Morgunblaðið - 14.10.1980, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.10.1980, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980 Barnið með miðann: Lítil, feimin, fjögurra ára gömul stúlka kemur út í búð með saman- brotinn miða hjá peningunum í buddunni og segir við afgreiðslu- stúlkuna: „Ég á að fá það sem stendur á miðanum," og réttir henni budduna með öllu saman. Búðarstúlkan heilsar henni vin- gjarnlega, les miðann og týnir saman vörurnar. Sú litla fylgir hverri hreyfingu hennar og ljómar af ánægju þegar hún fær sjálf að hjálpa til. Búðarstúlkan reiknar út verðið, tekur peningana úr buddunni, lætur afganginn ásamt samlagningarmiðanum í hana aft- skiptum. Það nýtur jafnmikillar virðingar, og jafnvel enn meiri vináttu en þótt um fullorðna manneskju væri að ræða. Þegar ferðunum í búðina fjölg- ar, þarf sjaldan að skrifa á miða það sem á að kaupa, og hún veit jafnvel hvar hlutirnir eru, svo má alltaf treysta á hjálp afgreiðslu- fólksins ef á þarf að halda. Fari svo að einhverntíma séu ekki nógu miklir peningar í buddunni, veit afgreiðslufólkið að óhætt er að treysta börnunum til að fara með vörurnar og koma með peningana seinna. Gmnnskóli vió- skiptalífsins ur og lætur síðan allt saman í stóran og sterkan poka. Sú litla arkar af stað heim á leið ánægð og hreykin, vegna þess, að hún er í alvöru að hjálpa mömmu með innkaupin. FJojíurra ára — og fulljíildur aðili í viðskiptalífinu Þessi hversdagslegi atburður þykir okkur svo eðlilegur og sjálfsagður, að við veitum honum varla athygli. Ég tel hins vegar að hér sé um merkilegt atvik að ræða. Fjögurra ára gamalt barn er tekið sem fullgildur aðili að við- - eftir Óskar Jóhannsson Aldrei hefur barn brugðizt því trausti i minni verzlun i þau tæp 30 ár sem hún hefur starfað. NotadrjÚK reynsla Ef við gerum ráð fyrir að litla stúlkan hjálpi mömmu sinni við innkaupin næstu tvö árin, veit hún meira um verzlun og viðskipti 6 ára gömul, en margir unglingar 16 ára sem ekki hafa átt þess kost að komast í snertingu við störf full- orðna fólksins. Leikur barna mótast öðru frem- ur af að líkja eftir störfum fullorðna fólksins. Ekkert jafnast þó á við alvöru þátttöku í hinum ýmsu störfum sem eru fræðandi og þroskandi og munu alltaf koma sér vel á lífsleiðinni. í því sam- bandi detta mér í hug ummæli eins fyrrverandi viðskiptaráð- herra, sem aðspurður sagðist hafa töluvert vit á verzlun, því hann hefði oft verið sendur út í búð þegar hann var strákur! Þótt merkilegt kunni að virðast hefur sá lærdómur dugað honum það vel, að hann stóð sig alls ekki verr en aðrir viðskiptaráðherrar íslenska lýðveldisins. Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson: Er verðlagsráð leynifélag? Matthías Bjarnason, alþingis- maður, á vart nógu sterk orð til að lýsa hneykslun sinni á því, að ég skuli ekki skýra í fjölmiðlum hvers vegna ég sat hjá við atkvæðagreiðslu síðustu fisk- verðsákvörðunar. Mín reynsla er sú að Verðlags- ráð, eða réttara sagt yfirnefndir þess, séu síður en svo nokkur leynifélagsskapur, því niðurstöð- ur mála á þeim vettvangi ein- kennast mjög af bókunum og margháttuðum yfirlýsingum, sem menn gjarnan vilja kom á framfæri í fjijlmiðlum, ejns og fjölmörg dæmi sýna. Hinsvegar búum við ennþá í þeim heimshluta þar sem mönnum er bæði frjálst að tala eða þegja, og þá einnig að kjósa þann vettvang þar sem skýrt er frá málum. Það mun ég gera á fundi umbjóðenda minna í þess- ari viku og þar sem Matthías á væntanlega einhvern vin í þeim hópi, verður þetta ekki neinn leyndardómur fyrir honum leng- ur. Ekki mun standa á mér að ræða málið opinberlega við Matthías ef honum þykir þá tilefni til. Refabú í Krisuvik: Byrja með 280 blárefi í desember næstkomandi REFABÚ mun taka til starfa i Krísuvík á Reykjanesi síðar á þessu ári, væntanlega i desember. Til að byrja með mun búið verða með 200 læður og 80 steggi, en stefnt er að þvi að fjölga dýrun- um þegar á næsta ári. Hlutafélag mun standa að rekstri búsins, en aðaleigendur eru þeir Jón M. Magnússon og Tómas Stefánsson. Jón sagði i samtali við Morgun- blaðið í gær, að þeir hefðu keypt af Hafnarfjarðarkaupstað gömul gróðurhús í Krísuvík, sem þeir hefðu nú endurbyggt og útbúið til refaeldis. Þá hefur Hafnarfjarðar- bær leigt þeim landsvæði í Krísu- vík, og jafnframt aðgang að hluta af íbúðarhusi sem þar er. — Hinn helming íbúðarhússins hafa eig- endur svínabús í Krísuvík nýtt. Jón kvað Iíklegt að tveir menn myndu vinna við búið í fyrstu, en þó gæti verið að fleiri yrðu þar að ieggja hönd á plóg, því ætlunin væri að fóður handa dýrunum yrði sérstaklega unnið í fóðurverk- smiðju sem nú er unnið að upp- setningu á í Hafnarfirði. — Eig- endur refabúsins munu jafnframt eiga og reka fóðurvinnsluna. Fóðr- ið verður um 85% úr fiskúrgangi, en afgangurinn úr kjötmeti. Jón M. Magnússon sagði, að leyfi hefði fengist fyrir 300 læðum þegar á þessu ári, en vegna þess að ekki hefði verið rými fyrir svo mörg dýr hefði verið ákveðið að taka aðeins 200 kvendýr í fyrstu. Ætlunin væri hins vegar að fjölga dýrunum þegar á næsta ári sem fyrr segir, upp i 300 læður. Vonir standa til þess, að sögn Jóns, að þegar á næsta ári verði unnt að fella milli 12 og 14 hundruð yrðlinga, en fleiri síðar. Um 100 þeirra kvendýra sem fyrst munu koma, verða ungar læður, en 100 eldri. Fjöldi yrðlinga er meiri hjá eldri dýrunum Refirnir sem hingað koma eru blárefir, af sama kyni og þeir sem nú eru á Grenivík við Eyjafjörð, og koma þeir frá sama stað í Skotlandi. Eigendur hins nýja refabús hyggjast skipta við fyrirtækið Hudson Bay í Lundúnum. „Verð refaskinna er mjög í lægð núna,“ sagði Jón M. Magnússon að lokum, „en við verðum að vona að það fari hækkandi." Sinfóníutónleikar Starfsárið 1980—1981 er haf- ið og nú er aðalstjórnandinn Jean-Pierre Jacquillat, en hann mun stjórna helming allra tón- leika sveitarinnar. Fernir tón- leikar verða undir stjórn Páls P. Pálssonar, þrennir undir stjórn Gilbert Levine, en Kar- sten Andersen og Wolsemar Nelson fá einn hvor. Efnisskráin ber þess nokkur merki að verkefnavalsnefnd hef- ur talið rétt að taka ekki áhættu með eitt eða neitt og valið einungis allt það besta og vin- sælasta. Aðeins tvö ný „íslensk" verk verða á efnisskránni, svo að ekki er ástæða til að hræðast neitt. Söngurinn er ofarlega á blaði, sem ber að fagna og er ráðgert að flytja tvær óperur. Einnig verða þrennir tónleikar, þar sem verkefnin eru nefnd „Úr ýmsum óperum", „Atriði úr am- erískum söngleikjum" og „Vínar- kvöld". Sænsk tónlist fær svip- aðan „kvóta" og íslensk. Vita- skuld er það þýðingarmikið hversu tekst til um val verkefna og einnig hvaða einleikarar taka þátt í flutningnum, en aðalatrið- ið er, að búið sé vel að hljóm- Tónllst eftir JÓN ÁSGEIRSSON ing lá við því ódæði að raula lagstúf. Hvað svo sem framtíðin mun skammta okkur, er það stað- reynd, að hér á landi starfar sinfóníuhljómsveit og hefur í nokkra áratugi unnið að því að færa íslendinga nær því að geta talist siðmenntuð þjóð. Hvort skammsýnum og illa gerðum menningaróvinum tekst að snúa sögunni við, veit enginn í dag, en því spái ég, ef svo tekst til, að það verði ekki talin minni ógæfa en sá atburður, er einn lítilfjör- legur prestur lét brenna allt bókasafn Helgafellsklausturs. Fyrstu tónleikar Sinfóníu- hljómsveitar íslands voru mjög glæsilegir og var hápunktur þeirra einleikur meistara Erl- ings Blöndals Bengtssonar í D-dúr-cellókonsert Haydns. Meistari Erling Blöndal Jean-Pierre Jacquillat Bengtson sveitinni, því það er hún sem ber hita og þunga þess starfs sem liggur að baki tónleika Sinfóníu- hljómsveitarinnar. Strengja- sveitin er of fámenn, sem helst verður bagalegt er mest á reynir, eins og t.d. í stærri sinfónískum verkum, sem ávallt hljóta að vera meginviðfangsefni sinfón- íuhljómsveita og aðalhlustunar- gaman hijómleikagesta. Fjármál hljómsveitarinnar eru sérkenni- legt mál, en í þeirri umræðu er aldrei rætt um hversu þeir fjármunir, sem til hennar eru lagðir, dreifast um samfélagið og koma aftur í ríkiskassann og viðhalda auk þess að sínum hluta, margslungnu hringferli fjármuna í samfélaginu, sem er forsenda farsældar, ekki síður en blómleg verðmætasköpun. I stað þess að líta á starfsemi hljómsveitarinnar eingöngu sem kostnaðarlið, verður að líta á hann sem eina umferð í marg- földunarferli fjármuna. Þá má einnig sjá starfsemi hennar í samanburði við þá stöðu, ef hún væri ekki fyrir hendi, hvað kæmi í staðinn, áhrif á atvinnumögu- leika fjölda manna, sem með ýmsum hætti tengjast þessum umsvifum og einnig verslunina í landinu. Til að sjá þessa stöðu greinilega, verður útrýmingin að vera algild og mætti benda á, að austur í Kína var einu sinni keisari, er lét banna alla tónlist- ariðkun og voru öll hljóðfæri eyðilögð og allar tónlistarbækur brenndar og snyrtileg hálsstytt- Önnur verkefni tónleikanna voru einnig í D-dúr og hófust tónleik- arnir á Sinfóníu op. 18 nr. 4 eftir yngsta son „gamla Bachs", Jo- hann Christian, sem ýmist gekk undir nafninu Mílanó-Bach eða Lundúna-Bach. Hann samdi mikið af góðri tónlist og þar í er að finna um 50 sinfóníur, 31 sinfóníur-consertante, 37 kon- serta og 38 píanósónötur, svo eitthvað sé nefnt. Johann Christian hafði mikil áhrif á tónstíl Mozarts, svo mjög, að segja má að í nokkrum tilfellum sé um að ræða nánast stælingar Mozarts á verkum Johanns Cristians. Siðasta verkið á efn- isskránni var „önnur" sinfónían eftir Brahms. I flutningi verks- ins vantaði mikið á að Brahms nyti sín til fulls, bæði hvað snerti mótun blæbrigða og jafn- vægi milli strengja og blásara. Hraðavalið var á þann hátt, að á nokkrum stöðum vantaði þann þunga og alvöru sem öll tónlist Brahms býr yfir, jafnvel þar sem hann slær á létta og glaðlega strengi. Eins og að framan greinir lék meistari Erling Blöndal Bengtsson D-dúr-kon- sertinn eftir Haydn og man undirritaður eftir því, eins og það hefði gerst í gær, er hann á fermingaraldri lék þennan sama konsert í Austurbæjarbíói fyrir rúmum 30 árum. Tækni meistar- ans er óumdeilanleg en hann gefur meira en sýnikennslu í tækni. Hann gæðir tónflutning- inn lífi er ber merki sérkenni- legu listfengi mikils listamanns. Jón Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.