Morgunblaðið - 22.07.1980, Page 46

Morgunblaðið - 22.07.1980, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ1980 Frá kvennarádstefnunni í Kaupmannahöfn Á myndinni scst Sarah Wcddington, aðalfulltrúi Bandaríkjanna á ráðstcfnunni, undirrita samkomulagið um afnám allrar mismununar í garð kvcnna, cn það var gert á vcRum Samcinuðu þjóðanna. England Litað fólk verji hendur I.undúnum. 21. júli AP. LEIÐTOGAR minnihlutahóps Pakistana í Lundúnum hvöttu brezka þegna af asískum uppruna og aðra brezka innflytjendur til þess að taka höndum saman og verjast árásum hvítra unglinga á litað fólk. Þeir segja, að árásir hvítra unglinga hafi mjög farið vaxandi. „Við hvetjum alla inn- flytjendur til þess að taka höndum saman og verjast árásum. Við verðum að sýna stjórnvöldum fram á, að við erum ekki reiðubúin að bíða öllu lengur, heldur munum við verja hendur okkar," sagði Leikarar New York 21. júlí. AP. FÉLAGAR í Stéttarfélagi leikara i Bandarikjunum fóru i verkfall á miðnætti i nótt. Vegna þess hefur vinna stöðvast við upptök- ur á þremur kvikmyndum i New York og stjörnur eins og Burt Reynolds, Liza Minelli og Cand- ice Bergen hafa orðið atvinnu- lausar. í Stéttarfélagi leikara eru um 47.000 meðlimir, þar af 16.000 í sínar Sigbhat Kadri, einn helsti leiðtogi pakistanska innflytjenda í Lund- únum. Hann hvatti til ráðstefnu innflytjenda um þetta vandamál. Pakistanir í Lundúnum halda nú ráðstefnu um vaxandi ofbeldis- hneigð á hendur lituðu fólki. A fimmtudag var 17 ára gamall unglingur af pakistönskum upp- runa myrtur af fjórum hvítum unglingum. Þeir koma fyrir rétt í dag. Á laugardag fóru pakistansk- ir innflytjendur í mótmælagöngu að lögreglustöð í austurhluta Lundúna og mótmæltu morði unglingsins. verkfalli New York. Ed Flynn talsmaður leikra í New York, sagði að allir meðlimir félagsins í New York tækju þátt í verkfallinu og Kim Fellner, annar talsmaður félags- ins, sagði að verkfallsverðir myndu fara á stjá í Hollywood er liði á daginn. Fellner segir ástæðuna fyrir verkfallinu vera þá að samninga- viðræður hafi gengið of hægt til þessa. Croiset Utrecht, Hollandi, 21. júli, AP. HINN heimsfrægi hollenski sjáandi Gerard Croiset lést s.l. sunnudag 71 árs að aldri. Croiset var gæddur þeim hæfi- leikum að sjá atburði sem gerst höfðu, þótt hann hefði hvergi komið nærri, og gat einnig séð fram í tímann. Croiset vann oft fyrir lögregl- ur við að upplýsa mannshvörf. Hann kom m.a. hingað til lands árið 1974 til að reyna að upplýsa hvarf Geirfinns Einarssonar. Croiset veiktist á heimili sínu að morgni s.l. sunnudags látinn og var fluttur á sjúkrahús. Hann lést skömmu eftir að þangað var komið. Yfirvöld segja dánarorsök Croiset ekki enn ljósa. Bálför hans fer fram n.k. fimmtudag í Utrecht. transka þingið: Herskár klerkur kosinn í forsæti í hungurverkfalli BelfaNt, 21. júlí. AP. EINN af leiðtogum írska lýðveld- ishersins Martin Meehan, IRA er nú i hungurverkfalli í Mazefang- elsinu suður af Belfast. Ilann hefur verið í hungurverkfalli í 64 daga og að sögn yfirvalda fer heilsu hans hrakandi. Hann herti á verkfalli sinu i siðustu viku með því að neita að neyta drykkj- ar. Martin Meehan er 35 ára gam- all. Hann hóf hungurverkfall sitt 18. maí og vill með því mótmæla 12 ára fangelsisdómi sínum. Hann var dæmdur fyrir mannrán. Hann heldur því fram, að vitni saksókn- ara hafi borið ljúgvitni. Nokkrir IRA-menn hafa látist í brezkum fangelsum í N-Irlandi vegna hungurverkfalla. Teheran, 21. júlí AP. ÍRANSKA þingið kaus i gær talsmann. Fyrir valinu varð einn af helstu klerkum landsins, Ali Ak- bar Rafsanjani. Hann er leiðtogi hins öfluga íslamska lýðveldis- flokks en margir þingmanna flokksins eru fylgjandi þvi að bandarisku gislarnir verði leidd- ir fyrir rétt, ásakaðir um njósnir. Nú þegar kosningu talsmanns þingsins er lokið, á þingið að fara að geta snúið sér að þvi, að kjósa forsætisráðherra og rikis- stjórn. Þá munu efnahagsmál taka drjúgan tíma hjá þinginu, ásamt gíslamálinu. I dag voru fimm yfirmenn í hernum teknir af lífi og heimildir segja, að fjórir hafi verið dæmdir til dauða fyrir byltingatilraunina, sem gerð var fyrir skömmu. Þessir menn eru meðal um 500 manna, sem eru ákærðir fyrir þátttöku í byltingarsamsærinu. Ayatollah Khomeini ávarpaði þjóð sína í gær. Hann var gagn- rýninn á stjórn landsins og sagði að mörg mistök hefðu verið gerð. Ein þau stærstu hefðu verið, að loka ekki landinu fyrir umheimin- um eftir byltinguna. Hann var harðorður í garð ýmissa ráðherra landsins og ásakaði þá um, að vera málstað byltingarinnar ótrúir. Litið er á ummæli Khomeinis sem boð um herskáa múhameðstrú- armenn í væntanlega stjórn landsins og beinar ákúrur til Bani-Sadr, forseta landsins en hann hefur verið fylgjandi mun „mildari" stefnu en hinn aldni trúarleiðtogi. Fimm manns hafa verið teknir fastir í París, ásakaðir um bana- tilræði við Shahpour Baktiar, fyrrum forsætisráðherra landsins. Baktiar hefur ásakað Khomeini um að hafa fyrirskipað morðárás- ina. Sovétríkin: Andófsmenn flytjast úr landi Moskvu <>k VínarborK 21. júlí. AP. SOVÉSKI andófsmaðurinn og rithöfundurinn Vasily Aksyonov, sem mikið hefur unnið að málum andófsmanna i Sovétrikjunum s.l. ár, fer frá Sovétrikjunum á morgun, þriðjudag, að sögn vina hans. Aksyonov, sem er 48 ára, mun fyrst dveljast í París. Hann segist ætla að dveljast í útlöndum um tíma, en bætir svo við að sá tími gæti orðið langur. Aksyonov mun dveljast í París á vegum Galli- mard útgáfufyrirtækisins sem hefur gefið út verk hans á frönsku. Síðar er búist við að hann taki boði um að fara til Bandaríkjanna. Með Aksyonov fer kona hans og þrír aðrir fjölskyldumeðlimir. Þrjár sovéskar konur komu til Austurríkis s.l. sunnudag eftir að hafa fengið skipun frá yfirvöld- um í Sovétríkjunum um að flytj- ast úr landi, að öðrum kosti myndu þær sæta fangelsisvist, að sögn þeirra sjálfra. Konurnar þrjár hafa undanfarið gefið út neðanjarðarrit og í síðustu útgáf- unni hvöttu þær sovéska karl- menn til að neita því að gegna herskyldu í Afganistan. Konurnar þrjár eru með vega- bréfsáritanir til ísrael en vita ekki enn hvert förinni er heitið. Þær eru allar með fjölskyldur sínar með sér. Blað kvennanna þriggja „María" hóf göngu sína s.l. sept- ember og réðst mjög gegn yfir- ráðum karlmanna i sovésku þjóð- félagi. 1800 myrtir Istanbúl. 21. júli. AP. MUSTAFA Gulcugil, innanríkis- ráðherra Tyrklands sagði í dag af sér embætti vegna heilsubrests. Ráðherrann var yfirmaður lög- reglu og hers landsins. Talið er. að orsakir afsagnar Gulcugil séu auk- ið ofbeldi í Tyrklandi. Fyrir skömmu myrtu öfgamenn, Nihat Erim, fyrrum forsætisráðherra landsins. Alls hafa um 1800 manns beðið bana i pólitískum ofbeldis- verkum síðustu átta mánuðina. I gær var aðstoðarskólastjóri Kennaraháskóla i Istanbúl skotinn til bana. Hann var á gangi á götu í einni af útborgum Istanbúl þegar tveir byssuglaðir öfgamenn hófu skothríð á hann. Þá bárust í gær fréttir af bardög- um milli tveggja ættflokka í Urfan- héraði, í suðausturhluta landsins. Alls féllu 14 manns í erjum ætt- flokkanna, þar af nokkrar konur og börn. Orsakir átakanna eru sagðar deilur um arf. Hermenn voru sendir til þorpsins þar sem átökin áttu sér stað. Yfir 300 hafa drukknað Nýju Delhi, 21. júlí. AP. AÐ MINNSTÁ kosti 335 manns hafa drukknað i flóðum sem fylgt hafa gífurlegum rigningum í Ind- landi undanfarinn mánuð, að þvi er segir i skýrslum sem birtar voru i gær. Hundruð þorpa og mikið af akur- yrkjulandi hefur farið undir vatn, að sögn indversku fréttastofunnar. Fleiri svæði eru í hættu vegna fljóta sem óttast er að flæði yfir bakka sína þá og þegar en nú þegar hafa stórár, t.d. Ganges, flætt yfir hluta norð-austur Indlands. Þar sem ástandið er verst, í norður hluta Indlands, hefur um ein milljón manna verið flutt til öruggari staða. Veður Akureyri 9 skýjað Amsterdam 17 rigning Aþena 35 heióskírt Bertfn 18 skýjað BrUssel 16 skýjað Chicago 38 heiðskírt Feneyjar 31 lóttskýjað Frankfurt 18 rigning Færeyjar 13 skýjað Genf 20 rigning Hetsinki 20 skýjað Jerúsalem 30 heiöskírt Jóhannesarborg 18 heiðskírt Kaupmannahöfn 19 skýjað Las Palmas 25 léttskýjaö Lissabon 27 heiðskírt London 20 heiðskírt Los Angeles 28 heiðskírt Madríd 37 heiðskírt Malaga 33 heiðskírt Mallorca 25 lóttskýjað Miami 29 rigning Moskva 20 rigning New York 38 skýjað Ósló 15 rigning Reykjavík 12 lóttskýjað Rio de Janeiro 32 skýjað Rómaborg 24 hefðskfrt Stokkhólmur 21 skýjað Tet Aviv 30 heiðskírt Tókýó 31 skýjað Vancouver 21 skýjað Vínarborg 27 skýjað

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.