Morgunblaðið - 14.10.1980, Blaðsíða 22
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980
Tillaga
sátta-
nefndar
Hér fer á eftir tillajía sátta-
nefndar, sem afhent var ASl
og VSÍ á sáttafundi siðdeKÍs á
lauitardag ok VSÍ hafnaði. en
ASÍ taldi umræðuKrundvöIi.
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Verkamannasam-
hands íslands hefur satct um
tillöKuna. að hann vænti þess
að Alþingi lögfesti hana.
„Sáttanefnd leggur til, að
ágreiningur um eftirfarandi
kjaraþætti í deilu Vinnuveit-
endasambands Islands annars
vegar og hins vegar Alþýðu-
sambands Islands, landssam-
banda þess og aðildarfélaga,
sem samið hafa um röðun í
launaflokka samkvæmt
„kjarnasamningi", verði leyst-
ur sem hér segir:
1. Laun
a. Byrjunarlaun í hverjum
flokki verði sem hér segir
(októberlaun, miðuð við verð-
bótavísitölu, sem gildir fyrir
september—nóvember 1980):
Lfl. Kr.
G. 324.325
7. 330.812
8. 337.428
9. 344.177
10. 351.061
11. 358.082
12. 365.244
13. 372.549
14. 380.000
15. 389.120
16. 398.459
17. 408.022
18. 417.815
19. 427.843
20. 438.111
21. 448.626
22. 459.393
23. 470.418
24. 481.708
25. 493.269
26. 505.107
27. 517.230
28. 529.644
29. 542.355
30. 555.372
b. Reiknitölur ákvæðis-
vinnu byggingariðnaðarmanna
hækki um 6%.
c. Starfsaldurshækkanir
einstakra starfshópa skulu
haldast óbreyttar frá gildandi
samningum sem hlutfall af
byrjunarlaunum að öðru leyti
en því, að iokaáfangi starfsald-
urshækkunar verði eigi lægri
en 5%.
2. Verðlagsbætur
A launaupphæðir, sem í til-
lögu þessari greinir, greiðast
verðbætur frá og með 1. des-
ember 1980 skv. ákvæðum laga
nr. 13/1979, sbr. 48.-52. gr.
þeirra laga.
3. Sameiginlegar sérkröfur
Greiðsla fyrir fæði farand-
verkafólks í mötuneytum á
vegum vinnuveitenda skal eigi
vera hærri en nemur hráefn-
iskostnaði matar, samkvæmt
nánara samkomulagi milli að-
ila á hverjum stað.
4. Sérkröfur einstakra lands-
sambanda og félaga
Samkomulag um sérkröfur,
sem bókað hefur verið hjá
sáttanefnd, gildi með eftirfar-
andi viðbót:
a. Verkamannasamband ís-
lands:
Matartímar á helgidögum,
þar með taldir laugardagar,
sem falla inn í vinnutímabil,
reiknast sem vinnutímar, og sé
unnið í þeim, skal greiða til
viðbótar vinnutímanum og
með sama kaupi, 1 klst. fyrir
hvern matartíma.
b. Samband bygginga-
manna:
1. Sams konar ákvæði og í
lið 4.a.
2. Samningsaðilar skipi
starfshóp til endurskoðunar á
afkastahvetjandi launakerfum
innan byggingariðnaðarins.
5. Gildistími
Frá undirskriftardegi til 1.
nóvember 1981.“
Ólafur G. Einarsson:
Afangi á þeirri
leið, sem við vilj-
um ganga til sátta
„ÉG fagna þvi. að þingflokkur-
inn skuli standa sameinaður að
nefndakjöri. Þetta er áfangi á
þeirri leið, sem við viljum ganga
til sátta í flokknum,“ sagði ólaf-
ur G. Einarsson. formaður þing-
flokks Sjáifstæðismanna. i sam-
tali við Mbl. í gær. „Við stöndum
nú að því leytinu betur en í fyrra.
að þá lánaðist okkur ekki að
standa saman um kosningar i
húsnæðismálastjórn og stjórn
framkvæmdastofnunar ríkisins.
en nú stóðum við óskiptir að
öllum nefndakosningum.
Þetta samkomulag okkar Sjálf-
stæðismanna tryggði stjórnar-
andstöðuþingmönnum meirihluta
í átta nefndum, sem þeir hefðu
ekki fengið, ef stjórnarliðar hefðu
borið fram sameiginlegan lista.
Þessi skipan sjálfstæðismanna í
nefndir er byggð á viðræðum
þingflokksstjórnarinnar við ein-
staka þingmenn, þar á meðal
ráðherrana og Eggert Haukdal."
Mbl. spurði Olaf, hvað hann
vildi segja um þá gagnrýni, sem
Benedikt Gröndal og Kjartan Jó-
hannsson settu fram við nefnda-
kjör í deildum í gær vegna þess
hluta framboðs Sjálfstæðisflokks-
ins, þar sem ráðherrar voru í
framboði til nefndastarfa. „Þessi
seta ráðherranna í nefndum er
ósköp svipað því sem var af þeirra
hálfu áður en þeir urðu ráðherrar.
þótt ekki sé alveg um að ræða
sömu nefndir," svaraði Ólafur.
„Ráðherrarnir verða sjálfir að
svara þeirri gagnrýni, sem fram
kemur á þá af þessu tilefni.
Þingflokkur Sjálfstæðisflokks-
ins samþykkti þá í þessar nefndir
sem lið í samkomulagi um sameig-
inlegt framboð þingflokksins.
Þetta eru nefndastörf, sem þeir
sóttust eftir og þeir hljóta að
sinna sínum starfsskyldum sem
aðrir þingmenn. Persónulega þyk-
ir mér óeðlilegt, að ráðherrar sitji
í þingnefndum, en í þessu tilviki
verðum við að viðurkenna sérstak-
ar aðstæður. Ef ekki hefði orðið
samkomulag, þá hefðu þeir orðið
að fara í miklu fleiri nefndir.
Ég vil vegna ummæla Ólafs
Ragnars Grímssonar um það,
hvernig stjórnarandstæðingar
hygðust nota nefndameirihluta
sinn, undirstrika það, að stjórnar-
andstæðingar í þingflokki Sjálf-
stæðisflokksins ætla ekki að mis-
nota hann. í ummælum Ólafs
Ragnars felast ósæmilegar að-
dróttanir í garð þingmanna.
Meirihluti í nefndum hefur auð-
vitað þýðingu, en verður ekki af
okkar hálfu misnotaður. Annars
er ástæða til að ætla að Ólafur
Ragnar Grímsson hafi séð að sér,
því hann virðist hafa fellt sig við
þessa ráðstöfun okkar sjálfstæð-
ismanna á nefndaskipaninni."
Páll Pétursson:
Sterkara, ef stjóm-
in hefði meirihluta
í öllum nefndum
„ÞETTA er nokkuð skothent,
ekki er því að neita. Ég hefði
talið eðlilegra og heppilegra. að
Gunnar Thoroddsen og félagar
hans hefðu staðið með öðrum
stjórnarliðum við nefndakjörið,“
sagði Páli Pétursson. formaður
þingflokks Framsóknarflokks-
ins, í samtali við Mbl. eftir
nefndakjör á Alþingi i gær.
„Nú hafa stjórnarandstæðingar
meirihluta í 8 nefndum, en ég
hefði talið heppilegra og sterkara,
að ríkisstjórnin nefði meirihluta í
öllum nefndum. Það hefði betur
sýnt styrk ríkisstjórnarinnar, en
svo verður að búa, sem á bæ er til.
Stjórnarandstæðingar eru að vísu
yfirleitt ágætismenn svo vonandi
kemur þetta ekki að sök.
Um nefndastörf ráðherra er það
að segja, að ekkert er í þingsköp-
um, sem bannar ráðherrum að
sitja í nefndum. Ef þeir eru þeir
verkmenn að þeir geti leyst af
hendi sín störf í ráðuneytum með
þingmennsku og að auki bætt á sig
nefndastörfum, þá er það þeirra
mál.“
Ólafur Ragnar Grímsson:
Eingöngu ákvörðun
Sjálfstæðisflokks
„ÉG GET ekki séð. að það sé nein
svivirðing við Alþingi, þó ráðherr-
ar starfi i þingnefndum.“ sagði
ólafur Ragnar Grimsson, formað-
ur þingflokks Alþýðubandalags-
ins. er Mbl. ræddi við hann eftir
nefndakjörið á Alþingi i gær. þar
sem m.a. Benedikt Gröndal og
Kjartan Jóhannsson gagnrýndu
kjör ráðherra í nefndir. „Það geta
hæglega verið þau flokkahlutföll á
Alþingi. að lítill flokkur eigi aðild
að rikisstjórn og eigi þá erfitt með
að velja fulltrúa í allar nefndir.
Þarna er hætta fyrir Alþýðuflokk-
inn, ef hann heldur áfram að
minnka.
Að öðru leyti er þetta eingöngu
ákvörðun Sjálfstæðisflokksins. Og
það er sérkennilegt við þessa þing-
byrjun, að á fyrsta degi deila
stjórnarandstöðuflokkarnir út af
kjöri fyrri varaforseta Sameinaðs
þings. A öðrum degi halda stjórnar-
andstöðuflokkarnir áfram að deila.
Ég spyr bara, hvert verði þeirra
næsta deiluefni?
Aðalskoðun okkar Alþýðubanda-
lagsmanna var sú, að ríkisstjórnin
þyrfti meirihluta í mikilvægari
þingnefndum. Ég tilkynnti Gunnari
Thoroddsen það strax, að við hefð-
um ekkert við það að athuga, að
hann tryggði okkur slíkan meiri-
hluta með samkomulagi við Sjálf-
stæðisflokkinn. Það er Ijóst, að hinir
hörðu stjórnarandstæðingar í
Geirsarmi þingflokksins hafa bakk-
að frá fyrri áformum og að sá
sáttahópur, sem síðustu dagana
hefur birzt sem þriðja aflið í
þingflokki Sjálfstæðismanna fékk
því framgengt að orðið var að
verulegu leyti við óskum Gunnars
Thoroddsens með því að þingflokkur
Sjálfstæðisflokksins kaus sjálfstæð-
ismenn, sem styðja ríkisstjórnina, í
5 nefndir í efri deild og 7 í neðri,
þannig að þeir sem vildu hafna
óskum Gunnars alfarið hafa orðið
undir.
Ég hlakka svo bara til nefnda-
samstarfs við Gunnar Thoroddsen."
Nefndakjör á Alþingi:
Samstaða meðal
sjálfstæðismanna
ÞINGFLOKKUR sjálfstæðismanna, stjórnarandstaða og stjórnarliðar,
bauð fram sameiginlega við nefndakjör í Sameinuðu þingi og þingdeildum
í gær.
Allmargar þingnefndir verða óbreyttar frá fyrra þingi en i nokkrum
verða mannaskipti, sem nánar verður greint frá hér á eftir.
Nefndakjör í
Sameinuðu þingi
• Fjárveitinganefnd Sameinaðs
þings, sem er valdamesta nefnd
þingsins og starfar á sviði fjárlaga-
gerðar og ríkisfjármála, er nú þann-
ig skipuð: Lárus Jónsson (S), Guð-
mundur Karlsson (S), Friðirk Sóph-
usson (S), Eggert Haukdal (S),
Alexander Stefánsson (F), Guð-
mundur Bjarnason (F), Þórarinn
Sigurjónsson (F), Karvel Pálmason
(A) og Geir Gunnarsson (Abl). Hér
kemur Karvel í stað Eiðs Guðnason-
ar, sem var formaður fjárveitinga-
nefndar á sl. þingi, og Eggert í stað
Friðjóns Þórðarsonar, dómsmála-
ráðherra.
• Utanrikismálanefnd: Geir Hall-
grímsson (S), Albert Guðmundsson
(S), Eyjólfur Konráð Jónsson (S),
Halldór Asgrímsson (F), Jóhann
Einvarðsson (F), Benedikt Gröndal
(A) og Ólafur Ragnar Grímsson
(Abl). Hér kemur Halldór í stað
Steingríms Hermannssonar, sjávar-
útvegsráðherra. Varamenn: Matthí-
as Á. Mathiesen (S), Friðjón Þórðar-
son (S), Birgir ísl. Gunnarsson (S),
Guðmundur Bjarnason (F), Guð-
mundur G. Þórarinsson (F), Karl
Steinar Guðnason (A) og Guðrún
Helgadóttir (Abl). Hér koma Guð-
mundarnir tveir í stað Ingvars
Gíslasonar, menntamálaráðherra,
og Halldórs Ásgrímssonar.
• Atvinnumálanefnd: Eggert
Haukdal (S), Egill Jónsson (S),
Friðrik Sóphusson (S), Halldór Ás-
grímsson (F), Ólafur Þ. Þórðarson
(F), Magnús H. Magnússon (A) og
Garðar Sigurðsson (Ábl). Hér kemur
Eggert í stað Gunnars Thoroddsen,
forsætisráðherra, Garðar í stað
Stefáns Jónssonar og Magnús í stað
Karvels.
• Allsherjarnefnd: Halldór Blöndal
(S), Birgir ísleifur Gunnarsson (S),
Steinþór Gestsson (S), Páll Péturs-
son (F), Guðmundur G. Þórarinsson
(F), Jóhanna Sigurðardóttir (A) og
Guðrún Helgadóttir (Abl). Hér
koma Birgir Isleifur í stað Salóme
Þorkelsdóttur og Guðrún Helgadótt-
ir í stað Helga Seljan.
Nefndakjör í efri deild:
• Fjárhags- og viðskiptanefnd:
Eyjólfur K. Jónsson (S), Lárus
Jónsson (S), Gunnar Thoroddsen (S),
Davíð Aðalsteinsson (F), Guðmund-
ur Bjarnason (F), Kjartan Jóhanns-
son (A) og Ólafur Ragnar Grímsson
(Abl). Hér kemur Gunnar Thorodd-
sen, forsætisráðherra, í stað Þor-
valdar Garðars Kristjánssonar.
• Samgöngunefnd: Guðmundur
Karlsson (S), Egill Jónsson (S),
Lárus Jónsson (S), Stefán Guð-
mundsson (F), Jón Helgason (F),
Eiður Guðnason (A) og Stefán
Jónsson (Abl). Nefndin er óbreytt
frá fyrra ári.
• Landbúnaðarnefnd: Þorvaldur
Garðar Kristjánsson (S), Egill
Jónsson (S), Eyjólfur K. Jónsson (S),
Jón Helgason (F), Davíð Aðal-
steinsson (F), Eiður Guðnason (F) og
Helgi Seljan (Abl). Óbreytt nefnd-
arskipan.
• Sjávarútvcgsnefnd: Guðmundur
Karlsson (S), Egill Jónsson (S),
Gunnar Thoroddsen (S), Stefán Guð-
mundsson (F), Guðmundur Bjarna-
son (F), Kjartan Jóhannsson (A) og
Geir Gunnarsson (Abl). Hér kemur
Gunnar í stað Lárusar og Kjartan í
stað Karls Steinars.
• Iðnaðarnefnd: Þorvaldur Garðar
Kristjánsson (S), Gunnar Thorodd-
sen (S), Egill Jónsson (S), Stefán
Guðmundsson (F), Guðmundur
Bjarnason (F), Karl Steinar Guðna-
son (A) og Ólafur R. Grímsson (Abl).
• Félagsmálanefnd: Þorv. G.
Kristjánsson (S), Salóme Þorkels-
dóttir (S), Guðmundur Karlsson (S),
Stefán Guðmundsson (F), Guðmund-
ur Bjarnason (F), Karl Steinar (A)
og Ólafur Ragnar Grímsson (Abl).
Óbreytt skipan frá fyrra ári.
• Ileilbrigðis og tryggingarnefnd:
Gunnar Thoroddsen (S), Salóme
Þorkelsdóttir (S), Lárus Jónsson (S),
Davíð Aðalsteinsson (F), Jón Helga-
son (F), Karl Steinar Guðnason (A)
og Helgi Seljan (Abl). Hér kemur
Gunnar í stað Guðmundar Karlsson-
ar.
• Menntamálanefnd: Þorvaldur
Garðar Kristjánsson (S), Salóme
Þorkelsdóttir (S), Gunnar Thorodd-
sen (S), Jón Helgason (F), Davíð
Aðalsteinsson (F), Karl Steinar
Guðnason (A) og Ólafur Ragnar
Grímsson (Abl). Hér kom Gunnar í
stað Eyjólfs Konráðs Jónssonar.
• Allsherjarnefnd: Eyjólfur Kon-
ráð Jónsson (S), Egill Jónsson (S),
Salóme Þorkelsdóttir (S), Stefán
Guðmundsson (F), Jón Helgason (F),
Eiður Guðnason (A) og Stefán Jóns-
son (Abl). Hér kom Eiður í stað
Karls Steinars.
Neíndakjör í neðri deild:
• Fjárhags- og viðskiptanefnd:
Matthías Á. Mathiesen (S), Albert
Guðmundsson (S), Matthías Bjarna-
son (S), Halldór Ásgrímsson (F),
Ingólfur Guðnason (F), Sighvatur
Björgvinsson (A) og Guðmundur J.
Guðmundsson (Abl). Hér kom
Matthías í stað Sverris Hermanns-
sonar og Sighvatur í stað Karvels.
• Samgöngunefnd: Friðjón Þórðar-
son (S), Steinþór Gestsson (S), Hall-
dór Blöndal (S), Stefán Valgeirsson
(F), Alexander Stefánsson (F), Árni
Gunnarsson (A) og Skúli Alexand-
ersson (Abl). Nefndarskipan óbreytt
frá fyrra ári.
• Landbúnaðarnefnd: Pétur Sig-
urðsson (S), Eggert Haukdal (S),
Steinþór Gestsson (S), Stefán Val-
geirsson (F), Þórarinn Sigurjónsson
(F), Árni Gunnarsson (A) og Skúli
Alexandersson (Abl). Óbreytt nefnd-
arskipan frá fyrra ári.
• Sjávarútvegsnefnd: Matthías
Bjarnason (S), Pétur Sigurðsson (S),
Halldór Blöndal (S), Halldór Ás-
grímsson (F), Páll Pétursson (F),
Karvel Pálmason (A) og Garðar
Sigurðsson (Abl). Óbreytt nefndar-
skipan frá fyrra ári.
• Iðnaðarnefnd: Jósep H. Þor-
geirsson (S), Pálmi Jónsson (S),
Birgir ísl. Gunnarsson (S), Páll
Pétursson (F), Guðmundur G. Þórar-
insson (F), Magnús H. Magnússon og
Skúli Alexandersson (Abl). Hér
kemur Pálmi Jónsson í stað Friðriks
Sóphussonar.
• Félagsmálanefnd: Friðrik Sóph-
usson (S), Eggert Haukdal (S),
Steinþór Gestsson (S), Alexander
Stefánsson (S), Jóhann Einvarðsson
(F), Jóhanna Sigurðardóttir (A) og
Guðmundur J. Guðmundsson (Abl).
Óbreytt skipan frá fyrra ári.
• Ileil brigðis- og trygginganefnd:
Matthías Bjarnason (S), Pétur Sig-
urðsson (S), Pálmi Jónsson (S),
Jóhann Einvarðsson (F), Guðmund-
ur G. Þórarinsson (F), Magnús H.
Magnússon (A) og Guðrún Helga-
dóttir (Abl). Hér kemur Pálmi í stað
Jósefs Þorgeirssonar og Magnús í
stað Jóhönnu Sigurðardóttur.
• Menntamálanefnd: Ólafur G.
Einarsson (S), Ilalldór Blöndal (S),
Friðjón Þórðarson (S), Ingólfur
Guðnason (F), Ólafur G. Þórðarson
(F), Vilmundur Gylfason (A) og
Guðrún Helgadóttir (Abl). Hér kom
Friðjón Þórðarson í stað Birgis ísl.
Gunnarssonar.
• Allsherjarnefnd: Jósep H. Þor-
geirsson (S), Friðrik Sóphusson (S),
Éggert Haukdal (S), Ólafur Þ. Þórð-
arson (F), íngólfur Guðnason (F),
Vilmundur Gylfason (A) og Garðar
Sigurðsson (Ábl). Hér kom Eggert
Haukdal í stað Matthíasar Á. Math-
iesen og Garðar í stað Guðmundar J.
Guðmundssonar.
• Nefndarkjöri í Þingfararkaups-
nefnd var frestað.