Morgunblaðið - 14.10.1980, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 14.10.1980, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980 45 þessa oggulitlu holu má með lagni troða hundrað oggulitlum nem- endum í einu, af þeim fimmtán- hundruð sem eru svangir. Senni- lega af því að nemendurnir eru oggulitlir er þeim sniðinn stakkur eftir vexti; oggulítil hola og oggu- lítil rúnstykki til þess að nærast á ásamt öðru brauðkyns. Ef þessir hundrað útvöldu oggu- litlu nemendur eru heppnir, fá þeir afgreiðslu áður en matarhléið er úti. Þá verða þeir að hafa hraðann á og kyngja bara í rólegheitum þegar út kemur, enda lítið rúm fyrir kjálkaæfingar inni í troðningnum. Einnig er varhuga- vert að tylla sér rétt sem snöggv- ast á þá fáeinu stóla sem skrýða þessa oggulitlu holu því ekki er víst að færi gefist til þess að standa upp aftur fyrr en um nónbil sama dag þegar holunni er lokað. Það má því með sanni segja að nemendur hætti Iífi sínu og limum ef þeir ætla að færa oggulitlum heilum sínum kraft til að öðlast djúphygli lærimeistara sinna, kennaranna. Nokkrir bregða þó á það ráð að versla karamellur, súkkulaði, og önnur sætindi en það gefst engum vel til lengdar nema ef til vill tannlæknum við- komandi. Nú læðist sá grunur að sumum að ég sé að reka einhvern bévítis áróður fyrir bættum aðbúnaði nemenda Fjölbrautaskólans í Breiðholti, fulltrúi þrýstihóps, sníkjudýr, afæta eða grátkona. Nei, ekki aldeilis. Þetta oggulitla holuvandamál snertir mig ekki meir en hvern annan nemanda FB. En víst glaðnaði yfir hrjáðum sálum okkar ef úr rættist, þó ekki sé þess beinlínis krafist að „holu verði í höllu breytt." • Það gleður Guð Valdimar Guðmundsson skrifar: „Þú húsvillta skalt hýsa, frá hurð ei mönnum vísa og gestum beina gef þú fús, svo Guð þér opni síðar hus. Það gleður Guð. Svo mælti Valdimar Briem skáld og prestur á Stóra-Núpi í Ljóðakverinu sem út kom snemma á fyrsta fjórðungi þessarar aldar og átti að notast sem kennslubók í kristnum fræðum, en var brátt dregin til baka; af hverju veit ég ekki, því að vafasamt er hvort á Islandi hefur nokkurn tíma verið gefin út skemmtilegri kristni- dómsbók en Ljóðakverið. Nú er deilt um hvað eigi að gera við franska drenginn og sitt sýnist hverjum. Og það er beðið um hjálp handa sveltandi fólki í Afríku og ekki eru allir á sömu skoðun hvað eigi að gera í því máli. Sumir telja að þjóð sem safnar milljarða- skuldum árlega farist ekki að gefa öðrum. En fari svo að þjóðin missi sjálfstæði sitt fyrir ofeyðslu; bætti það þá ekki heldur úr, að það fylgdi sögunni, að oft hefðu ís- lendingar hjálpað annarra þjóða mönnum í nauð, bæð á sjó og landi?“ Þessir hringdu . . . • Alltaf hlakkað til miðdegissögunnar Rakel Loftsdóttir hringdi og kvað fráleitt að fella niður þennan vinsæla dagskrárlið. Mér hefði ekki verið eins sárt um að missa eitthvað af allri þessari músik. Þeir fara villir vegar sem hafa tekið þessa ákvörðun og ég skora á þá að sýna þann manndám að snúa við. Ég veit til að það er ekki einkaskoðun mín að þessi dag- skrárliður hafi notið almennra vinsælda, fólk er hvarvetna að tala um þetta. Ég segi fyrir mig að ég hef alltaf hlakkað til miðdeg- issögunnar í gegnum árin. EF ÞAÐ ER FRETTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ I MORGUNBLAÐINU • Misheppn- aður þáttur II.A. hringdi og lét illa yfir hinum nýja kynningarþætti sjón- varpsins, Á dofinni. Eg sé ekki betur en verið sé að koma þarna á nýjum auglýsingatíma, og vænt- anlega auglýsendum að kostnað- arlausu en notendum til hrell- ingar. Þetta er algjörlega líflaus upptalningar- og bunulestur. Þar að auki er hann á þvingandi tíma, fólki finnst varla taka því að fara að slökkva á tækjunum, þar sem von er á Prúðu leikurunum á eftir. En líklega er þetta með vilja gert og ekki vílað fyrir sér að halda börnum og öðru fólki nauðugu fyrir framan tækin. HÖGNI HREKKVÍSI Við sendum bílinn í eftirlit, f ínt - en hvnð um okkur sjólf? Fallegt umhverfi og ótal mö- guleikar fyrir heilsubótariðju gera »Skodsborg«, hið græna úthverfi Kaupmannahafnar, að __einni unaðslegustu heilsumið- ----r-T1 _ stöð veraldar - rétt við Eyrarsund. Auk færustu lækna og sérfræ- ðinga á staðnum, þar á meðal mjög hæfra sjúkraþjálfa sem gefa rétt nudd og slökun, mun »Skodsborg« með skynsamle- gum hlutfollum hvíldar og iðju endumýja og hressa líkamlega og andlega vellíðan. SKODSBORG BADESANATORIUM Skodsborg Strandvej 123-135, DK-2942 Skodsborg, Danmark tr 00 14 - 02 - 80 32 00 Sambyggður trésmíðavélar til afgreiðslu strax. Eigum einnig fyrirliggjandi sambyggða þykktarhefla og áfréttara. G. Þorsteinsson & Johnson h.f. Ármúla 1. — Sími 8 55 33. BMW gœöingurinn er ekki eins dýr og þú heldur Verðin eru skv. gengi 7/10 ’80: BMW 316 kr. 9.880.000 BMW318A kr. 10.795.000 BMW 320 kr. 11.210.000 BMW518 kr. 10.870.000 Nú er tækifæri að gera góð kaup með því að greiða nú kr. 3.500.000 getið þér tryggt yður bíl á föstu verði. Aðeins örfáum bílum óráðstafað! KRISTINN GUÐNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20. SÍMI 86633 AKUREYRi: BJARNHÉÐINN GÍSLASON SÍMI 96-22499

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.