Morgunblaðið - 14.10.1980, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.10.1980, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980 JARÐSKJÁLFTARNIR í ALSÍR El Asnam, 13 október. — AP. Niðurbrotinn og hrörlegur fullorðinn maður stóð við rústir sem eitt sinn var heimili hans og tautaði í sifellu fyrir munni sér: „Vilji Guðs, vilji Guðs“. Undir rústunum voru börnin hans fimm og eiginkona grafin. „Ég var ekki í bænum þegar skjálftinn reið yfir og er ég kom til baka var húsið mitt rústir einar. Ég heyrði köll konu minnar undan haugnum, en gat ekkert fengið gert. Ég heyrði köllin enn í gærkvöldi en miklu daufari. Og nú heyrist ekkert neðan úr rústunum,“ sagði maðurinn og bætti því við að kona hans og börn væru að öllum li Á svæðinu voru svissneskir björgunarmenn að leita í rústunum i þeirri von að finna einhverja á lífi. Mörgum hefur verið bjargað á lífi út úr rústunum frá því á föstudagskvöld, en óttast er að um eða jafnvel yfir 20.000 manns hafi farist í jarðskjálftanum. í morgun höfðu lík rúmlega fimm þúsund manna fundist. Á.m.k. fjórðungur allra bygginga í E1 Asnam jafnað- ist algjörlega við jörðu og flest önnur hús skemmdust meira eða minna í skjálftanum. Björgunarmennirnir sögðust ekki vongóðir um að fjölskylda mannsins væri á lífi, hún væri líklega of djúpt grafin í rústunum. Með aðstoð sérþjálfaðra hunda hefðu 13 fórnarlömb jarðskjálft- anna fundist undir húsarústinni, og aðeins eitt þeirra verið á lifi, en mikið slasað. Sveit franskra hjálparsveitar- indum dáin. dag. Þúsundir hermanna, lögreglu- manna, slökkviliðsmanna o.fl. hafa lagt nótt við dag við björgunar- störfin á Wilaya-svæðinu, en þar býr yfir ein milljón manna. Talið er að fimmtungur íbúa hafi slasast eða misst eigur sínar í skjálftanum og að a.m.k. eitthundrað þúsund séu heimilislausir eftir skjálftana. Annars hefur reynst erfitt að átta sig alveg á eyðileggingunni og afleiðingum skjálftanna, því allt símasamband við skjálftasvæðið rofnaði á föstudag. Einnig urðu miklar truflanir á rafmagnsfram- leiðslu og vatnsveitur skemmdust víða. íbúum hefur verið skipað að yfirgefa mörg þorp og bæi á svæðinu þar sem óttast er að farsóttir kunni að brjótast út. Aðal eyðileggingin var á svæði sem afmarkast af 30 kílómetra radíus frá E1 Asnam. Auk eina stóra hótelsins í E1 Asnam jafnað- . mHP a , i | mr"'* ''éhMi- Slökkviliðsmenn i E1 Asnam bera stúlku á sjúkrabörum er þeir fundu grafna i rústum húsa er hrundu til grunna í jarðskjálftanum í norðvesturhluta Alsír á föstudag. Símamynd — AP. „Vilji Guðs, vilji Guðs...“ manna leitaði í rústum Chelif hótelsins, eina stóra hóteli bæjar- ins, en talið er að í rústunum séu um 300 manns, gestir og starfsfólk hótelsins. Við leitina nota hjálpar- sveitarmennirnir einnig sérþjálf- aða hunda, sem ætlað er að finna menn er grafast undir snjóflóð. Engin von var til þess að einhver fyndist á lífi í rústunum, því hótelið jafnaðist gjörsamlega við jörðu í skjálftanum. Við hliðina á hótelinu voru rústir dómhússins í E1 Asnam. Hundarn- ir sérþjálfuðu fundu konu dómar- ans og barn þeirra á lífi á sunnu- dagsmorgun, en ekki fannst dóm- arinn. Áfast við dómshúsið voru íbúðir dómara og saksóknara. Björgunarmenn kváðust hafa heyrt hróp lítillar stúlku neðan úr rúst- unum fram á sunnudagsmorgun, en þeir fundu hana aldrei. 100.000 heimilislausir Þannig hefur verið leitað allt frá því að skjálftarnir hófust á föstu- ist helzta bænahús bæjarins við jörðu, en þar voru fjölmargir við bænir er skjálftarnir riðu yfir. Einnig jafnaðist við jörðu blokkar- bygging sem þrjú þúsund manns bjuggu í og stærsta sjúkrahús bæjarins. Margir létust í fjalla- þorpum í nágrenni E1 Asnam. Þorpin einangruðust þar sem aurskriður lokuðu vegum og flest- allar brýr á svæðinu brotnuðu. Björgunarstarf á jarðskjálfta- svæðunum í Alsír er mjög um- fangsmikið og hefur hjálp borist víða að. Fjöldi ríkja hefur lagt fram fjárhagsaðstoð. Þó hefur Chadli Bendjedid forseti orðið að afþakka ýmsa aðstoð, á þeirri forsendu að þar í landi væru menn ekki í stakk búnir til að taka á móti allri þeirri aðstoð sem bauðst. Fyrirskipuð hefur verið sorgarvika í Alsír vegna jarðskjálftanna. Rjúkandi rústir „Það greip mig skelfing. Undir fótum manns lék jörðin á reiði- skjálfi. Að vísu byrjaði skjálftinn rólega, en magnaðist ört og eftir um 15 sekúndur lék allt á reiði- skjálfi. Ég vissi hreint ekki hvað var á seiði. Og áður en okkur tókst að komast út úr bifreiðinni lá hún á hvolfi fyrir utan veginn," sagði franskur ferðalangur sem var á leiðinni út úr E1 Asnam er jarð- skjálftarnir byrjuðu á föstudag. „Og er ég leit í kring um mig virtist allt á ferð og flugi. Fólkið hljóp öskrandi út úr húsum sínum, rétt eins og það væri sturlað. Hávaðinn var óbærilegur og ógnvekjandi. Rauður reykur steig upp af rústum húsanna er þau jöfnuðust við jörðu eitt af öðru. Brúin sem við höfðum ekið yfir hálfri mínútu áður hrundi, við vorum þeir síðustu sem fórum yfir hana. Skjálftinn leið fljótt hjá, en samt var þetta eins og maður væri með mikla sjóriðu. Ég hélt að nú væri kominn heimsendir, svei mér þá“. Upptök jarðskjálftans rcyndust vera svo til beint undir bænum El Asnam. Á þessari teikningu má sjá afstöðu borgarinnar miðað við Algeirsborg. Á svæðinu þar sem skjálftinn átti upptök sín búa um ein milljón manna og hefur a.m.k. fjórðungur þeirra misst heimili sin. Vart varð við skjálftann i borginni Valencia á Spáni. Þetta stórhýsi hefur lagst á hliðina og ónýtzt, eins og svo mörg önnur Leitað i rústum húsa er hrundu i jarðskjálftanum á föstudag. i E1 Asnam.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.