Morgunblaðið - 14.09.1980, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR14. SEPTEMBER 1980
Ur
myndasafni
Ólafs K.
Magnússonar
EKKI er óalgengt að blaöaljósmyndarar taki 10 til 15 myndir af hverjum atburöi,
en aöeins birtist brot af öllum þeim fjölda í blööunum. Oft eru þaö ekki bestu
myndirnar sem birtast, hinar geta verið mun betri og sagt meiri sögu er fram líða
stundir. Þetta stafar meöal annars af hraðanum á fréttastofunum og mismunandi
fréttamati á ýmsum tímum.
Ólafur K. Magnússon hefur veriö Ijósmyndari á Morgunblaðinu samfleytt frá
1947 og á í fórum sínum mikiö safn skemmtilegra mynda frá nflega þrjátíu ára
starfsferli sínum á blaðinu.
Ólafur K. Magnússon er lærður blaöaljósmyndari og nam Ijósmyndun og
kvikmyndun í Bandaríkjunum á árunum 1944 til 1946. Hann var fyrst í staö í New
York á kvikmyndaskóla og að loknu prófi þar fór hann til Hollywood, þar sem
hann starfaði hjá Paramount-kvikmyndafélaginu í rúmt ár. Eftir heimkomuna
réöst hann að Morgunblaöinu, enda var kvikmyndun þá aöeins fjarlægur og
óraunhæfur draumur á íslandi.
Morgunblaðið hefur nú þátt á sunnudögum sem nefnist „Úr myndasafni Ólafs
K. Magnússonar".
NAUÐSYN BRÝTUR LÖG!
SKÖMMU eftir síöari heimsstyrjöldina keyptu Loft-
leiðir tvo Grumman-flugbáta. Forráðamenn félagsins,
sem náðu í bátana til Bandaríkjanna, höfðu verið
veðurtepptir nokkuö lengi og gekk brösulega að
koma bátunum yfir hafið og heim, vegna veöurs. Þeir
voru orönir peningaþurfi og því reið á, að koma
flugbátunum sem fyrst í gagnið á innanlandsflugleíð-
um. Eftir komuna til landsins var unniö nótt og dag til
að gera þá klára í flugið.
Ólafur K. Magnússon var
atvinnulaus og nýkominn frá
námi í Bandaríkjunum um þetta
leyti. Þaö eina sem hann átti var
ný blaöaljósmyndaravél sem
hann haföi keypt vestra og haft
meö sér heim. Hann haföi tekið
nokkrar myndir fyrir Loftleiöir,
einkum vegna þess aö hann
haföi komist í kynni viö forráöa-
menn félagsins gegnum Svif-
flugfélag íslands, en Ólafur hef-
ur alla tíö verið mikill flugáhuga-
maöur. —
Eina nóttina var bankaö á
svefnherbergisgluggann hjá
Ólafi. Fyrir utan stóöu Alfreö
Elíasson og Kristinn Ólsen. Þeir
höföu veriö aö leggja síöustu
hönd á Grumman-flugbátana
og áætlunarflug átti aö hefjast
stundvíslega klukkan tíu morg-
uninn eftir. Þeim haföi hins
vegar láöst aö láta taka myndir
á loftferöaskírteini vélanna, en á
þeim veröur að vera nokkurs
konar „passamynd" af viökom-
andi vél, þar sem einkennisstaf-
ir vélarinnar eiga aö sjást
greinilega.
Úr vöndu var aö ráða. Ráöu-
neytiö opnaöi klukkan níu en
vélarnar áttu aö leggja af staö
klukkan tíu, svo sem áöur var
sagt. Erfiöleikarnir fólust í því,
aö myndavél Ólafs var plötuvél
og hann átti aðeins þrjár plötur.
Þeir Alfreö og Kristinn sögöust
vera á bílum og töldu sig geta
lýst vélina upp meö bílljósunum,
þar sem Ólafur átti ekkert
leifturljós og niöamyrkur var úti.
Þaö varö úr, aö þetta skyldi
reynt og þeir þremenningarnir
fóru í loftköstum út á flugvöll.
Þá kom í Ijós aö myndataka
var ekki framkvæmanleg vegna
myrkurs og bíöa varö dagsbirt-
unnar. í býtiö þennan morgun
voru teknar tvær myndir af
TF-RVJ, en þegar mynda átti
hina vélina kom í Ijós aö ekki
var búiö aö mála á hana
einkennisstafina. Átti Ólafur aö
freista þess aö skrifa í filmuna
einkennisstafina TF-RVI?
Tækjakostnaöur kom í veg fyrir
aö þaö væri hægt.
Aðeins var einn útleikur
mögulegur í stööunni. Hann var
sá, aö fá seglbút úr einu
flugskýlinu og líma yfir krókinn
á joöinu. En límið hélt ekki og
seglpjatlan datt af. Aöeins ein
myndplata var eftir. Kristinn
hljop því inn í skýlið á ný og
náöi í koppafeiti. Hann smuröi á
aöra hliö pjötlunnar og límdi
hana aftur á vélina. Þá tók
Ólafur myndina og flugbátarnir
flugu á áætlun klukkan tíu. Til
vonar og vara var bakborös-
hliöin mynduö á TF-RVJ, en
stjórnboröshliðin á TF-RVI, til
aö tryggja aö þá í ráöuneytinu
grunaöi nú ekki, aö í raun og
veru var um sömu vélina aö
ræöa á báöum myndunum!
Myndirnar sýna TF-RVJ og
TF-RVI, meö pjötlunni frægu.
—HL
... .•I.I..É ■'miiIM —
besta tækifæri til aö fá góöa skó á
hlægilega lágu verði.
Verðið miðast við, að allt eigi að seljast.
Opnum kl. 13 á mánudag.
á skóm
Húsnæöið er dýrt, því er
veriö aö rýma hillurnar
fyrir nýjum vörum.
Allt að
afsláttur
Allt vandaöar og góöar Domus Medi^"
vorur a gjafverði. Egilsgötu 3.