Morgunblaðið - 14.09.1980, Síða 19

Morgunblaðið - 14.09.1980, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1980 19 Las Dhure flóttamannabúðirnar í Norðvestur-Sómalíu. Kofar sem þessi eru einu skýli 37 þúsund manns. N i stríðsins um Araba, 100.000 hermenn Eþíópíu og sovézka leiðbeinend- ur þeirra. í suðvestri hefur Alþýðufrelsisfylking Tigre- héraðs (TPLF) í suðvestri lýst yfir síauknum sigrum. Fylking- in segist hafa drepið nokkur hundruð Eþíópíuhermenn á síð- ustu vikum og einnig segjist hún hafa komizt yfir mikinn fjölda fullkominna sovézkra stórskotavopna og jafnvel skriðdreka. sem eru eindregið á móti að- gerðum Sómalíu í Ogaden." Sómalíusamningurinn setur því utanríkisráðuneytið í mik- inn vanda. Ef samningnum verður rift kemur til meiri háttar samdráttar í liðsafla Bandaríkjanna á Indlandshafi. Síðan þær fréttir bárust nýlega, að Eþíópíumenn hefðu ráðizt yfir landamærin og að Sómalíu- her hefði tekið sér stöðu í Ogaden, getur bein íhlutun Bandaríkjamanna í Sómalíu valdið þeirri hættu að til raun- verulegra styrjaldarátaka komi milli staðgengla austurs og vesturs. Ogaden er þó aðeins eitt af þremur átakasvæðum á austur- homi Afríku, sem hefur mikla hernaðarlega þýðingu fyrir austur og vestur, vegna stöðu þess við suðurinnsiglinguna inn í Rauðahafið og á jaðri Ind- landshafs. Eþíópía, þar sem Sovétríkin ráða lögum og lofum horfir fram á hryðjuverkahern- að á tveimur öðrum vígstöðvum — á báðum, þótt háðulegt sé — gegn skæruliðum marxista. í norðri, í Eritreu, binda 40.000 menn Alþýðufrelsisfylkinga Eritreu (EPLF), studdir af ríkj- Fleiri flóttamenn — meira hungur Leyniþjónustufréttir herma, að Rússum standi á sama um þessar dreifiárásir skæruliða, því þær afsaki ekki aðeins að þeir skuli halda Eþíópíu vel vopnum búna, heldur varðveiti þær einnig hagsmuni Rússa á þessum slóðum og útþenslu- áform þeirra í Afríku. En heildarniðurstaðan er fleiri flóttamenn og meira hungur. Nærri 500.000 manns, sem flúið hafa frá Eritreu, svelta í Sudan, þannig að þar eru um tvær milljónir hungr- aðra. Sífellt eiga sér stað einstakir hörmungaatburðir á meðan á þessu stendur. I Saba’ad búðun- um er 13 ára berklaveikri stúlku hjálpað af Oxfam-lækni og sóm- alískum hjálparmanni. Hún hefur varla nógu mikið hold utan á sér til að hægt sé að sprauta meðulum í hana. Eins og svo margir á undan henni á hörmungasvæðunum á austur- horni Afríku — og e.t.v. enn fleiri í framtíðinni — mun hún deyja. (Now!) Viö höfum gert sérlega hagstæöan samning við Talbot verksmiöj- urnar í Frakklandi um ótrúlega gott verð á þessum þrautreyndu bílum. Árgerð 1980 fæst nú fyrir verö sem gilti 1979, sumir selja litla, þrönga bíla á þokkalegu veröi, — við bjóöum stærri bíla og mun rúmbetri á lægra verði. Nú sýnum viö þessa 2 frábæru Frakka JALBOT Horizon og TALBOT 1100 |i| Wi o r *•. 1 mi Talbot Horizon er stærri og íburðarmeiri bíll en Talbot 1100. Horizon sést nú víða á götum Evrópu og vekur mikla athygli enda var hann valinn bíll ársins 1978—1979 af 53 af fremstu bílagagnrýnend- um 16 landa. Það útaf fyrir sig er stórmál og óhætt að fullyrða að árgerð 1980, er sannar- lega ekki verri en þá. Horizon er auðvitað framhjóladrifinn og fimm dyra bíll, sem kostar aðeins frá kr. 7.500.000.- Sýnum einnig gæöa vagninn OMNI frá Chrysier. Ameríka í alls- herjar orkustríöi Talbot 1100 er 5 dyra bíll með framhjóladrifi, kraft- mikill en sparneytinni vél og virkilega skemmtilegum aksturseiginleikum. Tal- bot 1100 er bíll sem framleiddur hefur verið í áraraðir og því hlotið mikla reynslu og gert margan ökumanninn ánægðan. Verö frá aöeins kr. 5.500.000.- Sýningin er opin, sunnudag kl. 1—6 Komið og kynnist betri bíl á Bílasölu Guðfinns, Armúla 7.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.