Morgunblaðið - 22.07.1980, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 22.07.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ 1980 23 Harkan í fyrirrúmi þegar ÍA burstaði Fram STAÐAN i 1. deild er geysilega jöín og tvísýn eftir leiki helgarinnar. Skagamenn komust upp að hlið Valsmanna á toppi deildarinnar með stórsigri sinum yfir Fram á Akranesi á sunnudaginn, 4:0, í leik, sem einkenndist af mikilli hörku. Skagamenn höfðu aigera yfirburði i leiknum. Þeir eru greinilega á uppleið en Framarar hins vegar í miklum öldudal. Hafa þeir nú tapað þremur siðustu leikjum sinum og fengið á sig 11 mörk en skorað tvö. Dómari í leiknum var Guðmundur Sigurbjörnsson og átti hann ekki sizt sök á þvi hve harður leikurinn varð. Hann hefur vafalaust ætlað sér að vera ekki með neinn flautukonsert og leyfa hörku að ákveðnu marki. En útkoman varð sú, að hann missti eiginlega tökin á leiknum strax á fyrstu minútunum, og harkan varð alltof mikil. Hvað eftir annað voru framin brot af grófustu tegund án þess að gula spjaldinu væri veifað og stundum var flautunni jafnvel ekki lyft. Enda komu flestir leikmenn marðir og skrámaðir til búningsklefanna eftir leikinn. Fyrri hálfleikurinn var tíðindalítill Ágætt veður var á Akranesi á meðan leikurinn fór fram, sólskin en allhvasst. Skagamenn léku á móti vindinum í fyrri hálfleik og náðu strax tökum á miðjunni. Sóttu þeir mun meira en gekk illa að skapa sér tækifæri. Framar- arnir voru ákaflega bitlausir og þeir komust sárasjaldan nálægt marki Skagamanna. Leikurinn var lengi vel tíðindalítill eða allt þar til Skagamenn tóku forystuna á 40. mínútu. Kristján Olgeirsson tók hornspyrnu og gaf vel fyrir markið. Guðmundur markvörður missti boltann yfir sig til Sigurðar Halldórssonar sem skallaði að markinu. Á leiðinni fór boltinn í öxl Jóns Péturssonar og í netið. Á 15. mínútu seinni hálfleiks bættu Skagamenn við marki. Sig- urþór Ómarsson lék þá upp vinstra megin en var felldur fyrir utan vítateiginn, ekki langt frá hliðarlínu. Dæmd var bein auka- spyrna og framkvæmdi Kristján Olgeirsson spyrnuna. Framararn- ir voru heldur betur illa á verði. Þeir bjuggust við fyrirgjöf að fjærstönginni, en Kristján gerði IA — Fram 4:0 sér lítið fyrir og skaut þrumuskoti beint í markið við stöngina nær. Vel gert hjá Kristjáni en slæm mistök hjá vörn Fram og Guð- mundi markverði. Þremur mínútum síðar gerðist umdeilt atvik. Knötturinn var gefinn inn í vítateig ÍA og Bjarni markvörður henti sér niður og greip boltann. Símon Kristjánsson fylgdi sendingunni eftir og rak fótinn í andlit Bjarna. Bjarni lá á jörðinni með boltann drjúgan tíma og að lokum flautaði Guð- mundur dómari og dæmdi óbeina spyrnu á ÍA rétt utan markteigs. Áhorfendur létu heldur betur í sér heyra en Skagamenn bægðu hætt- unni frá þegar aukaspyrnan var tekin. Á 20. mínútu skoruðu Skaga- menn sitt þriðja mark. Kristinn Björnsson lenti í návígi við varn- armann Fram, en náði að snúa á hann og senda knöttinn fyrir markið til Kristjáns Olgeirssonar, fslandsmðtlð 1. delld Fyrsta mark Skagamanna í uppsiglingu. Guðmundur markvörður missti boltann yfir sig til Sigurðar Halldórssonar. sem stökk upp og skallaði boltann í markið. Á leiðinni fór boltinn í Jón Pétursson. Ljósm. Mbl. Sigtr. sem var þar einn og óvaldaður, og skoraði örugglega. Sífellt meiri harka færðist í leikinn og þar kom að Pétur Ormslev var rekinn af velli á 32. mínútu. Hann hafði fengið gult spjald fyrr í leiknum og er hann mótmælti dómi, var Guðmundi dómara nóg boðið og sýndi hann Pétri rauða spjaldið. Skagamenn héldu áfram að sækja, og á 36. mínútu innsiglaði Sigurður Hall- dórsson sigur Skagamanna, er hann skaut föstu jarðarskoti með góðu marki. Guðjón Þórðarson tók langt innkast, Sigurður Lárusson skallaði knöttinn fyrir fætur Sig- urðar, sem skoraði með föstu jarðarskoti af 7—8 metra færi, óverjandi fyrir Guðmund mark- vörð. Skagamenn spiluðu þennan leik vel og unnu mjög verðskuldaðan sigur. Eru þeir greinilega á upp- leið eftir heldur slaka byrjun og er staða þeirra óneitanlega sterk, því þeir eiga t.d. eftir heimaleiki við Val og ÍBV. Að þessu sinni voru þeir beztir Kristján Olgeirsson og Jón Gunnlaugsson. Kristján hefur ekki áður skorað tvö mörk í leik í 1. deild og er hann mjög vaxandi leikmaður. Jón stendur nú á þrí- tugu og hefur aldrei verið betri í miðvarðarstöðunni en einmitt nú. í heild átti ÍA-liðið mjög góðan leik. Það sama verður ekki sagt um Framara. Þeir virðast heillum horfnir um þessar mundir. Tengi- liðirnir ná ekki tökum á miðjunni og framlínan er gjörsamlega bit- laus, enda fengu Framarar ekki eitt einasta umtalsvert tækifæri í leiknum. Liðið er skipað sterkum einstaklingum og uppskeran á að vera meiri en hún er. í þessum leik voru þeir beztir landsliðsmennirn- ir Marteinn og Trausti, en sá síðarnefndi var sá leikmaður Fram; sem gerði mestan usla í vörn ÍA, þótt hann leiki í bakvarð- arstöðunni. í STUTTU MÁLI: íslandsmótið 1. deild, Akranes- völlur, 20. júlí, ÍA — Fram 4:0 (1:0). MÖRK ÍA: Sigurður Halldórsson á 40. og 81. mínútu, Kristján Olgeirsson á 60. og 65. mínútu. RAUTT SPJALD: Pétur Ormslev Fram. GUL SPJÖLD: Gústaf Björnsson Fram og Árni Sveinsson IA. ÁHORFENDUR: 1206. SS. Sanngjarn Víkingssigur gegn Lið Víkings vann sanngjarnan sigur á liði ÍBK í gærkvöldi á Laugardalsvellinum. Vikingar áttu fjöldan allan af góðum marktæki- færum og voru hreinir klaufar að nýta ekki sum þeirra. Þó sérstaklega kom það mönnum á óvart að sjá hin bráðefnilega og ieikna knattspyrnumann Lárus Guðmundsson misnota tvö dauðafæri svo til alveg í röð, eftir að hann komst einn í gegn um vörn ÍBK en laust skot hans varði markvörðurinn auðveldlega enda beint á hann. En bestu mönnum getur mistekist. Lið Víkings er greinilega í mikilli framför, undir stjórn hins rússneska þjálfara sins. Liðið er nú komið með 11 stig og hefur alla burði til þess að vera með í toppbaráttunni í 1. deild í ár. Elnkunnagiöfln ÍA: Bjarni Sigurðsson 6 Guðjón Þórðarson 6 Július Ingólfsson 6 Sigurður Lárusson 6 Sigurður Halldórsson 7 Jón Gunnlaugsson 8 Kristján Olgeirsson 8 Jón Askelsson 6 Sigþór ómarsson 6 Kristinn Björnsson 6 Árni Sveinsson 7 Lið Vikings: Diðrik ólafsson 7 Gunnar Gunnarsson 7 Ragnar Gislason 6 Magnús Þorvaldsson 6 Þórður Marelsson 6 Helgi Helgason 7 Ómar Torfason 6 Lárus Guðmundsson 6 Hinrik Þórhallsson 7 Heimir Karlsson 8 Gunnar örn Krist jánsson 5 Fyrri hálfleikurinn í gærkvöldi var nokkuð jafn. Bæði liðin léku nokkuð vel úti á vellinum, en gekk illa að komast í gegn um varnirn- ar og skapa sér marktækifæri sem voru umtalsverð. Víkingur — ÍBK Síðari hálfleikurinn var hins vegar mjög líflegur og bráð- skemmtilegur á að horfa. Víkingar byrjuðu af miklum krafti og voru greinilega ákveðnir í að ná sér í stigin tvö. Á 55. mínútu á Hinrik gott skot rétt yfir þverslánna. Víkingar sækja stíft og uppskera mark á 59. mínútu. Lárus gefur góða sendingu út á Hinrik sem gefur sér góðan tíma sendir síðan vel fyrir markið á Helga Helgason sem skorar af yfirvegun og öryggi í bláhorn marksins. Fallegt mark. Kom Jón Örvar engum vörnum við. Tveimur mínútum síðar bjargar Óskar bakvörður ÍBK á línu eftir góðan skalla Ómars. Á 67. mínútu skora Víkingar sitt annað mark og það var ekki af verri tegundinni. af öðru. Heimir er aftur á ferðinni á 70. mínútu með þrumuskot rétt framhjá stöng. Lárus á gott skot mínútu síðar fram hjá. Á 72. mínútu eiga Keflvíkingar loks tækifæri, Steinar skýtur góðu skoti rétt framhjá. En lokakaflinn var Víkinga. Lárus Guðmundsson komst í gegn um vörn ÍBK á 85. mín. átti Lárus aðeins markvörðinn eftir er hann reyndi skot of fljótt. Skot hans misheppnaðist og Jón Örvar varði auðveldlega, rétt skömmu síðar var Lárus aftur á ferðinni í sömu stöðu en mistókst alveg eins. Bæði þessi góðu tækifæri áttu að gefa Víkingum mark. FRAM GuAmundur Baldursson Simon Kristjánsson Trausti Haraldsson Gunnar Bjarnason Marteinn Geirsson Elías Davíðsson Gústaf Björnsson Pétur Ormslev Guðmundur Torfason Guðmundur Steinsson Jón Pétursson Dómari: Guðmundur Sigurbjörnsson Lið tBK: 4 Jón örvar Arason 5 Guðjón Guðjónsson 7 Óskar Færseth 5 Gisii Eyjólfsson 7 Kári Gunnlaugsson 5 Ólafur Júliusson 6 Skúli Rósantsson 4 Sigurjón Sveinsson 4 Ragnar Margeirsson 4 óli Þór 4 Steinar Jóhannsson Björn Ingólfsson jvm) 3 Dómari Kjartan Óiafsson 6 5 5 6 5 5 5 5 6 6 5 6 7 Eftir góða sókn Víkinga nær Helgi að skalla laglega út til Heimis Karlssonar sem var á vítateigslínu. Heimir sýndi snilld- artakta og um leið glæsileg tilþrif þar sem hann lagði sig niður og skaut um leið viðstöðulausu skoti í bláhorn marksins sannkallað draumamark. Þrumuskot óverj- andi og óvenju glæsilegt. ÍBK reyndi að rétta úr kútnum en gekk það illa, það voru Víkingar sem sóttu og áttu nú hvert tækifærið IBK Það var svo á lokamínútunni að Steinari Jóhannssyni tókst að skora mark ÍBK. Eftir að þvaga hafði myndast inn í teig Víkings náði hann að skjóta föstu skoti og skora laglega og laga stöðuna í 2-1. Lið Víkings lék þennan leik vel, sérstaklega síðari hálfleikinn nú getur ekkert lið bókað sér sigur gegn Víkingum eins og þeir leika í dag. Og gaman verður að fylgjast með leik þeirra á móti Fram í bikarkeppninni á miðvikudag. Lið Víkings var jafnt í þessum leik, allir börðust vel og náðu vel saman. Heimir, Lárus og Gunnar eru allir ungir að árum og eiga framtíðina fyrir sér sem knatt- spyrnumenn. Lið ÍBK náði sæmilegum köfl- um í leik sínum, en þess á milli datt leikur þeirra niður. Það vantaði meiri baráttu og brodd í sókn liðsins. í stuttu máli: íslandsmótið 1. deild. Laugardalsvöllur. Víking- ur-ÍBK 2-2 (0-0). Mörk Víkings. Helgi Helgason á 59. mínútu og Heimir Karlsson á 67. mín. Mark ÍBK Steinar Jó- hannsson á 90. mínútu. Gult spjald: Hinrik Þórhallsson Víking. Dómari var Kjartan Ólafsson og dæmdi vel. Áhorfendur voru 758. — ÞR.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.