Morgunblaðið - 07.11.1980, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1980
Kössuðu síld
við bryggjuna
Khkifirði. 6. nóvember.
NÓTABÁTARNIR hafa verið í
Reyðarfirðinum ok hafa bátarnir
fenKÍð áKætan afla. Meðal annars
er nótaskipið Júpiter búið að taka
sinn skammt af síldinni. Skipið
fékk stórt kast í Reyðarfirðinum í
rnoruun ok var síldin kössuð ok
ísuð meðan kassar entust.
Síðan vakti það athygli manna á
Eskifirði að Júpiter kom siglandi
inn síðdegis með nótina á hliðinni
og lagðist að bryggju. Gizka menn á
að 80 tonn hafi verið í nótinni og
byrjuðu á því að fá fleiri kassa um
borð, en síðan fóru þeir í að kassa
síldina við bryggjuna. Minnast
menn þess ekki hér að hafa áður séð
skip koma siglandi inn með nótina
hálffulla á síðunni og leggjast að
bryggju enda var mikill mannfjöldi
til að fylgjast með þegar skipið kom
að.
Þrjú loðnuskip hafa komið hingað
í dag, Grindvíkingur, Fífill og Guð-
mundur, allir með fullfermi. Hefur
verið brætt af krafti í verksmiðj-
unni síðan fyrir helgi. — Ævar
Afleiðingar deilu SÍ og Einars S. Einarssonar:
Með risakast á siðunni.
(I.jósm. Jón Páll)
Formaður TR vildi
ekki tvo stjórnarmenn T . , , . x T .
SÍ í stjórn með sér Ljllka VIÖ KVOtann
„ÞAÐ VAR aldrei um það rætt,
hvort þeir vildu vera áfram eða
ekki. því frá minni hendi var Ijóst,
að ég hefði aldrei tekið for-
mennskuna að mér upp á þau býti,
að þessir tveir yrðu innanborðs,“
sagði Guðfinnur Kjartansson. sem
í fyrrakvöld var kjorinn formaður
Taflfélags Reykjavíkur. er Mbl.
spurði hann í gær, hvers vegna
tveir af fyrrverandi stjórnar-
mnnnurn, sem nú gegna embætt-
um varaforseta og gjaldkera
Skáksambands íslands. Þorsteinn
Þorsteinsson og Helgi Samúels-
son, væru ekki í hópi þeirra, sem
Bílamálið full-
rannsakað
SLEPPT hefur verið úr gæzluvarð-
haldi manni þeim, sem grunaður
var um skjalafals i sambandi við
kaup og solu á tveimur ameriskum
fólksbifreiðum, en frá þessum máli
var skýrt i Mbl. á þriðjudaginn.
Að sögn Erlu Jónsdóttur deildar-
stjóra hjá RLR er málið fjíllrann-
sakað. Bílarnir eru enn í vörzlu
Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Manns leitað
á Akureyri
LÖGREGLAN á Akurcyri lýsti í
gærkvöldi eftir 77 ára manni,
Arinhirni Guðmundssyni, sem fór
frá elliheimilinu Skjaldarvík um
sexleytið i gær. Lögreglunni var
tilkynnt um hvarf hans milli
klukkan 7 og 8 og voru leitarsveit-
ir strax kvaddar út, en um mið-
nættið var Arinbjörn enn ófund-
inn.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar á Akureyri gerði Arinbjörn
ítrekaðar tilraunir til að komast til
Akureyrar í gær, en þar bjó hann
þar til fyrir skömmu. Frá Skjald-
arvík í bæinn eru tólf, þrettán
kílómetrar. í þriðja skiptið varð
enginn var við brottför hans.
Guðfinnur valdi sér til samstarfs i
stjórn TR. Log TR eru þannig. að
þegar húið er að kjósa formann.
stingur hann upp á öðrum stjórn-
armonnum; 10 meðstjórnendum
og 6 varamonnum og hafa aðrir
ekki rétt til að tilnefna menn til
stjórnarstarfa. Þriðji TR-maður-
inn í stjórn SÍ. Friðþjófur Karls-
son, er áfram í stjórn TR.
„Eg var mjög óánægður með þær
deilur, sem urðu á síðasta aðal-
fundi Skáksambands íslands, þeg-
ar forsetaskipti urðu og ég álít, að
þeir Þorsteinn og Helgi hafi verið í
hópi þeirra, sem hvað mestan þátt
áttu í því að fella Einar S.
Einarsson," sagði Guðfinnur. „En
látum það nú vera. Hins vegar
fannst mér ódrengskapurinn alveg
keyra um þverbak í þessum deilum,
sem urðu út af forsetastarfi Einars
hjá Norræna skáksambandinu og
þar voru þeir Þorsteinn og Helgi
enn að verki. Ég skipti mér ekkert
af þeim deilum, en hafði mína
skoðun á þessum vinnubrögðum.
Einar S. Einarsson vann skák-
hreyfingunni vel og það var
ástæðulaust með öllu að snúa
rýtingnum í sári hans með þeim
hætti, sem gert var í sambandi við
forsetaembættið hjá Norræna
skáksambandinu. Með svona
mönnum vil ég einfaldlega ekki
vinna.
Friðþjófur Karlsson stóð hins
vegar alveg íyrir utan þetta og því
vildi ég hafa hann áfram í stjórn
Taflfélags Reykjavíkur.“
á nýju loðnuskipi
MOKVEIÐI hefur verið hjá
loðnuskipunum 60 — 80 mílur
norður af Ilorni síðustu daga.
Sem dæmi um hinn mikla afla má
nefna, að Ilákon ÞH kastaði í
útkanti miðanna i fyrrakvold og
fékk sérstaklega stórt kast. 820
tonn úr þessu kasti tók Hákon
sjalfur. en hátt i 300 tonnum var
dælt i 2 nærstödd skip. Telja
menn að þetta kast sé með þeim
alstærstu sem allt hefur verið
hirt úr.
Harpa kastaði um leið og hún
kom á miðin í gærmorgun, fyllti
sig í þessu eina kasti og gaf
talsvert að auki. Enn má nefna að
Óli Óskars kom á miðin um
miðnætti og var búinn að fá 1400
tonn um klukkan 11 í gærmorgun.
Óli Óskars hefur nú nánast fyllt
þann kvóta, sem skipið má taka og
loðnuvertíð skipverja á Óla
Óskars er því lokið í bili a.m.k.
Áhöfnin á Óskari Halldórssyni fer
hins vegar yfir á Óla Óskars og
tekur það sem eftir er af kvóta
Óskars Halldórssonar. Mikil við-
gerð þarf að fara fram á vél
Oskars Halldórssonar, en eins og
komið hefur fram í Mbl., fékk
Óskar sjó í vélina undan Jökli
fyrir skömmu.
Aflinn á vertíðinni er nú orðinn
hátt í 270 þúsund tonn, en eftirtal-
in skip tilkynntu Loðnunefnd um
afla á miðvikudagskvöld þar til
síðdegis í gær:
Miðvikudagur: Hákon 820,
Rauðsey 560.
Fimmtudagur: Albert 580, Haf-
örn 680, Bjarni Ólafsson 1080,
Sigurfari 870, Ársæll 440, Dagfari
530, Gullberg 600, Gísli Árni 630,
Óli Óskars 1400, Helga II 550,
Harpa 630.
Skrifstofuhúsnæði Flugleiða:
Gagngerar breyting-
ar hér og erlendis
Auknar bókanir frá Bandaríkjunum
Eigendaskipti
á Hótel Höfn
SÍKluíirði, B. nóvembor.
EIGENDASKIPTI verða að Hótel
Höfn um áramótin, en Viðar Otte-
sen, fyrrverandi barþjónn á Naust-
inu í Reykjavík, og synir hans,
Jóhann og Sveinbjörn, hafa keypt
hótelið af Steinari Jóhannssyni.
Fréttaritari
GAGNGERAR breytingar standa
nú yfir á skrifstofuhúsnæði
Flugleiða á Reykjavíkurflugvelli,
en með færra starfsliði á skrif-
stofunum. en þar hefur fækkunin
orðið hvað mest, er ekki þorf ails
þess húsnæðis, sem i notkun var,
segir m.a. i frétt frá Flugleiðum.
Svipaða sögu er að segja frá
öðrum skrifstofum félagsins. 1
Luxemborg standa nú yfir flutn-
ingar hluta þeirrar starfsemi
félagsins sem var í aðaibygging-
unni i eigið húsnæði félagsins
annars staðar á flugvellinum.
18 tonn af karfa flug-
leiðis til Luxemborgar
FLOGIÐ verður með 18 tonn af
nýjum karfa til Luxemborgar í
dag og er fyrirhugað að svo
verði gert á hverjum föstudegi í
vetur. en Flugleíðir hafa tekið
upp vikulegt voruflug til Lux-
emhorgar t»g London. Flogið
verður út með fiskinn, en heim
með vörur frá Luxemborg og
London. Það er fyrirtækið
Andri hf.. sem flytur fiskinn út
og er fiskurinn. sem einkum er
heill og flakaður karfi, fluttur
út í sérstökum 30 kílóa kössum.
Fiskinum er safnað saman í
húsum á Reykjanesi, Hafnar-
firði og í Reykjavík, en megnið
kemur þó frá Keflavík hf. og
Miðnesi hf. í Sandgerði. Undan-
farið hefur Andri hf. flutt út 6
tonn á viku með áætlunarflugi,
en nú er markaðurinn orðinn
það stór, að nauðsyn var á
auknum flutningamöguleikum.
Þessi markaður hefur verið
byggður upp í 1 ’/i ár, að sögn
forráðamanna Andra, en það er
fyrirtækið La Provincale í Lux-
emborg, sem kaupir fiskinn og
selur hann síðan í Benelux-
löndunum og Frakklandi. Sér-
stök áherzla er lögð á vöruvönd-
un og vonast forráðamenn fyrir-
tækisins til að framhald og
aukning verði á þessum útflutn-
ingi.
Andri hf. hefur fleiri járn í
eldinum og á tæplega viku fara
þrjár fisksendingar til fyrr-
nefndra landa, þ.e. 18 tonn í dag
og að auki fisksendingar með
flugi á þriðjudaginn og síðasta
laugardag. Þá má nefna, að fyrir
síðustu páska sendi fyrirtækið
47 tonn af fiski til Luxemborgar
og Frakklands með vél frá
Cargolux.
í þessu skrifstofuhúsnæði sem
var um 100 ferm. og var mjög dýrt
í leigu, var áður flugumsjón, sem
nú hefur verið flutt til Reykjavík-
ur, flugrekstrarskrifstofa, sem
flytur sem fyrr segir í eigið
húsnæði og geymsla fyrir týnda
muni. Þessu húsnæði verður nú
skilað aftur til Luxair sem rekur
flugvallarbygginguna, að undan-
teknu rými fyrir geymslu og
aðstöðu fyrir starfsfólk sölu-
skrifstofunnar á flugvellinum.
Söluskrifstofa Flugleiða verður
áfram í flugstöðvarbyggingunni
svo sem verið hefur en verður
minnkuð um þriðjung. Þess má
geta að með flutningi þessarar
skrifstofu í eigið húsnæði sparast
15 milljónir á ári.
Á Kennedyflugvelli hefur rými
það sem vöruafgreiðsla félagsins
hefur verið í undanfarin ár verið
leigt til fyrirtækisins Serveair
sem tekur að sér afgreiðslu á frakt
fyrir Flugleiðir og réði jafnframt
hluta starfsfólksins. Við þessa
ráðstöfun lækkar afgreiðslukostn-
aður félagsins verulega. Þá eru
einnig í ráði breytingar á fyrir-
komulagi farþegaafgreiðslu á
Kennedyflugvelli sem miða að
lægri tilkostnaði og sparnaði í
rekstri. Tæki sem notuð voru við
svokallað línuviðhaid verða seld
og bílaverkstæði félagsins hefur
verið lagt niður. Þá munu umsvif
félagsins minnkuð í New York,
Chicago og Washington og í Mi-
ami í Florida.
Þessar ráðstafanir allar eru
gerðar með hliðsjón af minnkandi
sætaframboði félagsins á Norður-
Atlantshafi og þeim stórfelldu
erfiðleikum sem eru á þessum
mörkuðum.
Þess má geta að fyrirspurnir og
bókanir með félaginu að vestan
hafa aukist upp á síðkastið eða
síðan ákveðið var að halda Norð-
ur-Atlantshafsfluginu áfram og
eru nú hlutfallslega svipaðar.og á
sama tíma í fyrra miðað við
sætaframboð.
Þær breytingar sem að ofan er
getið miða allar að aukinni hag-
kvæmni og sparnaði í rekstri.
Stefnt er að því að þjónusta
félagsins við viðskiptavini verði
hin sama og áður, segir að síðustu
í frétt Flugleiða.
Lönduðu
erlendis
VELBÁTURINN Kristján Guð-
mundsson frá Eskifirði seldi 36,1
tonn af ísfiski í Hull í gær fyrir
33.5 milljónir króna, meðalverð
927 krónur. Fiskurinn fór í 1.
flokk. Aðalvík KE seldi 124,1 tonn
í Bremerhaven í fyrradag fyrir
53.5 milljónir króna, meðalverð á
kíló 431 króna. Vigri seldi 202,4
tonn á sama stað í gær og
fyrradag fyrir 36,3 milljónir, með-
alverð 519 krónur.