Morgunblaðið - 31.07.1980, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ1980
3
Þeir eru alls óvanir að viða að sér æti, svo nú er bara
að vona það bezta.
Ljósm.: Emilía
Fálkaungarnir voru írelsinu fegnir. Hér sést. er Ævar sleppir öðrum unganum.
Fálkaungimi sleppt
TVEIMUR af fimm fálkaung-
um, sem reynt var að smygla úr
landi fyrir rúmlega mánuði
siðan. var gefið frelsi í gær.
Auk fálkaunganna reyndu
smyglararnir að ná fimm smyr-
ilsungum með sér úr landi.
Einum af þessum fimm fálka-
ungum varð að ióga, en hinir
fjórir fóru að Keldum, þar sem
reynt var að halda i þeim lifinu.
Blaðamaður og ljósmyndari
Morgunblaðsins fóru og fylgdust
með því er ungunum var sleppt.
Þegar þeir höfðu verið merktir,
var ekið í Herdísarvík, þar sem
Ævar Petersen hjá Náttúru-
fræðistofnun íslands sleppti
þeim. Hann sagði, að þeir væru
líklega átta til niu vikna gamlir,
og nú væri bara stóra spurningin
hvort þeir lifðu þessa þolraun af.
Þeir eru alls óvanir að viða að
sér æti, en aðalfæða fálka er
minni fuglar, s.s. rjúpa, sjófugl
og lóa. Fjölskyldan er alltaf vön
að fylgjast að, í það minnsta
þangað til ungarnir eru orðnir
fullfærir um að bjarga sér sjálf-
ir.
Svo nú er bara að bíða og
vona það bezta, sagði Ævar að
lokum.
OPNAÐI í MORGON
VÖRUMARKAÐ
meðcdlarMstu matvörw, búsahöíd, gjafavömr, leikföngjatnað o.m.fl.
SERITLBOÐ
VERSUJNARMIÐSTÖD 1 i MIÐVANGUR 41 n j i Fast við Hafi iarfjarðarveginn\ Til Hafnarfjarðar ^—J J^ Til Reykjavikur Reykjavikurvegur í tilefni opnunarinnar verða ýmsar vörur á afarhagstæðu verði m.a. KJOTVÖRUR, KAFFI,ÁVEXTIR ÁVAXTASAFI OG PAPPÍRSVÖRUR
Góð aðkeyrsla, næg bílastœði
VERSWMRMIÐSIÖÐ MEMNGI41