Morgunblaðið - 24.09.1980, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1980
15
Aðdragandi
olíustríðsins
ATBURÐARÁSIN, scm leiddi til iandamærastriðs íraka og írana írá 1.
júni til 21. scptember 1980, var í aðalatriðum sem hér segir:
• 3. júní. — íranir tilkynna, að 122 írakskir hermenn hafi verið felidir
undanfama tvo sólarhringa eftir þriggja daga átök á landamærunum.
• 12. júní — íranir halda því fram, að tveir diplómatar þeirra hafi sætt
barsmíðum írakskra yfirvaida eftir handtöku tveggja irakskra diplómata i
Teheran.
• 17. júní — Saddam Hussein íraksforseti sakar írani um fjandskap í
garð Araba og hafa á prjónunum útþensluáform við Persaflóa.
• 5. ágúst — Fjórir íranskir liðsforingjar „strjúka" til íraks.
• 8. ágúst — Sendiherra írans í Moskvu skorar á Sovétríkin að hætta
hergagnasendingum til íraks.
• 19. ágúst — Níutíu sagðir hafa beðið bana og 35 slasazt í sprengingu í
sprengiefnageymslu í Khuzestan. Sprengingin kölluð slys.
• 27. ágúst — írakar tilkynna, að tveir íranskir hermenn hafi fallið í
harðnandi átökum í Kasr-E-Shinin.
• 30. ágúst — Sextán sakaðir um samsæri um að steypa íransstjórn og
írakar sakaðir um að styðja byltingartilraunina.
• 7. sept. — íranir segja, að sex óbreyttir borgarar hafi beðið bana í
stórskotaliðsárás íraka á landamærabæina Mehran og Dehloran.
• 8. sept. — íranir segja, að 50 írakar hafi fallið og íröksk þyrla hafi verið
skotin niður í bardögunum daginn áður.
• 9. sept. — íranir segja. að herflugvélar þeirra hafi grandað tugum
írakskra skriðdreka og mikið mannfall hafi orðið í liði Íraka. Tveir íranskir
hermenn sagðir hafa fallið og 20 særzt.
• 10. sept. — íranir segja, að fjórar írakskar MIG-fiugvélar og fjórar
þyrlur hafi verið skotnar niður og sex íranskir hermenn hafi fallið og 35
særzt. Segjast hafa misst eina flugvél.
• 10. sept. — írakar segjast hafa hertekið 120 km landamærasvæði.
• 11. sept. — írakar segja, að tvær íranskar Phantom-þotur hafi verið
skotnar niður og sjö írönskum skriðdrekum og striðsvögnum grandað í
árás á fimm íranskar stöðvar. Þeir segja, að átta Írakar hafi særzt, einn
íranskur flugmaður beðið bana og einn særzt.
• 12. sept. — írakar segja, að herflugvélar þeirra hafi ráðizt á Beit Saad,
Hela og Khadr (landamærastöðvar).
• 12. sept. — Írakar segjast hafa séð 12 elda í írönskum stöðvum eftir
loftárásir íraka á Gilan, Mina og Kasr-E-Shinin. Tveir íranskir hermenn
sagðir teknir til fanga og fjórir skriðdrekar og tveir herbílar teknir
herfangi.
• 13. sept. — Íranir segjast hafa náð aftur þremur landamærastöðvum af
írökum. Irakar segjast hafa misst þrjá menn fallna og átta særða.
• 14. sept. — Abolhassan Bani Sadr íransforseti og Mohammed Ali Rahaj
forsætisráðherra komast lífs af, þegar íröksk flugvél skýtur á þyrlu þeirra.
íranir segjast hafa skotið niður tvær írakskar MIG-flugvélar og
bardagarnir færast til Shatt E1 Arab-svæðisins. írakar segja, að tvær
íranskar Phantom-þotur hafi verið skotnar niður við Sheik Saad.
Heiidarmanntjón sagt 51 íranskur hermaður fallinn og 103 særðir frá 4.
sept. til 10. sept. á Kasr-E-Shirin-svæðinu.
• 15.—17. sept. — Iranir segja að ein íröksk MIG-þota hafi verið skotin
niður 'og írakar segja að ein írönsk gagnskriðdrekaflugstöð hafi verið
hertekin, fjórir skriðdrekar eyðilagðir og fjórir hermenn teknir tii fanga.
• 17. sept. — Saddam Hussein íraksforseti riftir landamærasamningnum
frá 1975.
• 18. sept. — írakar lýsa því yfir, að öll skip, sem sigla um Shatt E1 Arab,
eigi að draga upp fána íraks og hlíta írökskum fyrirmælum.
• 20. sept. — Bani Sadr íransforseti tilkynnir, að hann taki sjálfur við
stjórn hernaðaraðgerða meðfram landamærum Irans.
• 21. sept. — Teheran-útvarpið segir frá því, að bardagar breiðist út til
Khoramshahr og landamærahéraðsins Khuzestan. írakar segja, að átta
írönskum fallbyssubátum hafi verið grandað á Shatt E1 Arab.
(AP)
efnahagsáföll á sama tíma og
þessi lönd reyna að sigrast á
samdrætti. OPEC-ríkin hyggjast
draga úr framleiðslu og eftir því
sem birgðir minnka verður mark-
aðsástandið erfiðara. Ástandið
gæti líka versnað, ef íranir og
Irakar hæfu árásir á olíusvæði
hvors um sig, aðaltekjulindir
beggja þjóða.
Utflutningur Irana nemur um
þessar mundir aðeins um 700,000
tunnum á dag, sem er innan við
einn fimmti útflutningsins áður
en glundroðinn hófst í íran af
völdum byltingar Khomeinis.
Vestræn ríki hafa gert sig mun
óháðari olíu frá íran á undanförn-
um 18 mánuðum. En írak er annað
mesta olíuútflutningsríki heims,
næst á eftir Saudi-Arabíu, og
útflutningur þeirra nemur um 2,8
milljörðum tunna á dag. Þar af
eru tveir þriðju fluttir um
Hormuz-sund og framleiðslan á
dag nemur alls 3,6 milljörðum
tunna.
Olíuleiðslur
Ef sunundum væri lokað mætti
dæla hluta Persaflóaoliunnar um
olíuleiðslur frá írak og Saudi-
Arabíu til Miðjarðarhafs. En það
yrðu hreinir smámunir, sennilega
ekki meira en 2 milljónir tunna á
dag — einn tíundi heildarmagns-
ins, sem nú er flutt með skipum
gegnum sundin.
Hægt væri að dæla olíunni eftir
þremur leiðslum, þótt þær hafi
lítið verið notaðar á síðari árum,
en þær liggja um lönd, þar sem
ólga og ókyrrð rikir, eins og
Líbanon, Sýrland og Tyrkland.
Vegna togstreitu baathista-
stjórnanna í írak og Sýrlandi yrði
Bagdad-stjórnin treg til að nota
sýrlenzku leiðsluna.
Iðnríkin hafa gert með sér
neyðaráætlun um að skipta á milli
sín olíu og Alþjóðaorkustofnunin
(IEA) í París hefur samræmt
hana. Samkvæmt þessari áætlun,
sem var gerð eftir olíukreppuna
1973, mundu ríkisstjórnir skera
niður neyzlu um 10 af hundraði,
þegar birgðir minnka um meira en
12%. Með þessum niðurskurði
væri hægt að spara um 4 milljónir
tunna á dag, sem er talið nóg til
þess að bæta upp meiriháttar
minnkun birgða, svo framarlega
sem ríkisstjórnir beita hörku til
að framfylgja sparnaðarráðstöf-
unum.
(AP)
CASPIAN
Á þessu korti frá iröksku fréttastofunni eru sýndar 10 herstöðvar og
flugvellir viðs vegar i íran sem írakar segjast hafa gereyðilagt.
írak f ær
stuðning
Husseins
Amman, 23. scptcmbcr. AP.
HUSSEIN Jórdaniukonungur
talaði i sima við Hafez Assad
Sýrlandsforseta og Fahd. krón-
prins Saudi-Arabiu. i gær-
kvöldi og hét síðan írak stuðn-
ingi samkvæmt opinberum
heimildum í Amman í dag.
Samkvæmt heildunum ítrek-
aði konungurinn í samtali við
Saddam Hussein íraksforseta
„stuðning Jórdaníu við írak
gegn hvers konar utanaðkom-
andi árás á íröksk yfirráða-
svæði.“
Engin staðfesting fékkst á
þeirri frétt ísraelska sjónvarps-
ins, að Irakar hefðu flutt her-
flutningaflugvélar til stöðva í
Jórdaníu til að forða þeim frá
loftárásum írana.
í Detroit sagði Henry Kiss-
inger, fyrrum utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, að ósigur á sviði
utanríkismála hefði gert Banda-
ríkjunum ókleift að miðla mál-
um í deilum íraka og írana.
Hann sagði, að slíkt ástand
þyrfti að koma í veg fyrir með
diplómatískum ráðum. „En nú
getum við ekkert gert.“
Kurt Waldheim brýnir
Öryggisr^ðið til f undar
um átök Irana og Iraka
Sl>, London. Washington. Amman. 23. scptcmbcr. AP.
KURT WALDHEIM. framkvæmdastjóri Samein-
uðu þjóðanna (SÞ), hvatti til þess i dag, að
öryggisráðið kæmi saman hið snarasta tii að fjalla
um hernaðarátökin milli írans og íraks. þar sem
þau stefndu heimsfriðnum í alvarlega hættu.
Bandarískir embættismenn
sögðu í dag, að yfirvöld í Wash-
ington væru reiðubúin að veita
alla þá aðstoð sem unnt væri að
veita til að lækka ófriðaröldurnar
við Persaflóa. Jafnframt væru
Bandaríkjamenn hlynntir því að
reynt væri af hálfu SÞ að koma á
friði. Hins vegar vildu yfirvöld að
svo stöddu fyrir alla muni halda
hlutleysi sínu í deilu íraka og
írana.
Edmund Muskie utanríkisráð-
herra átti í dag viðræður við
Waldheim um ráð til að binda
endi á deiluna eftir diplómatísk-
um leiðum.
Henry Kissinger, fyrrverandi
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
sagði hins vegar í dag, að léleg
stjórnkænska hefði gert það að
verkum, að Bandaríkjamenn gætu
á engan hátt leyst úr deiiu Irana
og Iraka. „Það er stjórnkænska að
sjá til þess, að atburðir af þessu
tagi komi ékki fyrir," sagði Kiss-
inger.
Kissinger sagði, að bæði löndin
væru vel vopnum búin, og „öfga-
Waldheim sagðist hafa beitt áhrifum sinum til
að fá yfirvöld í löndunum tveimur til að leggja
niður vopn og útkljá deilumál sin við samninga-
borðið. Bauð hann aðstoð sína ef það ma'tti til
einhvers verða.
menn“ við völd í báðum ríkjunum.
Irakar hefðu fengið sín vopn frá
Sovétríkjunum, og íranir berðust
með bandarískum vopnum er keis-
aranum fyrrverandi hefðu verið
látin í té.
I Moskvu hefur verið sagt frá
átökum Irana og íraka á hlutlaus-
an hátt og jafnan- stuðst við
heimildir frá hvorum deiluaðila.
Hermt var frá Moskvu, að sendi-
herra írans i Moskvu hefði í dag
gengið á fund ráðamanna í Kreml
og hvatt þá til þess að hætta
vopnasendingum til íraks og for-
dæma opinberlega „árás íraka inn
í íran“. Sendiherrann sagðist ekki
hafa fengið neinar vísbendingar
um að Sovétmenn yrðu við „vin-
samlegri beiðni“ um hjálp til að
binda endi á átökin milli Irana og
Iraka.
Ráðamenn í hinum ýmsu Evr-
ópuríkjum eru uggandi um að
átökin fyrir botni Persaflóa eigi
eftir að stigmagnast og stefna
olíufiutningum þaðan í hættu. í
ráði var að flytja hundruð Evr-
ópumanna frá svæðum við Persa-
flóa með því að senda þangað
sérstakar flugvélar. Flugsam-
göngur við Bagdad og Teheran,
svo og símasamband, lá svo til
alveg niðri í dag og gær.
Blað í Japan skýrði frá því í dag,
að yfirvöld í írak hefðu nú nýverið
falast eftir hvorki meira né minna
en 64.000 fólks- og vöruflutninga-
bifreiðum þar í landi, og telja
kunnugir að nota eigi bifreiðarnar
í sambandi við landamæraerjur
íraka og írana. Byrjað verður að
skipa þessum bifreiðum út síðar í
mánuðinum. Ekki hafa áður verið
gerðir samningar um annað eins
magn af japönskum bifreiðum, að
sögn heimilda í Japan.
ERLENT
Þetta gerðist 24. september
1976 — Ian Smith fellst á áætlun
Kissingers um stjórn blökku-
manna í Rhódesíu.
1974 — Fulltrúadeild Bandaríkja-
þings samþykkir að hernaðarað-
stoð við Tyrki skuli hætt.
1971 — Bretar reka 90 Rússa fyrir
njósnir.
1970 — Palestínumenn samþykkja
vopnahlé í stríðinu við Jórdaníu-
her.
1963 — Öldungadeild Bandaríkja-
þings staðfestir samning við Breta
og Rússa um takmörkun tilrauna
með kjarnorkuvopn.
1955 — Eisenhower forseti fær
hjartaáfall í leyfi í Colorado.
1948 — Fyrsta ráðstefna í London
með fulltrúum Afríkunýlendna
Breta.
1943 — Rússar sækja yfir Dnepr
norðan við Kiev.
1941 — Ráðstefna Bandamanna í
London samþykkir Atlantshafsyf-
irlýsinguna.
1905 — Svíar samþykkja sjálf-
stæði Noregs.
1869 — „Svarti föstudagur" í New
York eftir tilraun Goulds og Fisks
til að leggja undir sig gullmarkað-
inn.
1859 — Frakkar leggja undir sig
Nýju Kaledóníu.
1750 — Bretar afsala sér rétti til
að flytja inn þræla frá spænskum
nýlendum í Ameríku.
1706 — Altrandstad-friður Saxa
og Svía, sem afsala sér pólsku
krúnunni og viðurkenna Stanislaus
Laszynski, stuðningsmann sinn,
konungsefni.
1688 — Ágsborgarófriðurinn hefst
með stríðsyfirlýsingu Loðvíks XIV
gegn Austurríkismönnum.
1513 — Englendingar taka
Tournai, Flandri — Svissneskur
her ræðst á Dijon, Frakklandi.
Afmæli — Horace Walpole, enskur
rithöfundur (1717-1797) - John
Marshall, bandarískur lögfræðing-
ur (1755-1835).
Andlát — 768 Pepin III Frakka-
konungur.
Innlent — 1170 Þorlákur biskup
Þórhallsson vígður ábóti — 1904 d.
Niels R. Finsen.
Orð dagsins — Eigðu enga vini,
sem eru ekki jafningjar þínir —
Konfúsíus, kínverskur heimspek-
ingur (541—479 f.Kr.).