Morgunblaðið - 22.07.1980, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ1980
Blikar á lofti
BREIÐABLIK steraði ÍBV 2-0
á KópavoK-svellinum í 1. deild
íslandsmótsins í knattspyrnu á
laugardaginn. Er óhætt að segja
að sá sÍRur hafi verið meira en
sannKjarn og Kefa tolurnar nokk-
uð góða mynd af uanjíi leiksins. í
heild var leikurinn ekkert sér-
stakur, en það sem sást af
þokkalegri knattspyrnu. kom
meira og minna allt frá UBK. í
sviðsljósinu voru þeir Helgi
Bentsson og Sigurður Grétars-
son, cfstu menn i einkunnagjöf
Mbl. um þessar mundir. Þeir
félagar slógu ekki slöku við og
gerðu varnarmenn ÍBV grá-
hærða áður en yfir lauk.
Blikarnir byrjuðu af miklum
krafti og tvívegis á fyrstu mínút-
unum voru þeir hársbreidd frá því
að komast í dauðafæri. I báðum
tilvikum komu Eyjafætur eins og
skrattinn úr sauðarleggnum á
síðustu stundu og björguðu.
Hægðist mjög um leikinn síðan
um hríð, en er líða tók á hálfleik-
inn, færðist dálítið líf í Blikana.
Fyrra markið skoruðu þeir á 42.
mínútu og var þar að verki
Sigurður Grétarsson. Var aðdrag-
andi marksins sérlega glæsilegur,
Helgi Bentsson kom á mikilli ferð
inn að vítateig ÍBV, lék þrjá
Eyjamenn upp úr skónum og
skaut síðan hörkuskoti í þverslá.
Hrökk knötturinn út til Sigurðar
Grétarssonar sem kom aðvífandi á
UBK: O,
ÍBV
fullri ferð og spyrnti viðstöðu-
lausu þrumuskoti í markið af
frekar stuttu færi. Næstu mínút-
urnar voru Bjikarnir síðan ágeng-
ir við mark ÍBV og var Sigurður
tvívegis í góðum marktækifærum,
fyrst eftir undirbúning Helga
Bents og síðan eftir undirbúning
Vignis Baldurssonar. Besta (og
eina) tækifæri Eyjamanna í fyrri
hálfleik kom eftir hornspyrnu á
40. mínútu. Þá stökk Sigurlás
hæst og skallaði að marki. Fór
knötturinn ofan á þverslána.
Þetta var allt saman hálfgerð
vitleysa hjá Eyjamönnum í síðari
hálfleik, reyndar í fyrri hálfleik
líka. Þeir náðu alls ekki saman úti
á vellinum, sendu knöttinn fyrst
og fremst til mótherja, notuðu alls
ekki kantana og voru auk þess
öðru hvoru grófir í leik sínum.
Kom það einkum niður á fram-
herjum Blikanna, sem léku vörn
Eyjaskeggja oft grátt. Blikarnir
náðu nokkrum góðum sprettum,
en þess á milli datt leikur liðsins
niður á plan meðalmennskunnar.
Þegar rennt er yfir minnis-
punktana, kemur í ljós, að þau
tækifæri sem skutu upp kollinum í
síðari hálfleik voru öll að einu
undanteknu eign Blikanna. Ómar
Jóhannsson átti gott hörkuskot
rétt yfir mark UBK á 60. mínútu.
Eru þar með upptaldar atlögur
IBV að marki UBK. Blikarnir voru
hins vegar sprækari, enda sigruðu
þeir í leiknum. Benedikt skallaði
naumlega fram hjá á 68. mínútu
og áður hafði Helgi Bentsson
brennt af í góðu færi og Páll
Pálmason bjargað naumlega af
línu lúmsku skoti Tómasar
Tómassonar.
Eitt besta tækifæri Blikanna
kom á 70. mínútu leiksins, þá sneri
Helgi Bentsson snarlega á vörn
ÍBV, komst á auðan sjó, en skot
hans heppnaðist illa og hæfði ekki
markrammann. UBK innsiglaði
síðan sigurinn endanlega á 85.
mínútu. Olafur Björnsson fékk þá
skyndilega góða sendingu inn
fyrir vörn ÍBV. Hann virtist hrasa
og skemma tækifærið fyrir sjálf-
um sér, en náði þó að pota
knettinum að marki ÍBV. Páll
Pálmason kom hlaupandi út á
móti, hálfvarði skotið, en knöttur-
inn skoppaði í netið engu að síður.
Sigurður Grétarsson var besti
maður UBK að þessu sinni og
félagi hans Helgi Bentsson kom
þar mjög skammt á eftir. Sigurður
skemmdi nokkuð fyrir sér með
hinu mikla skapi sínu. Var hann
heppinn að Magnús Pétursson
dómari sýndi honum ekki rauða
spjaldið í síðari hálfleik, er hann
sparkaði knettinum burt er dæmd
hafði verið aukaspyrna á UBK.
Hafði Sigurður fengið að skoða
gula spjaldið fyrr í leiknum. Helgi
var stilltur að þessu sinni og lék
þeim mun betur fyrir vikið. Auk
þeirra voru Vignir og Þór mjög
góðir á köflum á miðjunni. Lítið
reyndi á vörn og markvörslu
Blikanna í leiknum sökum lítillar
mótstöðu. Kári Þorleifsson var
langbestur í liði Eyjamanna, var
alltaf á ferðinni og hótaði nokkr-
um sinnum að brjótast í gegnum
vörn UBK, þó ekki yrði neitt úr
neinu. Sighvatur Bjarnason kom
einnig allvel frá leiknum, en aðrir
utan Páll Pálma voru slakir.
í stuttu máli:
íslandsmótið í 1. deild, Kópavogs-
völlur UBK-ÍBV 2-0 (1-).
Mörk UBK: Sigurður Grétarsson
(42) og Ólafur Björnsson (85).
Gul spjöld: Sigurður Grétarsson
UBK.
Áhorfendur: 894.
Elnkunnagjöfln
LIÐ FH:
Friðrik Jónsson 7
Viðar Halldórsson 6
Atli Alexandersson 5
Valþór Sigþórsson 6
Guðjón Guðmundsson 6
Magnús Teitsson 7
Helgi Ragnarsson 6
Ásgeir Elíasson 6
Valur Valsson 6
Pálmi Jónsson 7
Ásgeir Arnbjörnsson 5
LIÐ VALS:
ólafur Magnússon 6
óttar Sveinsson 5
Grimur Sæmundsen 4
Dýri Guðmundsson 5
Sævar Jónsson 6
Þorsteinn Sigurðsson 4
Magni Pétursson 6
Matthías Hallgrímsson 4
Hermann Gunnarsson 4
Guðmundur Þorbjörnsson 4
Albert Guðmundsson 5
Magnús Bergs (vm) 6
Jón Einarsson (vm) 6
Dómari:
Eysteinn Guðmundsson 7
LIÐ KR:
Stefán Jóhannsson 7
Ágúst Jónsson 5
Sigurður Pétursson 7
Ottó Guðmundsson 5
Borkur Ingvarsson 5
Sigurður Indriðason 6
Jón Oddsson 6
Birgir Guðjónsson 4
Sverrir Herbertsson5
Sæbjörn Guðmundsson 7
Ilálfdán Örlygsson 4
Stefán örn Sigurðsson (vm) 5
Erling Aðalsteinsson(vm) 5
LIÐ ÞRÓTTAR:
Jón Þorbjörnsson 7
Ottó Hreinsson 6
Daði Harðarson 3
Rúnar Sverrisson 4
Sverrir Einarsson 5
Jóhann Hreiðarsson 4
Páll ólafsson 6
Þorvaldur Þorvaldsson 5
Halldór Arason 4
Sigurkarl Aðalsteinsson 4
Ólafur Magnússon 4
Dómari:
Sævar Sigurðsson 6
LIÐ UBK:
Guðmundur Ásgeirsson 7
Gunnlaugur Helgason 5
Tómas Tómasson 5
Valdemar Valdemarsson 5
Einar Þórhallsson 6
Benedikt Guðmundsson 5
Vignir Baldursson 7
Þór Hreiðarsson 7
Sigurður Grétarsson 8
Helgi Bentsson 8
ólafur Björnsson 6
LIÐ ÍBV:
Páll Pálmason 7
Sighvatur Bjarnason 7
Viðar Elíasson 5
Þórður Hallgrimsson 5
Gústaf Baldvinsson 5
Snorri Rútsson 4
Jóhann Georgsson 4
óskar Valtýsson 4
Sigurlás Þorleifsson 5
ómar Jóhannsson 5
Kári Þorleifsson 7
Tómas Pálsson (vm) 3
Dómari:
Magnús V. Pétursson 6
i
Ovæntusl
• Meðfylgjandi myndasyrpa er af síðara marki UBK geKn ÍB
Páll hefur hendur á knettinum, en ekki svo að að gagni komi. K
fagnar ógurlega er knötturinn hafnar loks í netinu. Fyrsta ma
í 1. deild
FH vann örugg
EINHVER óvæntustu úrslit 1. deildarinnar til þessa skutu upp
kollinum á sunnudaginn suður i Hafnarfirði, en þar gerði botnliðið
FH sér lítið fyrir og sigraði toppliðið Val örugglega 2—1. Var
sigurinn sanngjarn og lengst af öruggur. Munaði þó mjóu á
lokaminútunum að Val tækist að jafna, en liðið átti annað stigið alls
ekki skilið. Valsmenn léku illa, FH-ingar vel á köflum, eða a.m.k. mun
betur heldur en stjörnum skrýtt lið Vals. Hefði mátt ætla á leik
liðanna, að Valsmenn væru einir á botninum, en FH-ingar i ofanverðri
deild. Þrátt fyrir sigurinn er staða FH i 1. deild mjög erfið, en þessi
sigur, ásamt góðum 3 — 1 sigri gegn ÍA i bikarkeppninni, ætti að
stappa stálinu i leikmenn FH. Það sem háð hefur FH fyrst og fremst,
er gloppóttur varnarleikur, en það er athyglisvert, að enn hefur liðið
ekki leikið leik i 1. deild án þess að fá á sig eitt mark eða (og oftast)
meira.
Leikur FH og Vals var lengst af
með ólíkindum tilþrifalítill og
tíðindasnauður. Bókstaflega ekk-
ert gerðist fyrstu 28 mínúturnar
annað en að leikmenn þvældust
um með knöttinn fram og aftur
um vallarmiðjuna. En á 29. mín-
útu æstist leikurinn heldur betur.
Þá björguðu FH-ingar tvívegis af
marklínu á sömu mínútunni.
Fyrst var það miðvörðurinn Guð-
jón Guðmundsson sem bjargaði og
nokkrum andartökum síðar skall-
aði Dýri að marki, en Atli Alex-
andersson bjargaði af línu. Ef frá
eru taldar tvær fimm mínútna
rispur, gerðu Valsmenn fátt meira
af viti í leik þessum.
Pálmi Jónsson skoraði fyrra
mark FH á 36. mínútu. Helgi
Ragnarsson lék þá laglega á varn-
armann úti á hægri kantinum og
sendi vel fyrir markið til Pálma.
Pálmi tók knöttinn snyrtilega
niður og skaut snöggu þrumuskoti
í bláhorn marksins utan úr víta-
teignum. Gott mark og verðskuld-
að, því þrátt fyrir allt höfðu
FH-ingar verið frískari aðilinn í
leiknum.
FH-ingar héldu áfram að leika
betur en Valsmenn, en það vantaði
þó allan brodd í sóknarleikinn og
fá tækifæri buðust. Valur Valsson
fékk þó eitt á 37. mínútu, en
brenndi af. Á 52. mínútu fékk
Magnús Teitsson síðan knöttinn
mjög skyndilega inn fyrir vörn