Morgunblaðið - 22.07.1980, Síða 37

Morgunblaðið - 22.07.1980, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ1980 HEIMSÓKN í PORTÚGAL JÓHANNA KRISTJÓNSDÓTTIR 7. 37 GREIN Fjórir af bílum Elios. Luktir og lúðrar, glansandi og old^amalt. leigja hann, en ekkert umfram það. Hann ætlar ekki að selja. Og komi einhvern tíma að því að hann hverfi yfir í annan heim, treystir hann því, að fjölskyldan hugsi um bílana, hann nefnir að hann eigi dóttur, en annars er hann ekki margmáll um einkamál sín. Enda situr þarna við borðið ung og fríð stúlka, sem horfir þannig á hann, að hún er áreiðanlega hvorki dóttir hans, né eiginkona. Við göngum um bílageymsluna saman og hann segir mér frá hverjum og einum bíl. Hann talar um þá í sama tón og móðir um þarn sitt enda segist hann þafa mátt n.argt á sig leggja vegna þeirra. Eg leyfi mér að strjúka eftir þessum giansandi risatækjum og þá er gæzlumað- urinn Joao Pedro jafnótt kominn á vettvang með klútinn, það má ekki sjást blettur né fingrafar á bílunum. Joao Pedro býr þarna og sýnir mér hversu haganlega öllu er fyrir komið. Veggur einn, þakinn verðlaunabik- urum og skjölum; og Joao ýtir á takka og veggurinn sígur niður og verður að stóru rúmi. — Ég held að það sé fyrst og fremst karboratorinn sem máli skiptir, segir Elio. — Það jafnast enginn bíll á við Rolls Royce hvað karboratorinn snertir, skal ég segja þér. Belem. Bón og bílalykt hafa aldrei höfðað til mín, en það liggur samt við að maður dragi djúpt að sér andann inni í dýrðinni og ilminum. Sem við Manuel Dias göngum út í nóttina hlaðin, sérmerktu Elio Amorim, púrtvíni, finnst mér þessi aldurslausi öldungur einhver þekki- legasti Portúgali, sem ég hef hitt og eru þó margir ljúfir. Svo eru að verða liðnir þessu ágætu dagar í Oporto. Skipulag Oslóarskrifstofunnar og Sousa Machado hefur tekizt með ágætum og ég fæ tvo daga í Lissabon í kaupbæti, skipulagslausa með öllu. Þá nota ég til að vitja íslenzkrar vinkonu minnar, Kirstenar Thorberg Sa Machado og njóta návistar þeirra Evu Mariu frá Fundo og manns hennar, Ivans Blovsky, forstjóra PENTA hótels í Lissabon, einhvers þjónustubezta hótels sem ég hef dvalið á. Morgunstund á rölti niður við Tejo, hjá Belem. Og síðdegin við sundlaugina. Og svo lá leiðin sem sagt til Baskalands. Á okkar langa samstarfstíma í blíðu og stríðu, eins og gengur, fékk ég að njóta þessara mörgu og góðu kosta Pálma í ríkum mæli. Hafi ég, þegar mótdrægt var og verr gekk en skyldi að mér þótti, verið viðskotaillur eða dapur í bragði, komu skaplétt viðbrögð Pálma til hjálpar og hvarf þá allt angur sem dögg fyrir sólu. Sjálfgefið er, að Pálmi væri kvaddur til starfa utan skyldu. Verður fátt af slíku talið hér enda hef ég fæst af því í svipinn í minni. Geta má þó þessa: Hann á sæti í yfirkjörstjórn, stjórn Kf. Rangæinga, árum saman í bygg- ingarnefnd Stórólfshvolsjarða (þar undir Hvolsvallarbyggð), for- ustumaður um málefni Stórólfs- hvolskirkju, sýslunefndarmaður Hvolhrepps o.fl. o.fl. í þessum störfum hefur Pálmi sinnt verkefnum af skyldurækni og alúð, lagt gott til mála og komið mörgu góðu til leiðar, eins og honum er lagið að hverju sem gengið er. Þegar Pálma hefur færi gefizt leitar hann gjarnan á vit hinnar máttugu íslenzku náttúru sér til hvíldar og yndisauka. Vafalaust hafa unglingsárin við rætur Eyja- fjalla vakið blundandi fegurðar- þrá hans svo heillandi sem byggð- in sú er. Pálmi er hagyrðingur góður og í mörgum ljóðum hans gætir ljúfra og kliðmjúkra þljóma. Hann yrkir um fjall- kringdan dal, seiðandi nið árinn- ar, blómskrúðið á bakkanum og ilmsætan þyt birkiskógarins. Margt kvæðið hefur Pálmi sent vinum sínum á hátíðarstundum þeirra og ekki dregið af sér um lofið. Á kyrrlátri morgunstund áður en gengið var til skyldustarfa varð margt ljóðið til, sem rann við- stöðulaust fram allt til enda. Tilefni gáfust Pálma í dagsins önn að varpa fram vísukorni eða haglegri ferskeytlu og hófst þá stundin upp úr grámósku hvers- dagsins. Á hinum fjölmörgu ferð- um okkar um héraðið var Pálma ekki stirt um stef, svo ég ekki tali um sönginn um ættjörðina og fegurð hennar og dásemdir, en Pálmi er söngmaður góður. Svo sem vita má er Pálmi bókamaður og á sérlega vandað bókasafn. Kennir þar margra grasa en öllu mest fer þó fyrir ferðabókum, ljóðmælum okkar beztu skálda og rithöfundum í fremstu röð. Dálæti hefur hann á skáldinu frá Fagraskógi en eigi að síður unir hann vel við lestur kvæða Guðmundar Böðvarssonar og Jóhannesar úr Kötlum. Mörg hinna eldri ljóðskálda eru honum að sjálfsögðu kær. Ljóð sín og vildarskálda sinna hefur hann oftsinnis lesið á skemmtunum og farizt það einkar vel. Marka má af framansögðu að ég get ekki hugsað mér betri starfs- félaga og vin en Pálma Eyjólfsson. Þannig hefur hann reynzt mér. Ennþá vinnur hann störf sín á sýsluskrifstofunni af skyldurækni og dugnaði og mun engan bilbug á honum að finna. Þegar Pálma er getið, kemur jafnskótt í hug eiginkona hans, Margrét ísleifsdóttir frá Miðkoti í Fljótshlíð. Margrét er prýðilega greind kona, háttvís, glaðlynd og góðsöm. Eigi að síður er víst, að undir býr skapstyrkur og ein- beitni. Hún hefur búið sér ásamt eiginmanni sínum aðlaðandi heimili, þar sem snyrtimennska og hagsýni situr í fyrirrúmi. Þangað þefur margur gesturinn komið um dagana og átt indæla stund við glaðlegt viðmót og rausn húsbændanna. Jafnframt heimilisstörfunum hefur Margrét unnið á sýslu- skrifstofunni hátt á annan áratug. Þar var og er höfuðstarf hennar bundið málefnum Almannatrygg- inganna, sem eru umfangsmikill málaflokkur og vandasamur við- fangs. Af ljúflyndi sínu og lipurð hefur Margrét unnið sér hylli þeirra, sem starfa hennar hafa notið. Þá eiga þau hjónin bæði þakkir skilið fyrir umhyggju þá, sem þau hafa sýnt kirkjunni sinni á Stór- ólfshvoli og allt það starf, sem þau hafa unnið í hennar þágu. Af því, sem hér hefur verið sagt, má auðveldlega ráða, að gifta hefur ríkt í ranni þeirra Margrét- ar og Pálma. Börnin þeirra 3 bera ljóst vitni um farsæld og glaðværð æskuheimilisins og hafa ríkulega erft mannkosti foreldra sinna. Öll eru þau uppkomin og hafa stofnað sín eigin heimili, en þau eru: Guðríður Björk, skrifstofu- stúlka, gift Guðmundi í. Guð- mundssyni stýrimanni, Reykjavík. Eiga þu 2 börn, stúlku og dreng. Ingibjörg, hjúkrunarkona, gift Haraldi Sturlaugssyni fram- kvæmdastjóra, Akranesi. Eiga þau 3 drengi. ísólfur Gylfi, íþróttakennari, kvæntur Stein- unni Ósk Kolbeinsdóttur frá Ólafsvík. Þau búa í Reykjavík og eiga einn dreng. Ég og fjölskylda mín sendum þér, kæri Pálmi, innilegar heilla- óskir á þessum heiðursdegi þínum. Ykkur Margréti færum við alúðar þakkir fyrir margreynda tryggð og vináttu á liðnum árum og biðjum ykkur og fjölskyldunni allrar blessunar. Pálmi og Margrét dveljast er- lendis. Björn Fr. Björnsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.