Morgunblaðið - 14.10.1980, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980
27
• Herrar mínir og frúr, má
kynna best klædda mann í Eng-
landi. Kevin Keegan heitir kapp-
inn <»k er kunnur fyrir Kóðan leik
á knattspyrnuvellinum. Keegan
fékk veííleR peningaverðlaun
með titlinum og fékk að velja sér
nokkra alkla’ðnaði. Þá hefur
hann nýverið gert samning við
klæðskerafyrirtæki sem er að
setja föt á markaðinn undir
nafninu „Keegan look“.
• Nú voru góð ráð dýr. Hann var
húinn að ákveða að taka þátt i
golfkeppninni, en konan sagði að
það væri komið að honum að
passa. Ilvað átti hann til hragðs
að taka. Jú. sú litla var tekin
með. bundin við golfkerruna, og
þar undi hún sér vel með pelann
sinn á meðan pahbi lék aldrei
betur. Ekki svo vitlaus hugmynd.
• Einn sá fyrsti sem mætti í 65
ára afmæli hins fræga landsliðs-
þjálfara Vestur-Þýskalands,
Helmuth Schön, var markvörður-
inn frægi, Sepp Maier. A mynd-
inni óskar hann Schön til ham-
ingju með daginn. Milli þeirra
má greina Uwe Seeler, fyrirliða
þýska landsliðsins um margra
ára skcið. Helmuth Schön stjórn-
aði þýska landsliðinu í 129 lands-
leikjum sem gáfu 87 sigra. Undir
hans stjórn vann Þýskaland gull
og silfur í heimsmeistarakeppni
og varð tvívegis Evrópumeistari.
Knatlspyrna 1
Bæjarstarfs-
menn sigruöu
Sijílufirói.
FYRIR nokkru er lokið fyrir-
tækjakeppni í knattspyrnu. —
Það var Knattspyrnufél. Siglu-
fjarðar sem cfndi til þessarar
fótboltakeppni. Ba-jarstarfsmenn
urðu i fyrsta sæti, en í öðru liðið
„Húsbútur“. Alls tóku 8 íyrir-
tæki hér i hænum þátt i keppn-
inni og er keppt um farandbikar.
— Var þessi knattspyrnukeppni
hin besta skcmmtun fyrir bæjar-
búa.
— Fréttaritari
Landsmótskeppni
í knattspyrnu
NÝLOKIÐ ER keppni i suðvest-
urlandsriðli í knattspyrnufor-
keppni vegna landsmóts Ung-
mennafélags íslands er fram fer
á Akureyri næstkomandi sumar.
Fjögur lið tóku þátt í undan-
keppninni, UMFK, Njarðvík,
Grindavík, og Selfoss. Úrslit
leikja urðu þessi. IIMFK —
UMFS 5-2, UMFK - UMFG
3-0. UMFK - UMFN 2-2.
UMFN - UMFG 5-2, UMFS -
UMFN 4-1, UMFG - UMFS
6-3.
Lokastaðan í riðlinum varð
þvi þessi: Keflavík hlaut 5 stig.
Njarðvík 3, Grindavík 2, og
Selfoss 2. Tvö efstu liðin í riðlin-
um leika í úrslitakeppni lands-
mótsins á næsta ári.
• Það er hugsanlegt að samstarf
tveggja frægra sé að slitna um
þessar mundir. Brian Clough og
Peter Taylor hafa unnið saman í
25 ár á knattspyrnuvellinum. Nú
hefur Taylor gefið út b<)k sem
hann kallar „Með CIough“ og
finnst Brian þar hallað á sinn
hlut. Það voru Clough og Taylor
sem komu Nottingham Forest
upp úr 2. deild og gerðu þá síðan
að Evrópumeisturum tvö ár í röð.
Slæm aðstaða
skautamanna
FORItÁÐAMENN Skautafélags
Iteykjavíkur munu á næstunni
afhenda borgaryfirvöldum undir-
skriftalista þar sem skorað er á
borgaryfirvöld að beita sér fyrir
byggingu skautahallar. Aðstað-
an hefur um langt skeið verið
mjög óviðunandi fyrir skauta-
menn í Iteykjavík vegna þess
mislynda veðurs sem oft ríkir á
vetrum. Þrátt fyrir það hefur nú
á seinni árum verið haldið uppi
starfsemi á vegum félagsins og
árleg íshokkíkeppni farið fram
við Akureyringa. Aðalfundur
Skautafélags Reykjavíkur fór
fram 19. september í Þróttar-
heimilinu og var Ilelgi Geirsson
kjörinn formaður. Þeir sem hafa
áhuga á að gerast félagar geta
haft samhand við formanninn i
síma 85380.
• Fyrrverandi heimsmeistari í hnefaleikum. Joe Frazier, til vinstri,
hlúir hér að syni sínum Marvis, sem er að hefja feril sinn sem
atvinnuhnefaleikari. Marvis er 20 ára gamall, og vann hann sina
fyrstu keppni i þriðju lotu á rothöggi.
Á SÍÐASTA íþróttaþingi ÍSÍ
voru ýmsar merkar samþykktir
gerðar. hér á eftir fara nokkrar
þeirra:
Ölvuðum mönnum bann-
aður aðgangur að
íþróttamótum
Iþróttaþing beinir þeim
ákveðnu tilmælum til bæjar- og
sveitarstjórna, svo og annarra
aðila er þafa með rekstur íþrótta-
mannvirkja að gera, að þeir hlut-
ist til um, að algert bann verði sett
á aðgang ölvaðra manna á öll
íþróttamót hvar sem er á landinu.
Stoínun íþróttanefnda
og íþróttaráða
íþróttaþing ÍSÍ skorar á stjórn-
ir þeirra bæjar- og sveitarfélaga,
er eigi hafa starfandi á sínum
vegum sérstakar íþróttanefndir,
eða íþróttaráð, til samráðs við
íþróttasamtökin í sínum umdæm-
um, að skipa slíkar nefndir eða
íþróttaráð.
Aukinn styrkur til
íþróttastarfs
íþróttaþing ÍSÍ 1980 skorar á
bæjar- og sveitarstjórnir að auka
verulega fjárveitingar sínar til
íþróttastarfs og uppþyggingar
íþróttamannvirkja og ha(a nána
samvinnu við íþróttasamtokin og
skólayfirvöld um allar fjárveit-
ingar til íþróttamála.
Nefnd er kanni fjárþörf
íþróttahreyfingarinnar
55. íþróttaþing ÍSÍ samþykkir
að kjósa þriggja manna nefnd er
hafi það verkefni að kanna fjár-
þörf og fjáröflun íþróttahreyf-
ingarinnar.
Nefndinni er jafnframt falið að
gera tillögu um nýja tekjustofna
fyrir íþróttahreyfinguna.
Nefndin skal skila áliti sínu til
framkvæmdastjórar ÍSÍ eigi síðar
en 15. febrúar 1981.
Nefndarálit ásamt greinargerð
framkvæmdastjórnar ISÍ skal lagt
fyrir sambandsstjórnarfund ÍSÍ.
I nefndina voru kjörnir: Þórður
Þorkelsson, Sæmundur Gíslason,
Stefán Ingólfsson.
• Það er mikilvægt i öllum íþróttum að fá fljúgandi start. Ekki er
hægt að segja annað um sundmann þennan þar sem hann flýgur út í
sundlaugina í sundkeppni sem fram fór í Danmörku fyrir skömmu.