Morgunblaðið - 07.11.1980, Side 8

Morgunblaðið - 07.11.1980, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1980 Jakob Jakobsson fískifræðingur: „Síldin er viðkvæmari fyrir ofveiði en flest- ir aðrir fiskistofnar“ Jakob Jakobsson Á NORRÆNNI fiskimálaráðstefnu i Gautaborg fyrr í haust flutti Jakob Jakobsson fiskifræðinnur erindi um sildveiðar og síldarstofna í norðaustanverðu Atlantshafi. Fjallaði Jakob um hina ýmsu sildar- stofna og hrun þeirra á þessu svæði og kom víða við. Erindi Jakobs er birt í nýjasta hefti Ægis, rits Fiskifélags íslands. Jakob fjallar m.a. um islenzku sumargotssíldina, þ.e. þá sild sem yfirstandandi síldarvertíð byggist á, og segir hann meðal annars: „Um og uppúr 1960 er stærð hrygningarstofnsins rúm 300 þús- und tonn en fer eftir það ört minnkandi og um 1969 er hrygn- ingarstofninn kominn í u.þ.b. 20 þúsund tonn og helst mjög lágur fram undir 1975. Talið er að nú hafi tekist að endurbyggja þennan stofn þannig að hrygningarstofn- inn sé nú u.þ.b. 200 þúsund tonn. Endurreisn þessa stofns hefur því tekist vonum framar. Kemur þar einkum tvennt til. í fyrsta lagi urðum við fyrir því láni að mjög lítill hrygningarstofn gat af sér tiltölulega stóran árgang árið 1971. í annan stað tryggði veiði- bannið á árunum 1972—1975 -að þessi stóri árgangur fékk að vaxa og hrygna í friði að minnsta kosti einu sinni áður en veiðar hófust. Frá og með 1975 hefur veiðum verið stillt svo í hóf að endurreisn stofnsins hefur getað haldið áfram. Telja verður að endurreisn þessa síldarstofns hljóti að vera klassískt dæmi um þann árangur sem ná má þegar farið er að ráðum vísindamanna en það var gert að því er varðar hámarksafla og síldveiðibann allt frá 1970— 1979. Nú eru þó ýmsar blikur á lofti þar sem íslensk stjórnvöld hafa í ár í fyrsta sinn ekki samþykkt tillögur Hafrannsóknastofnunar um leyfilegan hámarksafla á ís- lenskri sumargotssíld. Þessi af- staða íslenskra stjórnvalda er einkum uggvekjandi vegna þess að sá grunur leikur á að þeir árgang- ar sem bætast munu í stofninn á næstu árum séu ef til vill verulega miklu lakari heldur en árgangarn- ir sem veiðin byggist á um þessar mundir. Hrygningarstofn íslensku sumargotssíldarinnar 1956-1979. Hrygningarstofn Afli Síldv. í Skagerak og Kattegat .............. Norsk-íslenski stofninn íslensk sumargotssíld . íslensk vorgotssíld .... Norðursjávarsíld ...... Venjuleg Stærð Venjulegur Liklegur afli stærð i 1980 i afli í næstu 2-3 ár þús. tonna þús. tonna þús. tonna i þús. tonna 10-50 125 80? 50-70? 3000-10.000 300 1500 30? 200-300 200 60 50 300-500 60 0 1000 300 800 50 Samtals 2500 200 Það er og nöturlegt að um 200 skip fá nú síldveiðileyfi. Hér áður fyrr fóru að vísu um 200 ísl. skip á síld. Þá varð aflinn líka oft mörg hundruð þúsund tonn. Nú á að nota jafnmörg skip til að veiða 1/10 þess sem áður var.“ Með greininni birtir Jakob at- hyglisverða mynd af þróun hrygn- ingarstofns íslenzku sumargots- síldarinnar og fylgir hún hér með. í lokaorðum erindis síns ræddi Jakob Jakobsson um síldarstofn- ana á fyrrnefndu svæði og sagði þá m.a.: „Torfumyndun síldarinnar veld- ur því að aflinn getur haldist mikill og góður enda þótt stofninn minnki ört allt til hinnar siðustu torfu. Minnkandi stofnstærðar verður því ekki vart í minnkandi afla. Þá hefur komið í ljós að hrygningarstofninn verður að vera tiltölulega stór til að geta gegnt hlutverki sínu og getið af sér árganga af eðlilegri stærð. Ef hrygningarstofninn fellur niður fyrir þessi krítísku mörk verður viðkomubrestur eins og dæmin sanna um allt norðanvert eða norðaustanvert Atlantshaf. Gagn- stætt fyrri hugmyndum hefur reynslan sýnt að síldin er við- kvæmari fyrir ofveiði en flestir ef ekki allir aðrir fiskstofnar. Það er af þessum sökum að hámarksaf- rakstri síldarstofna verður því aðeins náð að veiðar séu stundað- ar af mikilli varkárni og byggi á stórum og öflugum hrygningar- stofni. Þessari stefnu virðist erfitt að fylgja, ekki síst vegna þess hve auðveld bráð síldin er hinum tæknivædda fiskveiðiflota nútím- ans.“ Segir Jakob að afleiðingar þeirrar stefnu, sem ríkt hefur, komi fram í meðfylgjandi töflu um ástand og aflahorfur fyrir og eftir hrun síldarstofna í norðaust- anverðu Atlantshafi. Glæsileg afmælishátíð Gagnfræða- skóla Akur- eyrar: Hátíðarsamkoma nemenda. Bæjarstjórnin gaf 1,5 milljónir króna í hljóðfærasjóð skólans Akureyri, 3. núvember. TVEGGJA daga hátíðahöld vegna 50 ára afmælis Gagnfræðaskóla Akureyrar voru hin glæsilegustu og eftirminnileg öllum, sem þátt tóku í þeim. Hátíðin hófst kl. 9 á föstu- dagsmorgun með því að deildir skólans fóru í kennslustofur ásamt umsjónarkennurum sín- um, sem fóru með nemendum sínum yfir ágrip af sögu skól- ans, sem tveir kennarar höfðu tekið saman og birtist í skóla- blaðinu Frosta, sem kom ein- mitt út þá um morguninn. Ýmis atriði, svo sem endurminningar fyrrverandi nemenda, voru flutt af segulbandi. Kl. 10.50 voru bornar fram veitingar í hverri stofu, rjómakaka og gosdrykk- ur, en eftir að þess glaðnings hafði verið neytt, fóru nemend- ur og kennarar í samkomusal skólans eftir því sern rúm leyfði þar, en aðrir fóru i næstu kennslustofur og fylgdust þar með því í litasjónvarpstækjum, sem fram fór á sviðinu í saln- um. Þar voru fluttir leikþættir um skólalífið fyrr og nú, leik- fimiflokkar sýndu og skólakór- inn söng. Þessari dagskrá lauk um hádegi. Á laugardagsmorgun kl. 10.30 var afhjúpuð minningartafla um stofnun skólans og starf hans fyrstu 13 árin á vegg hússins Lundargötu 12. Sverrir Pálsson skólastjóri flutti ávarp, en Þórhalla Þorsteinsdóttir af- hjúpaði minningartöfluna. Hátíðarsamkoma hófst svo í sal skólans kl. 14.00, og þar voru saman komnir um 230 gestir. Stigar og gangar skólans höfðu verið skreyttir myndverkum eftir nemendur. Samkoman (Ljósm. Sv.P.) Endurfundir skólasystkina eftir 50 ár. nemendur. sem innrituðust I UaKnfræðaskóla Akureyrar haustið 1930. Frá vinstri í fremri röð: Si^ríður Gisladóttir, Guðbjort? Bj. Reykjalin, Mar«rét HallKrimsdóttir, SvanborK M. Sveinsdóttir. HelKa S. IlallKrimsdóttir. Aftari röð: Jón Kristinsson. Lára Halldórsdóttir, Stefán Reykjalín. Guðrún Þorsteinsdóttir, Kjartan Ólafsson. Páll HeÍKason. hófst með ávarpi Þuríðar Sig- urðardóttur, formanns nem- endaráðs GA, en síðan var flutt sama skemmtidagskrá og dag- inn áður. Þá flutti skólastjóri hátíðarræðu, en að henni íok- inni voru flutt ávörp gesta. Valgarður Baldvinsson, bæj- arritari, flutti kveðjur bæjar- stjórnar Akureyrar og afhenti frá henni 1,5 millj. króna í hljóðfærasjóð skólans. Sigurður Óli Brynjólfsson flutti kveðjur og heillaóskir skólanefndar Ák- ureyrar, og Stefán Reykjalín talaði af hálfu þeirra nemenda skólans, sern fyrstir hófu við hann nám haustið 1930, en 11 þeirra voru viðstaddir hátíða- höldin. Einnig fluttu ræður þeir Tryggvi Gíslason, skólameistari Menntaskólans á Akureyri, og Aðalgeir Pálsson, skólastjóri Iðnskólans á Akureyri. Skóla- stjóri þakkaði gjafir og árnað- aróskir og las síðan kveðjur og skeyti, sem borist höfðu. Meðal annars gaf Jónborg Þorsteins- dóttir, fyrrum húsvörður, tvo forkunnarfagra kertastjaka. Einnig bárust margar blóma- körfur. Kynnir á samkomunni var Berglind Rafnsdóttir, nem- andi í 9. bekk. Eftir samkomuna var öllum viðstöddun boðið upp á kaffi og kökur á efstu hæð skólans. Þar gátu menn einnig horft á öll dagskráratriði og viðburði há- tíðarinnar í sjónvarpstæki, en allt slíkt hafði verið tekið á myndsegulband af starfs- mönnum Akurvíkur hf. Nem- endur 2. og 3. bekkjar fram- haldsdeilda önnuðust frammi- stöðu klæddir kjólfötum eða einkennisbúningum veitinga- þjóna. Dansleikur fyrir nemendur og kennara hófst svo kl. 21.00 og stóð til kl. 03 um nóttina. Þar voru rúmlega 400 manns og dönsuðu og skemmtu sér af hjartans lyst, svo að þar bar engan skugga á. Jódís

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.