þessu sviði er fjallað í bókinni, einnig um næstu skref, sem kannski ef verið að stíga í dag. Höfundar bókarinnar The Spike eru tveir, Arnaud De Borchgrave, aðalfréttamaður erlendra frétta tímaritsins Newsweek og býr hann í Sviss. Hinn er Robert Moss, ritstjóri Foreign Report, sem gefið er út af hinu áhrifamikla tíma- riti Economist í London og býr hann þar. Báðir eru höfundarnir þekktir í blaðamannaheimin- um og njóta álits sem slíkir. Að undirritaður vekur at- hygli á þessari bók er ekki eingöngu til að mæla með skemmtilegu lesefni, heldur einnig að benda á skyldleik- ann við eitt og annað í okkar eigin þjóðfélagi, sem getur verið til marks um, að sumt það sem á er bent í henni, sé að ske hjá okkur Islendingum. Eins og áður segir, má í bókinni þekkja í lítt falinni mynd frægar persónur. í henni eru einnig tekin upp varnaðar- og aðvörunarorð merkra stjórnmálamanna við óbreytanlegri stefnu Sov- étríkjanna að heimsyfirráð- um. Þegar hafa aðvaranir þeirra sannað réttmæti sitt í fjölda tilfella. Sameiginleg viðbrögð þeirra sem ganga erinda kommúnista hafa ver- ið, að stimpla þessa menn sem æsingamenn, sem vilji ástand kalda stríðsins að nýju, og pólitískar ofsóknir McCharty áranna aftur í hávegu. Undir- ritaður er hvorugu fylgjandi. En kemur ekki á óvart þótt borinn verði slíkum sökum fyrir að vekja athygli á um- ræddri bók. Pétur Sigurðsson 3ja herb. einbýlishús á Eyrarbakka til sölu. Verö: tilboö. Uppl. í síma 99-3437. P31800 - 318011 FASTEIGNAMIÐLJUN Sverrir Krisljánsson heimasími 42822. HREYFILSHÚSINU -FELLSMÚLA 26, 6.HÆO Vesturberg Til sölu mjög vönduð 2ja herb. íbúð á 2. hæö. íbúöin er skáli, stofa og eldhús með mjög vandaörl Innréttingu. Þvotta- herb. er innaf eldhúsi. Allt flísalagt. Vandaö baö. Rúmgóö sérgeymsla. Mikiö útsýni. Blikahólar Til sölu mjög góð 97 ferm 3ja herb. íbúö á 2. hæö, ásamt ca. 30 ferm bílskúr. Laus fljótt. Álagrandi Til sölu 3ja herb. ca. 75 ferm íbúö á jaröhæð. íbúðin er rúmlega tllbúin undir tréverk. Laus strax. Háaleitisbraut Til sölu góð 117 ferm 5 herb. íbúð á 2. hæð ásamt bílskúr. Suöurhólar Til sölu sérlega vönduö og vel frágengln 4ra herb. ca. 110 ferm íbúð á 2. hæð. Miklar Innréttlngar. Laus fljótt. Blöndubakki Til sölu góö 4ra herb. íbúö á 1. hæð ásamt rúmgóöu herb. í kjallara og stórri geymslu. Laus í okt. nk. Álftahólar Til söiu rúmgóö 4ra herb. íbúö á 6. hæð í lyftuhúsi. Suðursvalir. Fokheldur bílskúr. íbúöin er laus strax. Skipti möguleg á 2Ja—3ja herb. íbúö. Hæðargaröur Til sölu raöhús í smíöum. Af- hent strax tilbúiö undir tréverk. Ljósheimar Til sölu 4ra herb. íbúö á 8. hæö i lyftuhúsi. Mikiö útsýni. Kleppsvegur Til sölu 4ra herb. 115 ferm endaíbúö á 8. hæö í lyftuhúsi. Laus fljótt. Vesturbær Til sölu 3ja—4ra herb. risíbúó á góöum staö á Högum. Laus fljótt viö góóa útborgun. Æsufell til sölu 160 ferm mjög góö 7 herb. íbúð á 3. hæö. Vesturbær Til sölu vönduö húseign 3x100 ferm meö nýstandsettri mjög vandaöri 2ja herb. íbúö í kjall- ara. (Sér inngangur). Á 1. hæð er forstofa, skáli, 3—4 stofur og eldhús. Á efri hæð eru 4—5 svefnherb. og baö. Yfir allri efri hæöinni er mjög rúmmikiö geymsluris, sem gefur mikla möguleika. Bílskúr. Lítil, en góö lóð meö stórum trjám. Húsiö getur verið laust fljótt. Einbýlishús í smíðum á Arnarnesi Ca. 150 ferm ásamt stórum bflskúr. Afhent fokhelt fljótt. Miðvangur raöhús Tll sölu mjög rúmgott raöhús viö Miövang ásamt innbyggöum bflskúr. Esjubraut Kjalarnesi Til sölu hús sem er ca. 170 ferm. Steyptur kjallari. Lofthæö 2,40. Þar er innbyggður tvöfald- ur bílskúr o.fl. Á hæöinni er 125 ferm timburhús frá Siglufiröi (Vinkilhús). Fokhelt aö innan en frágengiö aó utan. Skipti á 2j—3ja herb. íbúö koma til greina. Húsiö er laust til af- hendingar strax. Hef kaupanda aö góöri 2ja herb. íbúð innan Elliöaáa. MÁLFLUTNINGSSTOFA SIGRÍDUR ÁSGEIRSDÓTTIR hdl HAFSTEINN BALDVINSSON hrl. Hafnarfjörður Hjallabraut Tvær 3ja herb. 96 ferm íbúöir á 2. og 3. hæö í fjölbýlishúsi. Vandaöar innréttingar. Suöur svalir, góðar eignir. Útb. 26 millj. Strandgata 3ja herb. 97 ferm íbúö á 2. hæö í littu fjölbýli. Verö 37 millj. Smyrlahraun Raöhús 5 herb. ca. 150 ferm. á tveimur hæöum ásamt rúmgóö- um bflskúr. Verð 65 millj. Skipti á minni eign koma til greina. Stekkjarkinn 5—6 herb. hæö og ris í tvíbýlis- húsi, ca. 170 ferm. Útb. 35 millj. Bergþórugata Rvík 2ja herb. 62 ferm íbúö í fjölbýl- ishúsi. Útb. 18 millj. Ljósheimar Rvík Góð 3ja herb. 90 ferm íbúö í litlu fjölbýlishúsi. Útb. 26 millj. Ólafsvík Einbýlishús ca. 130 ferm. Hlað- iö hús á tveim hæðum. Verö 23 millj., útb. 15 millj. Árni Grétar Finnsson hrl. Strandgötu 25, Hafnarf. sími 51 500 43466 Gaukshólar — 3 herb. verulega góö íbúö, suöur svalir. Verö 33 m. Kársnesbraut — 3 herb. 60 fm í risi í þríbýli. Álfaskeið — 4 herb. 110 fm endaíbúö á 4. hæð, bftskúrssökklar. Digranesvegur 100 fm jaröhæö í þríbýli Eyjabakki — 4 herb. 110 fm á 1. hæö, suöur svalir. Fannborg — 4 herb. verulega góð íbúð á 2. hæö, stórar suöur svalir. Seljahverfi Einbýli alls 350 fm. 2 hæöir og kjallari ásamt bflskúr, rúmlega tilbúið undir tréverk. Tilbúið undir tréverk 4ra herb. íbúð á 1. hæö í blokk viö Furugrund. jr Fasteignasalan EIGNABORGsf MWBORG fasteignasalan í Nýja bióhusinu Reykjavik Símar 25590,21682 Jón Rafnar sölusti. h. 52844. Hraunstígur Hafnarf. 2Ja herb. ca. 50 ferm íbúð á jaröhæö í þríbýlishúsi. Rólegur staöur. Verö 24 millj.. útb. 18—19 millj. Þingholtsstræti 2ja herb. ca. 40—45 ferm. risíbúö ósam- þykkt. Verö 16—17 mlllj., útþ. 12 mlllj. Þorlákshöfn Elnþýlishús ca. 110 ferm. 3 svefnherb. I húsinu, ekki fullfrágengiö. Verö 28—29 mlllj., útb. 20 millj. Barðavogur 3ja—4ra herb. ca. 90 ferm risíbúð. Verð 34 millj.. útb. 25 millj. Álfaskeið Hafnarf. 5 herb. ca. 125 ferm íbúö í fjölbýlishúsi. íbúöin er í enda. Ðílskúrsréttur. Verö 40—42 mlllj.. útb. 30—31 mlllj. Furugrund Kóp. 2ja herb. þlús herb. í kjallara. Ákveölö f sölu. Laus fljótlega. Verö 29—30 mlllj. Athugiö, fleiri eignir á aWuakré. Vin- umbgail haflö aamband viö Upplý*. ingaþjónuatuna. Quömundur Þóröaraon hdL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.