Morgunblaðið - 14.10.1980, Síða 23

Morgunblaðið - 14.10.1980, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980 31 Seta ráðherra í þingnefndum: Gengur á þinghef ð og aðskilnað löggjafar- og framkvæmda- valds - segja talsmenn Alþýðuflokksins ATHUGASEMDIR vóru gerðar í báðum þingdeildum í gær vegna kjörs ráðherra, einkum forsætisráðherra, í þingnefndir. Benedikt Gröndal, formaður Alþýðu- flokksins, kvaddi sér hljóðs af þessu tilefni í neðri deild Alþingis og Kjartan Jóhannsson, varaformaður flokks- ins, í efri deild. Gagnrýndu þeir harðlega að ráðherrar tækju sæti í þingnefndum, sem þeir töldu ganga á þinghefðir og þann aðskilnað löggjafarvalds og fram- kvæmdavalds, sem væri einn af hornsteinum þjóðskipu- lags okkar. Talsmenn Alþýðuflokksins sögðu það að vísu ekki bannað í stjórnarskrá okkar að ráðherrar sætu í fastanefndum Alþingis. — Slíks væru þó sárafá dæmi. Nú væri hinsvegar gróflegar gengið í þessa átt en dæmi væru um áður. Þannig tæki forsætisráðherra, verkstjóri ríkisstjórnar sæti í 5 fastanefndum efri deildar. — Hvoru tveggja væri, að ráðherrar hefði nægum störfum að sinna í ráðuneytum og á fundum Samein- aðs þings og þingdeilda, þann veg að þeir gætu engan veginn með góðu móti gegnt störfum í fasta- nefndum. Þar að auki gengi slíkt að viðurkenndan aðskilnað lög- gjáfarvalds og framkvæmdavalds, enda væri eitt af verkum þing- nefnda, að hafa eftirlit með fram- kvæmdavaldinu. Engin dæmi væru þess að forsætisráðherra ætti sæti í þingnefndum. Slíkt væri andstætt þinghefð og spor aftur á bak frá lýðræðislegum sjónarmiðum. Gunnar Thoroddsen, forsætis- ráðherra, sagði það gilda í sumum þingræðislöndum, að þingmenn létu af þingstörfum er þeir tækju við ráðherraembætti. Slíks væri ekki krafizt í stjórnarskrá okkar. Meðan alþingi sæti væri ráðherra skylt að sækja þingfundi og taka að sér þau störf, sem þeim væru þar falin. Gagnrýni talsmanna Alþýðuflokksins væri þeirra sjón- armið, sem sjálfsagt væri að taka til íhugunar varðandi endurskoð- un stjórnarskrárinnar. Stjórnir þing- f lokka óbreyttar ÞINGFLOKKAR Alþýðubanda lags, Alþýðuflokks og Framsókn- arflokks hafa kjörið stjórnir sin- ar. í öllum tilfellum voru þing- flokksstjórnir endurkjörnar. Ólafur Ragnar Grímsson er áfram formaður þingflokks Al- þýðubandalagsins, Svavar Gests- son varaformaður og Skúli Alex- andersson ritari. Sighvatur Björgvinsson er formaður þing- flokks Alþýðuflokksins, Karl Steinar Guðnason varaformaður og Jóhanna Sigurðardóttir vara- formaður. Páll Pétursson er for- maður þingflokks framsóknar- manna, Jóhann Einvarðsson og Jón Helgason meðstjórnendur. Þingflokkur sjálfstæðismanna kýs stjórn til kjörtímabilsins. Ólafur G. Einarsson er formaður þingflokksins, Lárus Jónsson varaformaður og Þorvaldur Garð- ar Kristjánsson ritari, allir kjörn- ir í upphafi kjörtímabilsins. Þingflokkur Alþýðuflokksins: Samgönguráðherra flytji Alþingi skýrslu um Flugleiðamálið ÞINGMENN Alþýðuflokks lögðu fram á Alþingi i gær beiðni til samgönguráðherra þar sem þess er óskað, með visan til 31. grein- ar þingskapa, að samgönguráð- herra flytji Alþingi skýrslu um málefni Flugleiða. í skýrslunni skulu veittar allar upplýsingar, sem ríkisstjórnin hefur undir höndum um eigna- stöðu félagsins, rekstrarafkomu og önnur fjárhagsleg málefni þess, og jafnframt greint frá öllum afskiptum ríkisstjórnarinnar af Flugleiðamálinu, þar á meðal hverjar þær skuldbindingar eru, sem ríkisstjórnin kann að hafa undirgengist eða hyggst undir- gangast gagnvart félaginu, og hvaða skilyrði kunna að verða sett í því sambandi. Skýrslan verði tekin til umræðu á fundi samein- aðs Alþingis fljótlega eftir að henni hefur verið útbýtt. í greinargerð segir að á skorti að „fullnaðarupplýsingar hafi ver- ið veittar um málið og þá fyrst og fremst um afskipti ríkisstjórnar- innar af því, og hafi sumir trúnað- armenn ríkisstjórnarinnar tekið að sér hlutverk sem þeim var alls ekki ætlað.„ Mál þetta varði af- komu heilla atvinnustétta, hag þjóðarheildar og framtíð flug- rekstrar frá íslandi og því eigi almenningur rétt á að öll atriði þess verði dregin fram í dagsljós- ið. Niðurgreiðslur á landbúnaðarafurðum: Verða 31 milljarð- ur kr. á næsta ári ÁÆTLAÐ er að niðurgreiðslur rikissjóðs á vöruverði nemi 31 milljarði króna á árinu 1981, samkvæmt fjárlagafrumvarpinu sem lagt var fram i gær. Þar af er framlag til lifeyrissjóðs bænda 1,8 milljarðar króna, beinar niðurgreiðslur hækka 5.990 millj- ónir króna og lifeyrissjóðsfram- lag um 610 milljónir króna. Útgjöld rikisins vegna niður- greiðslna hækka samtals um 6,6 milljarða króna frá fjárlögum þessa árs. Samkvæmt fjárlagafrumvarp- inu er gert ráð fyrir að niður- greiðslurnar skiptist þannig milli einstakra þátta, miðað við niður- greiðslustig í september 1980, ásamt framlagi í lífeyrissjóð bænda: Dilkakjöt, 1. og 2. fl. 7.680 milljónir króna, annað kindakjöt (þ.e. 3.-6. fl.) 740 milljónir króna, vaxta- og geymslukostnaður kjöts 200 milljónir til Siglósíldar FJÁRFRAMLÖG rikisins til fyrir- tækisins Siglósildar á Siglufirði verða 100 milljónir króna á næsta ári, samkvæmt nýbirtu fjárlaga- frumvarpi rikisstjórnarinnar. Seg- ir i athugasemdum með frumvarp- inu, að fjárveiting þessi sé til komin vegna fjárhagsörðugleika fyrirtækisins á árunum 1979 og 1980. Auk þessarar 100 milljóna króna fjárveitingar er gert ráð fyrir að fyrirtækinu verði aflaö um 100 milljóna króna í lánsfé á næsta ári. Samtals munu styrkir og lán til Siglósíldar því nema 200 milljónum króna á árinu 1981, samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. 4,4 milljarðar króna, nautakjöt 1,1 milijarður, mjólk frá mjólkur- búum 7,3 milljarðar, heimamjólk 40 milljónir, undanrenna 84 millj- ónir, rjómi 536 milljónir, smjör 4.030 milljónir króna, skyr 349 milljónir, ostur 45% 120 milljónir, ostur 20 og 30% 54 milljónir, nýmjólkur- og undanrennuduft til iðnaðar 300 milljónir, kartöflur 1.452 milljónir króna og ull 1.415 ÁLAGÐUR eignaskattur ein- staklinga hækkaði um 85% milli áranna 1979 og 1980, samkvæmt upplýsingum er fram koma i fjárlagafrumvarpinu sem leit dagsins ljós i gær. Þar kemur einnig fram að eignaskattur fé- laga hækkaði um 70%, og heildar- álagning eignaskatts um 76%. AIls nam álagður eignaskattur á einstaklinga á árinu 1980 3,8 milljörðum króna. en á félög 4,4 mijljörðum króna. Áætlanir í fjárlagafrumvarpinu um álagningu eignaskatts á árinu 1981 gera ráð fyrir að álagning hækki um 42%, en auk þess er gert ráð fyrir 1% aukningu eigna- stofns. Samkvæmt því er gert ráð fyrir að á árinu 1981 verði inn- heimtir um 5 milljarðar króna í eignaskatt af einstaklingum og 5,6 milljarðar króna komi inn í eigna- skatti á félög. Þá er einnig gert ráð fyrir að álagning bygginga- sjóðsgjalds verði eins og verið hefur, og nemi alls 106 milljónum króna á næsta ári. milljónir króna. Framlag í líf- eyrissjóð bænda er áætlað 1,8 milljarðar króna. Þá ber að hafa í huga þegar ofanskráðar upplýsingar eru skoð- aðar, að auk niðurgreiðslanna á landbúnaðarafurðum er gert ráð fyrir 12 milljöðrum króna til „sérstakra efnahagsráðstaf ana“, og 12 milljarðar fara í útflutn- ingsuppbætur. Gert er ráð fyrir að á næsta ári verði haldið áfram að innheimta „sérstakan skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði" og á skattur- inn að gefa 2,4 milljarða króna á árinu 1981. Nýbyggingagjald lagt niður TEKJUR ríkisins af nýbygg- ingagjaldi munu á þessu ári verða um það bil 220 milljónir króna, samkvæmt því er segir í athuga- semdum með fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, sem lagt var fyrir Alþingi í gær. I frumvarpinu er hins vegar gert ráð fyrir að gjaldið verði lagt niður í lok þessa árs, og verði því ekki lagt á á árinu 1981. Segir í frumvarpinu, að áætlaður „tekju- missir' ríkissjóðs af þessum sök- um verði um 300 milljónir króna á næsta ári. Eignaskattur einstaklinga: Hækkaði um 85% milli áranna 1979 og 1980 19,5 milljarðar í vaxta- greiðslur á næsta ári VAXTAGREIÐSLUR rikissjóðs á næsta ári eru áætlaðar rösklega 19,5 milljarðar króna. samkvæmt fjárlagafrumvarpi því er nú hefur verið lagt fyrir Alþingi. Upphæðin er 3,7 milljörðum króna hærri en á fjárlögum þessa árs. Þar af hækka vextir af lánum i Seðlabankanum um rösklega 1,7 milljarða króna, en alls eru vaxtagreiðslur til Seðlabankans áætlaðar um 9,7 milljaðar króna á árinu 1981. Alls eru vaxtagreiðslur til Seðla- banka á árinu 1981 áætlaðar 9.763 milljónir króna og skiptast þær sem hér segir: Af umsömdum skulda- bréfum 2.323 milljónir króna, af bráðabirgðaláni 1.440 milljónir króna, og af yfirdrætti 6 milljarðar króna. Vextir af lánum ríkissjóðs hjá öðrum en Seðlabanka eru áætl- aðir 9.822.921 þúsund krónur, en það er hækkun um ríflega 1,9 milljarð króna frá fjárlögum 1980. Vextir af innlendum lánum verð- tryggðum samkvæmt byggingavísi- tölu verða rúmlega 2 milljarðar króna, af lánum verðtryggðum samkvæmt lánskjaravísitölu 437.615 þúsund krónur, og sam- kvæmt vísitölu framfærslu- kostnaðar 318.155 þúsund krónur. Vextir af erlendum lánum og gengistryggðum eru áætlaðir tæp- lega 3 milljarðar króna, vextir af ýmsum innlendum lánum eru um 498 milljónir króna, en þar með eru taldir vextir af happdrættisskulda- bréfum. Þá eru áætlaðir um 3,5 milljarðar króna til að mæta ýms- um hugsanlegum óvæntum vaxta- greiðslum umfram forsendur frum- varpsins, sem ekki eru fyrirséðar ALLS er áætlað að Áfengis- og tókbaksverslun rikisins skili rík- issjóði 36,5 milljörðum króna i tekjur á næsta ári, samkvæmt nýframlögðu fjármálafrumvarpi Ragnars Arnalds fjármálaráð- herra. Samkvæmt frumvarpinu verða tekjur fyrirtækisins rösk- lega 46 milljarðar króna, en útgjöld um 9,7 milljarðar króna. Gjöld skiptast þannig, að launa- við samningu þess. Má þar nefna vaxtabreytingar, en mörg lánanna bera breytilega vexti, gengisbreyt- ingar, breytingar á vísitölu, yfirtök- ur lána vegna ríkisfyrirtækja, fast- eignakaupa og fleira. Á þessum lið fjárlagafrumvarps- ins eru meðtaldar greiðslur af lánum vegna vegagerðar, og nema vaxtagreiðslur af þeim lánum rösklega 3 milljörðum króna. kostnaður er 862 milljónir króna, önnur rekstrargjöld 1,7 milljarður króna, viðhald 72 milljónir, hrá- efni og vörur til endursölu 7 milljarðar, vextir 4,5 milljónir og afskriftir 65 milljónir króna. Tekjur skiptast þannig, að fyrir selda'- vörur og þjónustu eiga að koma inn 46.253.034 þúsund krón- ur, vaxtatekjur verða 6 milljónir og aðrar tekjur 2 milljónir. Tekjur af ÁTVR 46 milljarðar ’81

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.