Morgunblaðið - 14.09.1980, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 14.09.1980, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1980 35 Hvers vegna var þjóð hans svo óviðbúin stríði? Hvers vegna kepptust allir fjölmiðlar við að halda því fram, þrátt fyrir greini- leg merki um hið gagnstæða, að fjandmennirnir gætu aldrei sigrað einn einasta þumlung af ættjörð þeirra? Hvers vegna voru sovézkir stríðsfangar taldir svikarar? Og hann man enn eftir hugarvíli sínu, þegar hann fékk aðgang að leyniskýrslu Krúsjefs árið 1956 um Stalín-tímabilið, en þá var stjarna hans sjálfs tekin að rísa ört á hvelfingu sovézka kerfisins. „Við fundum til auðmýkingar. Það voru ekki aðeins hreinsanirnar. Það rann upp fyrir okkur að heimskuleg mistök Stalíns höfðu að líkindum kostað 20 milljónir Rússa lífið í stríðinu." Efasemdir hans urðu alvar- legar, er hann gerðist sérfræðing- ur þjóðar sinnar í afvopnunarmál- um, skrifaði tvær bækur um efnið og varð aðaltalsmaður um það í New York og Genf. „í upphafi trúði ég því í raun og sannleika að það ríkti einhver einlægni meðal Sovétmanna varð- andi afvopnunarviðræðurnar. En smám saman skildist mér að áróðrinum bar aldrei saman við raunveruleikann. Sú reynsla sem varð mesti lærdómur minn var þegar mér skildist að herforingjar okkar hlógu dátt að afvopnunarmálun- um. Meðan viðræður fóru fram, voru þeir að vinna að stórfelldri áætlun um endurnýjaða vopnvæð- ingu. Friðsamleg sambúð var aðeins blekking. Samhliða upprennandi Judy Chaves: handbendi Sovét- manna eða rétt og slétt vændis- kona? þíðu var verið að koma á fót ógnarlegustu hernaðarvél í sögu þjóðarinnar. Þetta var allt ósvikin hræsni. Því lengur sem ég þjónaði landi mínu og því hærri stöðu sem ég fékk, þeim mun betur sannfærðist ég um að hin yfirlýsta stefna lands míns væri stefna áreitni, útþenslu og kúgunar annarra þjóða. Að lokum tók andlegur ferill minn að skapa viðbjóð innra með mér sem átti skylt við líkamlega velgju. Forréttindin sem fylgdu hárri stöðu minni færðu mér hvorki fró né gleði því að til er sá sársauki er vex í hugskoti manns sem verður þess smám saman áskynja að hann er þátttakandi í grimmilegu og hættulegu þjóðfélagi." í næstum 20 ár var Shevchenko meðlimur innsta hrings þjóðar sinnar og var í vitorði um hinar leyndustu hugmyndir hennar um alþjóðamál. Hvaða skoðanir hefur hann á vettvangi alþjóðamála um þessar mundir? Pólland: Eftir Afganistan og eftir að bætt sambúð milli Rússa og Bandaríkjamanna beið skip- brot, var eitt af meginmarkmiðum Rússa að reyna að bjarga slökun- arstefnunni í Evrópu. Nú ógna atburðir í Póllandi þessu mark- miði. Þrátt fyrir þetta munu Rússar skerast í leikinn, ef ástandið fer að ógna sambandi Póllands við Sov- étríkin. Það verður að hafa í huga að dómgreind rússneskra leiðtoga blindast þegar í hlut á eitt af leppríkjunum. Slökunarstefnan: Ég hætti aldrei að furða mig á hversu margir á Vesturlöndum taka yfir- lýsingar Sovétmanna um slökun- arstefnuna trúanlegar. Þessu fólki skjátlast hrapallega. Það hefur gleymt því að grund- vallartakmark sovézkra leiðtoga er endanlegur sigur sósíalismans um allan heim. Þrátt fyrir skammtímaloforð, breytast þessi markmið aldrei. Það er áríðandi að skilja þessi markmið í raun og veru og láta ekki stjórnarerindreka Sovét- manna villa sér sýn með skjalli sínu við Evrópuþjóðir og loforðum um friðsamlega sambúð." KGB: Vald KGB er að eflast og hætta er á að Rússland þokist aftur til ógnaraldar Stalíns. KGB-menn geta gert hvað sem þeim sýnist, veitt fólki eftirför, hlerað hjá því, sent það í burtu, opnað póstinn, haldið fólki og tekið það fast, sent það á geð- veikrahæli ... allt saman án skriflegrar heimildar. Afganistan: Sovétríkin ógna heimsfriðnum svo geigvænlega að ef áreitni þeirra er ekki refsað á raunhæfan og öflugan hátt mun heimurinn verða kominn undir yfirráð stjórnarinnar í Moskvu áður en mjög langt um líður.“ Sameinuðu þjóðirnar: Vegna þeirrar verndar sem stofnunin veitir eru Sameinuðu þjóðirnar gullnáma fyrir njósnir Rússa. Ég áætla að af hinum 800 Sovét- mönnum sem vinna i New York séu allt að 50 prósent sem vinna á einn eða annan máta fyrir KGB og njósnastofnanir. Nú eru tvö ár og fjórir mánuðir síðan hann flúði. Hinir löngu mánuðir meðan yfirheyrslur og upplýsingaöflun CIA og annarra vestrænna njósnastofnana stóðu yfir, eru nú á enda. Shevchenko er kvæntur á ný Elaine Jackson sem stundar fjár- málaviðskipti í Suðurríkjunum. Brúðkaup þeirra fór fram sex vikum eftir að þau kynntust, sjö mánuðum eftir lát eiginkonu hans. Hún er tólf árum yngri en hann og jafn lífleg og félagslynd og hann er einrænn. Og hann virðist tilbiðja hana. Shevchenko sem er sagður fá 17 milljónir króna í árslaun sem „ráðgjafi" hjá CIA, lifir „hóg- væru“ lífi í iitlu húsi í úthverfi Washington sem keypt er fyrir lánsfé auðvaldsins og búið undra- verðum rafeindaöryggisútbúnaði sem myndi nægja til að fylla gullgeymslur í Fort Knox. Um eitt atriði er hann afdrátt- arlaus: „Ég hef nú tekið þá ákvörðun að lifa lifinu fyrir opnum tjöldum. Ég ætla ekki að láta gera á mér andlitsaðgerð og búa í einhverju krummaskoti í Mið-Vesturríkjunum. Ég hef köllun í lífinu. Mig langar að halda fyrirlestra og greina umheiminum frá sovézka kerfinu. Því meir sem ég er í sviðsljósinu því minni eru líkurn- ar til að þeir reyni að drepa mig.“ Og hvað á svo að halda um Arkady Shevchenko? í hinu stöð- uga áróðursstríði er hann mikil- vægur leikmaður. Enginn nema kjáni tæki allt sem hann segir sem heilagan sannleika. Flúði hann vegna þess að yfir- boðarar hans í Kreml komust að því að hann vann sem gagnnjósn- ari fyrir Bandaríkjamenn? Hann neitaði að ræða það við mig og hélt því fram að hann hefði aldrei stundað njósnir fyrir nokkurn aðila. Ber að líta svo á að með andsovézkum athugasemdum sín- um sé hann aðeins að vinna fyrir brauði sínu hjá hinum nýju hús- bændum sínum, CIA? Eg get einungis greint svo frá að í eigin persónu virtist hann einlægur en ef til vill fullgagntekinn af eigin málstað. Sársauki manns sem aldrei mun sjá dóttur sína framar var vissu- lega ósvikinn. Og svo var einnig um trega hans, er hann ræddi um fyrri konu sína. Sú staðreynd blasir engu að síður við að þótt deilt sé með þremur í allt sem Arkady Shev- chenko hefur að segja, er framtíð- arspá hans ógnvekjandi. Þakka frændfólki og vinum hlýhug og gjafir á 60 ára of- Tnæli mínu. Oddur Kristjánsson. Karlakórinn Fóstbræður getur bætt viö sig söngmönnum í allar raddir. Upplýsingar veittar í síma 24871 eftir kl. 6 í dag og næstu daga. í i SJONVARPSBÚÐIH BORGARTUNI 18 REYKJAViK SlMI 27099 Ælis&MnfiJté .«& J- ,«r - Treval hf. Aralöng reynsla í framleiðslu baðinnréttinga Látið fagmanninn annast innréttingarnar. Nýjar innréttingar í sýningarsal okkar aö Nýbýlavegi 4, Kóp. Komum heim, teiknum og gefum ráöleggingar yöur aö kostnaöarlausu. Hagstæöir greiösluskilmálar. Opid laugardag 13—17, sunnudag 13—18.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.