Morgunblaðið - 22.07.1980, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ1980
21
I íftrtwir I
Staðan í1. deild
ÞEGAR tíu umíerðum er lokið í 1. deildarkeppninni í
knattspyrnu er deildin opin í báða enda og allt virðist
geta skeð. Aðeins þrjú stig skilja að efsta liðið og liðið
í sjötta sæti. Það verður því hart barist í næstu
umferðum þar sem svo mörg lið eiga góða möguleika
á meistaratitlinum í ár. Spennan sem sé í hámarki.
Jafnara gæti það ekki verið.
Staðan í 1. deild að loknum 10 umferðum er nú
þessi: Valur 10 6 1 3 22-10 13
Akranes 10 5 3 2 17-10 13
Fram 10 5 2 3 11-13 12
Víkingur 10 3 5 2 11 — 10 11
Breiðablik 10 5 0 5 18-14 10
ÍBV 10 4 2 4 17-18 10
KR 10 4 2 4 10-11 10
Keflavík 10 2 4 4 9-14 8
Þróttur 10 2 3 5 7-10 7
FH 10 2 2 6 14-27 6
• Víkingurinn Lárus Guðmundsson sem hér sést í baráttu um boltann átti góðan
leik með liði sínu í gærkvöldi þrátt fyrir að hann skoraði ekki mörk úr góðum
tækifærum sínum.
Sjá allt um leiki helgarinnar á bls. 23. 24 og 25.
Knútur hreppti bílinn
- og úrslit urðu óvænt
í meistaraflokki karla
KNÚTUR Björnsson skurð-
læknir vann til einhverra glæsi-
legustu verðlauna sem um get-
ur á íslandi, er hann tryggði
sér glænýja Toyota bifreið.
Hann sló kúlu sinni 75 senti-
metra frá sjöundu holu i fyrsta
skoti og þar sem að enginn lék
það eftir honum. hreppti hann
bifreiðina. Knútur varð auk
þess i öðru sæti í 1. flokki karla
á 78 höggum.
Annars urðu úrslit fremur
óvænt í meistaraflokki karla, en
þar sigraði Jóhann Benediktsson
á 75 höggum. Júlíus R. Júlíusson
varð annar á 76 höggum og
Jónas Kristjánsson þriðji á 77
höggum.
I meistaraflokki kvenna sigr-
aði Ásgerður Sverrisdóttir. Lék
hún á 71 höggi. Það gerði einnig
Guðfinna Sigurþórsdóttir og
léku þær níu holur í bráðabana
áður en að úrslit réðust.
ívar Hauksson sigraði í ungl-
ingaflokki, lék á 75 höggum og
Jóhann Eyjólfsson sigraði í öld-
ungaflokki á 78 höggum. Tryggvi
Traustason sigraði í 1. flokki
karla á 76 höggum, Rafn Sig-
urðsson varð hlutskarpastur í 2.
flokki karla á 83 höggum og loks
sigraði Magnús Guðmundsson
sigurvegari í 3. flokki karla á 85
höggum.
Enn tapaði Austri
Austramenn þóttu heldur
óheppnir að tapa stigi gegn
Völsungi, er síðarnefnda liðið
sótti það fyrrnefnda heim.
Lokatölur leiksins urðu 2—2,
en Austramenn komust í 2—0 i
fyrri hálfleik. Stutt er síðan að
Austri og Ármann skildu jafnir
með sömu markatölu. Þá komst
Austri einnig í 2—0. Staða
Austra á botni deildarinnar er
allt annað en fögur og liðið
hefur ekki ráð á því að kasta
svona frá sér stigunum.
Austramenn voru mun
sterkari aðilinn framan af og á
25. mínútu skoraði Bjarni
Kristjánsson fyrra mark liðsins,
eftir að markvörður Völsunga
hafði fært honum knöttinn í
dauðafæri á silfurfati. Bjarni
hljóp af sér vörn Völsunga og
skoraði enn nokkrum mínútum
síðar og voru áhorfendur á
Eskifirði heldur en ekki kátir.
En sjálfsmark á versta tíma,
nánar tiltekið á lokamínútu fyrri
hálfleiks, kom Völsungi á bragð-
ið, liðið hresstist mjög og á 60.
mínútu tókst Helga Benedikts-
syni að jafna með goðu marki.
Tvö heimsmet
AUSTUR-þýskar sundkonur
settu tvö ný heimsmet í undan-
rásum i sundi á Ólympíuleikun-
um i Moskvu um helgina. Fyrst
var á ferðinni Barbara Krause
og setti hún met i 100 metra
skriðsundi. Synti hún á 54,98
sekúndum. Siðan stóð sveit
Austur-Þýskalands i metaslætti
í 400 metra fjórsundi. Tími
sveitarinnar var 4:06,67 minút-
ur.
Snilldartaktar í fimleikunum
NADIA Comaneci frá Rúmeniu greinum skylduæfinganna og 9,5 keppninnar hafði rússneska
og sovéska stúlkan Natalía Shap- fyrir aðrar æfingar. Stálu þessar sveitin fengið 197,75 stig. Aust-
osnkova sýndu snilldartilþrif er stúlkur algerlega senunni. Sov- ur-þýzka sveitin var i öðru sæti
keppni hófst í fimleikum kvenna éska sveitin tók forystuna í stig- með 196.80 stig. einum tiunda úr
á Olympíuleikunum í Moskvu. akeppninni, enda meiri breidd í stigi meira heldur en rúmenska
Báðar fengu 10,0 fyrir eina af þeirra liði. Eftir fyrri hluta sveitin.
• Hörður óskarsson afhondir Inga Þór sundmanni frá Akranesi verðlaun á
meistaramóti íslands í sundi sem fram fór um helgina. Ingi Þór stóð sig mjög vel
á mótinu og setti tvö ný ísl.-met. Sjá bls 28.
Dortmund
tapaöi
Svíi tók
gullið í
baksundi
Svíinn Bengt Baron
varð óvænt sigurvegari í
100 metra baksundi á
Olympíuleikunum í
Moskvu í gær. Tími hans
var 56,53 sekúndur. Telj-
ast þetta afar óvænt úr-
slit.
Rossi
kætist
ítalskur dómstóll mild-
aði um helgina 3 ára
banninu á knattspyrnu-
snillingnum Paolo Rossi,
sem varð uppvís að hafa
þegið mútufé. Þarf Rossi
aðeins að sitja í kuldan-
um í tvö ár í stað þriggja
og er það strax í áttina
fyrir kappann.
Borussia Dortmund.
nýja lið Atla Eðvaldsson-
ar, tapaði fyrir hollenska
liðinu Go Ahead Eagles
Deventer í fjögurra liða
keppni sem haldin er í
Nijmegen í Ilollandi og
er reyndar lokið með
sigri Deventer-liðsins.
Tapaði Dortmund 1—3.
en gerði síðan jafntefli
við Nec Nijmegen. Celtic
er fjórða liðið í keppn-
inni.