Morgunblaðið - 07.11.1980, Page 5
5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1980
Prestskosning
í Eyrarbakka-
prestakalli
á sunnudag
SeljatunKa. (laulverjabæjarhreppi.
NÆSTKOMANDI sunnudaK fer
fram prestskosninK í Eyrar-
bakkaprestakalli, en i prestakall-
inu eru þrjár sóknarkirkjur: Eyr-
arbakka-. Stokkseyrar- ojí Gaul-
verjabæjarkirkjur. Umsækiandi
um prestakallið er einn. sr. Ulfar
Guðmundsson sóknarprestur í
Ólafsfirði.
Kjörstaðir verða þrír: í kirkj-
unni á Eyrarbakka, í samkomu-
húsinu Gimli á Stokkseyri og í
félagsheimilinu í Gaulverjabæjar-
sókn, Félagslundi. Kosning hefst
kl. 13 á öllum stöðunum og lýkur
kl. 19 á Eyrarbakka og Stokkseyri
en kl. 18 í Gaulverjabæjarsókn.
Undanfarna sunnudaga hefur
sr. Ulfar messað í sóknarkirkjun-
um þrem. — Gunnar
„Góðra vina fund-
ur“ í kvöld
SÖNGSKÓLINN í Reykjavík
endurtekur miðnæturskemmtun
sína, „Góðra vina fundur", í Há-
skólabíói í kvöld.
Þar koma fram margir af okkar
þekktustu söngvurum og hljóð-
færaleikurum. Sigríður Þorvalds-
dóttir sviðsetti skemmtunina.
Kynnir er Guðmundur Jónsson.
INNLENT
VIKUNA 25. október til 2.
nóvember stóðu Tónlistarskóla-
ráð Norðurlanda og Einleikara-
samband Norðurlanda fyrir
tónlistarhátíð ungra einleikara
frá Norðurlöndunum. Af hálfu
tslands tóku þau Manuela
Wiesler flautuleikari og Einar
Jóhannesson klarinettuleikari
þátt i hátíðinni. en undirleikari
Einars var Anna Málfríður
Sigurðardóttir.
Að dómi gagnrýnenda var
hlutur íslands í þessari tónlist-
arhátíð frábær, en um leik
Einars segir Karl Anz í Berl-
ingske tidende hinn 30. október:
„Einar Jóhannesson sýndi
mikla hæfni í túlkun sinni á
sónötu Poulencs fyrir klarinettu
og píanó. Þetta er frönsk ný-
Einar Jóhannesson
Norræn tónlistarhá-
tið ungra einleikara
klassísk tónlist af léttara taginu,
sem tónlistarmaðurinn gæddi
meiri músíkalskri dýpt en hægt
var að búast við. Afburðatækni
hans var ekkert aðalatriði, held-
ur var henni beitt til að koma
innihaldinu til skila.“
Jan Jacoby segir í Information
sama dag:
„Þá kom fram íslenzki klari-
nettuleikarinn Einar Jóhannes-
son, sem einnig er mjög geðfelld-
ur tónlistarmaður, og stóð Anna
Málfríður Sigurðardóttir honum
fyllilega á sporði með skilnings-
ríkum píanóleik í sónötu eftir
Poulenc. Leikur þeirra reyndi
ekki á hlustendur, heldur var
hann lipur og glæsilegur og bar
vott um ríkan skilning, jafnt á
hlýlegri laglínu sem frjórri tón-
listarsköpun Poulencs. Þetta var
sannarlega áhugaverður tón-
listarflutningur."
Loks segir Hans Voigt í Berl-
ingske tidende 3. nóvember:
Einar Jóhannesson lék A-dúr
konsert Mozarts fyrir klarinettu
með óvenjulega fallegum og
jöfnum tón, göfugri og fágaðri
mótun laglínu og aðdáunar-
verðri listrænni sjálfsögun."
Eins og þegar hefur komið
fram í fréttum hlaut Manuela
Wiesler mikið lof gagnrýnenda
fyrir leik sinn á hátíðinni, en
ætlunin er að efna til slíkra
hátíða með þátttöku ungra nor-
rænna einleikara annað hvert
ár.
Er ánægður með að-
sókn og undirtektir
— segir Bragi Ásgeirsson listmálari um yfirlitssýningu sína
SÝNINGUNNI lauk eiginlega
þegar hún stóð sem hæst og
kannski var það glappaskot að
láta hana ekki standa viku i
viðbót, sagði Bragi Ásgeirsson
listmálari um yfirlitssýningu
sína sem að undanlörnu hefur
staðið yfir á Kjarvalsstöðum, en
henni lauk sl. sunnudagskvöld.
— Það er eiginlega lágmark með
svona stóra sýningu að hún
standi i mánuð, bæði vegna um-
fangs hennar. vinnu við uppsetn-
ingar og vegna þess að fólk vill
gjarnan fá tækifæri til að koma
aftur og varð ég var við að sumir
komu oft.
Á sýningunni voru yfir 300 verk
Braga frá öllum listamannsferli
hans og kvað hann þetta eitt
stærsta framtak einstaklings í
sýningarmálum:
— Ég sleppti samt mörgu úr
grafíkinni, enda þarf kannski sér-
staka sýningu fyrir hana, smærri
sýningu og í sérstöku umhverfi,
helst úti á landi. í einhverjum sal
eins og finna má í Norræna
húsinu, þar eru góð skilyrði fyrir
grafíksýningar.
Ekki kvaðst Bragi hafa á tak-
teinum tölur yfir fjölda sýningar-
gesta, en hluti verkanna var til
sölu og önnur voru í einkaeign.
— Sumt vil ég heldur ekki selja,
það er erfitt að skilja við sum
verkin, þau ætla ég alltaf að eiga
og taka með mér í gröfina. Ég er
ánægður með undirtektir sýn-
ingargesta, þeir voru flestir um
helgar, en aðsókn var minni í
miðri viku. Enda vantar líklega
eitthvað meira til að laða gesti að
Kjarvalsstöðum, kaffistofan
mætti t.d. vera hlýlegri. Annars
átti þessi sýning ekki að vera
svona umfangsmikil, hún bara
þróaðist smám saman upp í það.
Menn voru að koma með myndir
fram á síðustu stundu og fyrstu
vikuna var ég að breyta uppröðun
og dytta að sýningunni og við
urðum að prenta nýja sýn-
ingarskrá vegna þess að villur
voru í henni og ný verk bættust
við.
Hvað tekur svo við?
— Bara vinna og aftur vinna,
eins og Jón Stefánsson sagði
einhvern tíma við mig í Kaup-
mannahöfn, það er um að gera að
vinna og vinna upp á líf og dauða,
annað er einskis virði — og ég tók
hann á orðinu. Ég kenni og skrifa
auk þess sem ég mála, en vildi
gjarnan hvíla mig á kennslunni og
skrifa frekar meira — og mála.
Það er annars gaman að kenna og
mikill lærdómur í því fólginn að
vera innan um ungt fólk. Það er
líka nauðsynlegt fyrir mann á
mínum aldri að hafa fasta
dagskrá. Flestir listamenn hafa
reglulegan vinnutíma og það er
erfitt að vera margskiptur. Það er
hægt meðan maður er ungur, en
þegar við eldumst verður vinnan
að vera markvissari og einfaldari.
Það geta ekki allir stundað þol-
hlaup allt lífið.
— Sem sagt, ég er ánægður með
undirtektir fólks og aðsókn og
viðmót starfsfólksins á Kjarvals-
stöðum var eins gott og hugsast
gat. Þetta er allt mikil vinna og
mikið erfiði og það sem er kannski
einna leiðinlegast er sú fyrirhöfn
að þurfa sjálfur að hafa áhrif á
kynningu og umfjöllun fjölmiðla.
Það þekkist ekki erlendis að lista-
maðurinn sjálfur þurfi að kalla á
fjölmiðla, en hérna er ekki leikinn
sá knattspyrnuleikur að ekki sé
skrifað um hann óumbeðið. Því er
ekki til að dreifa þegar listamenn
eru annars vegar. Enda líki ég því
við knattspyrnu þegar ég var að
undirbúa sýninguna og til mín
leitaði dagblað og bað mig að
skrifa sjálfur eitthvað um sýning-
una. Ég sagði að það væri líkast
því að biðja knattspyrnumann að
skrifa lýsingu á leik um leið og
hann tæki þátt í honum! Hérna
mætti verða einhver bragarbót á.
Hausthappdrætti Sjálfstæðisflokksins:
Opið í kvöld
og um helgina
llausthappdratti Sjálfstæðisflokksins er nú í fullum gangi,
enda verður dregið eftir aðeins 8 daga. Þeir, sem enn eiga ógerð
skil á heimsendum miðum eru hvattir til að gera það hið fyrsta.
Skrifstofa happdrættisins er í Valhöll, Háaleitisbraut 1, og
verður hún opin í kvöld til kl. 22, á morgun kl. 13—18 og á
sunnudag kl. 13.30—17. Skrifstofan sér um að senda miða og
sækja greiðslur, ef óskað er, og síminn er 82900.
Ráðunautur í alifuglarækt
til Búnaðarfélagsins
NÝLEGA er tekinn til starfa hjá
Búnaðarfélagi íslands ráðunautur
í alifuglarækt, Guðmundur Jóns-
son frá Reykjum í Mosfellssveit.
Hann hefur skrifstofu í Bænda-
höllinni og verður þar á þriðjudög-
um og fimmtudögum þar til annað
verður ákveðið, en hér er um hálft
starf að ræða. Guðmundur hefur
undanfarin misseri dvalið við nám
í Skotlandi og er sérgrein hans
fóðurfræði. Alifuglabændur
hyggja gott til samstarfs við
Guðmund og mætir hann á aðal-
fundi Sambands eggjafram-
leiðenda, sem haldinn verður í
Kaffiteríunni Glæsibæ laugardag-
inn 8. nóvember kl. 14.
Barna-
flannelsbuxur
-fóðraðar
Lifir:
Vínrautt/Sæblátt/Rústrautt/
Grátt/Blátt.
Stæröir: 4—14.
Verö frá kr. 17.900,-
Hönnun:
Margrét Sigurðardóttir.
Fást hjá
KARNABÆR
unglingadeild, Austurstræti 22,
simi frá skiptiboröi 85055.
og umboðsmönnum
um land allt.