Morgunblaðið - 14.10.1980, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980
„Man ég það, sem löngu leið44 kl. 11.00.:
Lesin ferðasaga eftir Magn-
ús Björnsson á Syðra-Hóli
Á dagskrá hljóðvarps kl. 11.00
er þátturinn „Man ég það, sem
löngu leið“ í umsjá Ragnheiðar
Viggósdóttur, lesin ferðasaga eftir
Magnús Björnsson á Syðra-Hóli.
Magnús Björnsson
— Þessi ferðasaga segir frá
ferð Magnúsar til Akureyrar og
erindið var að setjast. að í Akur-
eyrarskóla sem þá var kallaður, en
heitir nú Menntaskólinn á Akur-
eyri. Þar sat hann í tvo vetur en
fór eftir það að búa að Syðra-Hóli
á Skagaströnd, þar sem hann var
fæddur og uppalinn. Þar bjó hann
til æviloka, en stundaði jafnframt
búskapnum fræðimannsstörf alla
tíð, skrifaði fallegt mál og var
merkur rithöfundur og fræðimað-
ur. Þrjár bækur hafa komið út
eftir Magnús Björnsson, allar
gefnar út af forlagi Odds Björns-
sonar á Akureyri: Mannaferðir og
fornar slóðir (1957), sem lesið
verður úr í þessum þætti, Hrak-
hólar og höfuðból (1959) og Feðra-
spor og fjörusprek (1966). Auk
þess átti Magnús margar greinar í
bókum og ritum. Hann lést 20. júlí
1963.
Sjávarútvegur og siglingar kl. 10.25:
Fiskverðsákvörðunin
Á dagskrá hljóðvarps kl. 10.25
er þátturinn Sjávarútvegur og
siglingar í umsjá Guðmundar
Hallvarðssonar. Rætt verður um
nýákveðið fiskverð.
— Ég fæ þá Kristján Ragnars-
son og Ingólf Ingólfsson, fulltrúa
fiskseljenda í nefndinni sem ákvað
verðið, til þess að spjalla við mig
um þessa fiskverðsákvörðun, sagði
Guðmundur Hallvarðsson, — en
það gerðist nú í fyrsta sinn í
langan tíma, að fulltrúar sjó-
manna og útgerðarmanna voru
ekki sammála um hana og greiddu
atkvæði með og á móti. Vegna
þess hve tíminn er naumur sem
við höfum til ráðstöfunar í þættin-
um, reyndist ókleift að ræða
einnig við fulltrúa fiskkaupenda,
en að viku liðinni kemur Ingólfur
Arnarson til mín í þáttinn og gerir
grein fyrir sjónarmiðum þeirra.
Sjónvarp kl. 20.40:
LIFIÐ Á
JÖRÐINNI
A dagskrá sjónvarps kl. 20.40
er 1. þáttur í nýjum fræðslu-
myndaflokki er nefnist Lífið á
jörðinni og er í þrettán þáttum,
gerður af BBC í samvinnu við
bandarísk og þýsk kvikmynda-
fyrirtæki.
I þáttum þessum, sem kvik-
myndaðir eru víða um heim, m.a.
á Islandi, er lýst þróun lífsins á
jörðinni frá því er fyrstu lífverur
urðu til fyrir um þremur og
hálfum milljarði ára. Hinn
kunni sjónvarpsmaður, David
Attenborough, hafði umsjón
með gerð myndaflokksins. Fyrsti
þátturinn nefnist óendanleg
fjölbreytni. Þýðandi er Óskar
Ingimarsson.
— Það er byrjað á því að
staldra við á Galapagos-eyjum,
sagði Óskar, og fetað í fótspor
Darwins. Eyjar þessar eru um
1000 km frá ströndum Equador í
S-Ameríku og þar finnast eðlur
og skjaldbökur sem sýna það
glögglega hvernig tegundirnar
hafa breyst eftir unihverfinu og
aðlagast því. Þá fer David Att-
enborough með okkur niður í
Grand Canion-gljúfrið og sýnir
okkur steingervinga og fleira
merkilegt. Og síðan greinir hann
frá því hvernig lífið hófst hér á
jörðinni, segir frá efnabreyting-
um sem menn hugsa sér að hafi
verið undanfari þess að líf
kviknaði og lýsir hinu allra
frumstæðasta lífi, sem sé ein-
frumungum. Smám saman rekur
hann sig upp á við og talar í
þessum þætti aðallega um hol-
dýr, svampa og hveljur (mar-
glittur). Við fáum að sjá frum-
stætt líf og steingervinga í
Ástralíu, skoða smásjármyndir í
rafeindasmásjá o.fl.
Útvarp Reykjavík
ÞRIÐiUDKGUR
14. október
kiORGUNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónleikar.
7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn.
7.25 Morgunpósturinn.
Umsjón Páll lleiðar Jónsson
og Erna Indriðadóttir.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Dagskrá.
Tónleikar.
8.55 Dagiegt mál.
Endurt. þáttur Þórhalls
Guttormssonar frá kvöldinu
áður.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Vilborg Dagbjartsdóttir les
þýðingu sina á sögunni
„Húgó“ eftir Maríu Gripe
(7).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Sjávarútvegur og sigling-
ar.
Guðmundur Hallvarðsson
sér um þáttinn.
10.40 Fiðlukonsert í C-dúr eftir
Joseph Haydn.
Yehudi Menuhin leikur og
stjórnar jafnframt Bach-
hátiðarhljómsveitinni.
11.00 „Man ég það sem löngu
Ieið“.
Itagnheiður Viggósdóttir sér
um þáttinn. Lesin ferðasaga
eftir Magnús Björnsson á
Syðra-Hóli.
11.30 Morguntónleikar.
Ragnheiður Guðmundsdóttir
syngur lög eftir Magnús Bl.
Jóhannsson, Björgvin Guð-
mundsson, Árna Thor-
steinsson. Sigurð Þórðarson
og Sigfús Einarsson; ólafur
Vignir Albertsson leikur
með á píanó.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
SÍDDEGIP
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar.
Þriðjudagssyrpa. — Jtinas
Jónasson.
15.50 Tilkynningar.
16.00 F'réttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
lti.20 Síðdcgistónleikar.
Sinfóníuhljómsveit íslands
leikur „Tjlbreytni“, tónverk
eftir Herbert H. Ágústsson;
Páll P. Pálsson stj./ Charles
Jongen og Sinfóníuhljóm-
sveitin i Liége leika „Fanta-
síu appassionata“ fyrir fiðlu
og hljómsveit op. 35 eftir
Ilenri Vieuxtemps; Gérard
Cartigny stj./ Konunglega
filharmoniusveitin i Lundún-
um leikur Sinfóniu nr. 5 i
Es-dúr op. 83 eftir Jean
Sibelius; Loris Tjeknavorjan
stj.
17.20 Sagan „Paradís“ eftir Bo
Carpelan.
Gunnar Stefánsson les þýð-
ingu sina (5).
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Á vettvangi.
ÞRIÐJUDAGUR
14. október
. 20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og
dagskrá
20.35 Tommi og Jenni
20.40 Lífið á jörðinni
(Life on Earth)
Nýr fræðslumyndaflokkur
í þrettán þáttum, gerður af
BBC i samvinnu við banda-
rísk og þýsk kvikmynda-
fyrirtæki.
í þáttum þessum, sem kvik-
myndaður eru víða um
heim, m.a. á íslandi, er lýst
þróun lífsins á jörðinni frá
því er fyrstu lifverur urðu
Stjórnandi Sigmar B. Hauks-
son. Samstarfsmaður Ásta
Ragnheiður Jóhannesdóttir.
20.00 Poppmúsik.
21.20 Sumarvaka.
a. Kórsöngur: Stúlknakór
Gagnfra'ðaskólans á Selfossi
syngur. Söngstjóri Jón Ingi
Sigurmundsson. Pianóleik-
ari Gísli Magnússon.
b. Smalinn frá Hvituhlið.
Frásöguþáttur af Daða Ní-
elssyni fróða eftir Jóhann
Hjaltason kennara og fræði-
til fyrir um þremur og
hálfum milljarði ára.
Ilinn kunni sjónvarpsmað-
ur, David Attenborough,
haíði umsjón með gerð
myndaflokksins.
Fyrsti þáttur: Óendanleg
fjölbreytni
Þýðandi óskar Ingimars-
son.
21.35 Sýkn eða sekur?
Lokaþáttur.
Þýðandi Ragna Ragnars.
22.20 Þingsjá
Þáttur um störf Alþingis.
Umsjónarmaður Ingvi
Hrafn Jónsson.
23.10 Dagskrárlok
mann. Hjalti Jóhannsson les
annan hluta.
c. Fjögur kvæði eítir fjögur
skáld.
Úlfar Þorsteinsson les.
d. Tveir heimar.
Elísabet Helgadóttir segir
frá dvöl sinni á Ströndum og
nokkrum fyrirbærum varð-
andi lát eiginmanns sins.
e. Minnisverður réttardagur.
Guðlaugur Guðmundsson
segir frá viðdvöl sinni í
Biskupstungnarétt.
f. Kvaéðalög.
Félagar í Kvæðamannafélag-
inu |ðunni kveða ástarvísur.
21.45 Útvarpssagan:
„Holly“ eftir Truman Cap-
ote. Atli Magnússon les eigin
þýðingu (5).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.35 „Nú er hann enn á norð-
an“.
Þáttur um menn og málefni
á Norðurlandi. Umsjón Guð-
brandur Magnússon.
23.00 Á hljóðbergi.
Umsjónarmaður Björn Th.
Björnsson listfræðingur.
„Glerdýrin“ — The Glass
Menagerie — eftir Tenness-
ee Williams; — fyrri hluti.
Með hlutverkin fara Mont-
gomery Cliít. Julie Ilarris,
Jessica Tandy og David
Wayne. Leikstjóri Howard
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.