Morgunblaðið - 22.07.1980, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ 1980
29
Fjölmenn Varðarferð
í blíðskaparveðri árla
á sunnudagsmorgun
lögðu rúmlega sjö hundr-
uð manns upp frá Valhöll
í hina árlegu sumarferð
Varðar. Ekið var austur
yfir Hellisheiði og var
fyrsti áfangastaðurinn
sjávarkambarnir á
Stokkseyri, þar sem
menn drukku morgun-
kaffi í morgunkyrrðinni.
Síðan var ekið upp með Þjórsá,
upp Skeiðin og inn í Þjórsárdal.
Þar var staðnæmst um hádegisbil
og þjóðveldisbærinn skoðaður.
Steinþór Gestsson, alþingismað-
ur, bauð ferðalangana velkomna
og fagnaði því að Suðurland væri
heimsótt að þessu sinni. Þar væru
menn í nágrenni við mestu
orkumannvirki landsins, en eins
og kunnugt væri hefði Sjálfstæð-
isflokkurinn og foringjar hans
unnið mikið brautryðjendastarf í
orkumálum. Þessi staður ætti að
minna menn á þá möguleika, sem
væru á því að lifa góðu lífi i þessu
landi, ef þeir væru nýttir, en
úrtölumenn villtu fólki ekki sýn.
Að lokinni ræðu hans tók formað-
ur Sjálfstæðisflokksins, Geir
Hallgrímsson, til máls, en ræða
hans er birt á öðrum stað í
biaðinu. Að loknum hádegisverði í
Þjórsárdal var ekið inn til fjalla,
þar sem virkjunarframkvæmdir
við Hrauneyjarfoss voru skoðað-
ar. Páll Ólafsson tók á móti
ferðamönnum og gerði grein fyrir
þeim framkvæmdum, sem þarna
er unnið að. Annar háttur var
hafður á við útboð þessara fram-
kvæmda en verið hefur. Til að
gera Islendingum kleift að bjóða í
verkið var því öllu skipt í smærri
verk og aðeins sérhæfð verk, sem
krefjast mikillar tækni s.s. þétt-
ing stíflunnar, voru boðin út á
erlendum vettvangi. Nú eru um
600 manns að vinna við þessar
framkvæmdir og þar af eru aðeins
25 útlendingar. Byrjað er á stíflu-
gerð og er áætlað að henni verði
lokið haustið 1981, ennfremur er
byrjað að grafa aðveituskurðinn
og byggja stöðvarhúsið. Síðan var
ekið upp að Sigöldu, og gafst þá
ágætt tækifæri til að bera saman
aðstæður annars vegar á meðan
unnið er við framkvæmdir og hins
vegar þegar búið er að ljúka þeim
og orkuvinnsla hafin. Ekki láta
orkuverin þá mikið yfir sér og
höfðu menn það á orði, að engin
leið væri að ímynda sér þá vinnu,
sem að baki lægi, nema sjá það
með eigin augum.
Nú var degi tekið að halla og
ekið niður eyðisandana að gróð-
urvininni í Galtalækjarskógi, síð-
asta áningarstað ferðarinnar. Þar
lýsti Einar Guðjohnsen umhverf-
inu fyrir mönnum, eins og hann
reyndar gerði á hverjum áningar-
stað. Sigurður Óskarsson, for-
maður Verkalýðsmálaráðs Sjálf-
stæðisflokksins, bauð menn vel-
komna í Rangárvallasýslu. Að
loknum kvöldverði ávarpaði
Óskar Friðriksson, formaður
Varðar, ferðafólkið og þakkaði
ánægjulegan dag og vel heppnaða
ferð. Ennfremur þakkaði Guð-
mundur Jónsson fyrir hönd ferða-
nefndarinnar mönnum fyrir sam-
fylgdina og kvaðst vonast til að
sjá sem flesta að ári liðnu þegar
næsta sumarferð yrði farin.
Það var langt liðið á kvöld,
þegar komið var heim í Valhöll
aftur og ferðalangarnir þreyttir
en ánægðir með viðburðarríkan
dag, fróðlega og skemmtilega ferð
í yndislegu veðri, kvöddust og
héldu hver til síns heima.
Milli sjö og átta hundruð manns, sem þátt tóku í Varðarferðinni, virða fyrir sér virkjunarframkvæmdir við Hrauneyjarfoss.
Einar Þ. Guðjohnsen lýsir staðháttum fyrir ferðamönnum við
Þjóðveldisbæinn i Þjórsárdal. Einar gerði mjög góða leiðarlýsingu
vegna ferðarinnar og jafnframt lýsti hann umhverfi á hverjum
áningarstað.
Ungir sem aldnir tóku þátt i Varðarferðinni og létu fara vel um sig
á áningarstöðum.
t fögru umhverfi við rætur Ileklu var siðasti áningarstaður ferðarinnar. Galtalækjarskógur. þar sem snæddur var kvöldverður.