Morgunblaðið - 22.07.1980, Page 16

Morgunblaðið - 22.07.1980, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ 1980 Geir Hallgrímsson í ræðu í Varðarferð: Gerum tæmandi úttekt á tæki- f ærum okkar í orkuf rekum iðnaði ÁKætu VarðarfélaKar og aðrir ferðafélagar Við erum nú í áningarstað við þjóðveldisbæ, sem byggður var í minningu 1100 ára Islands- byggðar. Eg þakka Steinþóri Gestssyni hlý orð, en Steinþór Gestsson, alþm. var einmitt formaður byggingarnefndar og þegar hann afhenti mannvirkið þáverandi ríkisstjórn 1977 lét hann í Ijós þá von, að þjóðveldisbærinn yrði til þess að þjóðin fengi dýpri skilning á högum og hátterni fortíðar okkar og þeim arfi, sem við höfum tekið við til varðveizlu og ávöxtunar. Þessi húsakynni eru dæmi um höfðingjaset- ur fyrri tíma, þótt þau væru sjálfsagt dæmd heilsuspillandi nú, ef til lengri dvalar væru notuð. Menn geta gert lítið úr hagvexti og efnis- legum lífsgæðum og haft á orði afturhvarf til náttúrunnar og fornra einfaldari lífshátta, en sannleikurinn er sá, að þeir sem svo tala, eru gjarnan mestu kröfugerðarmennirnir og mundu sízt af öllu sætta sig við slík lífskjör, sem þeir sjálfir boða öðrum þræði. Við höfum nú í morgun farið með nærri hafnlausri suðurströnd landsins. Hafnleysi kom þó ekki í veg fyrir að menn fóru á sjóinn til að sækja björg í bú. Vandamálið er ekki nú að komast á sjó heldur takmarkað veiðiþol fiskistofna. Við höfum farið um ein blómlegustu land- búnaðarhéruð landsins, þar sem tæknin hefur verið tekin í þjónustu fólksins. Vandamálið er ekki lengur skortur, heldur offramleiðsla og sölutregða afurða. Landbúnaður og sjósókn hefur ásamt þjón- ustugreinum, verzlun og viðskiptum, skapað okkur þau lífskjör, er við nú njótum, en síðustu áratugina hefur iðnaðurinn tekið við auknu hlutverki. Og víst er, að þegar fiskimið og gróðurlönd eru fullnýtt, þá er hagnýting orkulinda, fallvatna og jarðvarma og vaxandi iðnaður forsenda bættra lífskjara. Muna menn ekki úrtöluraddirnar? Þegar við fórum framhjá Búrfellsvirkjun, stærstu virkjun landsins og skoðuðum Sigöldu- virkjun og virkjunarframkvæmdir við Hraun- eyjafoss, þá er ánægjulegt að minnast þess, að viðreisnarstjórnin undir forystu sjálfstæð- ismanna hafði forgöngu um samningana um byggingu álversins í Straumsvík. En sala rafmagns til þess var skilyrði til að unnt væri að ráðast í Búrfellsvirkjun. Alþýðubandalagið og framsókn greiddu at- kvæði gegn álsamningunum. Muna menn ekki enn úrtöluraddirnar? Tæknileg vandamál við rekstur Búrfellsvirkjunar vegna ísmyndunar áttu að sýna áhættuna að ráðast í virkjunina. Spiiling umhverfisins, mengun, stóraukin er- lend áhrif og lág laun áttu að fylgja í kjölfar álsamninga. Reynslan sýnir, að vandamálin voru leyst, hvergi sér stað auknum erlendum áhrifum og störf í álverinu eru með þeim bezt launuðu í landinu. Ef stefna Alþýðubandalags og Framsóknar hefði ráðið fyrir 15 árum, hefði leið smávirkj- ana verið farin og Islendingar byggju nú við mun hærra rafmagnsverð og færri og fábreytt- ari atvinnutækifæri en nú. Þá var líka ríkisstjórn undir forystu Sjálfstæðisflokksins 1974—1978, sem leiddi samningana um Járn- blendiverksmiðjuna við Grundartanga til lykta. Þeir samningar voru skilyrði þess, að unnt var að ráðast í Sigöldu- og síðan Hrauneyjafossvirkjun í beinu framhaldi og með hagkvæmasta hætti. Þá tókst sjálfstæðis- mönnum að hafa vit fyrir Framsókn, en hefði Alþýðubandalagið fengið að ráða væru nú útflutningstekjur okkar 20% minni en raun ber vitni. Þegar mestu afturhalds- og úrtölu- flokkar landsins, Alþýðubandalag og Fram- sókn, fara saman með ríkisstjórn stöðvast framfarasóknin. Enginn undirbúningur í gangi Haustið 1978 var það fyrsta verk ríkisstjórn- ar Ólafs Jóhannessonar að leggja stóriðju- 10—15 starfsár færustu manna og nokkur hundr- uð milljónir þarf til að ljúka því verki á tveimur árum Ein virkjun og eitt fyrirtæki í gangi á 3—5 árum Hér þarf gerbreytta stefnu í orkumálum. Við þurfum að kanna alla möguleika á orkufrekum iðnaði hér á landi, til þess að vera sjálfir í stakk búnir til að semja við erlenda aðila og tengja einn möguleika við annan, njóta hámarks arðs og gæta vel umhverfis og vistkerfis okkar. Mér er sagt, að 10—15 starfsár færustu manna okkar þurfi til að gera eins tæmandi úttekt á möguleikum okkar i orkufrekum iðnaði og unnt er. Við eigum að setja okkur það mark að ljúka þessari úttekt innan tveggja ára. Sú úttekt kostar ef til vill nokkur hundruð milljón krónur, en fæst vel endurgreidd við fyrstu framkvæmd. Lágmark er, að eitt fyrirtæki í orkufrekum iðnaði og ein stórvirkjun séu í framkvæmd á hverju 3—5 ára tímabili til aldamóta. Við eigum að ganga til samstarfs við erlenda aðila og nýta fjármagn þeirra með opnum huga og mati hverju sinni og stefna að því að Islendingar eignist fyrirtækin síðan smám saman. Stórvirkjanir eru nauðsyn. Við eigum margra kosta völ. Valið hlýtur að ráðast af hagkvæmni en án hreppasjónarmiða. Engu að síður hljóta iðju- og orkuframkvæmdir að vera þáttur byggðastefnu. Geir Hallgrímsson og Steinþór Gestsson njóta veðurblíðunnar í Þjórsárdal. nefnd niður og Hjörleifur Guttormsson, iðnað- arráðherra, skrifaði Landsvirkjunarstjórn beiðni um að hægt yrði á framkvæmdum við Hrauneyjafossvirkjun. Það er Landsvirkjunar- stjórn að þakka, en ekki núverandi iðnaðarráð- herra, ef við þurfum ekki að búa við almenna rafmagnsskömmtun næstu tvo vetur, en skömmtun á rafmagni til orkufreks iðnaðar hefur þegar dregið úr útflutningstekjum okkar. Nú er enginn undirbúningur í gangi undir framkvæmdir í orkufrekum iðnaði. Stöðnun og aðgerðarleysi ríkisstjórnar liggur eins og mara, þar sem ryðja ætti vaxtabroddi almenns iðnaðar og stóriðju braut. Þessu til viðbótar virðist stefnan vera að koma traustustu orkufyrirtækjum landsmanna, bæði Lands- virkjun og Hitaveitu Reykjavíkur í greiðslu- þrot, svo aö þau eru vanmegnug að takast á við nauðsynlegar framkvæmdir. Bæði þessi fyrir- tæki eru byggð upp fyrir forgöngu sjálfstæð- ismanna í borgarstjórn Reykjavíkur. Það er sorglegt, ef aftur verður að hita hús á höfuðborgarsvæðinu með olíu — og lánstraust og framkvæmdageta Landsvirkjunar verður eyðilögð. (En Landsvirkjun hefur verið rekin með 600 millj. kr. tapi 1978, nær 1000 millj. kr. tapi 1979 og í ár horfir í 2200 millj. kr. rekstrartap.) LJóhih. Mbl. Ol. K. M. Nú eru Blönduvirkjun og Fljótsdalsvirkjun einu umtalsverðu virkjunarkostir utan Þjórs- ársvæðisins, en ágreiningur heimamanna í fyrra tilvikinu og skortur á fyrirhyggju um orkufrekan iðnað í síðara tilvikinu kunna að seinka ákvörðunum, en ekki andstaða Reykvík- inga eða Landsvirkjunar. Nýtt, verulegt átak í stóriðju- málum Það er mikill misskilningur ef einhverjir halda að áframhaldandi misvægi atkvæða eftir kjördæmum sé hagsmunum strjálbýlis til framdráttar t.d. í orkumálum. Þvert á móti ber slíkt misvægi í sér hættu á aukinni tortryggni og sundurlyndi meðal Islendinga, sem ekki er á bætandi. Á síðasta landsfundi Sjálfstæðisflokksins var einmitt áréttað „Kosningaréttinn verður að jafna, tryggja jafnrétti milli stjórnmála- flokka og rétta hlut þeirra kjördæma, sem hafa færri þingmenn en kjósendafjöldi þeirra veitir rétt til.“ Ég hef hér í dag nefnt tvö mikilvæg málefni í þjóðmálum okkar um þessar mundir, stór- virkjanir og stóriðju annars vegar og kjördæmamálið hins vegar. Það er sanngjörn krafa, að við Sjálfstæðis- menn komumst að sameiginlegri niðurstöðu um það, hvernig og með hvaða hætti við viljum vinna að nýju verulegu átaki í stóriðjumálum á næstu árum. Það er einnig nauðsyn, að við Sjálfstæðismenn getum unnið saman að stefnumörkun í kjördæmamálinu, leiðrétta vægi atkvæða með þeim hætti, að réttlætið nái fram að ganga í þéttbýlinu en strjálbýlið haldi sanngjörnum hlut. Vinnum saman að þeim málum, sem við getum sameinast um í ræðu, sem ég hélt í Bolungarvík um síðustu helgi komst ég svo að orði, að við yrðum að skapa skilyrði innan Sjálfstæðisflokksins fyrir sáttum og nýrri fylgisaukningu. Mætir flokksmenn hafa spurt mig. „Hvað áttu við, þegar þú talar um að skapa skilyrði til sátta í Sjálfstæðisflokknum?" Svar mitt er þetta: Við náum ekki samkomulagi um það að styðja núverandi ríkisstjórn — ekki fyrst og fremst vegna þess hvernig hún varð til — heldur vegna hins, að stefna hennar og störf ganga þvert á grundvallarstefnu Sjálfstæðis- flokksins og þjóðarheill. Þess vegna hljótum við að halda uppi harðri, málefnalegri og sanngjarnri stjórnarandstöðu. En við skulum hins vegar vinna saman að þeim málum, sem við getum sameinast um. Með því móti vinnum við að því að skapa það andrúmsloft í Sjálfstæðisflokknum, sem gerir okkur kleift, að taka höndum saman á ný, þegar núverandi ríkisstjórn hefur farið frá völdum. Samstaða okkar, þegar þar að kemur, er forsenda þess að við getum aukið fylgi Sjálfstæðisflokksins á ný. Sú samstaða verður ekki til á einni nóttu. Þess vegna verðum við að búa í haginn fyrir framtíðina. Viðbrögð andstæðinganna við Bolungarvík- urræðunni eru okkur Sjálfstæðismönnum nokkur vegvísir. Viðbrögð andstæðinganna sýna að þeir óttast ekkert meir en það, að okkur takist að setja niður deilur í flokki okkar. Hvers vegna óttast þeir ekk'ert meira en það? Vegna þess, að þeir vita, að valdastaða þeirra byggist á sundurlyndi í Sjálfstæðis- flokknum. Þeir vita, að samstaða í Sjálfstæðis- flokknum þýðir áhrifaleysi þeirra sjálfra. Viðbrögð andstæðinganna sýna, að þeir munu gera allt, sem í þeirra vaídi stendur til þess að koma í veg fyrir að samkomulag takist innan Sjálfstæðisflokksins. Er ekki kominn tími til að við tökum höndum saman á þann veg, að við tryggjum óumdeilanlega forystu Sjálfstæðisflokksins í málefnum lands og þjóðar? Með þessum orðum hef ég svarað spurning- um, sem til mín hefur verið beint síðustu daga. Mér er það ljóst að við Sjálfstæðismenn eigum vandfarna leið fyrir höndum. En við skulum nú hefja þá vegferð með bjartsýni og kjarki og trú á, að við getum yfirunnið þá erfiðleika, sem að okkur steðja nú, ekki síður en fyrr á tímum í viðburðarríkri sögu flokks okkar. Ágætu Varðarfélagar, við túnfót þjóðveldis- bæjar og mestu orkumannvirkja landsins er okkur ljós skylda, sem á okkur hvílir að varðveita og ávaxta þann arf, sem við höfum fengið frá forfeðrum okkar og ber að skila niðjum okkar. „Sá veglegi arfur hvers íslendings þarf að ávaxtast gegnum vort líf og vort starf sem sterkasti þáttur alls þjóðarbandsins við þrautirnar stríðu og lífskjörin blíð,“ eins og Einar Benediktsson, komst að orði, en hann vildi einmitt fyrstur manna leggja kraftsins ör á bogastreng Þjórsár til að bæta kjör lands og lýðs. Við ferðafélagarnir þökkum þeim, sem veg og vanda hafa haft af þessari ferð, stjórn Varðar, ferðanefnd, fararstjórn og leiðsögu- manni og óskum hvert öðru áfram góðrar ferðar og heimkomu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.