Morgunblaðið - 14.10.1980, Blaðsíða 48
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980
• Ian Wallace (lengst til
ha-gri) skoraði sÍKurmark For-
est gegn Brighton.
4f
Forest, Manchester Utd. og
Arsenal sýndu fáa snilldartakta
á laugardaginn. Forest átti í vök
að verjast gegn Brighton og
aðeins snilldarmarkvarsla Peter
Shiltons, auk klaufaskapar Peter
Ward sem nýtti ekki tvö ákjós-
anleg færi, hélt Forest á floti.
Ian Wallace skoraði eina mark
leiksins á 33. mínútu. Brighton
hefur nú keypt Andy Ritchie,
miðherjann efnilega, frá Manch-
ester Utd fyrir 500. 000 sterl-
ingspund. Mun Ritchie vafalaust
styrkja lið Brighton mjög, en
hann er hugsaður sem eftirmað-
ur Ward sem talinn er munu
ganga til liðs við Forest áður en
langt um líður. Manchester Utd.
og Arsenal bitust um stigin á
Old Trafford og var mikið fjöl-
menni mætt á völlinn. En leikur-
inn var leiðinlegur og marka-
laus. Kom tvennt til, Arsenal dró
allt lið sitt í vörn og lék síðan
stífa rangstöðuvörn. Og fram-
herjar United voru neistalausir
með öllu.
Hinn 39 ára gamli Duncan
Forbes skoraði jöfnunarmark
Norwich gegn Ulfunum á síðustu
stundu. Ken Hibbitt hafði skor-
að mark Wolverhampton strax á
fyrstu mínútu leiksins. Norwich
Hörkuuppgjöri topplióanna
lauk með sanngjörnu jafntefli
Efsta liðið í ensku deildarkeppninni, Ipswich. sótti Liverpool heim
á laugardaginn, en Liverpool er í öðru sæti. Stórveldi þessi áttu
með sér eftirminnilegan leik þar sem allt gat gerst allt til síðustu
mínútu leiksins. Liðin skildu loks jöfn. 1 — 1. og þóttu það
sanngjorn úrslit. Sýnt var í hyrjun leiksins, að leikmenn Ipswich
höfðu síður en svo í hyggju að leggjast í vörn. Liðið sótti ótrautt og
náði forystunni með marki hollenska landsliðsmannsins Franz
Thijssen á 28. mínútu leiksins. Skoraði hann með g<>ðu skoti eftir
hornspyrnu sem Mick Mills framkvæmdi. En aðeins tíu mínútum
síðar gaf dómarinn Liverpool vafasamt víti. Var Thijssen þá
sagður hafa brotið á Ken Dalglish innan vítateigs og skoraði Terry
McDermott úr vítinu af öryggi. Ipswich hefur ekki tapað
deildarleik það sem af er þessu keppnistímabili, en næsta
laugardag fær liðið Manchester Utd. í heims<jkn. Undir lok síðasta
keppnistímabils sigraði Ipswich United 6—0 á Portman Road og
verður fniðlegt að sjá hver útkoman verður nú, varla 6—0 aftur.
En rennum yfir úrslit leikja áður en lengra er haldið.
Birmingham — A. Villa 1—2
Brighton — Forest 0—1
Leeds — Everton 1—0
1. DEILD
Ipswich 10 7 3 0 IS 5 17
Liverp<M>l II M 1 2fi 10 lfi
Anton Villa II 7 2 2 18 11 Ifi
Everton II 7 1 3 21 10 15
WeKt Kromwirh II 0 3 2 11 10 15
Nottingh. Forcst II 5 3 3 19 10 13
Manchcstcr Utd. II 3 7 1 Ifi 8 13
Sundcrland II 5 3 3 17 12 13
Arscnal II 5 3 3 12 10 13
Southampton II 5 2 4 20 15 12
Tottcnham m 1 1 2 15 13 12
Stoke Clty n 1 3 1 H 20 11
Middlcshroutth ii 1 2 5 20 20 10
Covcntry City ii 1 2 5 11 18 10
Birmimtham CSty íi 2 r. \ 15 lfi 9
Lccds Unitcd n 3 3 5 9 17 9
WolvCrhampton n 3 2 0 9 15 8
BrÍKhton ii 2 3 fi 15 22 7
Lciccstcr City n 3 1 7 8 20 7
Norwich City 10 2 2 fi 13 23 fi
Manchcstcr City n 0 f 7 11 25 1
Crystal Palacc 10 1 0 9 10 24 2
2. DEILD
Wcst Ham ii 7 3 I 18 fi 17
Notts County ii 7 3 1 17 II 17
Blackhurn ii 7 2 2 17 9 Ifi
Shcffield V/cd. ii 7 í 3 Ifi II 15
Swansca City ii 5 1 2 19 11 H
Chelsca ii 5 1 2 20 H H
Orient ii 5 3 3 18 12 13
Derby County ii 5 2 1 H 15 12
Ncwcastlc ii 1 1 3 10 H 12
CamhridKc ii 5 1 5 11 1.3 11
Oldham ii 3 1 1 9 11 10
Quecns |*ark R. ii 3 3 5 15 10 9
Ifolton n 3 3 5 15 lfi 9
Wrcxham ii 3 3 5 11 12 9
Watford n 1 1 1 fi 1 113 Ifi 9
í ardiíf City ii 1 | fi 13 17 9
Preston ii 2 5 | 8 H 9
(■rimshy it 2 r 1 5 11 9
Luton Town ii 3 2 fi 9 H 8
Shrewsbury n 2 i 5 10 Ifi 8
Bristol City ii 2 3 6 7 13 7
Bristol Rovers ii 0 r fi 5 17 5
Leicester — Coventry 1—3
Liverpool — Ipswich 1—1
Manch. Utd. — Arsenal 0—0
Norwich — Wolves 1—1
Southampton — Stoke 1—2
Sunderland — Cr. Palace 1—0
Tottenham — Middlesbr. 3—2
WBA — Manch. City 3—1.
Sem fyrr segir skildu toppliðin
jöfn og var það fyrsta stigið sem
Liverpool tapar á heimavelli
sínum það sem af er keppnis-
tímabilinu. En Everton, sem
deildi öðru sætinu með Liver-
pool, gekk ekki eins vel. Liðið
mætti Leeds, sem hefur verið að
sækja í sig veðrið eftir afleita
byrjun. Leeds réði lögum og
lofum á vellinum framan af og
Alan Curtis nagaði sig í handar-
bökin í hálfleik þat sem hann
klúðraðí tveimur galopnum fær-
um. Hann bætti fyrir brot sitt í
síðari hálfleik og skoraði þá
sigurmark Leeds. Everton sótti
mjög i lokin og átti liðið þá m.a.
stangarskot.
Aston Villa gefur hins vegar
ekkert eftir, en sigur liðsins
gegn nágrannaliðinu Birming-
ham var sveipaður heppnisblæ.
Það stefndi allt í jafntefli þegar
örfáar mínútur voru til leiks-
loka, en þá skoraði miðvörðurinn
sterki, Alan Evans, upp úr þurru
með mikilli vinstri fótár spyrnu.
Aður hafði Gordon Cowans náð
forystunni fyrir Villa úr víta-
spyrnu, en Frank Worthington
jafnað metin úr annarri.
Mörgum þykir nú sýnt að
Southampton hafi verið ekkert
annað en blaðra sem hlaut að
springa áður en Iangt um Iiði.
Margt er til í því, a.m.k. er það
ekki kallað að sýna meistara-
takta, að tapa heima fyrir liði
eins og Stoke. Southampton
nægði ekki að ná forystunni úr
vítaspyrnu í fyrri hálfleik,
Ch^rlie George skoraði, Peter
Hampton skoraði sigurmarkið
eftir að Ian Munroe hafði jafnað.
Hampton, sem nýlega var keypt-
ur frá Leeds, var sá sem færði
Southampton vítið og því þótti
við hæfi að hann bætti það upp
með því að skora sigurmarkið.
WBA heldur í við efstu liðin
og leikur liðið góða knattspyrnu
þessa daganna. Að vísu var
mótherjinn á laugardaginn ekki
af sterkari endanum, en enginn
leikur í ensku deildarkeppninni
er unninn fyrirfram. Þeir Cirel
Regis og Bryan Robson léku á ný
eftir stutt hlé vegna meiðsla og
báðir skoruðu fyrir WBA í fyrri
hálfleik. Steve Daley minnkaði
muninn er City sótti í sig veðrið,
en síðasta orðið -átti John Trew-
ick, er hann skoraði á síðustu
mínútu leiksins þriðja mark
WBA.
Franz Thijssen átti stórleik
með Ipswich.
hvílir nú í einu af neðstu sætum
deildarinnar, en margir töldu
liðið líklegt til afreka í vetur,
ekki síst eftir að hafa sigrað
Stoke 5—1 í fyrsta leik hausts-
ins.
Leicester gengur einnig herfi-
lega og tapaði nú á heimavelli
fyrir Coventry. Paul Dyson náði
snemma forystunni fyrir Cov-
entry, en unglingur að nafni
Garry Lineker jafnaði fyrir leik-
hlé. I síðari hálfleik gekk síðan
allt á afturfótunum hjá Leicest-
er og þeir Ray Gooding og Tom
English skoruðu fyrir Coventry
og innsigluðu öruggan sigur.
Crystal Palace gengur enn verr
og tapaði liðið nú áttunda deild-
arleik sínum í röð. Sunderland
tók lífinu með ró og mark Garry
Rowell innsiglaði öruggan sigur.
Leikmenn Palace komust ekkert
áleiðis og voru aldrei nálægt því
að jafna.
Loks ber að geta hörkuleiks
Tottenham og Boro. Vörn Boro
hefur verið léleg það sem af er
hausti og liðið tapað leikjum út
af því. Liðið hefur nefnilega
skorað mikið. Hodgeson skoraði
fyrir Boro strax á fyrstu mínútu,
en Ricardo Villa og Garth
Crookes skoruðu fyrir Totten-
ham snemma í síðari hálfleik.
Craig Johnstone jafnaði fyrir
Boro nokkru fyrir leikslok, en
það nægði ekki til stigs, því
Steve Archibald skoraði sigur-
markið á síðustu mínútunni.
2. deild:
Bristol City 2 (Ritchie 2) —
Newcastle 0
Cambridge 3 (Christie, Lyons,
Spriggs) — Oldham 1 (Stainrod)
Chelsea 3 (Lee 2, Walker) —
Grimsby 0
N. County 3 (Harkouk, Hookes,
Christie) — Bristol R. 1 (Mabb-
utt)
Preston 1 (Elliott) — Luton 0
QPR 3 (Langley, Burke, Neal) —
Bolton 1 (Kidd)
Sheffield W. 2 (McCulloch,
Hornsby) — Cardiff 0
Shrewsbury 1 (Keye) — Orient 2
(Chiedozy, Moores)
Swansea 3 (L.James 3) — Derby
1 (Osgood)
Watford 1 (Sims) — Wrexham 0
West Ham 2 (Cross) — Black-
burn 0.
Knatt-
spymu-
úrslit
England, 3. deild:
Burnley — Roterham 1 — 1
Carlisle — Brentford 1—2
Charlton — Sheff. Utd. 2—0
Chester — Reding 1—0
Chesterfield — IIuII 1—0
Colchester — Barnsley 2—2
Exeter — Iluddersfield 1 — 1
Gillingham — Fulham 1—0
Miilwall — Swindon 3—1
Newport — Portsmouth2— 1
Oxford — Walsall 1 — 1
Plymouth — Blackpool 0—2
• *
Enuland, 4. deild:
Aldershot — Rochdale 0—0
Bury — Torquai 3—0
Crewe — Doncaster 0—0
Dariingt. — Bournem. 1—2
Ilalifax — Southend 1—5
Lincoln — York 1 — 1
Mansfield — Bradford 1—0
Port Vale — Tranmere 5—1
Scunth. — North.ton 0—2
Wigan — Peterhrough 1—1
Wimbled. — Hartlep. 5—0
Stockport — Hereford 0—0
* »
v.t#'
Skotland, úrvalsdeild:
Aberdeen — Kilmarn. 2—0
Airdrie — Morton 1—0
Dundee Utd. — Partick 0—0
Rangers — Hearts 3—1
St. Mirren — Celtic 0—2
Staðan í skosku deiidinni
er jafn óljús og áður, en þar
eru Rangers, Aberdeen og
Celtic í hnapp. Rangers og
Aberdeen hafa 15 stig, en
Celtic 14 stig. Airdrie hefur
10 stig.
• ♦
Spánn:
Hercules — R. Sociedad 2—0
Barcel. — Las Palmas 1—0
Salamanca — Osasuna 1—2
Zaragoza — Valencia 1 — 1
Real Madrid — Gijon 1—0
Valladolid — Espanol 3—1
Almeria — Murcia 0—0
Bilbao — Sevilla 3—0
Betis — Atl. Madrid 0—0
Noregur:
Mikill hasar verður í síðustu
umferð norsku deildarkeppn-
inar í knattspyrnu, en þá
ræðst hvaða lið verður norsk-
ur meistari. Úrslit leikja um
helgina urðu þessi:
Bodö — Molde 0—2
Lyn — Bryne 0—2
Moss — Fredrikstad 0—1
Rosenborg — Lilleström 1—1
Viking — Skeid 2—2
Vaalerengen — Start 2—1
Start og Bryne eru efst og
jöfn með 27 stig hvort félag.
Start mætir Rosenhorg á
heimavelli í síðasta leik sin-
um, en Bryne mætir Moss,
einnig á heimavelli. Marka-
tala Start er mun betri en
markatala Bryne. Viking og
Lilleström hafa 25 stig hvort.
félag, en bæði hafa mun
lakari markatölur en efstu
liðin og koma því ei til greina
sem meistarar. Bodö er fallið
í aðra deild og flest bendir til
þess að Skeid og Lyn fylgi
liðinu niður. Hamkam og
Brann hafa tryggt sér sæti í
1. deild að ári, en Haugar eða
Mjöndalen verða þriðja liðið
sem fer í 1. deild.
WKk