Morgunblaðið - 23.08.1980, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 23.08.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 1980 23 Frá Nordurlandamóti Krunnskólasveita í skák 1980 í Álftarmýraskólanum. Ljósm. Mhl.: RAX. Norðurlandamót grunnskólasveita í skák: Danska sveitin efst eftir tvær umferðir DANSKA sveitin er efst eftir tvær fyrstu umferðir Norð- urlandamóts grunnskóla- sveita í skák, sem fram fer í Alftamýrarskólanum í Reykjavík. Sveit Æfinga- skóla Kennaraháskólans er í öðru sæti, sveit Álftamýr- Handleggs- brotnaði Á FIMMTA tímanum í gær varð árekstur milli bíls og reiðhjóls á Miklatorgi. Hjól- reiðamaðurinn, 28 ára gamall karlmaður, handleggsbrotnaði og var fluttur á slysadeildina. FULLTRÚAR BSRB áttu í gær fund með forsætisráðherra og fjármálaráðherra „vegna frétta í fjölmiðlum um genKÍsfellingar, sem ekki hafi áhrif á verðha*tur á laun,“ eins og segir í frétt frá BSRB. I fréttinni segir, að fulltrúar BSRB hafi lagt áherzlu á, að umsamdar verðbætur á laun arskólans, sem vann síðasta mót og einnig mótið 1978, er í þriðja sæti og jöfn finnsku sveitinni að vinningum, norska sveitin kemur næst þeim og sú sænska rekur lestina. Fyrsta umferðin hófst klukkan 9 í gærmorgun að lokinni mótssetningu. Is- lenzku sveitirnar skildu jafn- ar, hlutu tvo vinninga hvor, finnska sveitin og sú norska skildu einnig jafnar og Danir unnu Svía á öllum borðum. Sveit Æfingaskólans vann norsku sveitina í annarri um- ferð með 2,5 vinningum gegn 1,5. Sveitir Álftamýrarskóla og sú danska, og sænska verði undir engum kringumstæð- um skertar og minnt á, að stefna bandalagsins í vísitölumálum væri óbreytt. „Af hálfu ráðherr- anna var ítrekuð sú yfirlýsing, sem ríkisstjórnin sendi frá sér í gær, um að gengisbreyting, sem ekki hefði áhrif á vísitölu, væri ekki til umræðu í ríkisstjórn- inni.“ sveitin og sú norska, skildu jafnar. Danska sveitin er með 6 vinninga, Æfingaskólinn með 4,5 vinninga, Álftamýrarsköl- inn og finnska sveitin eru með 4 vinninga hvor, norska sveitin er með 3,5 vinninga og sænska sveitin er með tvo vinninga. Ekki á vegum utanríkisráðu- neytisins VEGNA greinar Björns Matthíassonar í Morgunblað- inu á fimmtudag, hefur Berglind Ásgeirsdóttir blaðafulltrúi utanríkisráðu- neytisins, óskað eftir að taka fram, að þýðing og frágangur á stjórnarsáttmála ríkis- stjórnar Gunnars Thorodd- sens, sé ekki gerð á vegum utanríkisráðuneytisins. Berglind sagði, að utanrík- isráðuneytið sæi að vísu um dreifingu á pésanum, en hann væri að öðru leyti á ábyrgð forsætisráðuneytis- ins. BSRB-menn á fundi með ráðherrum 26 pundari þreyttur í tunglskini: Stærsti fiskur sem ég hef kom- ist í tæri við - segir Grétar Ólafsson Eftir þrig)úa klukkustunda átök landaöi Grétar Ólafsson yfirlæknir tuttugu og sex punda laxi í Soginu, fyrir Ásgaröslandi. Laxinn, sem var hængur og nýlega genginn í ána, tók fremur smáa flugu, rækju nr. 6 Laxinn tók á svokallaðri Breiðu um klukkan 19.45 og hélt veiðimaðurinn í fyrstu að um miðlungs stóran lax væri að ræða, en annað átti eftir að koma á daginn. Fiskurinn var einstaklega sterkur, fór hvað eftir annað út með svo til alla línuna og stökk hátt upp úr ánni. Alls stökk fiskurinn níu sinnum, en einnig barðist hann oft um í vatnsskorp- unni. Leikurinn barst um Breiðuna og síðan sýndi sá stóri á sér fararsr.ið og hélt niður ána. Veiði- maðurinn fylgdi honum yfir kletta og klungur, en alltaf hélt sá stóri sig úti í straumnum og tók miklar rokur ef hann nálgaðist land. Leikurinn barst nú niður ána og þegar tveir og hálfur tími voru liðnir frá því fiskurinn tók, var hann kominn nokkuð niður fyrir- veiðistað sem kallast Gíbraltar. Og enn barst leikurinn niður ána. Loks tókst að ná fiskinum inn í lygna vik sem er við veiðihúsið á þessu svæði, nokkur hundruð metrum neðan við staðinn sem fiskurinn tók. Var nú komið svarta myrkur en veiðimaðurinn þreytti fiskinn í tunglskininu. Það var svo loks um kiukkan 22.45 að það tókst að landa stórfiskinum, en þá var mjög af laxinum dregið, sennilega veiðimanni líka. Fiskurinn reynd- ist vera tuttugu og sex punda hængur, eins og áður sagði. „Þetta er sá stærsti fiskur sem ég hef nokkurntíma komist í tæri við,“ sagði veiðimaðurinn, Grétar Ólafsson, í spjalli við Morgunblað- ið. „Þetta var stórkostlega skemmtilegt, en í fyrstu grunaði mig ekki að hann væri svona stór. Þó runnu á mig tvær grímur þegar hann fór að stökkva, en þá varð mér fyrst Ijóst hvílík skepna þetta var. Þetta voru geysimikil átök og þegar við lönduðum fiskinum kom í ljós að flugan sem sat í kjaftvik- Grétar Ólafsson með þann Stóra. Ljosm. Mbt. Kristján. inu, var að losna. Annar krókurinn hafði rifnað út og var laus en hinn hékk á einni sin. Þetta mátti því ekki tæpara standa. Varst þú ekki þreyttur? „Ég var orðinn nokkuð þreyttur í vinstri hendinni, en ég held að ég hefði haldið þetta út einhvern tíma enn. Maður lætur ekki svona fisk frá sér fara fyrr en í fulla hnefana,“ sagði Grétar Ólafsson. - oj PRISMA _ Loksins hefur okkur tekist að finna fullkomið, nýtískulegt og vandaó litsjónvarpstæki á lægra verði en aórir geta boðið. STÆRÐ VERO STAÐQR.VERÐ STRAUMTAKA 20 t. 670.000- 636.500,- 85 wött 22 t. 730.000,- 693.500,- 85 wött 26 t. 850.000,- 807.500,- 95 wött model 1980

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.