Morgunblaðið - 14.10.1980, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980
Veröur vélritun
aö iöngrein?
Jónas Kristjánsson,
skrifar forystugrein í
Oagblaóið í gær, þar sem
fjallar um þá nýju tækni,
sem rutt hefur sér til
rúms viö blaöafram-
leióslu og bókageró og
vióhorf í þeim málum nú,
en þau hafa sem kunnugt
er mjög verið til umræóu
milli fulltrúa prentara og
prentiónaöarins. Full-
trúar verzlunarmanna og
blaóamanna hafa bland-
ast inn í þær umræóur.
Jónas Kristjánsson segir:
„Ritvélin er penni nú-
tímans, enda er farió aó
kenna vélritun í grunn-
skólum og framhalds-
skólum. Samtök verzlun-
armanna hafa ekki krafizt
einkaréttar eóa forgangs
aó öllum hinum margvís-
legu störfum, sem fela í
sér vélritun.
Þannig hafa verzlunar-
menn t.d. ekki heimtað,
aó blaðamenn hættu vél-
ritun og færu aó lesa
verzlunarlæróu fólki efni
sitt fyrir til vélritunar.
Verzlunarmenn hafa ekki
heldur krafizt forgangs
aó tölvuritvélum
prentsmiójanna.
Samtök prentara hafa
aftur á móti krafizt aó-
gangs aó núverandi
störfum félagsmanna
Blaöamannafélags ís-
lands og Landssam-
bands íslenzkra verzlun-
armanna. Þeir vilja for-
gang aó skermaritvélum
á ritstjórnum og auglýs-
ingadeildum.
Skermaritvélar eru
komnar í notkun í blaða-
mennsku og kunna síðar
aó veróa teknar í notkun
hjá starfsfólki auglýs-
ingadeilda. Samkvæmt
gildandi kjarasamningi
bókagerðarmanna má
utanstéttarfólk nota
þessi tæki.
Nú vilja samtök bóka-
geróarmanna hins vegar
ná forgangi aö þessum
tækjum, einkum þó í
auglýsingadeildum. Um
þaó stendur mesti styr-
inn í kjarasamningunum.
Allt sáttastarf á vinnu-
markaónum strandar á
þessu atriöi.
Rafmagnsþræðir flytja
hió vélritaða efni skema-
ritvélanna inn í tölvu-
minni. Þaöan er hægt að
kalla efnið og vióbótar-
upplýsingar tölvunnar til
skermaritvéla verkstjóra,
handritalesara og hönn-
uóa til breytinga og full-
vinnslu.
Hönnuöir velja efninu
letur og mál á skermarit-
vélum, senda þaó síðan
aftur til tölvunnar og láta
hana skrifa efnið í formi,
sem er tilbúió til um-
brots. Þannig hverfur úr
sögunni eiginleg setning
í gömlum stíl.
í auglýsingadeildum
gegna þessar tölvur víö-
tækara hlutverki. Þær eru
bókhaldsvélar og ganga
frá auglýsingareikning-
um. Þær höggva ekki
aóeins á setningu, heldur
einnig á bókhaldsvinnu
og vélritun reikninga."
Skermarit-
vélar og bóka-
geröarmenn
Síóan segir Jónas
Kristjánsson:
„Talsmenn prentara
hafa haldið því fram, aó
meöferð skermaritvéla sé
flóknari en meóferó
venjulegra ritvéla og sé á
þeirra verksviöi. Samt
eru lærðir bókageróar-
menn ófáanlegir til að
vinna vió tölvuritvélar
prentsmiöjanna.
Formaöur Blaða-
mannafélags islands hef-
ur sagt, að vinnan vió
skermaritvélarnar geri
starf blaóamanna mun
auðveldara en áóur var.
Byggir hann þar á þeirri
reynslu, sem þegar hefur
náóst hjá blaóamönnum
hér á landi.
Þá hefur formaður
Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur lýst undrun
sinni yfir, aö samtök
bókageröarmanna skuli
seilast til starfa, sem
hingaó til hafa verió unn-
in af félagsmönnum í
samtökum verzlunar-
manna.
Í Ijósi þessara ummæla
er ekki auóvelt að sjá,
hvernig samtök prentiön-
aóarins geta staðió í viö-
ræóum viö samtök bóka-
geróamanna um störf
blaóamanna og verzlun-
armanna, um vélritun,
sem bókagerðarmenn
hafa ekki viljaö læra
hingaö til.
í gildandí kjarasamn-
ingum um þessa tækni,
sem þýddir eru úr nor-
rænum samningum, eru
ákvæöi um atvinnuöryggi
bókageróarmanna og
endurhæfingu, þeim að
kostnaöarlausu. Þessi
ákvæói eiga að hindra
atvinnuskort bókagerð-
armanna.
Hingaó til hefur ófag-
lært fólk oröið að taka að
sér störf vió tölvuritvélar
prentsmiója vegna skorts
á vilja læröra bókagerö-
armanna. Það er því mik-
ió spé, ef gera á vélritun
að löggiltri iðngrein
hinna áhugalausu.11
Rafgeymar eru ekki allir eins
★ Tudor — já þessir meö 9 líf.
★ Tudor rafgeymar í allar geröir farartækja.
★ Judor rafgeymar eru á hagkvæmu veröi.
★ ísetning á staönum.
Skipholt 35. — Sími: 37033
TUDOR rafgeymar
fá hæstu einkunn tæknitímaritanna.
Komiö og fáiö ókeypis eintak af niöurstööum
óháöra rannsóknarstofnana.
Nýtt íTopp Class aö Laugavegi 51.
Gullhúdadir amerískir skartgripir:
ökklakeðjur — hálsmen — armbönd —
klemmdir eyrnalokkar — árspenna +
eyrnalokkar — Chanel ilmvötn og baö-
vörur — hárskrautiö aldrei fjölbreyttara
en nú.
Innilega þakka ég öllum, sem glöddu mig með
höfðinglegum gjöfum, blómum og skeytum á
85 ára afmœli mínu þann 3. október.
MARGRJET HALLDÓRSDÓTTIR
Furu & grenipanell.
Gólfparkett — Gólfborö —
Furulistar — Loftaplötur —
Furuhúsgögn — Loftabitar
— Flarðviöarklæöningar —
Inni- og
eldhúshuröir
Plast og
spónalagöar
spónaplötur
HARÐVIÐARVAL HF
Skemmuvegi 40 Kópavogi 74111.
Grensásveg 5 Reykjavík 84727.
Kassettur
beztu kaup landsins
\ .( r'
1 spóto 5 spólur
60 mínútur kr. 1000 kr. 4500
90 mínútur kr. 1400 kr. 6500
Heildsölu
birgöir