Morgunblaðið - 22.07.1980, Síða 14

Morgunblaðið - 22.07.1980, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ1980 MOSKVULEIKARNIR SÍÐARI GREIN SÍÐAN Rússar hóíu þátttöku í alþjóðloKum íþróttamótum eítir síðari heimsstyrjöld, haía þeir alltaí reynt að tengja íþróttasigra sína og meinta yfirburði þjóðfé- lags- og stjórnmálakerf- is Sovétríkjanna. Það mikilvæga hlut- verk, sem sovézkir for- ystumenn telja Ólympíu- leikana í Moskvu gegna, kemur bezt fram í r.Handbók flokksstarfs- manna“ 1980, þar sem segir, að ákvörðunin um að halda leikana í Moskvu sé „sannfær- andi sönnun þess, að sögulegt mikilvægi og kórrétt utanríkis- stefna lands okkar, það mikla starf sem Sovétrík- in hafa unnið í friðarins þágu, njóti almennrar viðurkenningar ...“. Þetta brýtur vitaskuld í bága við ákvæði stofnskrár Ólympíu- hreyfingarinnar, þar sem allar ólympíu- nefndir eru hvattar til að láta ekki stjórnast af pólitískum. trúarlegum eða efnahagslegum sjónarmiðum. Skrúðganga íþróttamanna á barnaíþróttamóti á Krím- skaga Umhverfið fegrað fyrir gesti á Moskvu-leikunum hugsjónafræðilegar og pólitískar hliðar íþrótta- og leikfimi- kennslunnar. Raunveruleg yfir- stjórn íþróttamála og skipulagn- ing þeirra er í höndum íþrótta- og leikfiminefndar, sem heyrir undir ríkisstjórnina. Markmiðið er sagt að framfylgja „vísinda- legri íþróttakennslu" alls al- mennings, fá fólk úr öllum aldurshópum til þátttöku í leik- fimi og íþróttum og þjálfa fyrsta flokks íþróttamenn. Undirnefnd- ir starfa í öllum lýðveldunum. Þaulskipulagt Raunveruleg skipulagning er í höndum 39 íþróttafélaga. í hverju hinna 15 Sovétlýðvelda eru tvö íþróttafélög — annað fyrir borgarbúa, en hitt fyrir sveitamenn — og níu alríkis- íþróttafélög eru starfandi með undirdeildum víðs vegar í land- inu. Verkalýðsfélög stjórna íþróttafélögunum með fjórum undantekningum, en þær eru íþróttafélag heraflans, DOSA- AF-félagið, sem er tengt herafl- anum, varalið verkalýðshreyf- ingarinnar og Ðinamo, félag KGB og lögreglunnar. í Sovét- ríkjunum starfa um 220.000 íþróttaklúbbar og þeir tilheyra einhverju hinna stóru íþrótta- félaga eftir búsetu eða vinnu- stöðum félagsmanna. Leikfimikennsla fer fram tvisvar í viku í öllum sovézkum skólum, en hún er ekki á háu stigi og aðstaða er léleg nema í nýbyggðum skólum. Börn, sem hafa íþróttahæfileika, geta gengið í einn af 4.000 barna- íþróttaskólum, sem taka við nemendum á aldrinum níu til átján ára, og þar geta þau fengið þjálfun utan venjulegs skóla- tíma. íþróttaskólarnir, sem búa nemendur sína undir hugsanlega þátttöku í kappliði tiltekinnar borgar eða lýðveldis eða í lands- lið Sovétríkjanna, hafa betri ÍÞRÓTTIRNAR í ÞÁGU STJÓRNMÁLASTEFNU Sundlaug ólympíuleikanna í Moskvu Tengt pólitík Eftir byltingu bolsevíka 1917 fengu herþjálfunarsamtökin „Vsevobuch" í hendur yfirstjórn allra íþróttafélaga og klúbba, en meginhlutverk þeirra var að útvega nýliða í Rauða herinn. Smátt og smátt varð hefðbundin íþróttastarfsemi að þoka fyrir menningarskrúðgöngum, hóp- sýningum og öðru slíku. Arið 1923 skipaði Kommúnistaflokk- urinn Æðstaráð leikfimimála. Tveimur árum síðar samþykkti flokkurinn fyrstu stefnuskrá sína í íþróttamálum, og þar sagði, að íþróttir ættu ekki aðeins að efla hreysti og heil- brigði, heldur fylkja verkamönn- um og bændum um flokkinn og verkalýðshreyfinguna. Sam- kvæmt yfirlýsingunni var ákveð- ið að pólitísk kennsla skyldi fylgja íþróttakennslu og að öll íþróttasamtök heyrðu undir flokkinn. Ungherjasamtökin Komsomol stofnuðu árið 1930 samtökin GTO til að auka almenna hreysti og bæta frammistöðu íþrótta- manna. Vinsælar keppnisgreinar eins og knattspyrna, körfuknatt- leikur og blak komu til sögunn- ar. En lítið samstarf var haft við erlendar íþróttahreyfingar fyrir styrjöldina. Rússar vildu ekki af hugsjónafræðiástæðum tengjast alþjóðlegum íþróttasamböndum eða taka þátt í mótum þeirra. Einangrun Rússa í íþróttum rofnaði eftir síðari heimsstyrj- öld og þeir sóttust eftir aðild að langflestum alþjóðasamböndum íþróttamanna. Þegar kalda stríðið hófst, uppgötvuðu Rússar gildi íþrótta til hugsjónafræði- legrar baráttu. Þeir urðu stað- ráðnir í því að tryggja sovézka yfirburði í íþróttum eins og glöggt kom fram í sérstakri ályktun, sem Miðstjórnin sam- þykkti í desember 1948. Þar sagði, að tryggja yrði að sovézk- um íþróttametum fjölgaði svo á næstu árum, að Rússar settu heimsmet í flestum greinum. Þess vegna var því heitið að bæta aðstöðu íþróttamanna og þjálfara, bæta starf íþróttaskóla æskunnar og þar fram eftir götunum. Asakanir Árangurinn lét ekki á sér standa, en þessi tilraun, sem var runnin undan rifjum Flokksins og studd af honum, leiddi til ásakana um, að Sovétstjórnin veitti einstökum íþróttamönnum svo víðtækan stuðning, að það jafngilti ríkisrekstri atvinnu- íþróttamanna og því ætti að meina þeim þátttöku í alþjóðleg- um íþróttamótum. Afburða- íþróttamenn fá námsstyrki í menntastofnunum, þar sem þeir geta verið að minnsta kosti einn áratug, eða foringjastöður í her- aflanum til að gera þeim kleift að æfa sig við beztu skilyrði. íþróttafélag heraflans og Din- amo (auðugasta íþróttafélagið sem er undir verndarvæng lög- reglunnar og KGB) ráða lögum og lofum í sovézku íþróttalífi; jafnt inn á við sem út á við. I „Stóru sovézku alfræðiorðabók- inni“ segir, að eitt af markmið- um sovézkra íþrótta sé að búa borgarana undir starf að undir- stöðuatvinnuvegunum og varnir fósturjarðarinnar. Þrettán af ní- tján ísknattleiksmönnum Rússa á vetrarleikunum 1972 voru úr landhernum og í sumarleikunum sama ár, voru íþróttamenn úr Dinamo þriðjungur sovézku sveitarinnar. Sérstök deild í áróðursstjórn miðnefndar Kommúnistaflokks- ins fer með yfirumsjón íþrótta- mála. En flokksstarfsmenn, sem bera ábyrgð á íþróttum og leik- fimikennslu, sjá einkum um aðstöðu en gengur og ^erist og kennsluliðið er gott. Arið 1978 starfaði rúmur helmingur sov- ézkra þjálfara og leiðbeinenda við íþróttaskólana og auk þeirra kenndu við þá þjálfarar, sem unnu hálfan vinnudag. - O - Rússar tóku þátt í stofnun ólympíuhreyfingarinnar 1896.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.