Morgunblaðið - 14.10.1980, Side 46
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980
Fólk og fréttir í máli og myndum
• Spánska félatdA Atletico
Madrid hefur rekið Heimut
Senekowitsch. Helmut (?at
sér gott orð sem landsliös-
þjálfari Austurríkis i siö-
ustu heimsmeistarakeppni.
• Diego Maradonna skoraði
sex mörk fyrir lið sitt. Arg-
entina Juniors, gegn San
Lorenzo. Siðasta mark hans
var 100. mark hans siðan
hann gerðist atvinnumaður i
knattspyrnu. Maradonna er
aðeins 19 ára gamall.
• Þekkið þið stilinn? Þetta er
sami stíll og gaf Sebastian Coe
gullverðlaunin i 1500 metra
hlaupinu á ól-leikunum i Moskvu
siðastliðið sumar. Þeir segja að
stillinn fylgi ættinni. Stúlkan á
myndinni er engin önnur en
systir Coes, Miranda, 22ja ára
gömul, og vinnur sem dansari i
Las Vegas. í frítimum stundar
hún skokk af miklum krafti eins
og svo fjölmargir vestan hafs.
KNATTSPYRNUMÓTI Keflavík
ur 1980 er nýlokið. Keppt var í
fimm aldursflokkum og var leik-
in tvöföld umferð í öllum flokk-
um.
Ungmennafélag Keflavikur
sigraði með miklum glæsihrag og
hlaut 17 stig en Knattspyrnufé-
lag Keflavikur hlaut 3 stig.
Úrslit einstakra leikja urðu
þessi:
2. flokkur UMFK - KFK 4:1
2. flokkur UMFK - KFK 2:1
3. flokkur UMFK - KFK 1:1
3. flokkur UMFK - KFK 3:4
4. flokkur UMFK - KFK 2:0
4. flokkur UMFK - KFK 1:0
5. flokkur UMFK - KFK 4:0
5. flokkur UMFK - KFK 4:2
6. flokkur UMFK - KFK 4:0
6. flokkur UMFK - KFK 2:1
HIN árlega firmakeppni Gróttu í
knattspyrnu innanhúss verður í
íþróttahúsi Seltjarnarness síð-
ustu helgina i októher og fyrstu i
nóvember.
Keppt verður um Gróttuhikar-
inn, sem nú er i vörslu starfs-
mannafélags Pósts og sima.
Fjöldi leikmanna i liði er 7 og
leiktimi er 2x7 min. Þátttöku-
gjald er kr. 40.000.
• Fyrir nokkru fór fram maraþonhlaup frá Kambahrún og til
Reykjavíkur. Hlaupið endaði við sundlaug Vesturbæiar. Á myndinni
má sjá einn þátttakandann á lokasprettinum, Högna Óskarsson lækni.
Siðasta spölinn hljóp kona hans með honum. Högni keppti hér á árum
áður með KR i frjálsum iþróttum. Hann er liklega sá eini hér á landi
sem keppt hefur í hinu fræga Boston-maraþonhlaupi. Högni varð i
fjórða sæti í hlaupinu hér, fékk timann 2.58,16 klst.
j Námskeiðinu lauk með
j balli í samkomuhúsinu
^ ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Grettir efndi til íþrótta- leikjanámskeiðs á
k Flateyri i sumar. Námskeiðið stóð yfir i 6 vikur og þjálfari var
5 Steinunn Guðnadóttir iþróttakennari.
Þátttakendur voru um 60 talsins, frá 4ra ára til 14 ára aldurs.
I Ákveðin dagskrá var á hverjum degi og börnunum skipt eftir aldri.
^ Stundaðar voru frjálsar iþróttir, knattleikir og farið í ferðalög.
h Foreldradagur var siðasta dag námskeiðsins, eða þann 15. ágúst
I siðastliðinn. Þá komu foreldrarnir út á völl með börnunum og fóru
^ með þeim í leiki. Um kvöldið var diskótek í samkomuhúsinu, þar sem
■ þátttakendur námskeiðsins voru samankomnir ásamt foreldrum.
V Þannig lauk sumarnámskeiðinu með dansi og leikjum til miðnættis.
íþróttafélagið Grettir hélt barna- og unglingamót á Flateyri 10.
^ ágúst sl. Þátttakendur voru um 90 talsins frá félögum innan HVÍ.
Mótið gekk mjög vel og góður árangur náðist. Mótstjóri var Björn
J Ingi Bjarnason og kynnir Emil Hjartarson, undirbúning annaðist
I Steinunn Guðnadóttir.
wummmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm,
• Enski landsliðsmaðurinn Pet-
er Barnes var að ganga í það
heilaga með Alison Garrathy.
Barnes leikur eins og kunnugt er
með West Bromwich Albion. Það
fylgir sögunni að þrátt fyrir
brúðkaupið hafi kappinn orðið
að mæta á æfingu um eftirmið-
daginn.
lliTgQHfa
• Sænski skíðakóngurinn Ingemar Stenmark æfir oft á sumrum i
Tyrol og itölsku Ölpunum. Þar ferðast menn mikið með þyrlum og því
ekki svo vitlaust að hafa próf í þyrluflugi. Stenmark tók að læra og
hefur nú sjálfsagt hlotið réttindi. Hér má sjá Stenmark við
stjórnvölinn. fjær á myndinni.
Ársþing FSÍ
ÁKVEÐIÐ hefur verið að halda
ársþing FSÍ laugardaginn 15.
nóvember 1980, kl. 13.00, í Hreyf-
ilshúsinu v/Grensásveg, Reykja-
vik.
Fulltrúafjöldi hvers aðila fer
eftir tölu virkra iðkenda fim-
leika, þannig að fyrir allt að 25
menn koma 2 fulltrúar og siðan 1
fyrir hverja 25 eða brot úr 25 upp
i allt að 100 iðkendur og þá 1
fulltrúi að auki fyrir hverja 50
iðkendur þar fram yfir.
Málefni, sem sambandsaðilar
óska eftir að tekin verði fyrir á
þinginu, skuli tilkynnt stjórn
FSI minnst 15 dögum fyrir þing-
ið.
• Eftir vel heppnað einvigi i
hnefaleikum á milli Alis og
Holmes, sem gaf af sér meiri
upphæð en nokkur önnur iþrótta-
keppni fyrr og siðar. Hafa um-
boðsmennirnir, sem stóðu að
keppninni, mikinn áhuga á að fá
Borg og McEnroe til þess að
keppa i tennis á sama stað.
Sjónvarpa á einvigi þeirra um
viða veröld svo og selja inn á
keppnina á sama verði og inn á
hnefaleikakeppnina, 500 dollara
miðann — 250.000 krónur.
• Ali er nú rétt að ná sér eftir bardagann við Holmes. Hann hefur
lítið viljað ræða við fréttamenn. Þá tók ein sjónvarpsstöðin það til
bragðs að senda hina frægu og fallegu leikkonu Bo Derek til hans og
henni neitaði Ali ekki um viðtal. Hér eru skötuhjúin að ræða saman.
• Bandarikjamaðurinn Heiden
sem vann fimm gullverðlaun á
ÓL-leikunum í Lake Placid, hætti
við að fara til Noregs og læra.
Þess i stað bauðst honum vinna
hjá ABC-sjónvarpsstöðinni og
fær hann eina milljón dollara
fyrir tveggja ára samning sem
þulur.
• Hjólreiðakeppni á hjólum eins
og þau voru framleidd árið 1858.
Já, það er keppt í ýmsum grein-
um.
• Danska landsliðið I knatt-
spyrnu leikur 9 landsleiki á
næsta ári. Þar á meðal við ísland
í Kaupmannahöfn. Þá mæta þeir
Luxemborg, Rúmeniu, Svíþjóð,
Ítalíu, Noregi, Grikklandi, Finn-
landi og Júgóslavíu.
• Sænski knattspyrnumaðurinn
Ralf Edström og kona hans,
Ingela, voru að eignast sitt annað
barn, dóttur sem heita á Jessica.
Fyrir áttu hjónin son sem heitir
Pierre.