Morgunblaðið - 22.07.1980, Side 34
3 4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ1980
Á ferö um Skagafjörð / Texti: Friörik Friöriksson
Skagf irðingar eru
söngelskt f ólk
Á Sleitustöðum í Hólahreppi hefur með tiðinni þróast litið
samfélag þar sem búa 20 — 25 manns og hafa atvinnu af búskap.
rekstri bílaverkstæðis og rekstri vöruflutninga- og langferðabif-
reiða. íbúarnir eru allir skyldir og ættfaðirinn, Sigurður
Þorvaldsson, býr enn á Sleitustöðum. Sigurður er 96 ára gamall, en
það cr einmitt eitt af barnabörnum hans, Þorvaldur Oskarsson,
sem ég hcimsótti á Sleitustöðum.
Þorvaldur rekur bílaverkstæði á Sleitustöðum, en fyrir utan
vinnutíma syngur hann i nokkrum kórum, er formaður Karlakórs-
ins Heimis í Skagafirði og formaður Tónlistarfélags Skagaf jarðar.
Verðbólgan dregur
kjark úr mönnum
Hvernig gengur þér að reka
bílaverkstæði hér úti í sveit?
Reksturinn hefur gengið
ágætlega og staðsetningin virð-
ist engin áhrif hafa haft á
viðskiptin. Mínir viðskiptavinir
koma víða að, bæði sveitungar
og bíleigendur frá Hofsósi,
Siglufirði og jafnvel Sauðár-
króki.
Þetta hefur því fram að þessu
verið nokkuð örugg atvinna fyrir
fimm menn, en því er ekki að
leyna, að það er þyngra undir
fæti nú en nokkru sinni fyrr. Ég
verð áberandi var við það hvað
fólk hefur minni auraráð en
áður, innheimta skulda er góður
mælikvarði á það.
Mér finnst það einkennandi
fyrir það ástand sem ríkir í
þjóðfélaginu, að verðbólgan
dregur kjark úr mönnum til
nýrra átaka, hún lamar allt
verðskyn og verðmætamat og
eykur auk þess óvissu og spill-
ingu á öllum sviðum.
Maður finnur það greinilega,
að verðbólgan stigmagnast með
áður óþekktum hraða, ráðamenn
,eru úrræðalausir enda mörg
sjónarmið sem þarf að sætta.
Því miður virðist þó heista
sjónarmið stjórnmálamanna
vera að kaupa sér atkvæði, án
tillits til afleiðinganna fyrir
þjóðarheildina.
Karlakórinn Heimir
er einn elsti
karlakór landsins
Nú ert þú formaður Karla-
kórsins Heimis og auk þess
söngmaður í kórnum, hvað getur
þú sagt mér um starfsemi hans?
Karlakórinn Heimir er einn af
elstu karlakórum landsins, og öll
þau 50 ár sem hann hefur
starfað, hafa bændur verið meg-
inuppistaðan í honum. í Heimi
eru um 50 söngmenn úr 5
hreppum í Skagafirði, auk Sauð-
árkróks.
Eins og menn vita eru Skag-
firðingar þekktir söngmenn, og
bændur í Skagafirði eru þar
engin undantekning.
Á síðasta vetri æfðum við í
Varmahlíð undir stjórn Sven
Arne Korshamn, sem er norskur
maður af íslenskum ættum, en
Sven kenndi auk þess við Tón-
listarskólann í Varmahlíð. Þeir
bændur sem lengst þurftu að
sækja til æfinga óku 70 km,
tvisvar í viku, þannig að áhugi
verður að vera mikill til að halda
slíkt út heilan vetur.
Starfsemi okkar yfir veturinn
hefur annars miðað að því að
fara í söngferðir um nágranna-
byggðarlögin og stundum lengra,
en síðasti vetur var alveg sér-
stakur.
Eftir að Sven Arne kom
hingað í haust var farið að
kanna grundvöll fyrir því að
fara í söngför til Noregs, og eftir
miklar vangaveltur og mikið
starf var ákveðið að fara, og
hafði Sven bæði skipulagning-
una og síðar fararstjórnina á
sinni könnu.
Lagt var af stað í þessa
söngferð 12. júní og tóku þátt í
henni 36 söngmenn, en auk þess
voru 34 aðrir með í ferðinni,
vinir og vandamenn, auk undir-
leikarans Einars Schwaiger, sem
einnig er norskur.
Þátttakan í ferðinni var sér-
staklega góð þegar tekið er tillit
til þess að vorannir stóðu sem
hæst hjá bændum. Eiginkonur
söngmanna eiga mikinn þátt í
því að þetta tókst, því ófá
kvöldin þurftu konurnar að taka
á sig bústörfin, meðan karlarnir
æfðu. Sem betur fer komust
flestar eiginkvennanna með í
ferðina, en þó voru dæmi þess að
eiginkonur sátu heima til að
bændur þeirra kæmust í söng-
förina.
Hvernig gekk ferðin fyrir sig?
Hún tókst í alla staði frábær-
lega vel, bæði var fararstjórnin
góð og móttökurnar ólýsanlegar.
Við sungum tvisvar sinnum
opinberlega, fyrst í Hareid við
Álasund og síðar í Elverum, í
bæði skiptin við frábærar undir-
tektir.
Að auki sungum við nokkrum
sinnum með öðrum kórum og
félögum. Á milli þess sem við
sungum, sátum við góðar veislur
og skoðuðum okkur um, þannig
að þetta var sannkölluð ævin-
týraferð. Það skemmdi ekki fyrir
að við fengum mjög góða dóma í
þeim blöðum sem fjölluðu um
söng okkar.
Hvernig verður starfið í kórn-
um næsta vetur?
Ég á von á því að við byrjum í
Hjónin SÍKUrlina Eiriksdóttir
og Þorvaldur óskarsson eru
bæöi mikið söngfólk.
nóvember eins og vanalega, en
það er ekki útséð með hver
verður stjórnandi í vetur, því að
Sven Arne Korshamn getur ekki
komið næsta vetur.
Það voru allir mjög ánægðir
með starf söngstjórans í vetur,
og það má geta þess til gamans,
að föðurbróðir Sven Arne býr á
Kúskerpi í Akrahreppi hér í
Skagafirði. Hann heitir Jóhann
Lúðvíksson (Korshamn), en
hann lagði niður ættarnafnið
þegar hann gerðist íslenskur
ríkisborgari. Saga Jóhanns er sú
að hann kom hér sem ungur
maður ásamt tveimur öðrum
Norðmönnum í leit að vinnu,
giftist hér og settist að og á nú
uppkomin börn.
Hvernig hefur ykkur tekist að
yngja upp í Heimi?
Eg get ekki sagt annað en það
hafi gengið vonum framar, það
virðist enginn hörgull vera á
ungum mönnum með söngáhuga.
Eru margir kórar hér í Skaga-
firði?
Já, við höfum hér tvo karla-
kóra, nokkra blandaða kóra auk
kirkjukóra. Margir syngja í
fleiri en einum kór, t.d. syng ég
ásamt eiginkonu minni, Sigur-
línu Eiríksdóttur, í Söngfélaginu
Hörpunni á Hofsósi, sem er
blandaður kór. Margir af félög-
um mínum í Heimi syngja einnig
í fleiri en einupi kór.
Hefur þú verið viðriðinn aðra
félagsstarfsemi?
Ég hef verið meðlimur í
Lions-klúbbi Sauðárkróks um
árabil, en auk þess er ég formað-
ur Tónlistarfélags Skagafjarðar,
en það félag beitti sér m.a. fyrir
stofnun Tónlistarskólans í
Varmahlíð.
Við erum hreyknir hér af því
að geta haldið úti tónlistarskóla,
en að honum standa flestir
hreppar sýslunnar.
Síðasta vetur stunduðu þar
nám um 150 nemendur á aldrin-
um 7—30 ára. Skólastjóri er
Ingimar Jónsson, en auk þess
störfuðu þrír fastráðnir kennar-
ar við skólann, þar af voru tveir
Norðmenn, en þess má geta að
mjög erfiðlega hefur gengið að
fá íslenska kennara við skólann.
Að lokum Þorvaldur, hvernig
líst þér á lífið og tilveruna?
Nú, það er lítið fengið með því
að kveinka sér, hér búa allir vel
en það er þó eitt atriði sem
veldur okkur áhyggjum hér í
sveitinni, en það er framtíð
Bændaskólans á Hólum.
Það er svo mikil og löng saga
tengd Hólum, að okkur finnst
sárt að sjá staðinn í svo mikilli
lægð. Maður vonar að hinar
miklu framkvæmdir í grennd við
Hóla verði til þess að Hólar
verði á ný hafnir til vegs og
virðingar.
Norsk-lslandsk forbrodring
Mannskorsong pá sitt ypparste og storstemning i Trudvang
Kerlakormn Heimir ovcrrekker gáver og helsmgar til formnnnen i Haretrl mannskor. Stale Xoyso*
Boss-
brenning
i Ulstein
-god
loysing
for Heroy
- For Herey kommune er det
ei god laysing & knytte seg til
det planlagde forbrenningsan-
legget i Saunesmarka Med
avtale om levering av boss til
anlegget fér vi ei sikker og
miljomessig trygg ordning.
seier kommuneingenier Anton
Goksoyr i Herey til Sunnmers-
posten
Saman med andre frá Ulstein,
Herey og Hareid kommunar har
Goksoyr hatt mote med fylkes-
mannen og drofta loysinga av
dei prekære vanskane med á bli
kvitt hushaldsavfallet i dei tre
kommunnne Der vart gjort
greie for det planlagde for-
brenmngsanlegget i Saunes-
marka.
Tekmsk sjef i Ulstein. Elling
WSTTBKTSlfG
UtSTBMVTK -
mi soMMtma f
KontorDd Iri .
Teletontid Irá .
iHnuTwuw:
KOWTWmO - WKTl
80E
Ltt
BJBRNR0
ALMÐLHtAK
Kontorlid mand
kl 1000-
Tirsdag og tor
15 00 • 1
TlMiAVTAiJ Tlf. 80 •
VÐtCJGST RMG Kft
TAinruí
BJ0RG T
ULFST
08
TURID TR
S0L/
Uls
80 139-
Kontortid
iBfdager ........
TANNLL
FANNEI
Kontorti
09 00 14 00 09 1
Karlukórinn Ileimir fékk mjög góða dóma fyrir song sinn i Noregi eins ug sést af úrkiippunni úr norsku dagblaði.