Morgunblaðið - 07.09.1980, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1980
Dagana 21. til 31. átfúst
var haldið námskeið fyrir
organista. kórstjóra ok
kórfólk úr kirkjum lands-
ins í Skálholti. Er þetta í
sjötta sinn sem núverandi
söngmálastjóri þjóðkirkj-
unnar. Ifaukur Guðlaugs-
son, Kenjíst fyrir slíku
námskeiði. Auk Ilauks
leiðbeindu þau Guðrún
Tómasdóttir, sem sá um
raddþjálfun, Glúmur
Gylfason, sem sá um kór-
stjórn ásamt Hauki. A
or^el leiðbeindu þau Fríða
Lárusdóttir, Revnir Jón-
asson og Ulrik Olason, en
sr. Gunnar Björnsson sá
um kennslu í samleik á
orgel ok selló, sem er nýr
þáttur í þessum námskeið-
um.
Fjölsótt organista-
námskeið í Skálholti
í stuttu samtali við Mbl. sagði
Haukur meðal annars:
„Á fyrsta námskeiðinu sem ég
hélt fyrir fimm árum voru þátt-
takendur um 30, en síðan hefur
þátttaka aukist ár frá ári og nú
voru um 60 organistar sem sóttu
námskeiðið. Þar að auki komu á
námskeiðiö um 220 kórfélagar víðs
vegar að af landinu og er þetta
lang fjölmennasta námskeiðið
sem ég hef staðið fyrir fram að
þessu.
Við höfum alltaf verið í Skál-
holti með þessi námskeið, að
undanskildu einu, sem haldið var í
Reykjavík. Þá leiðbeindi ég einnig
á námskeiði sem haldið var á
Hólum í Hjaltadal, að frumkvæði
prestafélags Hólastiftis. Ástæðan
fyrir því að námskeiðin eru haldin
í Skálholti er fyrst og fremst sú,
að áhugi kirkjunnar manna er að
hyggja staðinn upp og að.koma á
fót starfsemi þar, á vegum kirkj-
unnar. Aðstaða til námskeiða-
halds sem þessa er einnig mjög
góð þar sem er húsnæði Skál-
holtsskóla. Þá var fyrsti söngskóli
á íslandi stofnaður í Skálholti í tíð
Isleifs biskups, árið 1056, ef ég
man rétt.
Það verður þó að segjast eins og
er að þessi fjöldi, um 280 manns,
hafi sprengt gistirými Skálholts-
staðar utan af sér, því hluti
þátttakenda varð að gista í sumar-
búðum þjóðkirkjunnar á staðnum
og í Aratungu.
Á fyrsta hluta námskeiðsins
voru eingöngu þeir organistar sem
ekki höfðu komið á þau fyrr.
Annar hluti þess hófst þann 24.
ágúst, þegar þeir organistar komu
sem höfðu sótt þessi námskeið
áður og þriðji hluti þess hófst með
komu kórfólksins þann 28. ágúst.
Forspilið fyrir
messuna tók heila
klukkustund
í lok námskeiðsins hélt Kirkju-
kór Akraness tónleika fyrir þátt-
takendur í Aratungu. Voru þar
meðal annars sungin tvö veraldleg
lög, þar sem kórfólkið söng með
„Sofðu unga ástin mín“ eftir
Björgvin Guðmundsson og örstutt
spor eftir Jón Nordal. Á eftir voru
síðan flutt lög eftir organista af
námskeiðinu, þá Friðrik Jónsson
frá Húsavík, sem er organisti í sex
kirkjum í nágrenni Húsavíkur og
Siguróla Geirsson frá Keflavík.
Námskeiðinu lauk síðan á
sunnudag og hófst dagskráin með
morgunbæn sem sr. Guðmundur
Óli Ólafsson annaðist. Síðan
sungu þátttakendur úr þeim verk-
um sem þeir hafa verið að æfa og
þætti úr Mattheusarpassíunni eft-
ir Johannes Sebastian Bach, sem
ætlunin er að kirkjukórar og
organistar sameinist um að flytja
á næsta ári í tilefni 1000 ára
afmælis kristniboðs hér á landi.
Ég vænti þess að unnið verði að
undirbúningi þess hjá kórunum í
vetur þannig að af þessu geti
orðið.
Frá því um klukkan eitt og fram
að messu, sem hófst klukkan tvö,
sáu organistar og kórfólk um leik
og söng í Skálholtskirkju og má
segja að forspilið fyrir messuna
hafi því tekið um eina klukku-
stund en alls léku þarna og
stjórnuðu um 17 organistar.
í messunni skiptust organist-
arnir af námskeiðinu á að spila og
að stjórna kórnum og komu nær
allir við sögu í messunni. Biskup
íslands herra Sigurbjörn Einars-
son predikaði og þjónaði fyrir
altari ásamt sr. Gunnari Björns-
syni. Þá var í messunni skírt barn
eins organleikarans. Að lokinni
predikun biskups var altaris-
ganga, einhver sú fjölmennasta
sem menn vita um hér á landi, því
nær allir kirkjugestir, yfir 300
manns, fóru. Námskeiðinu var
síðan slitið klukkan fimm og þá
söng kórfólkið af námskeiðinu
þjóðsönginn sameiginlega.
Er bjartsýnn
á árangurinn
Ég er vongóður um að þessi
námskeið verði til þess að hægt
verði að bæta kórsöng hér á landi
og einnig að frumvarp það til laga,
sem lagt var fyrir síðasta Alþingi
verði samþykkt, en það fjallar um
hvernig störfum söngmálastjóra
þjóðkirkjunnar skuli háttað og um
lögfestingu Tónskóla þjóðkirkj-
unnar, skipulags hans og starfs-
hætti.
Þá má líka geta þess að við
fengum oft góðar heimsóknir á
námskeiðið. Sr. Heimir Steinsson
kynnti Skálholtsstað fyrir gestum,
kynnt var hin nýstofnaða Isleifs-
regla og gregorískur kirkjusöngur