Morgunblaðið - 14.10.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980
5
Lifnar
yfir loðnu-
veiðunum
IIELDUR lifnaði yfir loðnuveið-
unum um heljdna eftir 12 daxa án
þess að nokkur loðna veiddist.
Loðnan fékkst nú aðallejta um 130
milur norður af SÍKÍufirði eða
nokkru austar og norðar en áður.
Eftirtalin skip tiikynntu afla til
Loðnunefndar um helgina:
Sunnudagur: Víkingur 200, Gísli
Árni 400, Skírnir 400, Örn 400,
Sæbjörg 70.
Haförn 680, Albert 590, Harpa
590, Magnús 470, Hilmir 560, Þórð-
ur Jónasson.
höfuðborgarsvæðinu aðfararnótt sunnudagsins. Lentu margir í basli
þegar þeir reyndu að komast leiðar sinnar eins og meðfyigjandi mynd úr
Breiðholtinu ber með sér. Ljósm. Mhl. Július.
Eiður Guðnason alþingismaður:
Það sem þarf að gera í málum
Flugleiða þarf að gera fljótt
„VIÐ þingmenn Aiþýðuflokksins
höfum óskað eftir skýrslu sam-
gönguráðherra um Flugleiðamálið
til að fá fram umræður um það i
þinginu. Eftir þeim upplýsingum.
sem ég hef, verður þetta allt að
gerast mjög fljótt, það sem þarf að
gera i málum félagsins." sagði
Eiður Guðnason. alþingismaður,
sem sæti átti i nefnd þingmanna, er
fjallaði um rikisábyrgð fyrir Flug-
leiðir, þegar Mbl. spurði hann í gær
álits á Flugleiðamálinu og síðustu
atburðum þess, þ.á m. bréfi fjár-
málaráðherra. „Alþýðubandalagið
hefur leikið Ijótan leik i öllu þessu
máli og ég held, að réttast sé að
segja. að það virðist vera stefna
Alþýðubandalagsins að reyna að
greiða fyrir því að rekstur þessa
fyrirtækis stoðvizt.
Þingflokkur Alþýðuflokksins hef-
ur ekki rætt þetta mál sérstaklega
vegna síðustu atburða og ekki fjallað
um bréf fjármálaráðherra. Eg er
hins vegar ekki inn á því að það leysi
vanda félagsins, að því verði gert að
selja hótel og skrifstofuhúsnæði,
þótt hins vegar sé það matsatriði,
hvort Flugleiðir eigi að standa í
rekstri bílaleigu.
í meginatriðum er mín afstaða sú,
að þessi staða fyrirtækisins eigi sér
bæði utanaðkomandi orsakir, eins og
harða samkeppni og hækkandi olíu-
verð, og einnig á félagið við innri
vandamál að stríða, eða ósam-
komulag, sem að hluta til má telja
afleiðingu þess að sameining flug-
félaganna var fyrir tilstuðlan ríkis-
ins fremur framkvæmd af kappi en
forsjá. Einnig orka ýmsar veiga-
miklar fjárfestingarákvarðanir
stjórnar félagsins mjög tvímælis.
Enginn gat séð fyrir vandamálið,
sem kom upp vegna DC-10 málsins,
en mér fannst ákvörðunin um kaup
vélarinnar tekin með undarlega
skjótum hætti.
En meðal annars vegna þess, að
mér finnst ríkið hafa skyldum að
gegna við Flugleiðir vegna samein-
ingarinnar tel ég eðlilegt að veitt
verði aðstoð til þess að halda málum
áfram í eitt ár meðan menn eru að
gera upp sinn hug um framhaldið.
Og persónulega sé ég ekkert unnið
við þau skilyrði, sem hafa verið talin
upp.
Varðandi þá aðstoð, sem Flugleið-
ir hafa farið fram á varðandi annan
flugrekstur en Atlantshafsflugið, þá
held ég að sú aðstoð verði að koma
til, ef sá rekstur á ekki alveg að
stöðvazt. Á fundi með þingflokki
Alþýðuflokksins á föstudagsmorgun
gerðu þeir Sigurður Helgason og Örn
Johnson grein fyrir stöðunni og þar
kom fram, að þeirra lausaskuldir eru
miklar og svigrúmið mjög lítið.
Þetta mál þarf því að koma til kasta
Alþingis sem fyrst."
Pétur Sigurðsson alþingismaður:
Ut í hött að sjómenn eigi ekki
að beina kröfum til útvegsmanna
„ÉG tel að ekki hafi verið rétt að
þessu staðið," sagði Pétur Sig-
urðsson, alþingismaður. er Mbí.
spurði hann í gær álits á siðustu
Kiwanishreyfingin á íslandi
heldur K-dag 18. októher n.k. Þá
afla Kiwanismenn fjár til styrktar
geðsjúkum og vinna undir orðun-
um „gleymum ekki geðsjúkum"
eins og á K-degi 1977.
Á K-degi vilja Kiwanismenn
minna alla landsmenn á vandamál
geðsjúkra og þá aðstöðu sem þeim
er búin í okkar þjóðfélagi. Þar sem
geðsjúklingar eiga erfitt með að
berjast fyrir hagsmunamálum sín-
um, vilja Kiwanismenn rétta þeim
hjálparhönd.
í því augnamiði selja Kiwanis-
menn K-lykilinn 18. október nk., og
rennur allur ágóði af sölu lykilsins
til að byggja endurhæfingarheimili
fyrir þá geðsjúklinga, sem hafa
verið undir læknishendi, eftir dvöl á
sjúkrahúsi, áður en þeir hverfa til
síns heima.
Að mati sérfróðra manna er
fiskverðsákvörðun og hækkun
olíugjalds. „Ég tel, að það sam-
komulag sem varð með hags-
munaaðilum i vetur hafi náðst
þörfin fyrir slíkt heimili mjög brýn,
og myndi létta mjög á geðsjúkra-
húsunum.
Það er því von Kiwanishreyf-
ingarinnar að íslendingar taki vel á
móti Kiwanismönnum á K-degi og
kaupi af þeim K-lykilinn.
(Fréttatilk.)
meðal annars vegna þess að
oliugjaldið var stórlækkað og þvi
sé i raun nú verið að rifta þeim
kjarasamningi.
Alþingi á ekki að samþykkja að
þetta olíugjald komi á aftur, fyrr
en aðilar eru búnir að koma sér
saman um nýjan kjarasamning.
Það er út í hött, þegar formaður
Landssambands íslenzkra útvegs-
manna segir, að sjómenn eigi ekki
að beina kröfum til útvegsmanna.
Sjómenn hafa ekki að öðrum að
snúa sér en útgerðarmönnum, sem
þarna voru í samkrulli með ríkis-
stjórninni.
Annars er það auðvitað ekkert
annað en sjálfsögð kurteisi Al-
þingis að bíða með málið eftir
sjómannasambandsþingi, sem
hefst 23. þessa mánaðar."
Heimilislínan
fyrir unga fólkið
wl
Handunnin matar- og kaffisatt, ésamt ýmsum nytjahlutum úr karamik og steinlair. Furuhúsgögnin vekja mikla athygli og það að veröleikum.
HAGSTÆÐ hi
GREIÐSLUKJÖR L*-T
HÖFDABAKKA 9
SIMI 85411
REYKJAVÍK
Safna fé til að
styrkja geðsjúka
□ DÚN WATTEFNI 165 gr.
□ HÖNNUN COLIN PORTER.
□ VERÐ FRÁ 46.900.-.
Fæst hjá
OmKARNABÆ
* og einkasöluaðilum hans um land allt