Morgunblaðið - 14.10.1980, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980
39
Minning:
Auðunn Gunnar
Guðmundsson
Fæddur 21. nóvember 1919.
Dáinn 5. október 1980.
Mig langar til að minnast vinar
míns, Auðuns Gunnars, með
nokkrum línum. Ég kynntist
Gunnari fyrir u.þ.b. 10 árum er ein
dóttir hans, þá nýfermd, kom sem
barnfóstra til mín. Ekki var lang-
ur tími liðinn er ég fann að ekki
einungis hafði ég fengið frábaera
barnfóstru heldur kynntist ég einu
af því besta fólki sem ég hef hitt
um ævina. Þetta fólk opnaði með
hlýhug heimili sitt fyrir okkur
mæðgum, og tók okkur eins og
dætur væru. Þótt man'nmargt
væri í heimili á þessum árum hjá
þeim hjónum var alltaf rúm fyrir
nokkra í viðbót. Ekkert var of gott
fyrir okkur. Enda fór svo að dóttir
mín leit á Gunnar sem afa.
Ekki verður hér tíndur upp
allur sá greiði er Gunnar gerði
fyrir mig og mína, en hann er
ómældur.
Gunnar var afar sterkur per-
sónuleiki, hann bókstaflega geisl-
aði af lífi og hafði lag á því að
koma öllum í gott skap sem í
kringum hann voru.
Hann var listhneigður mjög,
málaði t.d. mikið á sínum yngri
árum, seinna fékkst hann við
ljósmyndun, en svo tók hann til
við harmónikkuleik, enda hafði
tónlistin lengi haft sterk ítök í
honum, og fór svo að „nikkan" átti
hug hans allan nú seinustu árin.
Var hann einmitt á einni slíkri
samkomu með sínum félögum á
þessu sviði er kallið mikla kom.
Ekki er hægt að skrifa svo um
Gunnar, að ekki verði minnst á
konu hans, Ester, svo nátengd
voru þau. Gagnkvæmur skilningur
og virðing fyrir hvort öðru ríkti
alla tíð og ást sem entist til hins
síðasta. Gagnvart börnum sínum
var Gunnar hinn besti faðir og
sannur vinur, í þeirra sambandi
var ekkert það sem minnti á
kynslóðabilið.
Ég vil að leiðarlokum þakka
Gunnari samfylgdina þessi ár, og
sendi mínar innilegustu samúð-
arkveðjur til konu hans, barna og
annarra vandamanna. Megi guðs
almáttugs hönd styrkja þau í
þeirra miklu sorg og fjölskylda
mín sendir ástvinum hans samúð-
arkveðjur og geymir í huga sér
minninguna um góðan vin.
Ásta E. Jónsdóttir
Mig langar í örfáum orðum að
minnast góðs félaga, Auðuns
Gunnars.
Ég kynntist Gunnari fyrir um
það bil þremur árum í hópi
kunningja úr Félagi harmonikku-
unnenda. Eftir þau kynni vissi ég
að þar var áhugaverður maður.
Þessi einstaka glaðværð í fari
hans féll manni vel í geð, og þegar
nikkan var þanin gleymdi maður
sér í hrifningu stundarinnar.
Þessir samfundir urðu að föstum
lið mánaðarlega okkur öllum til
ánægju. Þar voru áhugamálin
rædd yfir góðum kaffiboila og
tónar harmonikkunnar hljómuðu
langt fram á nótt. Við urðum svo
samstarfsmenn í skemmtinefnd
félagsins, sem þá var rétt að slíta
barnsskónum, og reyndi þá oft á
þolinmæði manna. Gunnar hafði
hana næga eins og best kom í ljós
þegar ferð félagsins í Borgarfjörð
stóð fyrir dyrum, og einnig með
komu harmonikkuhljómsveitar
frá Noregi hingað í sumar. Þar
lagði hann sig fram af heilum hug
og ósérhlífni svo allt gæti orðið
okkar félagsskap til sóma og
eftirminnilegt fyrir gesti okkar.
Þessi fátæklegu orð segja ekki
mikið úr ævi manns, en þó því
meira vegna þess stutta tíma sem
kynni okkar stóðu. Það er sorglegt
að sjá á bak svo góðum dreng sem
alltaf flutti gleði með sér og
traust, en sárastur er söknuður
elskulegrar eiginkonu hans Ester
Krateh, barna þeirra og aðstand-
enda allra, sem ég vil á þessari
Vinningaskrá i bílnúmerahappdrætti
ungmenna- og íþróttafélaga á
Austurlandi og i Skaftafellssýslum
1. Bifreið DAIHATSU CHARADE
2. Bridgestone-hjólbarðaúttekt kr. 200.000
3. Bridgestone-hjóibarðaúttekt kr. 2000.000
4. Bridgestone-hjólbarðaúttekt kr. 200.000
5. Bridgestone hjólbarðaúttekt kr. 200.000
6. Bílútvarp og kassettutæki kr. 160.000
7. Bílútvarp og kassettutæki kr. 160.000
8. Bílútvarp og kassettutæki kr. 160.00
9. Bílútvarp og kassettutæki kr. 160.000
10. Kassettutæki kr. 100.000
11. Kassettutaéki kr. 100.000
12. Kassettutæki kr. 100.000
13. Kassettutæki kr. 100.000
14. Áklæði frá Altikabúðinni kr. 70.000
15. Áklæði frá Altikabúðinni kr. 70.000
16. Áklæði frá Altikabúðinni kr. 70.000
17. Áklæði frá Altikabúðinni kr. 70.000
18. Áklæði frá Altikabúðinni kr. 70.000
19. Áklæði frá Altikabúðinni kr. 70 000
20. Áklæði frá Altikabúðinni kr. 70.000
21. Bílútvarpstæki kr. 70.000
22. Bílútvarpstæki kr. 70.000
23. Bílútvarpstæki kr. 70.000
24. Bílútvarpstæki kr. 70.000
25. Bílútvarpstæki kr. 70.000
nr. S-1284
nr. Z-737
nr. S-579
nr. U-1671
nr. S-657
nr.U-230
nr. Z-1097
nr. S-316
nr. U-1378
nr. N-624
nr. S-191
nr. Z-1813
nr. S-1804
nr. U-700
nr. U-1715
nr. Z-1801
nr. S-45
nr. S-1586
nr. S-1959
nr. S-1513
nr. S-1585
nr. S-346
nr. Z-1795
nr. Z-316
nr. U-2116
Ungmenna- og íþróttafélögin færa þeim fjölmörgu, sem þátt tóku í
happdrættinu bestu þakkir fyrir framlagðan skerf til æskulýðs- og
íþróttastarfs í Austfirðingafjórðungi hinum forna.
EF ÞAÐER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AK.LYSINí.A
SÍMINN KR:
22480
stundu votta mína dýpstu samúð.
Minningin mun lifa meðal okkar
um ókomin ár.
Hilmar Hjartarson
Fyrir fáum árum var stofnað
félag áhugamanna um harmon-
ikuieik hér í borg, og á meðal
þeirra sem struku rykið af hljóð-
færum sínum og gengu til liðs við
hið unga félag var Auðunn Gunn-
ar Guðmundsson. Okkur, sem hitt-
um hann á þeim vettvangi, varð
fljótlega ljóst að Gunnar hafði til
að bera óvenju hlýja og góða
skapgerð sem auk eðlilegrar
bjartsýni gerði það að verkum að
það var gott að vera í nálægð hans
og gleðin og spaugsyrðjn voru
sjaldnast langt undan. Ég, sem
þessar línur skrifa, er ekki í
minnsta vafa um að án tilstyrks
Gunnars og þess góða anda, sem
ávallt var í kring um hann, hefði
saga félags okkar orðið önnur og
minni. Ég minnist þess þegar
hljómsveit félagsins óvænt var
beðin að koma fram í sjónvarpi og
trú manna á getu sína og annarra
var í lágmarki, þá tvíefldist Gunn-
ar og með bjartsýni sinni sann-
færði hann okkur hin um að allt
færi vel. Þannig var það einnig
þegar norskir harmonikuleikarar
vildu sækja okkur heim sl. sumar,
þá þurfti að taka ákvörðun sem
þoldi enga bið, og enn var það
bjartsýni hans sem úrslitum réð,
og hygg ég að nú sjái enginn eftir,
svo vel sem til tókst.
Þó kynni okkar Gunnars yrðu
hvorki löng né náin, var mér ljóst
að hann var ákaflega hamingju-
samur maður, og að uppspretta
þeirrar gleði sem hann bar með
sér ætti upptök á heimili hans, og
ég fann það gjörla að hann vildi
ekki vera löngum stundum utan
heimilis síns, nema þá að Ester,
kona hans, væri með. Þau hjónin
komu því oftast saman á fundi og
skemmtanir félagsins, hygg ég að
mörgum okkar hafi ekki þótt það
vel sóttur fundur nema þau væru
þar líka.
Mér hefur tekist að afla upplýs-
inga um fáein æviatriði Auðuns
Gunnars. Hann var fæddur í
Vestmannaeyjum 24. nóvember
1919, sonur hjónanna Jóhönnu
Þorsteinsdóttur og Guðmundar
Auðunssonar, sem fluttust síðar
til Reykjavíkur, þar sem Guð-
mundur rak lengi verslun að
Klapparstíg 11. Gunnar lærði
járnsmíði og vann við hana í
fjöida ára. Jafnframt lék hann á
harmoniku á dansleikjum. í mörg
ár spilaði hann með Aðalsteini
Símonarsyni harmonikuleikara,
sem einnig lék á gítar og mun hafa
verið sá fyrsti sem gerði gítarinn
að hljómsveitarhljóðfæri hérlend-
is. Gunnar minntist áranna sem
þeir Aðalsteinn spiluðu saman,
með mikilli ánægju. Vinátta
þeirra varð svo síðar til þess, að
samstarf tókst með harmoniku-
áhugamönnum hér í Reykjavík og
uppí Borgarfirði. Nám sitt á
harmoniku stundaði Gunnar að
mestu hjá Sigurði Briem, en mun
einnig hafa fengið tilsögn hjá
Hafsteini Olafssyni, sem um þær
mundir var með færustu harmon-
ikuleikurum landsins. Þá var tón-
listin í hávegum höfð á bernsku-
heimili hans, og er mér tjáð að
hvatning foreldra Gunnars til
söngs og tónlistariðkunar barna
sinna hafi verið mikil og einstök.
Systkini Gunnars eru fjögur,-
Hanna, Kristín, Herold og Karl.
Gunnar gekk að eiga eftirlifandi
konu sína, Ester Kratsch, þann 5.
júní árið 1948. Þeim varð fjögurra
barna auðið, en þau heita Auður,
Guðmundur, Guðlaug og Þorbjörg.
Þau Auður og Guðmundur eru
búsett í Danmörku, og þar hefur
Herold, bróðir Gunnars, dvalið í
áratugi. Á liðnu sumri dvöldu
Ester og Gunnar hjá þeim um 6
vikna skeið. Sagði Gunnar mér, að
hann hefði sjaldan notið sín betur.
Sunnudaginn 5. október héldum
við harmonikuunnendur fyrsta
skemmtifund haustsins og vita-
skuld var Gunnar tilkallaður að
spila með félögum sínum. Eftir
leikinn settist hann við hlið konu
sinnar, lét vingjarnleg orð falla
um harmonikuleikarann sem var
að leika þá stundina og í næstu
andrá leið hann útaf og var allur.
Þannig kom Gunnar og þannig fór
hann — alltaf hlýr og vingjarn-
legur, hvers manns hugljúfi.
Blessuð sé minning hans.
Ilögni Jónsson
T0Y0TA
saumavélafjölskyldan
T oyota
8000
meö
sauma-
armi
Hásjálfvirk zig-zag. Hægt
er aö velja um 22 spor,
beina sauma, glæsileg
mynstur og allt þar á milli,
12 spor meö sjálfvirkum
afturábaksaumi og 10
venjuleg sjálfvlrk spor.
Ótrúlega margbrotin en
einfold í notkun.
Verö
T0Y0TA saumavélar fyrir alla
A verði fyrir alla
A greiðslukjörum fyrir alla
2ja ára ábyrgö og saumanámskeiö
innifaliö í veröi. Fullkomin viögeröar- og
varahlutaþjónusta.
TOYOTA varahlutaumboöiö
Ármúla 23, sími 81733.