Morgunblaðið - 23.08.1980, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 23.08.1980, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 1980 MOBG-dK/. KAtFINU D 4í> Ást er GRANI GÖSLARI 12-11 ... að fœra henni það sem þú keyptir á flóamarkaðnum. TM R«g U.S. Pat Off.-aH rtghta rea«v«J • 1978 Los Angatea Timea Syndtcata MeA kveðju frá gestinum á 14. borði! Þessi hundur minn virðist skilja allt — nema þá einna helzt Einstein-kenninKuna! Fögnum komu stjarnanna BRIDGE Umsjón: Péll Bergsson Vestur gerði nokkuð vel í spili dálksins þegar hann fann eina litinn, sem ban- aði skemmtilega sögðum gamesamningi. En sagn- hafa virtist spilið orðið upplagt þegar höggið reið af. Vestur gaf, allir utan. COSPER Við fögnum komu sólarinnar á vorin. Hvi skildum við þá ekki fagna komu stjarnanna á haust- in? Þar er um þúsundir sólna að ræða. Fyrstu stjörnur síðsumarsins eru að koma í Ijós, þegar heiðskírt er loft um lágnættið. Fleiri og fleiri birtast þær á himinhvelfing- unni. Og við fögnum þeim sem gömlum vinum, því í langan tíma höfum við ekki átt þess kost, að njóta fegurðar þeirra, vegna bjartra sumarnátta. Koma þeirra gleður augu okkar og huga, því frá þeim berst einkennileg, heillandi áhrif, sem fylla sálir okkar gleði, ef við aðeins gefum okkur tíma til, að ganga út „undir blæ himins blíðan" og virða þær fyrir okkur, með lotningu og með opnum huga. Þeir, sem hrifist geta af litrík- um blómum sumarsins, ættu einn- ig að geta hrifist af stjörnum himins og blæbrigðaríkum litum þeirra. Öll fegurð og allur mikil- leiki er af sömu rótum runnið. Ein er uppspretta alls hins fagra og alls hins mikla, alls þess sem hafið getur huga mannsins upp yfir hversdagsleikann. Og allt sem lyft getur huganum leiðir til göfgi og góðleika og miðar til mannbóta og aukinnar farsældar fyrir land og lýð. Gleymum ekki stjörnunum, sem nú eru óðum að birtast okkur á ný, eftir bjart og fagurt sumar. Bæt- um þeim inn í hugarheim okkar. Vitum að frá þeim berast orku- og gleðigeislar inn í hugskot þeirra, sem notið geta og njóta vilja. Því stjörnurnar eru ekki bara dauðir eldhnettir. I sambandi við þær er um líf og kraft að ræða, meiri en enn er með fullu vitað eða skilið. Og þetta skyldi einmitt hafa í huga við skoðun stjarna. Því stjörnurnar eru heimkynni lifsins. Þar sem stjörnur eru, þar er líf, og líf er ekki án stjarna. Ingvar Agnarsson. 17. ágúst 1980. Norður S. Á83 H. KG7 T. 10865 L. G105 Ö424 CÖSPER — Þetta er konan mín. Vestur S. KG102 H. Á95 T. Á L. 97432 Austur S. 97654 H. 1086432 T. D3 L. - Myndin sýnir stjörnumor á himni i átt til miðju vetrarbrautar okkar. Þar er einnig að sjá geimský og stjörnuhrap. Suður S. D H. D T. KG9742 L. ÁKD86 Ve.stur Noróur Austur Suður 1 lauf P#88 1 ti. Pass. 1 «p. Pass i sp. 1 gr. Pass 5 tl. Allir pass. Opnun vesturs gat þýtt ýmislegt og þar á meðal sýnt lauf eins og í þessu tilfelli. Fyrsta svar austurs var afmelding en þegar makker sagði 1 spaða var austur fljótur að segja gameið með drottninguna sína eina háspiia. Þá þótti suðri rétt að skipta sér af málinu og 4 gröndin báðu um val á milli láglitanna. Sjálfsagt hefði 4 spað- ar unnist og var því ákvörðun suðurs bæði rétt og eðlileg. Gegn 5 tíglum spilaði vestur út spaða, sem sagnhafi tók í blindum, spilaði tíguláttunni og lét hana fara hringinn. Þar með varð vestur að finna vörnina sem dygði og það gerði hann snaggaralega — spilaði laufi, sem austur trompaði og næsta slag fékk vestur á hjartaás. Einn niður. Norðurlandamót grunnskóla í skák: Avarp forseta Skáksambands Norðurlanda fellt út án skýringa NORÐURLANDAMÓT grunnskóla í skák hefst hér á landi í dag, og eru þátttakendur komnir frá flestum Norðurlandanna. Það er Skáksamband Norðurlanda sem gengst fyrir mótinu, en það fól skáksamhandi íslands að sjá um framkvæmd móts- ins í Reykjavík. í tilefni mótsins hefur verið gefin út mótsskrá, þar sem er að finna margvíslegar upplýs- ingar, auk ávarpa forystu- manna í íslensku skák- lífi. Ætlunin hafði verið, að í skránni yrði einnig ávarp frá Einari S. Ein- arssyni forseta Skáksam- bands Norðurlanda, en síðar var ákveðið að fella það út. Einar S. Einarsson kveðst ekki hafa fengið neinar skýringar á því, en telur þetta mál standa í sambandi við átökin inn- an Skáksambandsins, sem meðal annars komu fram í atkvæðagreiðslu á síð- asta aðalfundi. Þar féll Einar fyrir dr. Ingimar Jónssyni með eins at- kvæðis mun. Einar hefur nú látið sérprenta ávarp sitt, og er það birt bæði á íslensku og dönsku, og verður dreift til keppenda og gesta á mótinu. Með ávarpi Einars fylgir svo- hljóðandi athugasemd: „Skáksamband Norður- landa fól Skáksambandi íslands að halda Grunnskólamót Norður- landa 1980, sem nú fer fram. Meirihluti stjórnar Skáksambands íslands hafnaði, að óséðu, birt- ingu meðfylgjandi kveðju, frá S.N. í mótsskránni. Því er hún send sér- prentuð. E.S.E.“ Morgunblaðinu tókst ekki að ná í dr. Ingimar Jónsson forseta Skáksam- bands íslands í gær vegna þessa máls, en hann mun nú vera staddur í Sovét- ríkjunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.