Morgunblaðið - 14.10.1980, Qupperneq 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
227. tbl. 68. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Esquivel talar við fréttamenn eftir tilkynninguna um útnefningu
friðarverðlauna Nóbels i ár. Símamynd ap.
Friðarverðlaun Nóbels:
Valið kom á óvart -
en mælist vel f yrir
Ósló, 13. október. — AP.
ARGENTÍNUMAÐURINN Adolfo Perez Esquivel, hlaut i dag
friðarverðlaun Nóbels. John Sannes, formaður Nóbelsnefndarinn-
ar sagði, að Esquivel hlyti friðarverðlaunin í ár, vegna þess, að
„hann hefur helgað líf sitt mannréttindum siðan 1974.“
Esquivel er leiðtogi Servicio stofufangelsi þar til síðastliðið
Paz Y Justicia-samtakanna. Þau
hafa aðalstöðvar í Buenos Aires
en einnig hafa samtökin skrif-
stofur í mörgum ríkjum latnesku
Ameríku.
Esquivel er arkitekt og mynd-
höggvari. Hann hefur barist hat-
rammlega gegn mannréttinda-
brotum stjórnvalda í latnesku
Ameríku og verið hnepptur í
fangelsi. Fangelsun hans hratt af
stað öldu mótmæla víðs vegar um
heim og hann var látinn laus úr
fangelsi ári síðar en hafður í
vor. Utnefning Esquivel kom
nokkuð á óvart í Noregi en
mæltist vel fyrir. Knut Fryden-
lund, utanríkisráðherra Noregs
sagði, að útnefning Esquivel væri
mönnum hvatning til að starfa að
því, að mannréttindi verði virt
víðs vegar um heim. Leiðtogar
sósíalista og borgaraflokkanna í
Noregi báru lof á Esquivel í dag,
og lýstu ánægju sinni með val
friðarverðlaunanefndarinnar.
Sjá frétt: „Hefur barist gegn
oíbeldi i mannlegum samskipt-
um“ bls. 47.
Sótt að Abadan
úr öllum áttum
Havfdad. Teheran. 13. október — AP.
HARÐIR bardagar geisa nú um írönsku borgina Abadan.
írakar hafa gert harðar loftárásir á borgina og sækja að
henni á jörðu eftir að hafa farið yfir Korun-fljót, sem er
miðja vegu milli Abadan og Khorramshahr. Talsvert
mannfall var á báða bóga. írakar segjast hafa fellt 38
íranska hermenn í bardögum um borgina og skotið niður
tvær íranskar þyrlur í dag. Sjálfir segjast þeir hafa misst 3
hermenn fallna og 14 særða.
íranskar herþyrlur vopnaðar
eldflaugum gerðu harðar árásir á
íraska herliðið, sem sækir að
borginni. íranir segjast hafa gjör-
sigrað íraska herliðið, sem fór yfir
Korun-fljót í átt að Abadan á
laugardag. Irakar segjast hafa
staðið af sér þyrluárásir Irana og
að þeir sæki nú í átt að Abadan úr
öllum áttum. BBC sagði í kvöld að
írakar nálgist nú borgina. íranir
segja að minnsta kosti 30 óbreytt-
ir borgarar hafi fallið og 140 særst
í loftárásum á Abadan. I borginni
eru mestu olíuhreinsunarstöðvar í
heimi.
Enn er barist um Khorram-
shahr en svo virðist sem borgin sé
um það bil að falla í hendur
írökum. Barist er um hvert hús í
suðvestur-hluta borgarinnar, sem
Iranir hafa haldið. Uti fyrir liggja
fimm erlend skip — frá Italíu,
Kína, Grikklandi og Júgóslavíu —
öll mikið löskuð. Bani-Sadr, for-
seti Irans, sagði í dag í orðsend-
ingu tií Kurt Waldheims, fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna, að ekkert benti til að
íranskar hersveitir hefðu skotið á
skipin. Sjónarvottar segja hins
vegar, að íranskir hermenn hefðu
skotið á skipin og einnig á skip-
verja þegar þeir reyndu að forða
sér syndandi til lands.
Bani-Sadr sagði að Iranir væru
reiðubúnir að hleypa þeim um 60
skipum, sem hafa lokast inni
vegna stríðsins, frá Shatt-El-
Arab. Þau yrðu þá, að setja upp
fána Sameinuðu þjóðanna.
Fyrirhugaðri ráðstefnu araba-
ríkja, sem fram átti að fara í
Amman dagana 25.-26. nóvem-
ber, verður að líkindum frestað
vegna stríðs írana og Íraka.
Arabaríki eru skipt í stuðningi
sínum við stríðsaðila. Jórdanía
Enn er fólki bjargað á
lífi úr rústum E1 Asnam
EI Asnam, 13. október. — AP.
NOKKRIR jarðskjálftar urðu á E1
Asnam-svæðinu í dag og ollu skelf-
ingu meðal fólks. Fjaiíaþorpið
Bordj Bounama, uin 20 kilómetra
fyrir sunnan borgina, lagðist í rúst
í jarðskjálftunum í dag. Hins vegar
beið enginn bana. Á milli 40 og 50
hús hrundu í dag, en þar sem allir
íbúar höfðu verið fluttir á brott
urðu engir mannskaðar. Að
minnsta kosti 30 hús hrundu i
jaröskjálftanum á föstudag og fjöl-
margir ibúar þorpsins biðu þá
bana. Skelfing greip um sig i
flóttamannahúðum i E1 Asnam og
konur og börn hlupu i skelfingu
sinni út á bersvæði. Dag og nótt
hefur verið unnið að björgun slas-
aðra úr rústum borgarinnar. Stöð-
ugt finnast lik i rústunum. Björg-
unarfóiki tókst að bjarga mörgum
lifandi en illa siösuðum úr rústuíi-
um i dag, þremur dögum eftir hinn
mannskæða jaröskjálfta.
Gífurlegir erfiðleikar eru á svæð-
inu. Brú, sem laskaðist í úthverfi E1
Asnam í jarðskjálftanum á þriðju-
dag hrundi í dag þegar þungar
vinnuvélar fóru um. Ekki hefur enn
tekist að meta hve margir hafa
farist í jarðskjálftanum. í upphafi
var óttast að allt að 20 þúsund
manns eða meir hefðu farist en vonir
standa nú til, að tala hinna látnu sé
ekki svo há. Einn stjórnandi björg-
unarstarfsins sagði í kvöld, að nú
hefði tekist að ná 1600 líkum úr
rústunum í E1 Asnam. Hins vegar
væri ljóst að líklega væru enn
þúsundir grafnir undir braki í borg-
inni. Þá er ljóst, að margir létust í
Björgunarmenn leita í rústum húsa er jöfnuðust við jörðu í jarðskjálftum í borginni E1 Asnam í Alsír.
Slmamynd — AP
nálægum fjallaþorpum í jarðskjálft-
anum og skriðum, sem komu í
kjölfarið. Talið er, að 50 þúsund
manns hafi slasast í jarðskjálftan-
um og að yfir 100 þúsund manns séu
nú heimilislausir en alls er talið að
250 til 400 þúsund manns hafi á einn
eða annan hátt orðið fyrir barðinu á
jarðskjálftanúm á föstudag,
Hjálp berst nú víða að til Alsír.
Stöðugur straumur erlendra og inn-
lendra hjálparsveita hefur verið til
E1 Asnam og nágrenni. Það hefur
tafið hjálparstarfið að stjórnvöld í
Alsír hafa ekki getað sagt til um,
hvers konar aðstoð kæmi sér best.
DC-8 þota Cargolux fór í kvöld frá
Kaupmannahöfn áleiðis til Alsír
með matvæli og lyf frá dönsku
Rauða kross félögunum. Bandaríkin,
Sovétríkin, Frakkland og Bretland
hafa sent læknalið, neyðarsjúkrahús
og hundruð tonna læknalyfja til
jarðskjálftasvæðanna. Rauða kross-
félög frá 19 Evrópulöndum hafa sent
teppi, tjöld, lyf og matvæli áleiðis til
Alsír. Þá hafa Arabaríkin heitið
Alsír aðstoð.
Stjórnvöld í Alsír hafa tilkynnt,
að E1 Asnam verði endurbyggð frá
grunni. Borgin hrundi í öflugum
jarðskjálfta 1954 og hafði verið
endurbyggð. Neyðarástandi var lýst
yfir í öllu E1 Asnamhéraði. í fyrsta
sinn frá því Alsír fékk sjálfstæði
árið 1962, var einni helstu trúarhátíð
Araba aflýst í landinu. Sjö daga
þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í
landinu.
Sjá nánar fréttir bls. 18
og 19.
hefur lýst yfir eindregnum stuðn-
ingi við Iraka og ríkin við Persa-
flóa hallast að stuðningi við Iraka.
Hins vegar hafa Líbýumenn lýst
yfir stuðningi við írani og írakar
segjast hafa sannanir fyrir því, að
Sýrlendingar hafi sent Irönum
vopn.
Sjá einnig frétt: „Sovézk að-
stoð við bæði írani og íraka"
bls.46.
Ráðist á
Rússa
í Kabúl
Nýju Delhi. 13. október. — AP.
FRELSISSVEITIR Afgana
hafa undanfarið fært sig upp á
skaftið í Kabúl. höfuðborg Afg-
anistans. Siðastiiðinn fimmtu-
dag gerðu Afganir sovéskum
herflutningabil, hlöðnum her-
mönnum. fyrirsát í miðborg
Kabúl. Fyrirsátin var gerð um
miðjan dag. Frelsissveitar-
menn köstuðu handsprengjum
að bilnum og skutu á hann úr
vélbyssum. Nokkrir sovésku
hermannanna i bilnum biðu
bana og margir særðust.
Fyrirsátursmennirnir voru
þrír og munu þeir hafa falið sig
í trjám, skammt frá diplómata-
hverfinu í Kabúl. Strax eftir
fyrirsátrið þustu sovéskir her-
menn og lögregla á staðinn og
settu upp vegartálma. Fyrirsát-
ursmennirnir komust undan. í
fréttum frá Nýju Delhi segir, að
frelsissveitir Afgana verði sí-
fellt djarfari í árásum á Sovét-
menn í höfuðborginni. Einn
virtasti blaðamaður Indlands,
Kuldip Nayar var fyrir skömmu
í Kabúl. í fréttum sínum segir
hann, að næstum 20 þúsund
frelsissveitarmenn séu í Kabúl
og frelsissveitir hafi auk þess
myndað hring um borgina. Bæði
Sovétmenn og Kabúlstjórnin
standa berskjölduð gagnvart
hættunni af árásum frelsis-
sveita, því almenningur segir
ekki til uppreisnarmanna og
þeir eru sem hluti af íbúum
borgarinnar. Þannig hafa borist
fréttir um árás á tvær sovéskar
konur á markaði í Kabúl. Þær
voru stungnar til bana. Þá hafa
uppreisnarmenn ráðist á bæði
meðlimi kommúnistaflokksins
og Sovétmenn að degi til, víðs
vegar um borgina.
Tyrkneskri
þotu rænt
Ankara. 13. október. — AP.
BOEING 727-þotu tyrkneska flug-
félagsins var rænt í innanlandsflugi
með 148 farþega í kvöld. Þegar Mbl.
fór í prentun var þotan á Diyar-
bakir-flugvellinum í suðurhluta
landsins. Hermenn höfðu þá um-
kringt þotuna. Flugræningjarnir
eru sex. í fyrstu var talið að þeir
væru íranir en síðustu fréttir
herma, að þeir séu tyrkneskir
vinstri-öfgamenn.