Morgunblaðið - 14.10.1980, Síða 29

Morgunblaðið - 14.10.1980, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980 37 Laugardaginn 4. okt. sl. fór fram sambandsráðsfundur ungra sjálfstæðismanna. Sambands- ráðsfundur er fulltrúasamkoma og rétt til fundarsetu eiga tveir fulltrúar frá hverju félagi ungra sjálfstæðismanna og kjördæma- samtökum SUS, flokksráðsmenn innan raða SUS, SUS-stjórn og sérstakir trúnaðarmenn SUS- stjórnar. Morgunblaðið greinir frá þess- um fundi í frétt sl. þriðjudag. Er fréttin svo makalaust ónákvæm Gústaf Níelsson: manna, sem hefur a.m.k. hingað til kosið að starfa á öðrum vettvangi en innan raða ungra sjálfstæðismanna. Var þar kom- inn hópur einkavina Hannesar Gissurarsonar, án nokkurs réttar til fundarsetu. Mega lesendur svo geta sér til um þennan skyndi- lega fundaráhuga á laugardags- eftirmiðdegi. Morgunblaðinu verður að telja til lofs að það hefur sýnt starfi ungra sjálfstæðismanna áhuga og vonandi verður svo áfram. Aftur á móti verður að gera þá sjálfsögðu kröfu til blaðsins, að blaðamenn þess greini satt og Utsolustaðir Karnabær Laugavegi 66 — Karnabær Glæsibæ Eplið Akranesi — Epliö Isatiröi — Alfholl Siglufirði Cesar Akureyn — Hornabær Hornafirði — Eyiabær Vestmannaeyium LITASJÓNVÖRP 22” —26” Sænsk hönnun ★ Sænsk ending ★ Bestu kaupin! ★ Greiöslukjör. ★ Sérkennilegt frétta- ____ mat Morgunblaðsins og beinlínis villandi að óhjá- kvæmilegt er að gera nokkrar athugasemdir. Raunar er sami makalausi fréttaflutningurinn á ferðinni í Vísi. Það sem vekur þó mesta furðu í þessu sambandi er það að höfundar fréttanna í báðum blöðunum munu hafa setið fundinn. Af frétt Morgunblaðsins mætti draga þá ályktun að 60—70 manna sambandsráðsfundur hafi haft eftirfarandi hlutverk: Að samþykkja nokkrar tillögur um ýmis málefni. Að álykta að ekki skyldi álykta um forystumál Sjálfstæðisflokksins. Óg að klappa fyrir Ingu Jónu og Kjart- ani Gunnarssyni. Blaðamaður Morgunblaðsins getur þess í frétt sinn, á hálf- gerðu hundavaði þó, að fundur- inn hafi samþykkt tillögur um aðskiljanlegustu málaflokka, en ekkert verið að hafa fyrir því að greina, þó ekki væri nema lítil- lega, frá efni tillagnanna. Meira er lagt upp úr „heppilegu" myndavali og krassandi fyrir- sögn. Blaðamaður getur þess að umræður um „stöðu Sjálfstæðis- flokksins" hafi átt sér stað og fram hafi komið tillaga þess efnis „að formaður og varafor- maður Sjálfstæðisflokksins tækju upp viðræður og nánara samstarf sín á milli, en segðu báðir af sér ella“. Og enn heldur blaðamaðurinn áfram og segir það hafa verið skoðun meirihluta fundarmanna, að það væri ekki í verkahring samkomu sem sam- bandsráðsfundarins að álykta um slík mál (þ.e. málefni flokks- ins og foringjaerjur). Hér gætir herfilegrar ónákvæmni í frásögn blaðamanns, enda erfitt fyrir venjulega hugsandi fólk að skilja hvers vegna ekki megi álykta þess efnis, að formaður og vara- formaður taki upp viðræður og nánara samstarf. Rétt er að fram kom tillaga, sem snerti foringjaerjur í Sjálf- stæðisflokknum. Slíkt getur varla talist óeðlilegt miðað við aðstæður, sem eru einar sér gjörsamlega óþolandi og flokkn- um til tjóns. Ekkert er eðlilegra en fundur á borð við sambands- ráðsfund álykti um slík mál. En blaðamaður hirðir ekki um að geta efnis tillögunnar, nema á brenglaðan nátt og því síður getur hann þess hvað fyrir til- lögumanni vakti með flutningi hennar. í tillögunni var ekki minnst einu orði á „viðræður og nánara samstarf" milli foringja flokksins. Hins vegar má til sanns vegar færa, að viðræður og náið samstarf sé óhjákvæmilegt tækju foringjarnir mark á tillög- unni. Svo lesendur fái að vita hið sanna um efni tillögunnar skal hún birt hér orðrétt: „Sambands- ráðsfundur ungra sjálfstæð- ismanna krefst þess af forystu- mönnum Sjálfstæðisflokksins að þeir leysi persónulegan og póli- tískan ágreining sinn, án tafar. Langvarandi deilur innan Sjálf- stæðisflokksins hafa staðið eðli- legu flokksstarfi fyrir þrifum og leitt andstæðinga flokksins til öndvegis í íslenskum stjórnmál- um. Takist ekki að setja niður deilur innan flokksins nú innan skamms, er annað óhjákvæmi- legt en að nýir menn taki við forystu". Umræður um tillögu þessa voru stöðvaðar með frávísunar- tillögu, sem var samþykkt með 22—13. Þessa tölur sýna að um helmingur fundarmanna hefur setið hjá við atkvæðagreiðluna. Að ráðning Ingu Jónu Þórðar- dóttur og Kjartans Gunnarsson- ar í stöður framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins hafi verið til umræðu á fundinum er hrein og klár rangfærsla. Hið rétta er að Hannes Gissurarson lýsti úr ræðustól yfir ánægju sinni með þá ráðstöfun miðstjórnar flokks- ins að velja fólk úr röðum ungra sjálfstæðismanna til slíkra trún- aðarstarfa og bað fundarmenn að klappa fyrir þeim. Svona hylling „með langvinnu lófataki", eins og Mbl. orðar það, breytir að sjálfsögðu engu um þá afstöðu forystu SUS að annarlega hafi verið staðið að ráðningu Kjart- ans Gunnarssonar af hálfu for- manns Sjálfstæðisflokksins og hann sé óheppilegur til starfsins sbr. ályktun SUS frá 8. sept. sl. Hannesi má þó telja það til lofs eða lasts eftir atvikum, að hafa í þessu efni tileinkað sér einkar sérkennilega fundarhegðun Svavars Gestssonar, en eins og alkunna er hefur Svavar haft það fyrir sið á kappræðufundum Heimdallar og Alþýðubanda- lagsins, að biðja fundarmenn að klappa fyrir gömlum foringjum kommúnista. Siður þessi mun í hávegum hafður í Austur- Evrópu. Að lokum vil ég geta þess, að u.þ.b. sem umræður hófust um „stöðu Sjálfstæðisflokksins" gekk í salinn nokkur hópur rétt frá fundum ungra sjálfstæð- ísmanna. Gústaf Níelsson r ICONCORD Amerískur lúxusbfll með öllu 6 cyl 258 cid vél. Sjálfskipting, vökvastýri, aflhemlar, hiti í aftur- rúöu, hallanleg sætabök, pluss- áklæöi, viöarklætt mælaborö, vinyl- toppur, teppalögö geymsla, hliöar- listar, krómlistar á brettaköntum, síls og kringum glugga, klukka D/L hjólkoppar, D78x14 hjólbaröar meö hvítum kanti, gúmmíræmur i höggvörum og vönduö hljóöein- angrun. NYTT VERÐ: Kr. 8.443 þús. Auk þess alveg sérstök kjör, en því miöur: Aöeins 8 bílar í boöi á þessu verði. Verö skv. skráningu 10.10. ’80. q S3TT13 Staö Laugavegi 118 — Símar 22240 og 77720. EGILL VILHJÁLMSSON HE Gleymum ekki oeðsjúkum Kaupið lykil 18. október

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.