Morgunblaðið - 22.07.1980, Síða 38

Morgunblaðið - 22.07.1980, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ1980 Fanney Péturs- dóttir - Minning Fædd 21. maí 1884 Dáin 14. júií 1980 Lækkar lifdaga sól lonx er orðin mín ferd. Fauk I faranda skjól fetcin hvildinni verð. Þannig hefst sálmur sem Herdís Andrésdóttir orti og undir þessi orð hefði hún vafalaust getað tekið gamla konan, sem í dag verður kvödd hinztu kveðju í Kópavogskirkju. Hún hét Fanney Pétursdóttir og var fædd í Reykjavík 21. maí 1884. Foreldrar hennar voru Pétur Pét- ursson Ottesen og Jakobína Guð- mundsdóttir, bónda á Ingunnar- stöðum Guðmundssonar. Pétur var sonur Odds Péturs Lárussonar Ottesens, bónda og skyttu á Mun- aðarhóli á Snæfellsnesi og síðar á Ytra-Hólmi á Akranesi. Fanney ólst upp hjá foreldrum sínum, sem bjuggu í Brynjudal í Kjós, síðast á Þrándarstöðum og þar lézt Pétur árið 1904. Eftir lát hans bjó Jakobína á Þrándar- stöðum næstu tvö árin, en þá tóku við búinu Fanney dóttir hennar og Ámundi Kristjánsson, en þau gift- ust svo 10. júlí 1908 og dvaldi Jakobína á heimili þeirra til æviloka, 1926. Ámundi var fæddur á Kára- stöðum í Þingvallasveit 20. febr- úar 1886 og voru foreldrar hans Gréta María Sveinbjörnsdóttir, prests að Glæsibæ, Hallgríms- sonar og Þórarinn Kristján Ámundason, bónda á Sandlæk, Guðmundssonar. Árið 1909 fluttust þau Fanney og Ámundi að Ingunnarstöðum í Kjós og þaðan 1912 að Mjóanesi í Þingvallasveit og bjuggu þar til 1927, er þau fluttust til Reykjavík- ur. Þar keyptu þau býlið Hjarðar- holt, sem stóð undir Öskjuhlíðinni — neðan við þar sem slökkvistöðin er nú. Húsið stendur þar raunar ennþá og hafa Landleiðir lengi haft þar bækistöð sína. Þarna stunduðu þau hæsnarækt, en höfðu að auki 3—4 kýr og nokkrar kindur. Árið 1939 fengu þau út- hlutað 10 ha. erfðafestulandi ofan við Nýbýlaveginn, austast á Digraneshálsinum og ræktaði Ámundi tún á nokkrum hluta þess lands og heyjaði þar handa skepn- um sínum, enda var þá farið að þrengjast um í Hjarðarholti. Síðar hófst hann handa við að byggja hús á landi þessu, en entist ekki aldur til að ljúka því verki. Hann lézt 25. ágúst 1950. Þau hjónin, Ámundi og Fanney, eignuðust sjö börn. Þau eru — talin í aldursröð: Jakobína; Þóra (dó á öðru ári); Pétur Ottesen, kvæntur Jóhönnu Einarsdóttur frá Kárastöðum í Þingvallasveit; Þórarinn Kristján (hann lézt 1935); Þórður; Guðmundur Georg, t Hjartkær eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, SIGURDUR JÓNSSON fré Lýtingsstööum, Safamýri 46, andaöist í Landspítalanum, laugardaginn 19. júlí. Kristín M. Jónsdóttir, Guömunda Siguröardóttir, Kristjón Steindórsson, Sigurleif Siguröardóttir, Siguröur Njálsson, Jón Sigurösson, Tove Sigurðsson, Einar S. Sigurösson, Svanhvít Kjartansdóttir, og barnabörn. t Sonur minn, BALDUR BJÖRNSSON, frá Leynimýri andaöist á Borgarspítalanum 20. júlí, Björn J. Andrósson og systkini hins látna. t Faöir minn, tengdafaðir og afi, EYJÓLFUR ÞORSTEINSSON húsasmíöameistari, Laugateig 34, lést aö heimili sínu þann 20. júlí. Sigrún Eyjólfsdóttir, Úlfar Hermannsson, Eyjólfur, Sigríöur Stefanía, Eyþór Árni. Útför JÓHÖNNU MARÍU JÓHANNESDÓTTUR Oddagötu 5, Akureyri veröur gerö frá Akureyrarkirkju, þriöjudaginn 22. júlí kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hinnar látnu, er vinsamlegast bent á Zonta klúbb Akureyrar. Jóhannes Víöir Haraldsson, Júlíus B. Jóhannesson. t Ástkær eiginmaöur minn, faöir, sonur okkar og bróöir, INGI GARÐAR EINARSSON Flúóaseli 61, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 23. júli kl. 10.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Slysavarnafélag íslands eöa Styrktarfélag lamaöra og fatlaðra. Dagný Leifsdóttir, Davíö örn, Steinunn Sigurgeirsdóttir, Einar Helgason, Ragnar G. Einarsson, Helgi R. Einarsson. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Hann er orðinn þreytandi, þessi sivaxandi áhugi á kynórum i landi okkar. Það mætti ætla, að kynhvötin væri uppgötvun sumra glaumgosanna og að hún væri eitthvert sérkenni þessarar kynslóðar. Álítið þér ekki, að allt þetta kynferðisstagl gangi út i öfgar? Alveg tvímælalaust! Ekki er langt síðan þáttur var sýndur í sjónvarpinu, þar sem kynórar yfirgnæfðu allt annað, eins og um væri að ræða einu ánægjuna í lífinu. Dagskráin hét „I leit að skemmtun“. Ofuráherzlan á kynlíf í þessum þætti sýnir einmitt, í hvílíkt óefni er komið á meðal okkar. Kynhvötin er vissulega mikilvæg, og hún er okkur af Guði gefin. En þegar hún verður „eina ánægjan" og höfuðaflið í lífi okkar, þá er lítill munur á okkur og vesalingum þeim, sem lifa eingöngu fyrir munninn og magann. Það er margt, sem við getum stytt okkur stundir með, ef við erum að sækjast eftir einhverju slíku. Það er til dæmis gaman að leika sér við börnin sín, gaman að spreyta sig á golfi, gaman að leika knattleik, skemmtilegt að heimsækja nágrannana, skemmtilegt að veiða fisk, skemmtilegt að fara á sjóskíði og margt fleira. En það er eins og ekkert komist að hjá okkur, þegar við hugsum um ánægju og skemmtun, nema kynferð- ismál, lögleg eða ólögleg. Annað hvort erum við ákaflega vanþroskuð — miklu vanþroskaðri en félagsfræðingar okkar hafa haldið — eða „della“ hefur náð tökum á fólki, og vonandi líður hún hjá. Við þyrftum að verða fullorðin! Sönn gleði felst í því einu að þekkja Guð. Sálm. 16,11: „Kunna gjörir þú mér vegu lífsins. Gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu". kvæntur Sveinbjörgu Vilhjálms- dóttur og Gréta María, gift Árna Jóni Halldórssyni. Eftir lát Ámunda hefur Fanney að mestu leyti búið með börnum sínum, Jakobínu og Þórði. Þau fluttust árið 1953 að Efstalandi, en það nafn fékk nýja húsið í Kópavoginum, og hafa búið þar síðan. Fanney var lengst af heilsu- hraust, þar til á síðustu árum, að heilsan var mjög farin að gefa sig. Hún var þó heima þar til fyrir tæpum þrem árum, að hún fór á sjúkrahús og þar var hún til æviloka. Heima naut hún umhyggju og aðhlynningar Jakobínu, dóttur sinnar, sem annaðist móður sína af aðdáunarverðum dugnaði, þrátt fyrir fötlun sína, og segir það sig sjálft, að erfitt er það fatlaðri manneskju, sem á erfitt um allar hreyfingar, að hafa rúmliggjandi og nærri blint gamalmenni í umsjá sinni. — En þarna er slæm brotalöm í þjóðfélaginu — göml- um langlegusjúklingum virðist vera ofaukið. Fanney missti sjónina að mestu leyti fyrir nokkrum árum — sá rétt skil dags og nætur. Hún hafði orð á því, að sér þætti leitt að geta ekki fylgzt með uppbyggingu hverfisins sem byggðist upp fyrir nokkrum árum í landi Efstalands og er nú nefnt Efstalandshverfi. Þegar sjónin er farin, hljóta dag- arnir að verða langir, ekki sízt bókelsku fólki eins og hún var. Hún las mikið, meðan hún gat, og var vel heima í íslendingasögun- um og vitnaði oft í þær. Hún fylgdist vel með til hins síðasta og fólkið sitt þekkti hún af röddun- um, þegar það kom til hennar. Hún var orðin þreytt, gamla konan, enda ævin löng og vafa- laust oft ströng, og hvíldin hefur því trúlega verið henni kærkomin, en hún andaðist 14. þ.m. á sjúkra- húsi St. Jósefssystra í Hafnar- firði. Sama dag fyrir nákvæmlega þrem árum lézt nágrannakona hennar og góð kunningjakona, Sigríður Sigurðardóttir, sem var ein af frumbýlingunum hér í Kópavogi. Eg vil að lokum votta öllum aðstandendum hluttekningu mína og enda þessar línur á erindi úr Passíusálmunum, en á þeim hafði Fanney miklar mætur. GóÖi Jesú. fyrir «reftran þín geföu siöasta útför mín veröi friösæl ok farsæl mér frelsuö sál nái dýrð meö þér. Þegar gömul kona kveður lífið, sem hefur verið harla fátæklegt um þó nokkurn tíma, vakna ýmsar spurnir, sem ekki er auðvelt að svara en jafnframt minningar um fyrri tíma þegar þróttur og lífs- styrkur var nægur. Frænka mín Fanney Péturs- dóttir verður mér hvað minnis- stæðust sem miðaldra kona, sem hafði sinn eigin lífsmáta, kjarn- mikinn og sjálfstæðan, sem þó framar öðru einkenndist af rausn, hlýju og lífsgieði. Hún var af þeim gamla og góða skóla, sem var til hjálpar búin, þekkti störf og nauðsyn. Hún spurði einatt hvort einhver væri svangur eða þyrstur og iðulega hafði hún yfir ein- hverja kveðlinga. Ég sé hana sem í anda raula vísuna eftir frænda sinn nokkurn sem kveðið hafði til ungrar dóttur sinnar. Kalt er úti karlinum/ kemur hann heim til manna/ Píkan situr á pallinum/ Pétursdóttir Anna. Síðustu misserin hafði Fanney legið á St. Jósefsspítalanum í Hafnarfirði. Læknum og hjúkrun- arliði svo og öllum þeim, sem gerðu henni lífið eins bærilegt og hægt var, ber að þakka alúð og góð störf. Ekki munu þessi orð verða öllu fleiri. Þó svo eitthvað bættist við, væri í raun lítið sagt. Löng kynni og góðar minningar eru þess eðlis, að þeim verður ekki lýst í orðum. En svipmyndir hins liðna líða hjá í mörgum myndum og skilja eftir þakklæti og söknuð. Er syrtir að nótt/ til sængur er mál að ganga/ Sæt mun hvíldin eftir vegferð stranga/ — Þreytt- um er sælt að sofa svefninum langa./ Hvíl í friði, gamla gestrisna frænka. Björn Þórðarson. Jóh. Bj. + Faöir minn, ERLENDURJÓHANNSSON, verður jarösunginn frá Fossvogskirkju, mlðvikudaginn 23. júlí kl. 3 e.h. Fyrir mína hönd, barna minna og tengdabarna, Unnur Erlendsdóttir. t Innilega þökkum við öllum þeim mörgu, er sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall og jarðarför MARÍU JÓNSDÓTTUR, frá Reykjanesi, Guörúnargötu 1. Jakob Jónasson, börn, barnabörn og tengdabörn. + Jaröarför eiginkonu minnar, LOVÍSU JOHANNSDÓTTUR frá Eyrarbakka fer fram frá Fossvogskirkju, miövikudaginn 23. júlí, kl. 13.30. Ólafur Helgason.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.