Morgunblaðið - 14.10.1980, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980
3
Eskifjörður:
Bátum vís-
að frá vegna
mikils afla
Rskifirði. 13. október.
MJÖG mikil sildveiði var hér inni
á Reyðarfirði og Mjóafirði i nótt
öjí hefur verið alla heljrina. Læt-
ur nærri að helgaraflinn nálgist
5 þúsund tunnur. Nótaskipin
hafa fengið mjög góðan afla hér i
fjörðunum og kom Sæbergið tvi-
vegis með 60 tonn í hvort skipti.
Votabergið kom með 60—70 tonn
i morgun og Geiri Péturs kom
með 60 tonn í gær og 50 tonn i
dag.
Reknetabátar hafa aldrei verið
fleiri í firðinum en nú og taldi ég
15 báta draga hér rétt við bæinn í
morgun og voru þó einhverjir
komnir inn. Aflinn hjá þeim var
ágætur eða allt að 400 tunnur á
bát. Vitað var að Skógey var með
400 tunnur og flestir hinna með
100 tunnur eða þar yfir. Fyrir-
sjáanlegt er að ekki er hægt að
anna öllum þessum afla hér í dag
og verður því að vísa bátum frá.
Fyrir helgina fréttist af síld í
Meðallandsbug og fóru flestir
reknetabátanna þangað suður að
tveimur undanskildum, Æskunni
og Jóni Bjarnasyni, og fengu þeir
góðan afla þessa daga. Nú eru
hinir allir komnir aftur og gott
betur, því að bátar af Suðurnesj-
um og Snæfellsnesi hafa bæzt við.
Saltað var alla helgina hjá Sæ-
bergi og Friðþjófi og saltað allt til
3.30 á næturnar og í morgun var
byrjað klukkan 6 hjá Auðbjörgu.
Geysileg atvinna er því í síldinni,
hún er alltaf söm við sig og gerir
allt vitlaust þar sem hún gefur
S'K - Ævar.
Gott verð
fyrir léleg-
an fisk
FJÖGUR fiskiskip lönduðu
afla sínum eriendis i gær, en
á næstunni dregur mjög úr
siglingum íslenzkra skipa til
erlendra hafna.
Rán seldi 114,6 tonn í Grims-
by fyrir 83,7 milljónir króna,
meðalverð 730 krónur. Það
vekur athygli, að þetta verð
skuli þó fást fyrir afla Ránar
þar sem umboðsmenn í Bret-
landi mátu gæði fisksins sem
óviðunandi.
Bylgja VE seldi 59,5 tonn í
Fleetwood fyrir 45,5 milljónir,
meðalverð 764 krónur. Afli
Bylgjunnar fékk einkunnina 2
hjá umboðsmönnum eða við-
unandi. Ársæll Sigurðsson
landaði 55,4 tonnum í Hull
fyrir 43,3 milljónir, meðalverð
782 krónur. Lokið verður að
landa úr skipinu í dag. Þá
seldi Jón Vídalín 139,3 tonn í
Cuxhaven fyrir 75,9 milljónir,
meðalverð 545 krónur.
Yitni vant-
ar að slysi
Slysarannsóknardeild lögregl-
unnar í Reykjavík hefur beðið
Mbl. að auglýsa eftir vitnum að
slysinu, sem varð á Vesturgötu um
hálftvö-leytið á laugardaginn. Þá
ók bifreið á 10 ára dreng á hjóli.
Drengurinn slasaðist mjög mikið,
hlaut beinbrot, höfuðhögg og
skarst mikið. Slysið varð rétt
vestan gatnamóta Vesturgötu og
Ægisgötu, á móts við húsið númer
32. Þeir, sem urðu vitni að slysinu
eru beðnir að snúa sér strax til
slysarannsóknadeildarinnar í
síma 10200.
Halldóra Bjarnadóttir 107 ára:
Aldursmet á íslandi
og Norðurlöndunum
HALLDÓRA Bjarnadóttir er 107 ára í
dag. Hún er ekki aðeins elsta kona á
íslandi. heldur líka elsti íslendingur.
fyrr og síðar, að því er best er vitað.
Einnig mun hún eiga aldursmet á Norð-
urlöndum og fylgjast blöð á Norðurlönd-
um með henni. einkum í Noregi, þar sem
hún var lengi kennari í Moss upp úr
aldamótum.
Halldóra Bjarnadóttir 107 ára. Myndina
tók Sigursteinn Magnússon, af henni
fyrir helgina.
Halldóra dvelur á Héraðshælinu á Blöndu-
ósi. Hún er nú að mestu rúmliggjandi, fer
fram úr og í stól tvisvar til þrisvar sinnum á
dag og blaðar þá gjarnan í bók. Ellin sækir á
og fer henni hægt hnignandi. Nú orðið þarf
að hjálpa henni að borða. Hún heyrir illa, en
tekur þeim ljúflega með brosi, sem koma til
hennar. Og hún tekur enn engin lyf, að því er
Sigursteinn Magnússon, yfirlæknir tjáði Mbl.
Henni líður vel á Héraðshælinu, þar sem vel
er um hana hugsað.
í dag ætla Kvenfélagskonur á Blönduósi að
venju að halda upp á 107 ára afmælið með
Halldóru Bjarnadóttur, hafa kaffi og afmæl-
iskringlu uppi í Baðstofunni á Héraðshælinu.
Þeir sem eiga
DAIHATSU CHARADE
finna minnst
fyrir bensínhækkuninni
Nú hefur enn ein stórfelld bensínhækkun skollið yfir
og sífellt verður þyngra að eiga og reka einkabifreið-
ina.
Allir finna fyrir bensínhækkun, en það er staðreynd
að þeir sem eiga DAIHATSU CHARADE finna minnst
fyrir henni af þeirri einföldu ástæöu að DAIHATSU
CHARADE er sparneytnasti bíllinn sem völ er á í dag.
Frá því að DAIHATSU CHARADE kom á markaðinn
hefur hann sigrað í sparaksturskeppnum um allan
heim, og hér á íslandi á hverju ári frá því að fyrstu
bílarnir komu hingað haustið 1978.
í utanbæjarakstri eyðir DAIHATSU CHARADE 5—6
lítrum per. 100 km og 6—7 í innanbæjarakstri. Þeir
sem eiga DAIHATSU CHARADE geta því brosað útí
annað, þegar þeir borga bensínið.
Nokkrir bílar til afgreiöslu strax
Á ÓTRÚLEGA HAGSTÆÐU VERÐI
Kr. 5.663.000.-
— meö ryövörn og hér er um deluxe gerö aö ræöa.
Fullkomin vidgeröa-
og varahlutaþjónusta.
DAIHATSUUMBOÐIÐ
Ármúla 23, sími 85870 og 39179.