Morgunblaðið - 22.07.1980, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ1980
17
Hvað er að
gerast í Kína?
KOMMÚNISTASAMTÖKIN efna
til fræðslu- ok umræðufundar í
Reykjavik með yfirskriítinni
Ilvað er að gerast i Kina? Fram-
sötjumenn eru m.a. Arnþór
IlelKason. Árni Bergmann ok
Kristján Guðlaugsson.
Fundurinn hefst kl. 20:30 í
kjallarasal Hótels Heklu við
Rauðarárstíg og verða kaffiveit-
ingar á boðstólum og þar fer
einnig fram bóksala.
Tvær sölur
ÞRJÚ íslenzk fiskiskip seldu afla
sinn í erlendum höfnum i gær. t
Grimsby seldi Gullberg VE 118,5
tonn fyrir G3 milljónir og var
meðalverðið 532 krónur fyrir
kilóið. f Fleetwood seldi Suðurey
VE 88 tonn fyrir 46,4 milljónir
króna og var meðalverðið 528
krónur. Eitt skip seldi i Þýzka-
landi en ekki höfðu borizt fréttir
af sölunni.
INNLENT
Hafir þú lítinn tíma, eöa leiöist aö standa lengi yfir
matargerð er örbylgjuofninn frá SHARP svariö.
Með örbylgjuhitun tekur örstund aö hita. sjóöa
eða steikja matinn án þess aö bragö eða ilmefni
tapi sér. Snúningsdiskur íofninum tryggir jafna
hitun. Sjálfvirk tölvustilling ákveöur eldunaraöferö
þar sem hægt er aö samtengja fleiri eldunarstig.
Ofninn hefur þrjár stillingar:
Detrost/Þyðir:
Þýðir djúpfrystan
mat t.d. 200 g.
kjötstykki á 4 mín.
steikir eggjarétti.
Slmmer/ Smásuða:
Hitun á osta-
samlokum og
upphitun rétta.
Full power/Fullur
styrkur:
Kartöflur steiktar á
5 niín. Kótilettur
steiktará7 min.
TWáT^TTFá
LAUGAVEG 66 SIMI 25999
SHARP
ÖRBYLGJUOFN meö
snúningsdiski gerir matargerð
fljótari.. betri.. og hollari.
Þrír sóttu um
embætti
borgarfógeta
RUNNINN er út umsóknarfrest-
ur um embætti borgarfógeta í
Reykjavík en embætti þessu hef-
ur Sigurður M. Helgason gegnt.
Ilann lætur nú af störfum fyrir
aldurs sakir. Umsækjendur eru
þrír og eru þeir allir fulltrúar við
embætti yfirborgarfógetans i
Rcykjavik. Þeir eru:
Olafur Sigurgeirsson, sem starf-
ar við lögtök.
Ragnar Hall, sem starfar við
skiptarétt.
Þorkell Gíslason, sem starfar
við þinglýsingar.
Embættið veitist frá 1. október
n.k.
Frá kvöldskemmtun.
Ljósm. Kristinn.
Skátamót í Viðey um helgina
VERÐ FRÁ
KR. 311.000.-
„Mótið var sett á föstudags-
kvöldið, haldinn var varðeldur og
tjaldbúðir reistar. Það var farið
snemma á fætur á laugardags-
morguninn og tekið til við „Pósta-
leik“, en hann gekk út á að
þátttakendum var skipt í 5—7
manna hópa, sem síðan reyndu
með sér ýmiskonar þrautir víða
um eyna, svo sem bjargsig og
siglingu á knerrinum Erni. Á
skemmtipósti var ætlast til að
hóparnir semdu stutt leikrit eða
skemmtiþátt. Á athyglispósti voru
þátttakendur spurðir um ýmislegt
sem tengdist mótinu svo sem
umhverfislýsingu, útlit fararstjóra
og fleira j)ess háttar. Alls var 15
póstum dreift um eyna og áttu
hóparnir að koma við í sem
flestum. Hópunum voru síðan gef-
in stig fyrir árangur þeirra og þeir
þrír efstu, Dróttskátaflokkurinn
„ÞETTA MÓT tókst nokkuð vel, þátttaka mikil og menn
almcnnt áhugasamir,“ sagði Benjamín Árnason, á
skrifstofu Skátasambands Reykjavíkur og Bandalags
íslenskra skáta, í samtali sem Morgunblaðið átti við
hann vegna skátamóts í Viðey um helgina.
Sammi, Pílur og Shavanoar,
kepptu síðan til úrslita á sunnu-
dagsmorguninn.
Að loknum Póstaleiknum var
hafist handa við leik sem heitir „í
leit að eldinum" og áttu þátttak-
endur að ímynda sér að þau væru
stödd einhvern tíma í forneskju í
leit að eldinum. Til þess höfðu þau
kort af eynni og á það var merktur
kross þar sem eldinn var að finna.
Einnig áttu þau að búa til ýmis
tákn og áhöld frá þeim tíma.
Um kvöldið var keppendum
skipt i tvennt í svokallaðan „Næt-
urleik" og áttu keppendur að finnt
fimm rakettur sem faldar voru í
eynni og skjóta þeim upp. Sá
hópurinn sem fyrri varð til að
skjóta þrem rakettum sigraði, og
máttu andstæðingar rtfa borða
hver af öðrum sem var festur á
upphandlegg allra keppenda, og
var þá hinn sami úr leik.
Fyrir hádegi á sunnudag voru
síðan úrslit í „Póstaleiknum, en
eftir hádegi var félagakeppni, en
þá kepptu félögin í hinum ýmsu
leikjum, svo sem pokahlaupi og
hand-fótbolta o.fl.
Mótinu var síðan slitið um kl.
14.00 á sunnudaginn og verðlaun
afhent. Verðlaun fyrir bestu
tjaldbúðirnar hlutu Árbúar í Ár-
bæjarhverfi, en þeir hlutu einnig
verðlaun fyrir góðan skátaanda.
Þátttakendur komu víða að, svo
sem Akranesi, Njarðvík, Keflavík
og Keflavíkurflugvelli, auk flestra
skátafélaga í Reykjavík, en alls
munu þátttakendur hafa verið um
140, auk fararstjóra og annarra
gesta,“ sagði Benjamín að lokum.
Finnskur stúlkna-
kór í Þorlákshöfn
Þorlákshöfn 21. júlí.
PUDAS, unglingakór frá Tornio
í Finnlandi söng, hér í félags-
heimilinu sl. sunnudagskvöld
undir stjórn Reima Tuomi.
Söngskráin var fjölbreytt og fög-
ur og söngur stúlknanna eftir þvi
góður. Aðsókn var góð og hrifn-
ing áheyrenda mikil.
Kórinr. er sem kunnugt er á
söngför um landið og á því eflaust
eftir að gleðja marga hér með
hinum tæra og hreina söng sínum.
Eyjólfur Ólafsson, skólastjóri
Tónlistarskólans í Grindavík, en
hann hefur alla umsjón með
ferðum kórsins hérlendis, sagði i
stuttu viðtali, að næst væri ferð-
inni heitið til Akraness og þaðar
til Siglufjarðar. Eyjólfur bað mig
sérstaklega að geta um eftirfar-
andi: Það snart okkur þægilega a?
sjá þorpið ykkar fánum prýtt í
tilefni af komu okkar. Ég vil
þakka og róma viðtökur sem við
höfum fengið í Þorlákshöfn. Þær
voru frábærar svo og undirtektir
allar. Kórinn söng á Selfossi sl.
laugardagskvöld.
Hafi iistafólkið innilega þökk
fyrir komuna til Þorlákshafnar.
Ragnheiður.
Engir samningar milli
Flugleiða og Kreditkorta
MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi fréttatil-
kynning frá Flugleiðum:
Vegna þess að Flugleiðir eru
á lista yfir þau fyrirtæki sem
Kreditkort hf. gefa út fyrir
væntanlega viðskiptavini skal
það tekið fram að Flugleiðir
eru ekki aðili að slíkum við-
skiptum. Það sama gildir um
hótel félagsins og bílaleigu.
Milli Flugleiða og Kredit-
korta eru engir samningar og
mun félagið því ekki taka á
móti greiðslum sem inna á af
hendi með greiðsluspjöldum
frá Kreditkortum hf.