Morgunblaðið - 23.08.1980, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 1980
19
Þetta geröist
1979 — Sovézki ballettdansar-
inn Alexander Godunov biður
um hæli í Bandaríkjunum, rétt
áður en sýningarferð Bolshoi-
ballettflokksins lýkur þar í
landi.
1977 — Carter Bandaríkjafor-
seti segir að S-Afríkustjórn hafi
tjáð sér að hún eigi ekki kjarn-
orkuvopn og áformi ekki kjarn-
orkutilraunir.
1976 — Efrypsk flugvél með
rösklega hundrað manns er rænt
af arabiskum skæruliðum
skömmu eftir fluRtak frá Kairó,
en síðan tekst að handsama
ræningjana eftir að lent er á
flugvelli í S-Etí>’ptalandi.
1975 — Kommúnistar taka end-
anlega við stjórninni í Laos.
1%8 — Eins klukkutima verk-
fall skipulagt í Tékkóslóvakíu til
að mótmæla innrásinni tveimur
dögum áður Svohoda forseti fer
til Moskvu að reyna að tala máli
þjóðar sinnar.
1910 — Þjóðverjar byrja stöðug-
ar loftárásir á London.
1937 — Japanskar hersveitir
ganga á land við Shanghai Abd-
ul Aziz, Marokkóforseti bíður
ósigur við Marrakesh f.vrir
Hafid, nýjum soldán.
1839 — Hong Kong tekið undir
brezka stjórn í stríði við Kína.
1655 — Karl tíundi Svíakóngur
23. ágúst
sigrar John Casimir, af Póllandi.
1500 — Kristófer Kólumbus
borinn þeim sökum á Haiti að
hann misþyrmi innfæddum. Er
handtekinn og ákveðið að senda
hann aftur til Spánar.
Afmæli: Henry Tizard, brezkur
vísindamaður, Gene Kell.v,
bandarískur skemmtikraftur.
Andlát. 108 Fiavius Stilicho,
hermaður (ráðinn af dögum).
Innlent. 1623 Síðari tilskipun
um Glúckstað sem útsölustað
fyrir íslenzkar afurðir — 1901
Störf landfógeta fengin Lands-
bankanum — 1911 Sveinn
Björnsson forseti fer í heimsókn
til Bandaríkjanna — 1916 Gunn-
ar Huseby Evrópumeistari i
Kúluvarpi — 1954 Steinkista
Páls biskups frá 1218 finnst í
grunni Skálholtskirkju — 1955
Ritstjóri „Þjóðviljaqs" í fangelsi
fyrir meið.vrði — 1959 Stytta af
Jóni bp Aras.vni afhjúpuð á
Munkaþverá — 1%6 Mesta veiði
í sögu íslenzkra stldveiða — 1967
Mesti ósigur í sögu ísl. knatt-
sp.vrnu (ísland Danmörk 2:14) —
1885 f. Þórir Bergsson.
Orð dagsins: Hikið ekki við að
taka stórt stökk ef sýnilegt er að
þið komist ekki yfir hindrunina í
tveimur litlum skrefum. Llo.vd
George, brezkur stjórnmálamað-
ur.
Tekere laus
gegn tryggingu
Salisbury. 20. áifúst. AP.
EDGAR Tekere ráðherra í stjórn
Zimbabwe kom fyrir rétt í morg-
un, þar sem hann var áminntur
um að hlýta skilyrðum þeim er
sett voru fyrir því að hann yrði
látinn laus gegn tryggingu með-
an mál hans væri til umfjöllunar
hjá dómstólum. Tekcre, sem sagð-
ur er bera ábyrgð á morði hvíts
bónda, var i gær látinn laus úr
fangelsi gegn jafnvirði 45 milijón
króna tryggingu.
Honum var gert að afhenda
skilríki sín og bannað að fara út
fyrir 20 kílómetra radíus frá
miðborg Salisbury. Hann verður
að mæta fyrir rétti á ný 3.
september næstkomandi. Sjö af
lífvörðum Tekere, sem sagðir eru
eiga aðild að morðinu á hvíta
bóndanum, verða. látnir sitja
áfram inni meðan málið er til
athugunar hjá yfirvöldum.
EF ÞAÐ ER FRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
sviðsljosinu
á sviöinu á
sýningunni
HAU$T-OG
VETRARTIZKAN1980
aldrei glæsilegri en nú.
Komiö og kynniö ykkur nýjustu tízkuna
í sýningardeild okkar.
Afsláttur verður gefinn á staðnum.
TlZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS'
WKARNABÆR
K.M.
Opið
frá kl. 1—7
í dag
húsgögn kynna
Opnum í dag glæsilega húsgagnasýningu
í verzlun okkar að Langholtsvegi 111.
Gífurlegt úrval húsgagna á 800 fermetrum.
Sýningin
stendur yfir frá
23. ág. — 7. sept.
Við höfum m.a. byggt heila íbúð
á svæðinu sem gefur góða hugmynd um hvernig
raða má húsgögnunum.
húsgögn.
Símar 37010 — 37144