Morgunblaðið - 22.07.1980, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ1980
41
Minnsta
lest í heimi
+ Arthur Sherwood heitir þessi
háskólakennari. Hann kennir
verkfræði við háskóla í Sidney.
Hann hefur það fyrir tómstunda-
iðju að safna eftirlíkingum af
eimreiðum, bæði vélknúnum og
gufuknúnum. Nú hefur hann lokið
við smíði á einni, sem hann
fullyrðir að sé sú minnsta í heimi.
Sherwood segir, að vinnan við
eimreiðarnar sé ekki ósvipuð úr-
smíði, svo smágerðar eru þær.
Ástríður Sigurðar-
dóttir kaupmaður
Selfossi — 70 ára
list út af fyrir sig. Fáa veit ég sem
kunna betur að umgangast börn
en Ástríði. Hún getur sýnt þeim
þá natni og rósemi sem er hverju
barni nauðsyn.
Mér býður í grun að í raun hefði
verið sama hvaða störf Ástríður
hefði stundað. Öll hefðu þau verið
rækt af alúð og festu. Enda kom
það í ljós þegar eiginmaður henn-
ar, Lúðvíg Guðnason, kaupmaður,
féll frá fyrir nokkrum árum. Þá
tók Ástríður við rekstri verslunar
þeirra, Skóbúðar Selfoss, sem hún
heldur áfram með reisn og öryggi.
Faðir Ástríðar, Sigurður Guð-
mundsson, bóksali og síðar banka-
maður, lést fyrir nokkrum árum,
97 ára gamall. Móðir hennar,
Sigríður Olafsdóttir, er nú 94 ára
og í raun vel ern. Þau hjón áttu 10
börn. Sigríður heldur enn heimili
með aðstoð systra sinna, Ásu og
Ólafíu, sem báðar eru síungar
konur á níræðisaldri.
Ástríður býr í sama húsi og þær
systur. Segja má að þar hafi þrjár
kynslóðir búið saman á hinn
æskilegasta hátt. Afkomendurnir
eru ótrúlega margir og heimilin
eru bæði mjög gestkvæm.
Á þeim bæ, Grænuvöllum 6 á
Selfossi; eru sjötíu ár ekki hár
aldur. Ástríði virðist svo sannar-
lega ætla að kippa í kynið svo
ótrúlega kvik á fæti sem hún er og
létt í lund. Og detti einhverjum í
hug að það sé kvíðvænlegt að
verða sjötugur þyrfti hann að
kynnast Ástríðj Sigurðardóttur.
Ásdís Skúladóttir.
+ Rlta Webb átti við sama
vandamál aö stríöa og svo margir
aörir, nefnilega þaö, aö hún var yfir
sig hrædd viö köngulær. En eftir
aö hafa hlotið meöhöndlun hjá
sálfræöingi, hefur henni tekist aö
komast yfir þetta eins og sjá má hér
á myndinni, er það hún, sem
heldur á stærstu og eitruöustu
könguló í heimi.
Óðal feðranna vel sótt:
Vesalings
gull-
fiskarnir
+ Lifandi gullfiskur í
skónum er nú það nýj-
asta í Ameríku. Hægt er
að koma næringu til
fiskanna með því að
lyfta sólanum. Annars
hefur framleiðandinn nú
stöðvað framleiðsluna
og ráðleggur mönnum
að hafa skóna aðeins til
skrauts uppi á borði.
HJOLA-POLO
99
+ „Hjóla-póló“ er nýja tómstundagamanið í Englandi. Sömu reglur gilda og í hinni
gamalgrónu og viðurkenndu íþrótt Englendinganna, póló á hestum. Leikmenn mega ]
ekki snerta mótspilara sina eða hjól þeirra.
Aldur fólks, ellin, er afstætt
hugtak. Hvernig við eldumst, hver
við erum á sérhverju tímabili
lífsskeiðs okkar markast af því
hvernig við vinnum úr okkar eigin
lífi, þeirri þekkingu og reynslu
sem það færir okkur dag hvern.
Lífsbraut okkar er mismunandi
bein, beygjurnar mismunandi
krappar. Vegamótin mismunandi
mörg og mismunandi erfið.
Sumu fólki verður hver beygja,
hver vegamót til nýrrar hugsunar
og reisnar. Lífsspeki þess vex eftir
því sem lengra er gengið. Það veit
að endanlega er það manneskjan
sjálf sem hefur gildi en ekki ytri
auður og prjál. Hugur þess fólks
er ávallt opinn og því er það í raun
síungt, eldist aldrei. Það fólk sem
þannig gengur lífsbrautina er
gæfusamt og hefur ætíð eitthvað
að gefa öðrum.
Slík kona er Astríður Sigurðar-
dóttir, kaupmaður á Selfossi.
Ef til vill hefur það fólk sem
fætt er um og eftir aldamótin
ávallt forskot á okkur hin sem
síðar erum fædd. Þær þjóðlífs-
breytingar sem orðið hafa frá því
um aldamót eru svo gífurlegar að
þeir sem hafa lifað þær, meðtekið
þær, staldrað við, vegið og metið,
hljóta að hafa öðlast mikla lífs-
visku. Það er m.a. einmitt þessi
staðreynd sem segir okkur hversu
brýnt það er að við hverfum
algerlega frá þeirri stefnu í upp-
byggingu mannlífs hér á landi að
aðgreina kynslóðirnar. Við verð-
um að byggja upp mannlíf þar
sem þekking og reynsla kyn-
slóðanna berst á milli á eðlilegan
hátt í hinu daglega lífi og amstri.
Ástríður Sigurðardóttir er fædd
22. júlí 1910 á Eyrarbakka. Þar
ólst hún upp á fjölmennu og
traustu íslensku menningarheim-
ili. Hún stundaði nám í Kvenna-
skólanum í Reykjavík og það var
og er ekki í kot vísað að nema í
þeim skóla.
Ástríður hefur verið húsmóðir
mestan hluta ævi sinnar og á tvö
uppkomin börn og fjögur barna-
börn. Hún metur húsmóðurstarfið
mikils og með réttu. Enda er hvert
verk sem hún vinnur á heimili
unnið af alúð og nánast listrænum
hug. Sannast sagna er það líka svo
að það eitt að „dekka“ einfalt og
fagurt kaffiborð og matarborð er
40.000 manns hafa nú
séð myndina í Reykjavík
Yfir 40.000 manns haía nú séð
óðal feðranna frá því að sýn-
ingar hófust á myndinni i
Reykjavik, en sýningar eru nú að
hefjast úti á landsbyggðinni. 1
Reykjavík er ennþá verið að sýna
mvndina í Laugarásbiói og hefur
verið uppselt á allar sýningar um
helgar, en þeim fer nú fækkandi.
Jakob bór Einarsson, sem fer með eitt aðalhlutverkanna í óðali
feðranna.
félk í
fréttum