Morgunblaðið - 22.07.1980, Side 35

Morgunblaðið - 22.07.1980, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ 1980 35 Agnar Guðnason: Hvers vegna ganga þeir ekki á sauðskinnsskóm? sem fékk nafn og heimilisfang Morgunblaðsins frá pennavini sínum í Tékkóslóvakíu, óskar eftir bréfaskiptum: Frank J. Shepherd, 213 Beechwood Ave., Joppa, Maryland 21085, U.S.A. Hálffertugur, einhleypur Banda- ríkjamaður með áhuga á landi og þjóð óskar eftir bréfasam- bandi við íslendinga: Bill Gorsky, 2831 Disston Street, Philadelphia, Pennsylvania 19149, U.S.A. Ástralíubúi 23 ára óskar eftir bréfaskiptum við íslenzkar stúlkur á aldrinum 17—23 ára: Joseph Fiori. 272 Railway Parade, East Cannington, W.A. 6107, Australia. Hálfþrítugur Skoti óskar eftir bréfaskiptum við íslenzkar stúlkur: Jeffrey Blackshaw, 31 Duchray Drive, Ralston, Renfrewsire, PAl 3BP, Scotland. Það kemur margt furðulegt í ljós, þegar sumir sjálfskipaðir fulltrúar neytenda skrifa um mál- efni landbúnaðarins. Nýjasta framlag þeirra er að berjast á móti eðlilegum verslunarháttum með egg. Það er ekkert óeðlilegt að stórframleiðendur eggja í ná- grenni Reykjavíkur séu andvígir öllum breytingum á verslun með egg, en óskiljanlegt er, að neyt- endur séu andvígir aukinni hag- ræðingu á þessu sviði. Er það nú ekki heldur ótrúlegt, að það bjóði upp á lægri dreif- ingarkostnað, að 600 eggjafram- leiðendur þeytist um öll byggð ból á íslandi til að selja egg í stað eins eða tveggja dreifingarmiðstöðva, með hæfilegum fjölda útibúa? Hverskonar meinloka er eigin- lega í hausnum á ykkur? Viltu kaupa lamb gæskan? Á íslandi eru um 4000 sauðfjár- bændur. Væri það ekki dásamlegt fyrir neytendur ef þessir framleið- endur skæru dilkana heima, hentu þeim upp í skítakerruna og berðu að dyrum á síðkvöldum og byðu heilt lamb á niðursettu verði. Þetta er ef til vill það, sem þeir vilja Jónas og co.? Blómaframleiðendur eru harð- duglegir menn. Þeir mynda með sér smá hagsmunahópa. Hver hópur hefur sinn sölumann. Stundum ruglast hjá þeim rútan milli blómaverslana borgarinnar og þeir mæta allir samtímis við sömu búðina. Kaupmaðurinn hleypur milli bíla og kaupir sína ögnina af hverjum, eins og hann er vanur að gera alla virka daga. Því hann vill fá þá alla til sín, þótt þeir séu allir með sömu tegundir af blómum og allt á sama verði. Þetta er töluverð hagræðing miðað við að 100 blómaframleið- endur hlypu milli búða eða jafnvel húsa. Auðvitað væri það alltof mikil hagræðing að hafa eina dreif- ingarmiðstöð fyrir höfuðborgar- svæðið, þangað sem kaupmenn gætu komið fyrir kl. 9 á morgnana til að ná sér í blóm. Þeir kaup- menn, sem eiga erfitt með að vakna snemma, ættu að geta fengið blómin send. Haldið þið að heildsölukostnað- ur mundi hækka? Já, auðvitað er það ykkar álit, sérstakega vegna þess að það mundi reynast fram- leiðendum hagstætt. Fyrir hverja er verið að berjast? Stundum læðist sá grunur að Agnar Guðnason mér, að þeir örfáu neytendur, sem skrifa á móti breyttum verslunar- háttum með egg, séu að berjast fyrir því að þeir einir geti ráðið verðlaginu á matvælum. Það er ósköp vel skiljanlegt að hænsnabændur í nágrenni Reykjavíkur vilji ráða, sem mestu á markaðnum. Þeir hafa bestu tengslin við kaupmenn og beint við neytendur. Auðvitað er þeim ekkert um að fara í samkrull við framleiðendur í öðrum landshlutum. Það sjón- armið skilja flestir. Nákvæmlega sama barátta var háð fyrir um 50 árum þegar Mjólkursamsalan í Reykjavík var stofnuð. Mjólkurframleiðandi í Mos- fellssveit barðist á móti, hann vildi ekki aðra framleiðendur inn á markaðinn með vel skipulagða mjólkursölu. Stór hópur hús- mæðra stóð með mjólkurframleið- andanum og var á móti Mjólkur- samsölunni. Húsfreyjurnar og stórframleið- andinn í Mosfellssveit töpuðu fyrir smábændunum og heil- brigðri skynsemi. Baráttan hefði kannski farið á annan veg hefði Jónas verið kom- inn til vits og ára. Bændur og neytendur mega þakka sínum sæla fyrir að svo var ekki. Auðvitað lækkaði dreifingar- kostnaður við stofnun Mjólkur- samsölunnar, bændur fengu hærra verð án þess að útsöluverð mjólkur hækkaði. Mundi ekki eitthvað svipað endurtaka sig ef stofnað væri eggjasölusamlg og að því staðið með heilindum? Þetta dreifingarkerfi á eggjum, sem við búum við nú, er álíka lítið í takt við tímann og ef allt þinglið „krata" gengi á sauðskinnsskóm. Bjarni Guðjónsson: Ekki neinn endir fyrirsjáanlegur Herra ritstjóri! Eg vona, að þú sjáir þér fært að birta þessa grein i blaði þínu, enda þótt ég beini nokkrum spjótum að vissum mönnum, sem þessi grein fjallar um. Aðalástæða þess að ég skrifa þessar línur er grein dr. Jónasar Bjarnasonar í blaði þínu (Morgun- blaðinu) dags. þriðjudaginn 8. þ.m. Eg álít það eina bestu og raunhæf- ustu grein, sem hefur birst í Morgunblaðinu. Ég hef þá ósk og von, að allir, er þessa grein lásu, öðlist skilning á mikilvægi þess er greinin fjallar um. Greinin gerir glögga grein fyrir hve stefna fyrrverandi og núverandi stjórn- valda landsins í landbúnaðarmál- um hefur verið ill og fáránleg og til tjóns fyrir alla þjóðina. Grein Jónasar lýsir þessu svo vel, að ég ætla ekki að fara í einstaka þætti þess máls. Nú langar mig aðeins að grennslast um hvort Morgunblað- ið er samþykkt eða mótfallið grein Jónasar viðvíkjandi því er hann bendir á að betur mætti fara í landbúnaðarmálum og hvort ég og aðrir skattgreiðendur getum vænst þess að Morgunblaðið styðji tillögur Jónasar, enda þótt ein- hverjir þingmenn, hvar í flokki sem þeir eru, töpuðu atkvæðum bænda, sem Jónas telur í grein sinni óheppilega aðila til að vera þjóðfélaginu í heild til gagns, frekar til óþurftar og til skaða fyrir skattborgara og neytendur meðan núverandi stefnu er fylgt. Dr. Jónas lýsir Pálma Jónssyni rétt í grein sinni. Það verður víst sem stendur að kalla hann land- búnaðarráðherra, en vissulega er hann ekki annað en formaður þrýstihóps bænda. Hér skal staðar númið viðvíkjandi grein dr. Jónas- ar, en mig langar til að vekja athygli lesenda blaðsins á við hvers konar verðbólgu þjóðin lifir í þessu landi. Tíu stokkar af eldspýtum kosta nú kr. 650,00. í Hverjum stokk eru frá 45 til 50 eldspýtur, kostar því hver eldspýta kr. 1,30 (reiknað með 50 eldspýtum í hverjum stokki). Tíu stokkar af eldspýtum fyrir stríðið 1939 kostuðu aðeins kr. 1,00 og aðeins 10 aura fyrir fyrri heimsstyrjöld. Krónan okkar flýtur núna á vatni og er ekki stærri en tíeyringur fyrir nokkr- um árum. Kunningi minn sagði mér fyrir nokkrum dögum að hann keypti bensín á sinn amer- íska bíl, og kostaði kr. 33.000,00 að fylla bensíngeyminn (fyrir síðustu bensínhækkun), en hann sagði mér, að hann hefði keypt bíl frá Ameríku 1939 (gegnum bilaeinka- söluna) þá á kr. 3.000.00. Sem sagt hann hefði getað keypt 11 nýja bíla þá fyrir sömu krónutölu, sem kostaði hann að kaupa bensín á bílinn sinn núna, aðeins einu sinni fullan geymi. Verðbólgan vex sí og æ og ekki neinn endir fyrirsjáan- legur. En hverju lofaði þessi stjórn er nú situr, er hún tók við völdum? Hugsaðu um það, kæri samborgari, er þú ferð að kjör- borðinu næst. Svo eru það hænsna- og svína- bændurnir með nýja 200% tollinn á innfluttum fóðurbæti. í Amer- íku kostar kg. af kjúklingum ca. kr. 450,00 (þið vitið hvað það kostar hér). Þetta verð er búðar- verð er ég riefndi, til útflutnings mikið lægra. Væri ekki betra að flytja inn kjúklingakjötið heldur en fóðurbætinn og senda alla kjúklingabændurna í frystihúsin og alla útlendingana sem þar vinna til sinna heimahaga. Með þökk fyrir birtinguna, Bjarni Guðjónsson, Hátúni 4, Reykjavik. Svart á hvítu NÝLEGA kom út sjötta tölublað tímaritsins Svart á hvítu, sem Gallerí Suðurgata 7 gefur út. Meðal efnis er grein eftir austur- ríska fræðimanninn André Gorz, sem hann kallar Gullöld atvinnu- leysisins. Þar fjallar hann um þær miklu breytingar sem örtölvubylt- ingin hefur óneitanlega í för með sér. Þá er grein eftir Völund Óskarsson um Rokk í andstöðu, sem er hreyfing rokkhljómsveita sem blómstrar nú í Evrópu. Hljómsveitir þessar byggja m.a. á þjóðlegum tónlistarhefðum landa sinna, líkt og Þursaflokkurinn hér á landi. Þá er viðtal við páfa nýlistar- innar, Dick Higgins, en hann sýndi í Suðurgötunni í fyrra. Higgins er hress að vanda og segir skemmtilega frá, auk þess að vera fróðleiksbrunnur um sögu nýlist- arinnar. Annað viðtal er i blaðinu við Peter Brötzmann, en hann hélt tvenna tónleika hér í fyrrasumar. Brötzmann er einn virtasti spuna- maður sem nú er uppi og hefur frá mörgu að segja. Glíma Lofts við Gússa nefnist grein eftir Halldór Guðmundsson, en þar er fjallað um nútímann í tveimur sögum Ólafs Jóhanns Sigurðssonar. Höfundur beitir þar nýjum aðferðum við úttekt á Hreiðrinu og Bréfi séra Böðvars. Hér er um að ræða bókmennta- greiningu sem eflaust á eftir að valda fjaðrafoki meðal aðdáenda- hóps Ólafs Jóhanns. Einnig er að finna ljóð eftir m.a. Einar Má Guðmundsson, Anton Helga Jónsson, Einar Kárason, Ólaf Ormsson og Sigfús Bjart- marsson. Tímaritið fæst í öllum helstu bókabúðum borgarinnar og í Gall- erí Suðurgötu 7 á meðan á sýning- um stendur. (Fréttatilkynning.) TILBOÐ I 4 DAGA 20% afsláttur aföllumvörum HERRAOEUJ í verzluninni AU STU RSTRÆTI 14 ÞRIÐJUD., MIÐVIKUD., FIMMTUD., FÖSTUD.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.