Morgunblaðið - 23.08.1980, Blaðsíða 40
U (il.YSINi.ASIMINN KR:
22480
JíUrjjuntiIfltnö
^SÍminn á afgreióslunni er
83033
2tt«r0unbl«t>ib
LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 1980
Rætt við Færey-
inga um Rockall
Viðræður við íra og Breta í næstu viku
„ÞAÐ var ákveðið að taka upp samvinnu við Færeyinga um
hafsbotnsmálin og við lögðum áherslu á að ekki yrði beðið
öllu lengur með aðgerðir varðandi Rockall. enda hefur
Alþingi nú í nærfellt tvö ár f jallað um málið og óskað eftir
sem bestri samvinnu við Færeyinga. Gnda er viðurkennt,
að Færeyingar eigi réttindi á þessu svæði á sama hátt og
íslendingar.“ sagði Eyjólfur Konráð Jónsson. alþingismað-
ur en hann situr nú Ilafréttarráðstefnuna í Genf. Asamt
Eyjólfi tóku þeir Hans G. Andersen, sendiherra. Þórarinn
Þórarinsson. Benedikt Gröndal og Lúðvík Jósepsson þátt í
viðræðum við Dani og Færeyinga í Genf í gær. „Ekki var þó
ákveðið nánar hvernig samstarfi þessu skyldi háttað en við
munum fylgja málinu áfram næstu daga,“ sagði Eyjólfur
Konráð.
Kópasker:
Sátta-
nefndin
neitaði
að birta
bókunina
SAMNINGANEFND Alþýðu-
samhands íslands samþykkti í
K'd'T einrúma að óska eftir þvi,
að birt yrði opinherleKa h<>kun
sáttasemjara um ummæli full-
trúa VSI á sáttafundi á mið-
vikudat; um fund þeirra <>k
ráðherra þá fyrr um daKÍnn.
SamninKanefnd vinnu-
veitendasamhandsins féllst
fyrir sitt leyti á það. að
hokunin yrði Kerð opinher. en
sáttanefndin ákvað að hókun-
in skyldi ekki hirt. Mhl. tókst
ekki i Ka'rkvoldi að ná tali af
GuðlauKÍ horvaldssyni. rikis-
sáttasemjara.
Bókun þessi var lögð fram á
fundi ráðherra og fulltrúa ASÍ
í fyrradag og Ragnar Arnalds,
fjármálaráðherra, segir í Þjóð-
viljanum í gær, að hann hafi
orðið mjög undrandi er hann
frétti innihald bókunarinnar og
segir, að í öllum fjórum atrið-
um, sem bókuð séu eftir vinnu-
veitendum, sé rangt með farið „
og það í meginatriðum."
„Þá er ráðgert að ræða við
íra og Breta í næstu viku um
þessi málefni hér í Genf. Enda
gerir 83. grein að uppkasti að
hafréttarsáttmála ráð fyrir að
ríki ræðist við þar sem hugsan-
legir árekstrar verði og reyni
að ná samkomulagi og sáttum,"
sagði Eyjólfur Konráð enn-
fremur.
„Það hefur verið lítið um
formlega fundi tvo síðustu
daga. Það var ákveðið að fresta
almennum umræðum sem áttu
að hefjast á fimmtudagsmorg-
uninn fram á mánudag, til þess
að veita aukið svigrúm til
óformlegra viðræðná og að
menn geti rætt saman bak við
tjöldin. Þrátt fyrir þessa töf
eru menn bjartsýnir á að veru-
legur árangur náist, áður en
fundum lýkur um næstu helgi“.
Elliot Richardson, formaður
bandarísku nefndarinnar lýsti
yfir á blaðamannafundi á
fimmtudag, að hann væri
bjartsýnn á að nú hyllti undir
samkomulag. Ertu sammála
ummælum hans? „Já, ég er
bjartsýnn á að Hafréttarsátt-
máli sé í burðarliðnum þrátt
fyrir töf síðustu daga. Andinn
hér er sá, að menn ætla sér að
ná miklum árangri. Hafréttar-
sáttmáli ætti að geta verið
fullgiltur snemma á næsta ári í
New York og Hafréttarráð-
stefnunni ætti að ljúka þá. Eg
er bjartsýnn á að þær áætlanir
standist," sagði Eyjólfur Kon-
ráð Jónsson, alþingismaður.
Pacific River á strandstaö fyrir utan Kópasker í gær.
Ljósm. Mbl. Páll A. Pálsson.
Saltskip
daglangt
í strandi
PANAMASKIPIÐ Pacific River
strandaði við innsiglinguna til
Kópaskers snemma í Kærmorgun
með 900 tonn af salti í lestum.
Skipstjórinn hafði ekki beðið eftir
lóðs og sÍKldi skipinu í strand.
Þrír heimabátar, um 20 tonn að
stærð, reyndu án árangurs að ná
skipinu á flot þá þegar, en það
tókst hins vegar á flóðinu í gær-
kvöldi þegar varðskipið Ægir var
mætt á staðinn með dráttartaug.
Náðist skipið á flot um kl. 8 í
gærkvöldi.
Seint í gærkvöldi voru kafarar
frá Ægi að kanna botnskemmdir á
saltskipinu, er> einhver leki var
kominn að skipinu á strandstað í
gær. Virtist sá leki ekki mikill
þegar skipið var komið á rúmsjó
aftur.
Mikill samdráttur í N-Atlantshafsfluginu:
Um 400 starfsmönn-
um Flugleiða sagt upp
STJÓRN Flugleiða hefur vegna
vaxandi erfiðleika í rekstri félags-
ins ákveðið að draga verulega úr
flugrekstri á flugleiðinni milii
Luxemborgar og Bandarikjanna
um ísland frá og með vetraráætlun
1. nóvember nk. Samfara þessum
samdrætti í starfseminni hefur
stjórn félagsins ákveðið að segja
400 starfsmönnum þess upp störf-
um. um 200 hér á landi frá 1.
desember nk. og um 200 starfs-
mönnum erlendis með vetrinum.
Starfsfóik Flugleiða verður eftir
þessa fækkun í kringum 800. inn-
anlands ok utan, en þegar flestir
störfuðu hjá félaKÍnu. voru starfs-
menn þess nimlega 1700.
Þrátt fyrir mikinn samdrátt verð-
ur starfseminni haldið áfram á
flugleiðinni yfir Norður-Atlantshaf-
ið. I vetur verða farnar tvær ferðir
milli íslands og New York og ein til
tvær ferðir milli íslands og Lux-
emborgar, en þegar ferðirnar voru
flestar yfir hafið voru þær 23.
Samkvæmt upplýsingum Sigurð-
ar Helgasonar, forstjóra félagsins, á
fundi með blaðamönnum í gær, þá
eru hverfandi líkur til þess, að af
stofnun nýs flugfélags um Atlants-
hafsflugið verði, en eins og kunnugt
er hafa staðið yfir samningaviðræð-
ur milli Flugleiða og flugfélaganna í
Luxemborg, Luxair, Luxavia og
Cargolux. Það mun vera neikvæð
afstaða Luxairmanna, sem kemur í
veg fyrir þessa félagsstofnun.
Þá kom fram hjá Sigurði, að
söluverð Boeing 727-100 þotna fé-
lagsins, sem væntanlega verða seld-
ar til Júgóslavíu, er í kringum 4
milljarðar íslenzkra króna. Örn O.
Johnson, stjórnarformaður félags-
ins, sagði á fundinum, að sala
vélanna myndi hjálpa félaginu veru-
lega í slæmri lausafjárstöðu á kom-
andi vetri. Sagði hann að þeir
vonuðust til þess að ná jákvæðri
stöðu félagsins innan tíðar með
þessum aðgerðum og sölu vélanna.
Flugleiðir:
Á annað hundrað flugfreyj-
um og flugmönnum sagt upp
50% fækkun starfsfólks innanlands á liðlega ári
MIÐAÐ við þær uppsagnir sem
nú standa fyrir dyrum hjá
Fluglciðum mun starfsliði
Flugleiða á íslandi fækka um
50% eða þar um bil á liðlega
einu ári þar sem starfsmenn á
íslandi voru um 1200 fyrir ári
síðan, en verða væntanlega
liðlega 600 fyrir árslok. Flest-
ar uppsagnir nú eru ráðgerðar
í röðum flugfreyja og flug-
manna eða alls á annað hundr-
að manns úr hópi flugliða
félagsins.
Ráðgert er að segja upp nú
um 80 flugfreyjum af 140 fast-
ráðnum flugfreyjum sem ekki
hafa fengið uppsagnarbréf fyrr
á árinu og er ráðgert að segja
upp a.m.k. 30 flugmönnum, en
endanleg tala í þeirra röðum
miðast við hvað mörgum verður
komið í starf erlendis á vegum
félagsins. Alls starfa nú um 115
flugmenn hjá Flugleiðum. Þá er
ráðgert að segja upp um 30
manns af 80 í Keflavík og
uppsagnir annarra starfsmanna
dreifast á ýmsar deildir fyrir-
tækisins.
Flugfreyjur Flugleiða hafa
sameiginlegan starfsaldurslista
og hefur verið sagt upp eftir
honum síðan sú skipan komst á
en hins vegar liggur ekki fyrir
sameiginlegur starfsaldurslisti
flugmanna vegna ágreinings
flugmannafélaganna þar um.
Flugleiðir hafa hins vegar lagt
fram tillögu um sameiginlegan
starfsaldurslista flugmanna.
Sveik 2.6
milljónir
út úr Lands-
bankanum
MANNI einum tókst í
gær að svíkja 2.6 millj-
ónir króna út úr veð-
dcild Landsbankans
Laugavegi 77 með því
að villa á sér heimildir.
Maðurinn hringdi í bank-
ann og sagðist eiga von á 2.6
milljóna húsnæðisstjórnar-
láni. Var lánið þá að verða
tilbúið. Skömmu síðar kom
maðurinn og tók út pen-
ingana.
Leið nú klukkustund og þá
birtist í bankanum maður,
sem ætlaði að taka út þetta
sama lán. Reyndist þar vera á
ferðinni rétti maðurinn.
Málið var umsvifalaust
kært til Rannsóknarlögreglu
ríkisins og er rannsókn þess á
frumstigi.