Morgunblaðið - 07.11.1980, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1980
Kosygin úr
stjórnmála-
ráðinu
Moskvu. 5. nóvember. AP.
MYNDIR af Alexei Kosygin,
fyrrum forsætisráðherra Sovét-
ríkjanna. voru ekki hengdar upp
á götum Moskvu eins ok vani er
um myndir af meðlimum stjórn-
máiaráðsins. Myndir af Brezhnev
ok 13 öðrum meðlimum ráðsins
voru hen^dar upp á götum
Moskvu í daK- Þetta hefur komið
af stað orðrómi um, að Kosygin
hafi verið vikið úr stjórnmáiaráð-
inu en engin opinber tilkynninK
hefur verið gefin út þar að
lútandi.
Sovétmenn minnast afmælis
byltingarinnar á föstudag. Og
venju samkvæmt voru myndir af
meðiimum stjórnmálaráðsins
hengdar upp. Kosygin lét fyrir
skömmu af störfum forsætisráð-
herra Sovétríkjanna. Ekki hefur
sést opinberlega til Kosygins síð-
an Ólympíuleikunum var slitið í
ágúst síðastliðnum.
Opna
landamæri
til vöru-
flutninga
Tel Aviv, 7. nóvember. AP.
ISRAELAR og Egyptar gerðu i
dag samkomulag um að opna
landamæri rikjanna fyrir vöru-
flutningum á landi 15. desem-
ber næstkomandi. Samkomu-
lagið er í raun I samræmi við
friðarsáttmála þann sem rikin
tvö undirrituðu i marz 1979.
Samkvæmt samkomulaginu
verður nokkurs konar umskipun-
arstöð fyrir vörur í E1 Arish á
Miðjarðarhafsströnd Sínaí eyði-
merkurinnar. Þar verður vör-
unni skipað um borð í vöruflutn-
ingabifreiðir frá áfangaríkjum
vörunnar. Smávegis hefur verið
flutt af vörum milli ísrael og
Egyptalands í lofti og á sjó. Um
eitt þúsund manns ferðast milli
iandanna tveggja á hverjum
degi.
Veður
víða um heim
Akureyri
Amsterdam
Aþena
Berlín
Brttssel
Chícago
Feneyjar
Frankfurt
Færeyjar
Genf
Helsinki
Jerúsalem
Lissabon
London
Los Angeles
Madrid
Malaga
Mallorca
Miami
Moskvá
New York
Osló
Paris
Reykjavík
Rió de Janeird
Rómaborg
Stokkhólmur
Tel Aviv
Tókýó
Vancouver
Vinarborg
4 léttskýjaó
2 skýjaó
24 skýjaó
1 skýjað
3 skýjað
9 skýjað
8 skýjað
0 akýjað
7 alskýjað
2 þokumóða
% skýjað
heiðskírt
heiöskirt
heiöskírt
léttskýjaö
14 heiðskírt
6 rigning
20 skýjað
9 *kýjaý .
15 rigníng 1
15 heiðskirt
26 heiöakírt
0 skýjað
12 heiðskírt
8 léttskýjað
1 skýjað
8 alskýjað
32 skýjað
20 rigning
4 léttskýjað
25 heiðskírt
21 heiðskírt
i&L
23
Jóhannesarborg 27
Kaupmannahðfn 4
Las Palmas 23
AP-Slmamynd
Málinu vísað til
áfrýjunarréttar
Walter Polovchak, 13 ára gamli úkraínski drengurinn, sem
beðið hefur um pólitískt hæli í Bandaríkjunum, sést hér á leið
til réttarins með lögfræðingum sínum. Máli hans var í gær
vísað til áfrýjunarréttar vegna þess, að það hafði ekki verið
leitt til lykta á þremur mánuðum eins og tilskilið hafði verið.
Kosningarnar í Bandaríkjunum 4. nóv. 1980
Úrslitum fagnað
í Suður-Ameríku
Moskvu, Tókýó, Peking, 7. nóvember. AP.
LEONID Brezhnev forseti Sovét-
rikjanna sendi Ronald Reagan
nýkjörnum forseta Bandarfkj-
anna heiilaóskaskeyti i dag, þar
sem hann lét i ljós vonir um að
Mondale
hættir ekki
St.Paul, Minnesuta. AP.
WALTER MONDALE varaforseti
gaf í skyn í dag, að stjórnmálaferli
hans væri ekki lokið, þrátt fyrir
ósigur hans og Carters forseta.
Mondale sagði ' stuðnings-
mönnum sínum að halda áfram að
berjast fyrir mannréttindum, tak-
mörkun vígbúnaðar, friði og um-
hverfismálum.
„Fyrir þann málstað lofa ég að
berjast aftur með ykkur," sagði
hann.
Hann sagði «einnig stuðnings-
mönnum frá ráðleggingu, sem
hann fékk frá Hubert heitnum
Humphrey fyrir 12 árum. Hum-
phrey sagði þegar hann var að
semja ræðu þar sem hann játaði
ósigur sinn fyrir Richard Nixon:
„Það verður að gera þetta almenni-
Sega, því að þetta er /yrsta ræðan í
næstu kosningabaráttu minni."
næsta stjórn Bandarikjanna
sýndi raunhafan viija til að við-
halda friði og jafnvægi i heints-
málum, og i ræðu sem Nikolai
Tikhonov utanríkisráðherra hélt í
dag við hátíðahöld. i tilefni þess
að 63 ár eru liðin frá Októberbylt-
ingunni. lögðu Sovétmenn
áherzlu á friðsamlega sambúð
stórveldanna tveggja.
Fréttaskýrendur gerðu sér mat '
úr því að þáverandi forseti Sovét-
ríkjanna, Nikolai V. Podgorny,
hefði sent Jimmy Carter, þá ný-
kjörnum forseta, hlýlegra og
lengra skeyti en Brezhnev sendi
Reagan nú.
Dagblað alþýðunnar í Kína,
málgagn kinverska kommúnista-
flokksins, sagði í dag, að Ronald
Reagan væri í raun og veru
hófsamur og varfærinn stjórn-
málamaður og raunsær. Hann
hefði fyrir löngu látið af þeirri
stefnu sinni að Bandaríkin ættu að
endurnýja stjórnmálasamhand sitt
við Formósu, og væri nú hlynntari
því að tengsl Bandaríkjanna og
Kína yrðu efld og treyst. Blaðið
sagði, að hann hefði breytt um
afstöðu til Formósu er á leið
21 kona
á þingi
WashiiiKtnn. 7. nóvember. AP.
KONUR munu skipa 21 sæti á
þingi er 97. löggjafarþing Banda-
ríkjanna kemur saman í janúar
næstkomandi, og eru það fleiri
konur en áður. Á síðasta þingi sat
ein kona í öldungadeildinni og
sextán í fulltrúadeildinni.
kosningabaráttuna, er sýndi „að
hann væri sveigjanlegur og fær um
að geta breytt háttum sínum og
óskum í samræmi við raunveru-
leikann".
Háttsettur embættismaður í
utanríkisráðuneytinu í Tókýó lét
svo um mælt í dag, að japanskir
leiðtogar sætu nú á rökstólum og
hefðu í hyggju að heimsækja
Washington sem fyrst eftir að
Reagan verður settur í embætti til
viðræðna og samninga um við-
skipti og samvinnu á sviði öryggis-
mála.
Víðast hvar í ríkjum Suður-
Ameríku var kjöri Reagans fagnað
í dag, en í þessum ríkjum sitja
herforingjar víða að völdum. Þeir
fögnuðu því að þurfa ekki að eiga
von á aðfinnslum á sviði mannrétt-
indamála, eins og átt hafði sér stað
í tíð Carters, sem fann margt að í
þeim efnum.
Lokatölur:
Rúinlega átta millj-
óna atkvæða munur
Washinxton. B. nóvember. AP. «
ENDANLEG úrslit í bandarísku
forsetakosningunum urðu þau, að
Carter forseti hlaut 34.913.332
atkvæði, eða 41 af hundraði
greiddrá atkvæða. Hann bar sigur *
úr býtum í sjö fylkjum og hlaut 49
kjörmenn. Reagan hlaut 43.201.220 .
atkvæði, eða 51 af hupdraði
greiddra atkvæða. Hann sigraði í
44 fylkjum og hlaut 489 kjörmenn.
Anderson vann ekkert fylki og
engan kjörmann, . en hlaut
5.581.379 atkvæði, eða sjö' af
hundraði greiddra atkvæða. Til að
bera sigur úr býtum í kosningun-
um þurfti frambjóðandi að hljóta
270 kjörmenn, en þeir eru samtals
538.
Úrslit eru kunn í kosningum til
öldungadeildarinnar í Arkansas
og Vermont. í Arizona sigraði,
Barry Goldwater', hlaut 50 af
hundraði atkvæða, en demókrati
að náfni Schulz hlaut 49 af
hundraði atkvæða. Dcmókrati
sigraði hins vegar í Vermont,
^eahy, sem hlaut 51 af hundraði
atkvæða, eða 2.500 fleiri atkvæði
en repúblikaninn Ledbetter, sem
hlaut 49 af hundraði atkvæða. Alls
hafa því repúblikanar 52 fulltrúa í
öldungadeildinni og demókratar
47. Urslit kosninga til fulltrúa-
deildarinnar urðu þau, að demó-
kratar töpuðu 33 mönnum, en
halda áfram meirihluta, eiga 243
fulltfúa á móti 192 fulltrúum
repúblikana, sem bjettu við sig 33
„fulltrúum..
Þá voru kjörnir 13 /ylkisstjórar
um leið og forsetakosningarnar
fóru fram. Repúblikanar unnu sjö
dg demókratar sex:
tt
' %