Morgunblaðið - 14.09.1980, Page 30

Morgunblaðið - 14.09.1980, Page 30
Ilvernig geta atvinnurek- endur komið til móts við fjólskylduna og mismun- andi aðstöðu starfsmanna í einkalífinu? Jöfn foreldra- ábyrgð á uppeldi og umönn- un harnanna er eitt grund- vallaratriðið fyrir því, að staða kynjanna verði jöfn í reynd á vinnumarkaðnum hér á landi sem annars staðar og jafnframt er það réttur harnanna. að þau fái notið sem mestra og beztra samskipta við báða foreldra sína — hvernig verða hags- munir fjölskyldunnar — frumeiningar þjóðfélagsins — bezt verndaðir? Vanda- mál nútíma þjóðfélags eru margslungin og mörg al- varleg fyrir persónuleika- þróun harna — atvinnurek- cndur verða meðal annarra að leita leiða til að hlúa sem best að fjölskyldunni í sam- félaginu. Meðal leiða, sem skrifstofu- og afgreiðslufólk, en síðan hefur hún verið notuð í verksmiðjurekstri jafnframt með viðeigandi lagfæringum, þar sem vakta- vinna er stunduð. Styttra er síðan Banda- ríkjamenn hófu tilraunir í einhverjum mæli með sveigj- anlegan vinnutíma (stundum kallaður hreyfanlegur vinnu- tími hér á landi). Ástæðuna má öðru fremur rekja til áhuga þeirra á fjögurra daga vinnuvikunni, sem mörg bandarísk fyrirtæki hafa tekið upp. Fjögurra daga vinnuvikan gerir ekki ráð fyrir vinnutímastyttingu, eins og þegar vinnuvikan var stytt úr sex dögum í fimm. í ofangreindri þingsályktun- artillögu sjálfstæðismanna er þess getið til gamans, að sá, sem fyrstur setti fram ítarlegar hugmyndir um fjögurra daga vinnuviku og Sveigjanlegur vinnutími svarað geta þörfum fjöl- skyidunnar — m.a. fjöl- skyldna einstæðra foreldra og foreldra barna með sér- þarfir — er sveigjanlegur vinnutími. Menn verða að taka mið af fjölskyldunni. breyttum fjölskylduháttum og skilyrðislausum rétti kvenna til þátttöku á hinum almenna vinnumarkaði. Óafgreidd þings- ályktunartillaga um sveigjanleika vinnutíma 9. Veturinn 1978-1979 fluttu þingmennirnir Friðrik Sophusson og Ragnhildur Helgadóttir ályktunartillögu á Alþingi um sveigjanlegan vinnu- tíma hjá ríkisfyrirtækjum og ríkisstofnunum. Þá náði tillagan ekki fram að ganga. I janúar sl. var hún endurflutt af Friðrik Sophussyni og Salóme Þorkelsdóttur og hlaut hún ekki afgreiðslu á því þingi. Ályktun þingmann- anna hljóðar þannig: Al- þingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að 1) láta kanna, að hve miklu leyti sé hægt að koma við sveigjanlegum vinnutíma starfsmanna ríkisfyrir- tækja og ríkisstofnana, 2) koma slíkri vinnutilhögun á, þar sem slíkt þykir henta. í greinargerð með til- lögunni segir: í stefnuyf- irlýsingu Sjálfstæðis- flokksins um efnahags- mál, sem kynnt var fyrir skömmu, er í kaflanum um kjaramál komizt svo að orði m.a.: „Kaupmáttur á vinnustund verði aukinn með sveigjanlegum vinnutíma, starfshvatn- ingu og hagræðingu." Með stefnuyfirlýsingunni um sveigjanlegan vinnutíma leggur Sjálfstæðisflokk- urinn áherzlu á mikilvægi þess, að vinnutilhögun taki sem mest tillit til mismunandi einkaað- stæðna starfsfólks. Þess- ari þingsályktunartillögu er ætlað það hlutverk að leggja til við stjórnvöld að þau færi sér í nyt kosti sveigjanlegs vinnutíma, þar sem það þykir henta, þegar tekið er tillit til þjónustuhlutverks stofn- ana og fyrirtækja annars vegar og haft hefur verið samráð við starfsmenn og stjórnendur þeirra hins vegar. Svo snar þáttur sem vinnan er í lífi fólks, hlýtur það að vera eðlilegt keppikefli að gera hana sem léttbærasta. Sífellt er unnið að endurbótum á þessu sviði, og á síðustu áratugum hafa rutt sér til rúms fjölmargar nýjung- ar, sem lúta að bættum búnaði starfsfólks. Sveigj- anlegur vinnutími er mik- ilvægt tæki til að koma til móts við óskir fólks, sem er þrúgað af harðstjórn fasts vinnutíma, sem tek- ur ekkert tillit til mis- munandi aðstöðu ein- staklinganna í einkalíf- inu. Ilvað er sveigjan- legur vinnutími? Á vinnustöðum þar sem sveigjanlegur vinnutími er notaður má skipta vinnutím- anum í sveigjanlegan tíma og kjarna (þ.e. fastan vinnu- tíma, skyldutíma). Við getum hugsað okkur, að skylduvið- verutími (kjarni) sé milli kl. 10—15, en starfsfólkið ráði sjálft, hvenær það kemur til vinnu milli kl. 8—10 og fer frá vinnu milli kl. 16—18. Tíminn frá 8—10 og kl. 16—18 kallast sveigjanlegur vinnutími. Jafnframt er hugsanlegt, að um sveigjan- legan matartíma sé að ræða, t.d. eina klukkustund milli kl. 11.30 og 13.30 (t.d. 11.30- 12.30, 12-13 eða 12.30— 13.30). Vinnutíma- uppgjör fer fram einu sinni á dag (8 stundir), einu sinni í viku (40 stundir) eða einu sinni í mánuði (173,33 stund- ir). Mjög mismunandi reglur gilda um þetta efni eftir fyrirtækjum og að sjálfsögðu þarf að laga kerfið að að- stæðum á hverjum vinnu- stað. Þannig getur verið ástæða til þess, að vinnufé- lagar semji um vinnutíma sín á milli, einkum ef lág- marksfjöldi starfsmanna þarf að vera viðstaddur á sveigjanlega tímanum. Frumkvæði Skeljungs hér á landi - upp- hafið í V-Þýzkalandi Fyrsta fyrirtækið, sem tal- ið er að hafi tekið upp sveigjanlegan vinnutíma, er Messerschmitt-Bölkow- - fjölskyldan og mismunandi aðstæður starfsmanna í fyrirrúmi Blohm í Ottobrunn, einu af úthverfum Múnchen-borgar í Vestur-Þýzkalandi, en það var árið 1967. Ástæðurnar voru aðallega tvær: Annars vegar strjálar ferðir almenn- ingsvagna frá íbúðarhverf- um borgarinnar og hins veg- ar erfiðleikar á endurnýjun starfsfólks, sérstaklega úti- vinnandi húsmæðra. Starfs- mannastjóri fyrirtækisins, Hillert, fékk hugmyndina hjá frú Christel Kaemmerer, sem tveimur árum áður kynnti tillögu sína um breytilegan vinnutíma, en honum var ætlað að örva giftar konur til þátttöku í atvinnulífinu. Hugmyndin var í þá veru, að starfsmenn sama fyrirtækis vinni mis- munandi vinnudag. Sumir byrji alltaf kl. 8, aðrir alltaf kl. 9 og enn aðrir alltaf kl. 10. Vinnutíminn sé 8 stundir hjá öllum starfsmönnunum. Segja má, að sveigjanlegur vinnutími hafi farið sigurför um álfuna á undanförnum árum og sífellt fleiri og fleiri fyrirtæki gera nú tilraunir með þetta fyrirkomulag. Fyrst í stað var tilhögunin nær eingöngu hagnýtt fyrir kannaði málið gaumgæfi- lega, var frú Riva Porr í bók sinni „4 Days 40 Hours“. Er það drcgið fram til að undir- strika framlag kvennanna tveggja, þeirra Kaenirnerer og Porr, til þessara nýmæla á sviði vinnutilhögunar. Sveigjanlegur vinnutími hefur þó unnið á í Bandaríkj- unum og nú munu 6% allra launþega þar njóta þessa fyrirkomulags, en það er tvöfalt fleiri en fyrir fjórum árum. Snemma á árinu 1974 hóf Skeljungur tilraun með sveigjanlegan vinnutíma starfsfólks. Þessu nýja fyrir- komulagi kynntust forráða- menn fyrirtækisins hjá Norsk Shell, sem hafði haft þennan hátt á um hríð. Tilraun Skeljungs hlaut góð- ar viðtökur hjá starfsfólki fyrirtækisins og í framhaldi af því hafa fleiri fyrirtæki hér á landi tekið þennan hátt upp, m.a. Olíuverzlun ís- lands, Flugleiðir, Bæjarút- gerð Hafnarfjarðar og Skýrsluvélar ríkisins og Reykj avíkurborgar. Auk þeirrar hagræðingar sveigjanlegs vinnutíma að fólk getur með honum hagað sínum vinnutíma frekar að eigin ósk og aðstæðum í stað hinna föstu tíma, getur þessi vinnutilhögun t.d. stytt þann tíma, sem báðir foreldrarnir eru að heiman frá börnum sínum, ef þeir báðir starfa á vinnustöðum þar sem sveigj- anlegur vinnutími tíðkast. Vonandi hlýtur tillaga þingmanna Sjálfstæðis- flokksins um sveigjanlegan vinnutíma hjá ríkisfyrir- tækjum og ríkisstofnunum afgreiðslu á þingi í vetur. Fordæmi á þeim vettvangi (og þeirra fyrirtækja, sem þegar hafa tekið þennan hátt upp) hvetur til almennari aðgerða í þessa átt — fjöl- skyldan á að vera í fyrirrúmi í öllu tilliti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.