Morgunblaðið - 14.09.1980, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1980
5
Sjónvarp mánudag kl. 21.35
Skollaleikur
eftir Böðvar Guðmundsson
Á dagskrá sjónvarps kl. 21.35
á mánudagskvöld er endur-
flutningur á sýningu Alþýðu-
leikhússins á Skollaieik eftir
Böðvar Guðmundsson. Sjón-
varpsupptaka fór fram 1978 og
var leikritið frumsýnt i sjón-
varpinu 1. okt. sama ár. Leik-
stjóri er Þórhildur Þorleifsdótt-
ir. Leikendur Arnar Jónsson,
Evert Ingólfsson, Jón Júlíus-
son, Kristin Á. Óiafsdóttir og
Þráinn Karlsson. Tónlist Jón
Hlöðver Áskelsson. Leikmynd.
búningar og grimur Messiana
Tómasdóttir. Stjórn upptöku
Rúnar Gunnarsson.
Þórhildur Þorleifsdóttir sagði:
— Það er mjög víða komið við í
þessu leikriti; samsuða við erlent
auðmagn, íslenskir embættis-
menn sem ganga erinda útlend-
inga á íslandi og sjálfstæðismál
eru meðal þess sem tekið er til
umræðu, og við sjáum góða og
grandvara menn sem loka aug-
unum en láta ekki til sín taka.
— Sögusvið Skollaleiks er ís-
land og Hamborg, sagði Arnar
Jónsson — og lýst er atburðum
er eiga stoð í tímaskeiði galdra-
ofsókna, 17. öldinni. Segir frá
ungum Þjóðverja sem kemur
hingað til lands ásamt unnustu
sinni og verða þau fyrir barðinu
á galdraofsóknamanninum Þor-
leifi Kortssyni og hans nótum.
Það er með öllu ókleift að rekja
atburðarásina nema í löngu
máli, en það sem þarna svífur
yfir vötnum er saga af fólki sem
ofsótt er fyrir skoðanir sínar.
Úr leikritinu Skollaleik eftir Böðvar Guðmundsson. sem sjónvarpið
endursýnir kl. 21.35 á mánudagskvöld: Kristin, Evert og Arnar i
hlutverkum sinum.
lilulillií
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTAR-
STÖÐINNI
\l (.l,VSIN(,ASIMIV\ KR:
22410
JlUröttnblntiib
Hljóðvarp kl. 10.25:
Viljum við f jöl-
breytt lífríki?
- Árni Reynisson talar um sambúð manna og villtra dýra
Á dagskrá hljóðvarps kl. 10.25
er erindi. Árni Reynisson. fram-
kvæmdastjóri Náttúruverndar-
ráðs, flytur lokaerindi í erinda-
flokknum Villt dýr og heimkynni
þeirra og talar um sambúð
manna og villtra dýra.
— Ég mun fjalla um það hvern-
ig villtar dýrategundir snerta líf
okkar á einn eða annan hátt, sagði
Árni — og hvernig afstaða okkar
sveiflast öfganna á milli. Ég reyni
að gera grein fyrir því hvernig
þetta byggist á efnahagslegum eða
fagurfræðilegum atriðum. Fleira
tíni ég til sem hefur áhrif á
afstöðu okkar í þessum efnum. Til
gamans ætla ég að endursegja
söguna um Rauðhettu frá sjón-
armiði úlfsins.
Þessi erindaflokkur er liður í
kynningu sem fram hefur farið í
öllum löndum V-Evrópu, þar sem
hvatt er til meiri umhugsunar um
villt dýr og heimkynni þeirra.
Við getum sagt að niðurstaðan
sé þessi: Ef við viljum hafa
Árni Reynisson.
fjölbreytt lífríki í kringum okkur,
ber okkur fyrst og fremst að
vernda þau svæði, sem dýrin
byggja afkomu sína á.
Engin sýni-
leg ástæða
en drykkjusýkin heimtar sitt
Á dagskrá sjónvarps i kvöld kl.
21.50 er leikin handarisk heimild-
armynd um áfengissýki og með-
ferð á endurhæfingarstöðvum.
Ég ætla að hætta á morgun.
Myndin sýnir m.a. hvernig fjöl-
skylda áfengissjúklings og
vinnuveitandi geta sameiginlega
stutt hann i baráttu hans við
sjúkdóminn. Þýðandi texta er
Dóra Ilafsteinsdóttir.
— í þessari mynd er það heim-
ilisfaðirinn sem er drykkjusjúkl-
ingur, sagði Dóra — og hefur enga
sýnilega ástæðu til þess að
drekkja sorgum sínum. Eiginkona
hans fær sér í fyrstu glas með
honum, meðan hann er enn á
samkvæmisdrykkjustiginu, en svo
gengur það ekki lengur.
Þetta er tvímælalaust athyglis-
verð mynd og í henni er þulur sem
útskýrir jafnóðum það sem máli
skiptir fyrir áhorfendum.
23/10 - 27/10
Skemmti- og verslunarferð
pantið strax, því þessar ferðir seljast upp á örskömmum tíma.
Verð kr. 245.000.-
Burlington Hotel — Mjög vel staðsett 1. flokks hótel
25/9
5 og 7 daga ferðir
eða helgarferð
Góð hótel, íslensk fararstjórn
og verslunarafsláttur - pantið strax
^:f Vinsælar ferðir
% Verð frá kr. 219.000.-
rm„
' 4 - HX
**ssw
mm
mvinnuferóir-Landsýn
USTURSTRÆTI 12 - SIMAR 27077 & 2