Morgunblaðið - 22.07.1980, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIDJIIDAGUR 22. JÚLÍ 1980
Þessar ungu dömur
heita í.v.: Rannveig,
Lísa og Björg. Þær
eru færar í flestan
sjó en sárafáar
stelpur taka þátt i
siglingunum á
Nauthólsvík. Hvers
vegna? Rannveig
segir, að stelpur séu
svo miklar pempíur,
að þær leggi ekki í
sjómennskuna og
Lísa bætir því við,
að sumar séu jafn-
vel hræddar við að
blotna. Semsé afleit
sjómannsefni. Þær
báðu okkur að koma
því á framfæri við
kynsystur sínar, „að
taka nú jafnréttið
alvarlega og drífa
sig á sjóinn, — karl-
ar hafi nógu lengi
haft heimshöfin út
af fyrir sig“.
I
Fjölbreytt sumarstarf
Æskulýðsráðs Reykjavíkur
Sumarstarf Æskulýðsráðs
Reykjavíkur er fjölbreytt að
venju og fer það fram bæði
innan borgarmarkanna og
utan. Starfsemin er með tvennu
móti, — skipulegt námskeiða-
starf að deginum en starf byggt
á frjálsri þátttöku á kvöldin.
brjár félagsmiðstöðvar eru
starfandi á vegum Æskulýðs-
ráðs i borginni, Bústaðir. Fella-
hellir og Þróttheimar. Fjórða
féiagsmiðstöðin er að risa i
Árbæjarhverfi og nýlega var
ákveðið að breyta Tónabæ i
félagsmiðstöð. Þá stendur
Æskulýðsráð fyrir siglingar-
námskeiðum i Nauthólsvík og
reiðskóla i Saltvík.
Nýlega efndi Æskulýðsráð til
kynningar á starfsemi sinni og
gafst þá blaðamönnum kostur á
að kynna sér starfsemina á
hverjum einstökum stað.
Siglingar í
Nauthólsvík
í Nauthólsvík fara fram byrj-
enda- og framhaldsnámskeið í
siglingum. Kennd er meðferð og
sigling á seglbátum, siglingar-
reglur, viðbrögð við óhöppum á
sjó og umhirða búnaðar. Opið
starf er í Nauthólsvík yfir
sumarið og er siglingaklúbbur-
inn opinn öllum fyrstu fjóra
daga vikunnar frá kl. 17—19 en á
laugardögum frá kl. 13—16.
Hægt er að fá leigða róðrar- og
seglbáta og sigla um Fossvog.
Umsjónarmaður siglingaklúbbs-
ins er Guðjón Bjarnason.
Félagsmiðstöðin
Bústaðir
Félagsmiðstöðin Bústaðir er í
kjallara Bústaðakirkju. Á dag-
inn, frá kl. 10—16, eru þar
leikja- og starfsnámskeið fyrir
6—12 ára börn. Hvert námskeið
tekur eina viku og standa þau
frá 1. júní til 1. september. Um
60 þátttakendur geta verið á
hverju námskeiði.
Á námskeiðunum starfa leið-
beinendur með börnunum að
skipulagningu leikja og allskon-
ar útistarfs á útivistarsvæðum
hverfisins. Auk þess er farið í
gönguferðir, skoðuð söfn og
fyrirtæki þegar vel viðrar, en
föndur og leikir innandyra í
siæmu veðri.
Kvöldstarf fyrir unglinga f.
’67 og eldri er frá kl. 20—23 alla
virka daga. Er þá opið hús og
hafa unglingarnir aðgang að
ýmsum leiktækjum. Þá er diskó-
tek einu sinni í viku og útivist, —
hjólreiðar, gönguferðir o.fl., þeg-
ar veður leyfir. Forstöðumaður
Bústaða er Hermann Ragnar
Stefánsson.
Félagsmiðstöðin
Fellahellir
Fellahellir er stærsta og jafn-
framt elsta félagsmiðstöð Æsku-
lýðsráðs. Þar er góð aðstaða
fyrir börn og unglinga í hverfinu
til leikja og félagsstarfa. Starf-
semin þar er með svipuðu sniði
og í Bústöðum. Útistarf fyrir
börn er frá 1. júní til 8. ágúst og
er daglegt hámark 60 börn. Mikil
aðsókn er að Fellahelli og er
álitið að heimsóknir í húsið hafi
verið um 50 þús. á síðasta ári.
Forstöðumaður Fellahellis er
Sverrir Friðþjófsson en umsjón
með sumarstarfi hefur Elísabet
B. Þórisdóttir.
Félagsmiðstöðin
Þróttheimar
Félagsmiðstöðin Þróttheimar
við Sæviðarsund tók til starfa 4.
júní sl. Æskulýðsráð og
Knattspyrnufélagið Þróttur
hafa haft samvinnu um upp-
byggingu félagsheimilisins og
hefur borgin efri hæð hússins til
umráða. Aðstaða í Þróttheimum
Frá Nauthólsvík. Þarna hefur Lisa náð tangarhaidi á „niunni“ — nú F.v.: Einar Sverrir, Hrönn ósk, Glæsir og Sigurlaug Kristin. Þau eru öll í reiðskólanum.
mega strákarnir vara sig.